Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 FRÉTTIR Í gegnum tíðina hefur reglulega kom- ið upp umræða um það þegar ungar stúlkur sem leiðst hafa út í fíkniefna- neyslu komast í slagtog við fullorðna karlmenn sem eru „háttsettir“ í undir- heimunum. Heimildarmenn DV sem starfa innan meðferðargeirans segja að þessum málum hafi fjölgað síð- ustu misseri. Neyslan sé orðin meiri og stúlkurnar fari mun hraðar í harð- ari neyslu þegar þær lendi í klónum á þessum mönnum. Tók sjálfur þátt Maður á fertugsaldri sem var lengi í mikilli fíkniefnaneyslu en er edrú í dag segir það óhugnanlegt að horfa upp á þessar ungu stúlkur í dag með mönn- um sem eru jafnvel meira en helm- ingi eldri en þær sjálfar. „Þegar mað- ur var í þessum heimi hér áður fyrr þá tók maður ekki eftir þessum stelpum – maður tók þátt í því að leika sér að þeim og henti þeim þegar það var hætt að vera gaman. En núna, þegar mað- ur er orðinn edrú, þá sér maður þessa gaura með sextán til átján ára gamlar stelpur í eftirdragi. Þegar ég var ungur voru þær kallaðar pokahórur.“ Stanslaus partí Það er sama hvar stungið er niður – á öllum stigum meðferðarkerfisins horfa starfsmenn á þessa þróun með hryllingi. Starfsmaður félagsþjón- ustu á höfuðborgarsvæðinu segir að slík mál komi reglulega upp og það sé mjög erfitt að taka á þeim. „Við verð- um að átta okkur á því að stúlkurn- ar eru ástfangnar upp fyrir haus og sjá ekki sólina fyrir þessum mönnum sem hafa upp á svo mikið að bjóða að þeirra mati. Þeir búa í fínum íbúðum eða jafnvel húsum, hafa fullt af ung- um strákum í kringum sig sem gera allt sem þeir segja og það er allt fljót- andi í fíkniefnum í kringum þá sem stúlkan fær óheftan aðgang að. Það eru stanslaus partí og lífið gengur út á það að skemmta sér með þessum hópi manna sem stunda mikla fíkni- efnaneyslu og glæpi. Stelpurnar sjá þennan heim í hillingum og finnst þær vera partur af þessum heimi. Þær átta sig ekki á því að það er verið að nota þær og áfallið sem þær verða fyrir þeg- ar þessir menn losa sig við þær verður mjög mikið. Þá eru það fíkniefnin sem þær leita í og fara til næsta manns sem nýtir sér ástandið.“ Brengluð sjálfsmynd Afleiðingarnar eru vægast sagt hrika- legar; sjálfsmynd stúlknanna brytjast niður og þær eiga erfitt með að horfa á fortíðina og hvað þær hafa gengið í gegnum. Einn heimildarmanna DV úr meðferðarkerfinu segir að erfitt sé að vinna með stúlkurnar sem lenda í klóm þessara manna. „Þetta er heimur þar sem allt er falt fyrir peninga og föt,“ segir heimildarmaðurinn og bendir á að stúlkur sem eru þrettán til fjór- tán ára séu óþroskaðar andlega þótt líkami þeirra sé á við átján til tuttugu ára stúlkna. „Þegar þessir menn draga stelpurnar inn í tískuvöruverslanir til að kaupa á þær föt og gefa þeim einn- ig peninga og dóp þá er mótstaðan mjög lítil. Þær festast fljótt í netinu og gera allt sem þessir menn segja þeim að gera. Það er mikið um nauðganir á þessum stúlkum sem þær segja ekki frá vegna hræðslu og skammar. Þeim er hent á milli manna sem nota þær á kynferðislegan hátt sér til skemmtun- ar.“ Verða fljótt aftur börn Að mati þeirra sem starfa í meðferðar- geiranum er mjög erfitt að ná stúlk- unum út úr þessum vítahring þar sem fullorðnir karlmenn, jafnvel heilmingi eldri en þær sjálfar, stjórna lífi þeirra með peningagjöfum, dópi, fötum og stundum húsaskjóli. „Þess- ar stelpur halda að þær séu orðnar 25 ára og mjög þroskaðar. Á stuttum tíma hefur verið komið fram við þær eins og fullorðnar konur – þær upp- lifa sig þannig. Þegar þær svo koma í meðferð þarf að ná þeim niður á jörð- ina – og það gerist furðu fljótt að þær verða aftur börn, en þá með mjög laskaða sjálfsmynd,“ segir heimildar- maður sem hefur unnið lengi í með- ferðarmálum. „Þetta er ekkert annað en alvarleg misnotkun, bæði líkamleg og andleg, á stúlkum sem eru enn þá börn. Þeg- ar þær átta sig á hvað gerst hefur og hvað gert hefur verið við þær þá eiga þær mjög erfitt með að „feisa“ sjálf- ar sig. Það getur verið mjög erfitt að vinna með þeim að því að sleppa frá fortíðinni. Þær hafa séð ótrúlega ljóta hluti á stuttum tíma og sjálfar upplif- að hluta af þeim.“ Stanslaust áreiti Foreldrar stúlknanna standa ráða- lausir og geta lítið sem ekkert gert. Stúlkurnar sjá þessa menn sem þeirra einu sönnu ást og gera allt til að halda í þá von og trú að þeir séu mennirnir í lífi þeirra. „Þessar stelp- ur eru ekki látnar í friði af þessum mönnum, jafnvel ekki þótt þeir séu í fangelsi. Þær fá skilaboð í gegnum Facebook frá þessum mönnum og þeir birtast jafnvel heima hjá þeim, hringja í þær og bíða í BMW-inum fyrir utan heimilið og þær hlaupa út,“ segir einn heimildarmanna DV úr barnaverndarkerfinu. Hringt í foreldra Þetta hefur alltaf verið viðloðandi fíkniefnaheiminn að mati karlmanns sem hefur verið edrú um nokkurra ára skeið. „Ég sá gullfallegar stelp- ur inni í einhverjum dópholum með mönnum sem voru ógeðslegir og miklu eldri en þær sjálfar. Þessar stelpur horfðu á mennina með aðdá- un í augunum því þeir sáu þeim fyrir dópi og þær voru tilbúnar til að gera nánast hvað sem er fyrir það,“ segir maðurinn en lögreglumenn sem DV hefur rætt við segja það koma fyrir að stúlkur allt niður í fimmtán ára finn- ist í aðgerðum lögreglu. „Við tökum þá stúlkurnar og færum þær niður á stöð. Þaðan er hringt í foreldra sem koma þá og ná í þær. Það er lítið ann- að sem við getum gert.“ Óþroskaðir menn Mennirnir sem leggja snörur sínar fyrir þessar ungu stúlkur eru sjálf- ir óþroskaðir vegna fíkniefnaneyslu um margra ára skeið að mati fólks sem hefur komið að vímuefnameð- ferð þeirra. „Þessir menn hafa oft- ast staðnað í þroska vegna mikillar fíkniefnaneyslu. Þeir sækjast í ungar stelpur sem þeir geta stjórnað algjör- lega og sækjast í félagsskap fólks sem er í neyslu. Það segir sig sjálft að þeir umgangast ekki mikið fólk sem er að standa sig í lífinu,“ segir heimildar- maður DV úr meðferðargeiranum. Fara langt niður „Ég hef séð stelpur sem hafa ver- ið með þessum eldri mönnum sem þykjast vera rosa stórir karlar eyði- leggjast á mjög stuttum tíma. Þegar ég var í þessum heimi fyrir nokkrum árum þá var þeim hent á milli manna og þær fóru alltaf neðar og neðar í bæði neyslu og umhverfi. Að lokum voru þær komnar alveg í svaðið,“ seg- ir maður á fertugsaldri sem er edrú í dag. UNGAR STÚLKUR Í GÍSLINGU Mörg dæmi eru um að ungar stúlkur allt niður í 13 ára hafi verið veiddar í net eldri manna sem eru á kafi í fíkniefnaneyslu og glæpum. Meðferðaraðilar standa ráðþrota gagnvart vanda- málinu og segjast horfa á eftir stúlkunum í „gin ljónsins“. JÓHANNES KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Þetta er ekkert annað en alvarleg misnotkun, bæði líkamleg og andleg, á stúlkum sem eru enn þá börn.Í gíslingu Afleiðingarnar eru mjög alvarlegar fyrir stúlkur sem festast í neti fullorðinna karlmanna sem nýta sér þær á allan máta. Með þeim kynnast stúlkurnar harðari heimi fíkniefnanna. SVIÐSETT MYND RÓBERT REYNISSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.