Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 48
THE SUN MEÐ SÉRÚTGÁFU Breska dagblaðið The Sun sem er í eigu Mur-
doch-fjölmiðlaveldisins kemur fyrir almenningssjónir í sérstakri þrívíddarútgáfu
fimmta júní næstkomandi. Með blaðinu fylgja sérstök þrívíddargleraugu og
innviðir þess munu státa af þrívíddarljósmyndum, þrívíddarauglýsingum og
sérstakri þrívíddar-leikjatöflu fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta. The Sun er
frekar þekkt fyrir myndir af berbrjósta kvenfólki en tækniundrum en ástæð-
una fyrir þessari sérútgáfu blaðsins má líklega rekja til þrívíddarútsendinga Sky
Sports sjónvarpsstöðvarinnar sem einnig er í eigu Murdoch.
Hinar ótrúlegu vinsældir iPhone-
snjallsímans hafa skilað Apple-fyr-
irtækinu methagnaði undanfarna
mánuði. Á fyrsta ársfjórðungi tókst
fyrirtækinu að fara fram úr öllum
væntingum markaðsgreinenda á Wall
Street og seldi hátt í níu milljónir
iPhone-síma. Þetta er um 131% aukn-
ing frá sama tímabili í fyrra og hagn-
aður fyrirtækisins jókst frá 1,6 millj-
örðum í 3 milljarða Bandaríkjadala.
Heildarvelta fyrirtækisins á tímabil-
inu var 13,5 milljarðar dala og sagði
Steve Jobs, framkvæmdastjóri Apple,
að þetta væri besti ársfjórðungur (fyr-
ir utan jólasölu) í 34 ára sögu fyrirtæk-
isins. Sala á Apple-tölvum jókst einn-
ig eða um 33% á tímabilinu. Ástæða
hinnar miklu aukningar í sölu iPhone-
símans er að sögn fyrirtækisins að
hluta til vegna nýrra sölusamninga við
átta stór fjarskiptafyrirtæki víðsvegar
um heiminn.
Apple-fyrirtækið hefur birt ótrúlegar rekstrartölur fyrir fyrsta ársfjórðung 2010:
HAGNAÐUR APPLE ALDREI MEIRI
HEWLETT-PACK-
ARD KAUPIR PALM
Hewlett-Packard eða HP eins og
nafn fyrirtækisins er betur þekkt
meðal almennings hefur keypt Palm
snjallsíma-framleiðandann fyrir um
einn milljarð Bandaríkjadala.
Fyrirtækið vonast til þess að með
kaupunum takist því að ná bita af
snjallsíma- og smátölvumarkaðin-
um en einn stærsti kosturinn við
kaupin er að HP hefur nú eignast
WebOs stýrikerfið frá Palm.
iPad-tölva Apple-fyrirtækisins gæti
því fengið harða samkeppni áður en
langt um líður ef HP hyggst nýta sér
stýrikerfið í álíka smátölvu.
ÞRÍVÍDD FYRIR
BOLTANN Í SUMAR
Samsung hefur hleypt af stokkunum
auglýsingaherferð í Bretlandi fyrir
þrívíddarsjónvörp en samkvæmt
heimildum eyddi fyrirtækið rúmlega
einum og hálfum milljarði íslenskra
króna í herferðina. Talið er að Sony,
LG og Panasonic fylgi í kjölfarið með
álíka herferðum og reyni að laða
almenning til kaupa á þrívíddarsjón-
vörpum næstu vikur með skírskotun
til heimsmeistarakeppninnar í
fótbolta sem haldin verður í
Suður-Afríku í júní. Alþjóða
knattspyrnusambandið (FIFA) hefur
þegar tilkynnt að 25 leikir keppninn-
ar verði sendir út í þrívídd.
VÉLBÚNAÐARUPP-
FÆRSLA FYRIR
KINDLE
Amazon mun senda frá sér
vélbúnaðaruppfærslu fyrir
Kindle-lestölvurnar í maímánuði.
Uppfærslan mun gera notendum
kleift að deila hluta bókar með
Facebook- og Twitter-vinum,
skipuleggja bækur í einn eða fleiri
flokka innan safnins og nýta sér
svokallaðan „pan and zoom“
eiginleika fyrir pdf-skjöl en þá getur
notandinn stækkað hluta skjalsins
og fært til eftir hentugleikum, sem er
hentugt til að geta greint smátt letur
eða skoða nánar töflur, gröf og aðra
grafík.
UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is
Windows Live Wave 4 frá Micros-
oft mun brátt koma fyrir almenn-
ingssjónir í tilraunaútgáfu (beta).
Live Wave 4 verður aðeins hægt að
keyra á nýrri stýrikerfum Micros-
oft, Windows Vista og Windows 7
en stuðningur við XP verður ekki til
staðar. Microsoft hefur einnig upp-
lýst að verið sé að þróa sérútgáfur
Live Wave 4 fyrir Windows Phone
7, Apple iPhone, RIM BlackBerry og
Nokia en gamla Windows Mobile
stýrikerfið mun ekki geta stutt þessa
útgáfu.
Messenger
Windows Live Messenger, sem er
sjálfsagt vinsælasti hluti Live Wave,
byggist í þessari nýju útgáfu með-
al annars á samhæfni við vinsæl-
ar samskiptasíður. Til að byrja með
verður hægt að tengja forritið við
Facebook, MySpace og LinkedIn
en öðrum samskiptasíðum verður
bætt við síðar. Þetta þýðir til dæmis
að ef notandinn svarar skilaboðum í
Messenger frá Facebook munu þau
birtast samstundis inni á Facebook.
Einnig er verið að þróa beina teng-
ingu við hið innbyggða spjall á Fac-
ebook en ekki er vitað enn hvort það
verði til staðar í tilraunaútgáfunni.
Nýja útgáfan býður að auki upp
á svokallað flipa-spjall (tabbed con-
versations) en þá er hægt að spjalla
við fleiri en einn í sama glugga,
myndspjall í HD-gæðum og inn-
byggða Bing-vefleitarvél.
Útvalinn hópur hefur þegar
fengið tilraunaútgáfu Live Wave 4 í
hendurnar til prófunar og innan tíð-
ar mun Microsoft gera almenningi
kleift að sækja þessa tilraunaútgáfu
af vefsíðu fyrirtækisins.
48 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010
Microsoft er að leggja lokahönd á Windows Live Wave 4 hugbúnaðarpakkann en í hon-
um má meðal annars finna hið geysivinsæla spjallforrit Live Messenger.
STYTTIST Í WIND-
OWS LIVE WAVE 4