Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 22
22 fréttir 10. september 2010 föstudagur Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitar- félaga telur að í algert óefni stefni í fjár- málum Reykjanesbæjar. „Takist ekki á næstunni að snúa þessari þróun við með bættri rekstrarafkomu og lækk- un skulda, er það mat eftirlitsnefndar- innar að fjárhagsstaða sveitarfélagsins stefni í algert óefni,“ segir í bréfi nefnd- arinnar til bæjarstjórnar Reykjanes- bæjar 31. ágúst síðastliðinn. Í bréfinu er bæjarstjórnin beðin um að gera eft- irlitsnefndinni grein fyrir því hvern- ig hún hyggist bregðast við fjárhags- vanda Reykjanesbæjar og til hvaða aðgerða verði gripið. Jafnframt er ósk- að eftir endurskoðun fjárhagsáætlun- ar fyrir bæjarfélagið næstu þjú árin. Nefndin gefur bæjarstjórninni 30 daga frest til þess að svara erindinu. Fram hefur komið að eftirlitsnefnd- inni var ekki kunnugt um vanskil Reykjanesbæjar á 1,8 milljarða króna láni frá þýskum banka þegar hún ritaði bæjarstjórninni umrætt bréf á loka- degi ágústmánaðar. Í vikunni var svo upplýst í Morgunblaðinu að 130 millj- óna króna lán hafnarsjóðs Reykjanes- bæjar hjá lífeyrissjóðum er í vanskilum og hefur svo verið síðan maí. Tekjur af lóðagjöldum skila sér ekki vegna kísil- vers við höfnina og setja áætlanir um afborganir lána í uppnám. Vanskila- skuldir Reykjanesbæjar og fyrirtækja sveitarfélagsins eru því um eða yfir 2 milljarðar króna sem stendur. Við þetta bætist 820 milljóna króna halla- rekstur sem af er þessu ári. Vandinn var ræddur á bæjarráðs- fundi Reykjanesbæjar fyrir helgina og drög lögð að svörum til eftirlitsnefnd- arinnar. Samkvæmt heimildum DV er ljóst að Reykjanesbær og fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins þurfa að grípa til allt að 20 prósenta niðurskurðar ef ekki á illa að fara. Slíkur niðurskurður er tal- inn svo stórfelldur að ekki verði undan því vikist að segja upp starfsfólki. Það kemur illa við Suðurnesin þar sem at- vinnuleysi er þegar tilfinnanlegt. Sligandi skuldir Í fyrra námu heildartekjur Reykjanes- bæjar tæpum 7 milljörðum króna. Skuldirnar eru aftur á móti fjórföld sú upphæð, eða nærri 28 milljarðar króna. Þegar fyrirtæki í eigu Reykja- nesbæjar eru talin með, svo sem eins og hluturinn í Kölku, sorpeyðingar- stöðinni við Helguvík, og HS Veit- um, námu tekjurnar í fyrra alls um 9,6 milljörðum króna. Hallarekstur fyrir- tækjanna er aftur á móti svo mikill að heildarskuldirnar nema þá samtals um 42 milljörðum, eða 446 prósentum af samanlögðum heildartekjum. Sem dæmi má nefna að skuld- ir sorpeyðingarstöðvarinnar nema um 1,2 milljörðum króna og erfiðlega gengur að ná endum saman. Reykja- neshöfn skuldar hátt í 6 milljarða króna og fjárhagsáætlanir hennar eru í uppnámi. Leitin að rót vandans Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til á bæjarstjórnarfundi síðast- liðinn þriðjudag að skipuð yrði þriggja manna nefnd óháðra sérfræðinga til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjanesbæjar. Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, vill að könnuð verði stjórnsýsla bæjarins og aðkoma stjórnmálamanna að fjárhagslegum ákvörðunum og hvort gætt hafi ver- ið eðlilegrar hlutlægni og heiðarleika. Hann vill að kannað verði hvort ein- stakir aðilar eins og verktakar, bankar eða fyrirtækjasamsteypur hafi feng- ið óeðlilega fyrirgreiðslu; hvort fjár- sterkir aðilir hafi beint eða óbeint haft áhrif á pólitískar ákvarðanir og stjórn- sýslu bæjarins og hvort sömu aðilar hafi hagnast á tengslum við bæinn, einstaka bæjarfulltrúa eða embættis- menn. Loks vilja fulltrúar Samfylking- arinnar að kannað verði hvort einstak- ir embættismenn, bæjarfulltrúar eða frambjóðendur til bæjarstjórnar hafi hagnýtt sér persónulega eða í þágu síns flokks tengsl við fjársterka aðila sem átti hafi í viðskiptum við bæinn. Villl hreinsa andrúmsloftið „Í kjölfar hrunsins velti Samfylkingin í Reykjanesbæ því fyrir sér hvort ekki þyrfti að skoða málin hér upp á nýtt og þessi bókun er tilkomin vegna þess,“ segir Friðjón í samtali við DV. „Við munum örugglega taka þetta upp sem tillögu þannig að hægt verði að ræða um hana á öðrum grundvelli og greiða henni atkvæði. Ég hef rætt um það í bæjarráði að það sé ólíðandi að starfsmenn og stjórnendur bæjar- ins sitji undir ámælum um lögbrot og fullyrðingum manna á millum. Sér- staklega á þetta við umræðuna um Motopark, veðsetningar og Toppinn. Við teljum eðlilegt að skoða málin ofan í kjölinn eins og gert hefur verið og er verið að gera víða í stjórnsýsl- unni og bankakerfinu. Við teljum því nauðsynlegt að gera þetta einnig hér í heimabyggð og hreinsa starfsmenn af þessum grun. Hvað er rangt við það? Að segja að við séum að saka starfs- menn um spillingu er út í hött. Við vilj- um einungis hreinsa andrúmsloftið og koma okkur út úr þessari umræðu og einbeita okkur að endurreisn atvinnu- lífsins. Því fyrr, því betra,“ segir Friðjón. Efasemdir um heiðarleika „Það er eins og maður sé að lesa DV í þessari bókun,“ sagði Árni Sigfússon bæjarstjóri um bókun samfylking- armanna á bæjarstjórnarfundinum. „Þar er greinilega verið að gefa í skyn efasemdir um heiðarleika manna. Það er verið að gefa í skyn að fyrirtækja- samsteypur hafi haft óeðlilega fyrir- greiðslu. Það er verið að gefa í skyn að fjársterkir aðilar hafi haft áhrif á pólit- ískar ákvarðanir. Það er verið að gefa í skyn að fjársterkir aðilar hafi hagnast á tengslum við bæinn og einstaka emb- ættismenn eða bæjarfulltrúa. Og það er verið að gefa í skyn að menn hafi hagnýtt sér persónulega í þágu síns flokks tengsl við fjársterka aðila sem hafa átt viðskipti við bæinn. Oft hefur maður nú heyrt þetta; að maður hafi heldur betur staðið að svindli og eign- ast einhverja hluti óheiðarlega en við vildum helst vera laus við svona full- yrðingar hér í okkar samfélagi,“ sagði Árni. Vanskilaskuldir Reykjanesbæjar eru um 2 milljarðar króna og hallarekstur sem af er ári nemur meira en 800 milljónum króna. Bæjarstjórn undirbýr viðbrögð við tilmælum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en samkvæmt heimildum DV fela þau að mestum líkum í sér stórfelldan niðurskurð og jafnvel upp- sagnir eigi ekki illa að fara. Fulltrúar í minnihluta bæjarstjórnar vilja láta rannsaka hvort meirihlutinn blandi saman einkahags- munum og almannahagsmunum á óeðlilegan hátt. Hörð lending reykjanesbæjar jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Árni Sigfússon:Bæjarstjóri,stjórnarformaðurEFF,stjórnarformaðurKeilis,ístjórn ÞróunarfélagsKeflavíkurflugvallar,stjórnarformaðurHSOrkutilskammstíma.Árni þarfiðulegaaðtakaákvarðanirsemvekjahagsmunaárekstra.Ríkisendurskoðun hefuráminnthannumaðfylgjareglumstjórnsýslulagaumvanhæfi.  Böðvar jónsson:Formaðurbæjarráðs,bæjarfulltrúiSjálfstæðisflokksins.Böðvará einkahlutafélagsemátthefurviðskiptiviðEFF.Viðskiptisemkunnaaðveraágráu svæði.VaraðstoðarmaðurÁrnaM.Mathiesenfjármálaráðherrafráseptember2006 ogvaríþeirristöðuþegarríkiðhófaðseljaþæreignirsemBandaríkjaheráttiá Keflavíkurflugvelli.  Þorsteinn Erlingsson:FyrrverandibæjarfulltrúiSjálfstæðisflokksins,fyrrverandi stjórnarformaðurSparisjóðsKeflavíkurogstjórnarmaðuríFisk- markaðiSuðurnesja.ÞorsteinnkomaðákvörðunFiskmarkaðs SuðurnesjaumkaupáhlutHSOrkuíSparisjóðiKeflavíkur. FiskmarkaðurinntapaðieignsinniþegarSparisjóðurKefla- víkurféll.FiskmarkaðurSuðurnesjasituruppimeðmilljarða skuldirogernærgjaldþrota.Hagsmunaárekstrarogvanhæfi virðistaugljóstítilvikiÞorsteins. Steinþór jónsson:FyrrverandibæjarfulltrúiSjálfstæðisflokks- ins(tilársins2010).Steinþóráímörgumfélögumogrekur meðalannarshótel.HannkeyptieignirafÞróunarfélagi Keflavíkurflugvallar.Steinþórereinnafstofnendum Baseehf.ogáttihagsmunaaðgætagagnvartÞróun- arfélagiKeflavíkurflugvallarþegarþauviðskiptifóru fram.ÍstjórnþesssatÁrniSigfússon. BaseernánastgjaldþrotasamkvæmtheimildumDV. Hvar eru skilin milli einkaHags- muna og almannaHagsmuna? Sorpeyðingarstöðin Mörgfyrirtæja Reykjanesbæjarerustórskuldugogrekin meðhalla.Kalkaskuldar1,2milljarðakróna. mynd róBErt rEyniSSon Vill eyða orðrómi um spillingu með rannsókn FriðjónEinarsson,bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar,ætlaraðleggjafram tillöguumrannsóknásamspilieinkahags- munaogalmannahagsmunaístörfum bæjarfulltrúa,verktakaogembættismanna. Samkvæmt heimildum DV er ljóst að Reykjanesbær og fyrirtæki í eigu sveit- arfélagsins þurfa að grípa til allt að 20 pró- senta niðurskurðar ef ekki á illa að fara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.