Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Síða 16
16 erlent 28. júní 2010 mánudagur
Skjaldbökur í útrýmingarhættu og
önnur sjávardýr hafa lokast inni á 800
ferkílómetra eldsvæðum þar sem þau
brenna lifandi, í aðgerðum sem ætl-
að er að hamla útbreiðslu olíu úr bor-
holu BP í Mexíkóflóa. Þetta var staðfest
af ríkisstjórn Bandaríkjanna fyrir helgi
og hafa aðfarirnar vakið mikla reiði á
meðal umhverfissinna og gætu jafnvel
orðið tilefni nýrra lagalegra átaka.
Bandaríkjastjórn sagði að BP-olíu-
fyrirtækið hefði fengið um það fyrir-
mæli að forðast skjaldbökurnar og
sagði talsmaður ríkisstofnunarinnar
National Oceanic and Atmospheric
Administration (NOAA) að þeim hefði
skilist að athuga ætti dýralíf á eldsvæð-
unum áður en kveikt væri í olíunni.
Umhverfisverndarstofnanir hafa
krafist þess að olíufyrirtækið hætti að
koma í veg fyrir björgun skjaldbakanna
og að Bandaríkjastjórn stöðvi aðgerð-
ir félagsins. Umhverfisstofnanir íhuga
einnig málshöfðun á hendur BP vegna
skjaldbökudrápsins sem fylgt hefur
hreinsunaraðgerðum þess. Sekt við
því að skaða sæskjaldböku, eða bana
henni, getur numið 50.000 dölum, eða
um 6,4 milljónum króna.
Samkvæmt NOAA er vitað um 425
skjaldbökur sem hafa drepist á meng-
unarsvæðinu síðan í lok apríl. Vernd-
unarsinnar telja að sá fjöldi geti til
lengri tíma litið sett lífsafkomu stofns-
ins í hættu. Fimm tegundir sæskjald-
baka finnast í Mexíkóflóa og eru þær
allar í útrýmingarhættu upp að ein-
hverju marki.
Sædýrasafnið í New Orleans hef-
ur tekið upp á sína arma um níutíu
sæskjaldbökur og þrifið af þeim olí-
una, en jafnvel áður en BP brá á það
ráð að kveikja í olíunni var lífsafkomu
sæskjaldbakanna ógnað af olíulekan-
um. Nú er varptími skjaldbakanna rétt
handan við hornið og þær við að skríða
upp á strendur, sem eru baðaðar olíu,
þar sem þær grafa egg sín í sand.
Olíufélagið BP sakað um dráp á sjaldgæfum skjaldbökum:
Risastór eldsvæði á Mexíkóflóa
rándýr ráðstefna
Talið er að ráðstefnur G8- og G20-ríkj-
anna í Toronto í Kanada muni kosta
um eða yfir einn milljarð Bandaríkja-
dala og því er vert að velta því fyr-
ir sér hvort þær svari kostnaði. David
Ger gen, fyrrverandi aðstoðarmaður í
Hvíta húsinu, er þeirrar skoðunar að
þrátt fyrir mikinn kostnað sé ávinning-
ur af slíkum ráðstefnum bæði áþreif-
anlegur og óáþreifanlegur.
David Gergen, sem starfaði fyrir
fimm forseta og tók þátt í nokkrum
slíkum ráðstefnum telur að heimurinn
hafi nú þegar uppskorið ávinning af
þeirri milljarðs dala ráðstefnu sem nú
stendur yfir. Í grein á vefsíðu CNN er
haft eftir Gergen að þrátt fyrir mikinn
kostnað við ráðstefnuna hafi hún þeg-
ar borgað sig vegna þess að Kínverjar
hafi tilkynnt styrkingu gjaldmiðils síns,
sem sé gott fyrir Bandaríkin og fjölda
annarra landa. Gergen sagði að Kín-
verjar hefðu eingöngu tilkynnt að þeir
hygðust endurmeta gjaldmiðil lands-
ins vegna ráðstefnunnar.
David Gergen sagði enn fremur að
ráðstefnur af þessum toga væru kær-
komið tækifæri fyrir þjóðarleiðtoga að
hittast augliti til auglitis og gæfu þeim
tækifæri til að stofna til sambanda.
Þær breyttu einnig hvaða álit leið-
togarnir hefðu hver á öðrum, en það
breyttist oft eftir fyrstu kynni.
Kúrekinn í Hvíta húsinu
Máli sínu til stuðnings tók Gergen
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
sem dæmi. Fyrsta G8-ráðstefnan sem
Reagan tók þátt í fór fram í Kanada,
og „... á þeim tíma var hann nokkurs
konar kúreki í augum stærsta hluta al-
þjóðasamfélagsins.“ Eftir þá ráðstefnu
breyttist ímynd Reagans, að mati
Gergens, og öðlaðist hann meiri virð-
ingu frá öðrum þjóðarleiðtogum og
einnig frá almenningi víða um lönd.
David Gergen sagði að fyrri G8-
ráðstefnur hefðu gefið tækifæri til að
búa til bandalög og sambönd, og sagði
að Ronald Reagan hefði í upphafi ekki
litist vel á hugmyndina um viðamik-
inn alþjóðlegan fund. Reagan skipti
um skoðun og fannst G8-ráðstefnan
vera „gríðarlega uppbyggileg“, sagði
Gergen.
Gergen sagði að það hjálpaði
Bandaríkjunum að koma sínum sjón-
armiðum á framfæri þegar þjóðarleið-
togar ættu tveggja manna tal, auk þess
sem hægt væri að eignast bandamenn.
Rabbað saman á göngunum
Fyrrverandi ráðgjafi George W. Bush,
Dan Price, tók í sama streng og benti
á að umræðurnar á þessum ráð-
stefnum einskorðuðust ekki við
formlegheit heldur gæfust einnig
tækifæri til óformlegs spjalls. „Um-
ræður eiga sér stað á göngunum.
Það er tveggja manna tal. Viðræð-
um er fram haldið við matarborð-
ið.“
Price sagði að á tímum kreppu
líkt og var haustið 2008 treystu
ráðstefnur á borð við G20-ráð-
Ráðstefna G20-ríkjanna í Toronto í Kanada kostar sitt. Fréttamaður CNN velti fyrir sér hvort sá kostnaður væri
réttlætanlegur í ljósi þess sem viðlíka ráðstefnur hafa skilað. Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn úr Hvíta húsinu
velkjast ekki í vafa um réttmæti þess að eyða einum milljarði Bandaríkjadala í ráðstefnuna.
Kolbeinn þoRsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
stephen Harper og barack obama Viðræður á G20-ráðstefnunni þurfa ekki að
vera formlegar. Mynd Afp
sex ára á
flugbannslista
Foreldra hinnar sex ára Alyssu
Thomas rak í rogastans þegar þau
hugðust fljúga frá Cleveland til
Minneapolis í Bandaríkjunum en
þá var þeim tjáð af innritunarstarfs-
manni Hopkins-flugvallar að dóttir
þeirra væri á flugbannslista Heima-
varnastofnunar Bandaríkjanna. Að
sögn foreldranna hefur dóttir þeirra
verið á ferð og flugi með þeim síðan
hún var tveggja mánaða og aldrei
áður verið bent á þetta. Alyssa fékk
nýverið bréf frá ríkisstjórninni þar
sem henni er sagt að engu yrði
breytt og að upplýsingum um hana,
eða einhverja aðra með sama nafni,
verði hvorki breytt né þær staðfesta-
ar.
Mafíuforingi
handtekinn
Einn af eftirlýstustu mönnum Ítalíu,
mafíuleiðtoginn Giuseppe Falsone,
var handtekinn í suðurhluta Frakk-
lands eftir að hafa verið á flótta
undan réttvísinni í áratug. Falsone
er talinn vera yfirmaður mafíunnar
í Agrigento-héraði á Sikiley og hafði
fyrir verið sakfelldur og dæmdur til
lífstíðarfangelsis fyrir morð og al-
þjóðlega eiturlyfjasölu.
Giuseppe Falsone hefur einnig
verið bendlaður við Bernardo Pro-
venzano, alræmdan mafíósa sem
handtekinn var árið 2006.
Hanski Jacksons
seldur
Varningur í eigu poppkóngsins
sáluga Michaels Jackson seldist fyrir
tæpar 130 milljónir króna á upp-
boði sem haldið var í tilefni þess að
ár er liðið síðan hann lést. Meðal
muna sem seldust á uppboðinu var
kristalskreyttur hanski sem Jackson
klæddist á tónleikaferð árið 1984.
Hanskinn seldist fyrir 24 milljónir
króna, en bjartsýnustu menn höfðu
gert sér vonir um að hanskinn seld-
ist á um 4 milljónir króna.
Blaðamenn hraun-
uðu yfir Palin
Bandarískir blaðamenn sem hlust-
uðu á ræðu Söruh Palin, sem bauð
sig fram til varaforseta Bandaríkj-
anna, fengu að bragða á eigin meðali
á dögunum. Eftir að ræðu Palin lauk
náðist á upptöku þegar fréttamenn-
irnir hraunuðu yfir ræðu hennar.
„Hvernig eigum við að skrifa frétt úr
þessu?“ sagði einn þeirra hneykslað-
ur. Hinn svaraði: „Heimskan er ekki
einskorðuð við klisjur.“ Síðan heyrist
einn segja að þessi ræða hafi verið
uppfull af tilviljunarkenndum til-
vitnunum sem enginn skildi neitt í.
Hreinsunarmenn að störfum Margar milljónir lítra olíu hafa runnið í Mexíkóflóa.
Mynd Afp