Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2010, Side 26
Íris Björk Árnadóttir, sem var
kosin ungfrú Norðurlönd 2002,
mun ganga í það heilaga í næsta
mánuði. Íris Björk og verðandi
eiginmaður hennar, Kristján
Jón Jónatansson, hafa verið
saman um árabil en þau búa í
Danmörku með börnin sín þrjú
sem eru tveggja, fimm og sex
ára. Íris varð svo eftirminnilega
í öðru sæti í keppninni Ungfrú
Ísland þegar Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir stóð uppi sem
sigurvegari. Þegar í ljós kom að
Ragnheiður var ófrísk þegar hún
var krýnd fóru af stað sögusagnir
um að hún yrði að afsala sér titl-
inum en svo varð ekki.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
alþingismaður og þingflokks-
formaður Vinstri grænna,
skartaði glæsilegri óléttu-
bumbu í þingsal Alþingis síð-
astliðinn fimmtudag. Þá fór
fram síðasti þingfundur þessa
starfsárs áður en þingmenn
fóru í sumarfrí.
Guðfríður Lilja er rúmlega
hálfnuð á meðgöngunni en
þetta er fyrsta barnið sem hún
gengur með. Þetta er hins veg-
ar annað barn Guðfríðar en
hún eignaðist son í apríl í fyrra
með maka sínum, Steinunni
Blöndal. Þá gekk Steinunn með
barnið. Sonur þeirra lét bíða
eftir sér í tvær vikur fram yfir
settan dag og nú er spurning
hvort það endurtaki sig.
Guðfríður er í miklum
minnihlutahópi opinberlega
samkynhneigðs fólks sem set-
ið hefur á þingi. Hún er aðeins
önnur í röðinni en á undan
henni var það Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráðherra Ís-
lands. Þær eru einu tveir op-
inberlega samkynhneigðu
þingmennirnir frá stofnun Al-
þingis.
Fegurðar-
drottning
upp að
altarinu
Hin fornfræga stjarna Elísabet
Ólafsdóttir, eða Beta rokk eins
og flestir þekkja hana, á von á
sínu fyrsta barni í haust. Rokk-
pían Beta var einn fyrsti bloggari
landsins og vakti mikla athygli
fyrir opinská bloggskrif. Hún
var einnig í hljómsveitinni Á túr
sem lenti í öðru sæti í Músík-
tilraunum 1996. Hennar helsta
stórvirki er þó bókin Vaknað í
Brussel sem var mikið í umræð-
unni meðal bókmenntafræð-
inga fyrir nýjan bókmenntastíl
sem var byggður á bloggskrifum.
Einnig vakti rapplagið sem Beta
gaf út samfara útgáfu bókarinn-
ar mikla athygli. Nú spókar Beta
sig um bæinn með fína bumbu,
komin um 4 mánuði á leið.
Beta rokk
ólétt
26 fólkið 28. júní 2010 mánudagur
Guðfríður LiLja Grétarsdóttir er ólétt og komin í sumarfrí:
Guðfríður Lilja
Í þingsal Alþingis
fyrir helgi.
MYNd Hörður sveiNssoN
Scooter
opnar galtalæk á ný
„Þessi hugmynd um útihátíð kom
upp af því að Landsmót hesta-
manna, sem átti að vera þessa helgi,
féll niður. Hugmyndin small ein-
hvern veginn einn, tveir og þrír og
til að toppa þetta datt okkur í hug
að heyra í Scooter. Og hann bara
sagði já og þá fór allt á milljón,“ segir
Linda Einarsdóttir, einn af aðstand-
endum útihátíðarinnar Besta útihá-
tíðin sem haldin verður í Galtalækj-
arskógi um næstu helgi. Opin bert
varð í síðustu viku að þessi hátíð
færi fram með mörgum af vinsæl-
ustu tónlistarmönnum landsins,
þar má nefna hljómsveitirnar Diktu,
Sykur og XXX Rottweiler, og hafa
væntanlega sumir velt því fyrir sér
hvaða útihátíð sé allt í einu verið
að rigga upp þessa miklu ferðahelgi
með svo stuttum fyrirvara.
Og ekki minnka undarlegheitin
við það að þýska eurotransstjarnan
Scooter sé aðalnúmerið á hátíðinni,
og að hún sé haldin í Galtalæk sem
flestir tengja við bindindishátíðina
kunnu sem haldin var þar í mörg
ár en hefur ekki farið fram síðustu
árin. Linda segir þau hátíðarhald-
arana hafa fyrst haft samband við
umboðsmann Scooter fyrir dögum
frekar en vikum. „Þetta var eiginlega
hálfgert grís að þetta gekk allt svona
vel upp. Við töluðum fyrst við þá á
mánudaginn í síðustu viku,“ sagði
Linda þegar blaðamaður talaði við
hana síðastliðinn föstudag. „Við vor-
um svo í sambandi við þá í nokkra
daga og svo kom endanlegt sam-
þykki í gærmorgun [fimmtudag].“
Scooter er yfirleitt með mikið sjó
á tónleikum sínum og vegna stutta
fyrirvarans þurfti að breyta aðeins
út af venjunni með það. „Samt sem
áður er ætlunin að hafa þetta mjög
flott og því þurftum við bara að
breyta einhverjum örfáum litlum
atriðum til þess að þóknast Scoot-
er. Við erum líka búin að upplýsa
hann um að þetta sé útihátíð með
fullt af fleiri tónlistarmönnum, sýna
honum myndir af sviðinu og fleiru
þannig að hann veit allt um fyrir-
komulagið á þessu,“ segir Linda.
Eins og kunnugt er spilaði Scooter
í troðfullri Laugardalshöllinni fyrir
nokkrum árum.
Tjaldstæðið í Galtalækjarskógi
hefur verið lokað síðustu ár en
landið er í eigu athafnamannsins
Karls Wernerssonar, sem gjarnan er
kenndur við fjárfestingarfélagið Mil-
estone. Hvað staðsetninguna varðar
segir Linda hátíðarhaldarana kann-
ast aðeins við Karl.
„Þetta er allt gert í samráði við
hann. Hann er eiginlega að fara að
opna svæðið aftur og hugsunin er
að þetta verði venjulegt tjaldstæði í
framhaldinu. Við bárum undir hann
hugmyndina um að opna tjaldstæð-
ið með þessari hátíð, sem gæti þá
virkað sem kynning á svæðinu, og
Karl tók bara þrusuvel í það. Þetta er
náttúrlega ofboðslega fallegt svæði
og var mjög vinsælt áður fyrr.“
Aðspurð hvað kosti að halda
svona hátíð vill Linda ekki gefa það
upp, né kostnað við einstaka atriði
eins og að fá Scooter til landsins
eða leiguna á Galtalækjarskógi. Hún
segir þó vissulega alltaf fjárhagslega
áhættu fylgja svona hátíðum og inn-
flutningi á erlendum listamönnum.
„Við fórum náttúrlega gaumgæfi-
lega yfir þetta og við höfum fulla
trú á þessu,“ segir Linda sem kveðst
ekki hafa tölur við höndina yfir það
hversu margir þurfi að kaupa miða
til þess að hátíðin komi út á núlli.
Leyfið hljóði aftur á móti upp á sjö
þúsund manns.
Hvað varðar öll leyfi, gæslu, þjón-
ustu og fleira sem nauðsynlegt er að
sé til staðar á útihátíðum sem þess-
um segir Linda allt klappað og klárt
með það. „Þetta er eru í raun sömu
aðilar og sjá um málin á Þjóðhátíð í
Eyjum. Þetta er því allt hundrað pró-
sent í lagi.“
Þess má geta að miðasala fer
fram á N1 Ártúnshöfða, Hringbraut,
Lækjargötu og Selfossi. Miðaverð er
5.500 krónur. kristjanh@dv.is
útihátíð í galtalæk:
Þýska europoppstjarnan er aðalnúmerið á útihátíð sem kallast Besta útihátíðin og verður
haldin í galtalæk um næstu helgi. Hátíðin markar upphaf opnunar tjaldstæðisins í galta-
lækjarskógi á ný en landið er í eigu Karls Wernerssonar, sem kenndur er við milestone.
scooter Á leiðinni til landsins í
annað sinn til að spila í Galtalæk.
ólétt á alþingi
Karl Wernersson Fjárfestir-
inn er eigandi Galtalækjar.