Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 15
föstudagur 10. september 2010 fréttir 15
Gaxa Raf - rettan
n Sama tilfinning og bragð fyrir þá Sem reykja
n án allra eiturefna, engin lykt og má reykja hvar Sem er
Pantaðu á netinu, www.gaxa.is - Pöntunarsími: 865-6520
Startpakkinn
aðeins 9.995 kr.
Guðmundur Nordal, leigubílstjóri og
vagnstjóri, hefur leitað til umboðs-
manns Alþingis vegna reglugerðar
sem segir til um að bílstjórar í atvinnu-
rekstri eigi að sækja endurmenntun-
arnámskeið á fimm ára fresti. Hans
næsta skref er að kvarta til samgöngu-
ráðuneytisins vegna sömu skipunar.
Endurmenntunarnámskeiðin eru
undir hatti Umferðarstofu og eftir því
sem DV kemst næst munu námskeið-
in kosta hvern bílstjóra á bilinu 150
til 170 þúsund krónur. Vörubílstjór-
ar og rútubílstjórar þurfa samkvæmt
reglugerðinni að sækja námskeiðin á
fimm ára fresti og þannig endurnýja
ökuréttindi sín til farþegaflutninga og
aksturs í atvinnuskyni. Leigubílstjór-
ar sleppa þó við að sækja námskeiðin.
Guðmundur segist einfaldlega ósáttur
við að þurfa að sækja slíkt námskeið
vegna réttinda sem hann hefur nú
þegar aflað sér.
Árafjöldi stangast á
„Það er ekkert hægt að taka af mér
þau réttindi sem ég á, nema ég hafi
gert eitthvað af mér. Með þessari nýju
reglugerð er hins vegar verið að því
og skylda mig til að taka námskeið á
5 ára fresti,“ segir Guðmundur.
Hann bendir á að í áðurnefndri
reglugerð stangist á liðir hennar þar
sem á einum stað sé fjallað um end-
urmenntun á 5 ára fresti á meðan á
öðrum stað standi að rútupróf gildi
til 10 ára. „Þetta er svo vitlaust. Akst-
ursleyfi og atvinnuréttindi eru ekki
aðskilin mál og því er ekki hægt að
breyta með því að hafa tvo mismun-
andi gildistíma. Ég held að þetta sé
bara klaufaskapur. Ég er einfaldlega
að benda á þetta misræmi sem þarna
er,“ segir Guðmundur.
Frá Evrópusambandinu
Holger Torp, verkefnisstjóri öku-
náms og ökuprófa hjá Umferðar-
stofu, segir reglugerðina tilkomna
vegna tilskipunar Evrópusambands-
ins. Það sem vaki fyrir Evrópusam-
bandinu sé að samræma kröfur um
menntun atvinnubílstjóra. Annars
vegar er gerð krafa um grunnmennt-
un og hins vegar endurmenntun þar
sem tekið er til nýrra öryggisþátta,
tækninýjunga og laga og reglugerða.
„Hvað grunnmenntunina varðar eru
Íslendingar vel settir,“ segir Holger
og bætir við að þar þurfi engar breyt-
ingar að gera. „Endurmenntunin
er nýr þáttur að huga að hjá okkur
eins og reyndar hjá öðrum þjóðum
en það má benda á að auknar kröf-
ur um menntun eru til þess falln-
ar að auka öryggi og virðingu fyrir
starfi atvinnubílstjóra. Í okkar þjóð-
félagi er virðing fyrir flugstjóra tölu-
vert meiri en fyrir strætóbílstjóra til
að mynda. Það má spyrja sig að því
hvor þeirra ætti í raun að njóta meiri
virðingar og hvor þeirra flytur fleira
fólk?“
Leitað hefur verið til umboðsmanns Alþingis vegna endurmenntunarnámskeiða sem atvinnubílstjórum er
gert skylt að sækja. Guðmundur Nordal, leigubílstjóri og vagnstjóri, skilur ekkert í þessum námskeiðum og
ætlar líka að leita til samgönguráðherra.
BÍLSTJÓRI KVARTAR
TIL UMBOÐSMANNS
trausti haFstEiNssoN
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ekki sáttir Vagnstjórarogaðrir.