Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 HELGARBLAÐ
Viðurkenndar
stuðningshlífar
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Úrval af stuðningshlífum
og spelkum fyrir ökkla.
Góðar lausnir fyrir þá sem
hafa tognað eða eru með
óstöðugan ökkla.
• Veita einstakan stuðning
• Góð öndun
• Henta vel til íþróttaiðkunar
Nylon-flokkurinn tók upp nafnið The Charlies fyrir fyrirhugaða innrás á Ameríku-
markað. Í kjölfarið fundu þær svo nöfn á sig sjálfar; Steinunn Camilla varð Camilla
Stones, Klara Elíasdóttir varð Klara Elias og Alma Guðmundsdóttir varð Alma
Goodman. DV beitti „Nylon-reglunni“ á nöfn nokkurra þekktra Íslendinga.
MEIKNÖFN
Í AMERÍKU
Pétur Jóhann Sigfússon
PETER
YOHAN
Leiðin hefur nú þegar
verið troðin fyrir
Pétur Jóhann. Það
gerði Jóhanna
Guðrún þegar hún
tók upp nafnið
Yohanna. Það ligg-
ur því beint við að
Pétur verði einfaldega
Peter Yohan.
Össur Skarphéðinsson
OZZY
SHARP
Össur Skarphéðinsson hefur eflaust þurft
að þola ýmsar vitlausar útgáfur af nafni
sínu á ferðalögum um heiminn sem
utanríkisráðherra. Hann þarf ekki að
örvænta því DV hefur fundið fyrir hann
nafn sem hann getur
tekið upp nú þegar.
Hann fengi lánað
gælunafn rokkarans
heimsfræga Ozzy
Osbourne og
Skarphéðinsson
yrði einfaldlega
Sharp.
Hreimur Heimisson
HOMER
ACCENT
Hreimur og félagar í Landi og sonum
reyndu fyrir sér á erlendri grund á sínum
tíma með nafninu Shooting blanks.
Kannski vantaði að meðlimir sveitarinnar
finndu sér nýtt nafn líka.
Það liggur í augum
uppi að Hreimur
fengi nafnið
Homer Accent þar
sem Heimir yrði
Homer og Accent
er bein þýðing á
nafni hans. Það yrði
svo beitt Steinunnarregl-
unni og nöfnunum svissað. Bubbi Morthens
BUBBA
MORTHENS
Það yrði ekki flókið fyrir Bubba að
markaðssetja sig vestra. Hann
þyrfti bara að skipta út einum
staf. Þetta er nánast sama nafnið.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
DISA
GUN
Tímaritið Com-
plex gaf Ásdísi
nafnið Ass-dis
eða Rassdís á
sínum tíma. Þó
afturendi fyrirsæt-
unnar sé glæsilegur
á hún skilið virðulegra nafn og
kom Disa Gun upp úr hattinum.
Grjóthart og á vel við Ásdísi sem
fer ávallt sínar eigin leiðir.
Steingrímur J. Sigfússon
STONEMASK
J. FUSION
Frjálsleg þýðing á nafni fjármálaráðherr-
ans. Ef hann stefndi á sigra í Vestur-
heimi með þessu nafni er spurning
hvort hann ætti ekki að stefna beint
í Wrestling með Hulk Hogan og
félögum.
Halla Vilhjálmsdóttir
HATLA
WILLIAMS
Halla sá um að finna sitt nafn
sjálf og þurfti hvorki hjálp frá
Nylon-reglunni né DV.
Ágústa Eva Erlendsdóttir
EVA
AUGUST
Steinunnarreglunni
er hér beitt enn
og aftur og með
góðum árangri.
Ágústa Eva er
með tilvalið nafn
fyrir Ameríkumeik
en Eva August ætti
að hljóma vel í eyrum
hins enskumælandi manns.
Nína Dögg Filippusdóttir
NINA
DEW
Ekki flókið. Einfalt
og virkar. Nína
Dögg verður
einfaldlega Nina
Dew. Enda fersk
eins og morgun-
döggin.
Bjartmar Guðlaugsson
BRIGHT
GOODPOOL
Kannski er ekki mikil von til þess
að Bjartmar reyni að slá í gegn
erlendis úr því sem komið er
þar sem nokkuð er liðið síðan
frægðarsól hans reis hæst. En ef
hann slær til þarf ekki að hugsa
lengi til að detta niður á lista-
mannsnafnið Bright Goodpool.
Svala Björgvinsdóttir
COOLIA BO
Hin gullfallega dóttir Bo Halldórs
er reyndar nú þegar í miðri
meiktilraun í Bandaríkjunum
með hljómsveit sinni Steed Lord
þar sem hún notast við nafnið
Svala Kali. DV er sannfært um að
ef Svala myndi skipta yfir í nafnið
Coolia Bo myndi vegurinn til frægðar
og frama verða beinni og breiðari. Svo
ekki sé talað um ef Coolia hefði orðið til í
fyrri meiktilraun Svölu sem sólótónlistar-
maður fyrir nokkrum árum.
Laddi
LADDY
Hið íslenska listamanns-
nafn Þórhalls Sigurðs-
sonar er svo gott að
ekki er nauðsynlegt
hnika þar miklu til.
Skella bara „y“ aftast
í staðinn fyrir „i“ og
Laddy is good to go.
Ef Halli bróðir ætlar að
fylgja með yrði það auðvitað
bara Hally and Laddy.
Hilmir Snær Guðnason
FROSTY
KING
Leikarinn vinsæli Hilmir Snær gæti
tekið upp hið volduga nafn Frosty
King. Þar er notast við víxlunina sem
Camilla Stones gerði í sköpun síns
nafns. Eins og margir vita, að minnsta
kosti Lord of the
Rings-aðdá-
endur, þýðir
nafnið Hilmir
konungur.
Davíð Oddsson
DAVID
SPEARS
Strangt til tekið væri
réttara að hafa
seinna nafnið
„spearhead“
sem þýðir
spjótsoddur. En
DV telur líklegra
til vinsælda að
nota Spears-nafnið
í ljósi þess hve þekkt Spears-ættin er í
bandaríska skemmtanaiðnaðinum.
Björgólfur Thor
BEOWULF
THOR
Þeir eru allavega pínu áþekkir í vextinum, Beowulf
og Björgólfur, hvað sem líður öðrum líkindum.
Orðið á götunni fyrir einhverjum mánuðum var að Björgólfur tæki
200 kíló í bekkpressu. Eðlilega drógu margir það í efa, en Beowulf
myndi klárlega púlla það. Eins og útrásarvíkingurinn fallni myndi
púlla meikið ef hann tæki upp þetta nafn í Ameríkumeiki.
Pálmi Haraldsson
PALMER FONS
Ef útrásarvíkingurinn Pálmi, kenndur við Fons, myndi vilja reyna
meikið væri líklega farsælast fyrir hann að reyna við kvikmynda-
heiminn. Og hlutverk vonda karlsins myndi sennilega henta honum
best. Gísli Örn, Magnús Scheving og Gunnar Hansen gætu kannski
gefið Palmer Fons nokkur tips áður en lagt væri í hann vestur.