Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 26
Engin af þeim stórmerkilegu fréttum sem Wikileaks hefur komið á framfæri hefur vakið jafnmikla athygli og nauðg- unarkæran á hendur Julian Assange, talsmanni lekasíðunnar. Kæran kom fram örstuttu áður en Assange náði að birta á netinu tugi þúsunda leyni- skjala um stríð Bandaríkjamanna í Afganistan og Írak. Frétt um hana kom fyrst fram í sænska „tabloid“- blaðinu Expressen skömmu eftir að tilkynnt hafði verið að Assange myndi skrifa fyrir helsta keppinaut blaðsins, Aftonbladet. Í hinum upplýsta heimi þar sem allir heimsins lekar renna saman og mynda fljót upplýsinga getur farið af stað umræða um hvort einhver tilekinn nafngreindur maður hafi nauðgað eða ekki. Á Íslandi hafa fjölmiðlar skipulega forðast að segja frá viðkvæmum málum. Það hefur varla mátt greina frá því að biskup sé kærður fyrir nauðgun. Því aðgát skuli höfð í nærveru sálar. Bandarísk yfirvöld hafa gagn-rýnt Wikileaks fyrir að setja uppljóstrara á vegum hersins í hættu með birtingu upp- lýsinganna um stríðið í Afganistan og Írak. En lekaliðar leggja ekki mat á það hvort fréttin sé endilega merkileg eða ekki og hvaða afleiðingar birting- in hefur. Að þeirra mati er það í hönd- um almennings að ákveða það. Þeir trúa á skynsaman almenning sem er treystandi fyrir upplýsingum en líta ekki á hann sem hjörð eða skríl. Þess vegna ritskoða þeir ekki. Assange hlýtur að trúa því að jafnvel umfjöll- un um kæru á hendur honum fyrir kynferðisbrot sé eðlileg. Julian Assange og stuðningsmenn hans á Íslandi, Birgitta Jónsdótt-ir þingkona og Kristinn Hrafns-son fréttamaður, hafa barist fyrir því að gera Ísland að griðastað uppljóstrana og frjálsrar fjölmiðlunar. Verkefnið Icelandic Modern Media Initiative snýst um að hér verði hægt að birta allar upplýsingar án afskipta yfirvalda. Þetta myndi gera fjölmiðl- um kleift að fá vissa vernd gegn meið- yrðamálsóknum á Íslandi. Talið er að erlendir fjölmiðlar muni flykkjast til landsins ef þetta gengur eftir en enn sem komið er hefur aðeins verið samþykkt þingsályktunartillaga um málið. Staðreyndin er hins vegar sú að lekar vekja mesta athygli ef fólk hefur áhuga á þeim. Og fólk hefur meiri áhuga á því ef lekaliðinn Julian Assange er grunað- ur um nauðgun heldur en að banda- ríski herinn hafi sprengt upp börn í Írak. Þá skiptir það ekki máli hvort er mikilvægara. Frétt er „news“ og „news“ er eitthvað nýtt, eða breyting. Það er á sinn hátt meiri breyting að Assange sé grunaður um nauðgun en að borgarar séu drepnir í Írak. Birgitta Jónsdóttir hefur bent á að tilfelli Assange í Svíþjóð líkist meira „ástarþríhyrn-ingi“ en nauðgunarmáli. Á Íslandi hefur aðeins eitt verið meira tabú í umræðunni en nauðganir. Það eru ástamál. Þetta mun líklega breytast þegar frjálsir alþjóðlegir fjölmiðlar færa höfuðstöðvar sínar til Íslands. Í heimi frjálsra fjölmiðla endurspeglar umfjöllun áhugasvið almennings. Því fjölmiðlar eru aldrei alfarið óháðir. Þeir þrífast á athygli. Og athygli kemur með áhuga al- mennings. Stundum verða saklausir menn fyrir hnjaski vegna uppljóstrana. Og stundum skipta uppljóstranir engu máli þótt þær veki athygli. Þá er kannski betur að allt komi upp á borðið heldur en að valdamenn geti ritskoðað og handvalið leka til að koma höggi á einstaka menn. ÁSTIR LEKALIÐA „Við brugðumst.“ n Vigfús Þór Árnason, sem hlustaði á frásögn Sigrúnar Pálínu á sínum tíma um meint kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar gegn sér en vildi ekki aðstoða hana við að koma málinu áfram. – DV „Fór út sem bjartur og glaður umhverfissinni, kem aftur sem ógeðslegur dónakall.“ n Jón Gnarr um dvöl sína í Brussel. Hann sagði þar við fréttastofuna AP að hann notaði netið aðallega í að skoða klám. Sá brandari hans hefur ekki fallið vel í kramið hjá minnihlutanum. – Facebook „Það væri gaman að hjálpa Íslendingum að byggja upp Miðflokk.“ n Jenis av Rana, maðurinn sem vildi ekki sitja til borðs með lesbískum forsætisráðherra Íslands, er formaður hins kristilega Miðflokks í Færeyjum. – Vísir „Það má velta fyrir sér hvaða áhrif þetta hefur á unga drengi.“ n Sóley Tómasdóttir um klámbrandara Jóns Gnarr borgarstjóra. Má ætla að erlent niðurhal stóraukist á næstunni? – Vísir „Þéttur tappi.“ n Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um Vinstri græna. Hann telur flokkinn tappa sem komi í veg fyrir að atvinnulífið komist á fullan skrið á nýjan leik. – Bylgjan Styðjum Jóhönnu og Jónínu Færeyskt þjóðfélag er komið út úr skápnum. Þar þrífast þjóðkjörnir for-dómar í fornaldarstíl. Það kann að hljóma fordómafullt að dæma allt færeyskt samfélag út frá fordómum nokkurra þing- manna gegn Jóhönnu Sigurðardóttur for- sætisráðherra og Jónínu Leósdóttur, konu hennar. Hins vegar eru fordómar einstakra manna ekki vandamálið heldur samfélagið sem lætur þá viðgangast athugasemdalaust. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, vildi sýna færeyska þingmannin- um Jenis av Rana umburðarlyndi þegar hann mótmælti því að Jóhanna Sigurðar- dóttir ætti konu. „Ég vil ekki blanda mér í þessi ummæli hans. Jenis er sérstæður per- sónuleiki og mikill grundvallarmaður og það ber að virða. Færeyingar eru harðskeytt- ir í meiningum sínum og það ber að virða það þótt við vildum hafa það öðruvísi,“ sagði Árni í samtali við Pressuna. Færum þetta yfir á nærtækt dæmi, sem er rasismi. Fólk ræður ekki kynþætti sínum, ekki frekar en kynhneigð. Í þessu ljósi yrðu orð Árna svona: „Rasistar eru harðskeyttir í meiningum sínum og það ber að virða það þótt við vildum hafa það öðruvísi.“ Mun Árni Johnsen sýna því skilning þeg- ar rasistar neita að sitja til borðs með mann- eskju af öðrum kynþætti? Fordómar gegn samkynhneigðum og kynþáttum eru ekki sjónarmið heldur tær andstaða við hóp fólks. Að útmála fólk sem óæskilegt er ekki hluti af skoðanaskiptum samfélagsins. Fordóma ber alls ekki að virða því þeir eru svívirða. Hinir fordómafullu kúga oftast aðra í skjóli trúarinnar og forðast þannig þá kröfu að styðja skoðun sína rökum. Uppgang- ur íslamista í Evrópu er vandamál af sama toga. Kúgun í krafti trúar er látin viðgangast í nafni umburðarlyndis og fjölmenningar. Til þess að berjast gegn fordómunum verðum við hins vegar að takmarka um- burðarlyndið gagnvart þeim. Fjölmenning- arleg þjónkun við trúarlega alræðishyggju og kúganir gengur ekki upp. Umburðarlyndi gagnvart kúgun er afstaða með kúguninni en ekki umburðarlyndinu. Íslendingar ættu að standa þétt að baki Jóhönnu og Jónínu og mótmæla einelti fær- eysku þingmannanna allir sem einn. Við þurfum að sýna svo ekki verði um villst að við tökum virka afstöðu gegn fordómum en ekki óvirka afstöðu með þeim. Við sitjum ekki hjá og horfum upp á forsætisráðherra landsins lagðan í opinbert einelti fyrir kyn- hneigð sína. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Umburðarlyndi gagnvart kúgun er afstaða með kúguninni en ekki umburðarlyndinu. LEIÐARI SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA Orð í eyra … Margur heldur því fram að ríkis- stjórn sem hefur Jón Bjarnason og Ögmund Jónasson innanborðs þurfi ekki stjórnarandstöðu. Sjálfur lofa ég Ögmund Jónasson, hann er heiðar- legur maður. Ekki sakna ég Álfheið- ar Ingadóttur og ekki hef ég miklar mætur á Jóni Bjarnasyni sem stjórn- málamanni. Við losnuðum við tvo af bestu ráðherrum íslenskrar stjórn- málasögu — Rögnu Árnadóttur og Gylfa Magnússon — til þess eins að leyfa afli stjórnmálaflokkanna að ráða för. Og þá komum við að kjarna málsins; þeirri staðreynd að stjórn- málaflokkar eru lamandi afl lýðræð- isins. Í flokki sem stendur traustum fót- um í ríkisstjórn hefur fólk visst forskot á keppinauta sína; stendur betur að vígi en þeir sem úti í kuldanum eru. Þetta kom vel í ljós þegar sú rauð- hærða kona, Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, sagði í beinni útsendingu: „Segðu frænda þínum að hoppa upp í rassgatið á sér.“ En hún var ekki for- dæmd fyrir þessi orð sín. Hið blóð- lata, fylgispaka skorpufólk þusti útá götu og lofaði þann kjark sem konan sýndi með viðeigandi vali orða. Og þá fór ég að velta því fyrir mér, hvað hefði eiginlega gerst ef einhver aulinn í stjórnarandstöðunni hefði látið slík- an ófögnuð leka af vörum sér. Ef sá síbrosandi og gamansami Birgir Ár- mannsson hefði sagt þetta, þá hefðu menn kastað að honum skóm og yf- irleitt öllu lauslegu. Ef þeir frændur og hafnarverkamenn, Árni Sigfús- son í Helguvík og Árni, góðkunningi, Johnsen í Landeyjahöfn, hefðu látið sér þetta orðbragð um munn fara þá hefði hommafóbía eyjaskeggja fyrst farið úr böndunum. (Hérna verð ég að geta þess að Árni Johnsen er víst valinn til setu á Alþingi í Reykjavík svo Eyjamenn þurfi ekki að læsa hús- um sínum. Og svo einnig vegna þess, að ef hann er í höfuðstaðnum þá er betra að leyna stórafmælum fyrir skaðræðisafli því sem uppáþrengj- andi söngþörf Árna er.) Ef Pétur Blöndal, sérstakur fjár- málaspekúlant Davíðs Oddsson- ar, fyrrverandi bankastarfsmanns, hefði sagt þetta, þá hefði hann mátt þola eggjakast, skókast og kerta- fleytingar. Jafnvel búsáhaldabylt- ingu, eða heimilistækjabyltingu þar sem fólk hefði mætt með hrærivél- ar, ryksugur og þvottavélar á Aust- urvöll. Hann hefði fengið á sig fleiri andlega mykjudreifara en formaður sjallaballa og formaður framagosa hafa mátt þola fyrir það eitt að vera ástsælir verndarar glæpasamtaka ís- lenskrar yfirstéttar. Þjóðin hefur sæl og sátt sagt um verstu slugsa að orðlausir þeir öðlist mátt ef þeir nenna að hugsa. KRISTJÁN HREINSSON skáld skrifar „Segðu frænda þínum að hoppa upp í rassgatið á sér.“ SKÁLDIÐ SKRIFAR 26 UMRÆÐA 10. september 2010 FÖSTUDAGUR ÞORGERÐUR Í VÍGAHAM n Reiknað er með háu spennustigi í þingflokki Sjálfstæðisflokksins þeg- ar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir snýr aftur eftir að hafa vikið til hliðar um hríð. Þorgerður sagði af sér embætti varaformanns flokksins í kjöl- far gríðarlegrar gagnrýni vegna risavaxins kúlu- láns eiginmanns hennar, Kristjáns Arasonar. Nú er fullyrt að hún snúi aftur í miklum vígaham. Hún muni berjast af hörku með aðild að Evr- ópusambandinu og taka forystu í þeim málum innan flokksins. Marg- ir telja að þar liggi von hennar um upprisu. JÓHANNA VIÐKVÆM n Ekki sér fyrir endann á uppnám- inu sem varð í Færeyjum vegna heimsóknar Jóhönnu Sigurðardótt- ur forsætisráð- herra og eigin- konu hennar, Jónínu Leósdótt- ur. Öfgamenn í Færeyjum neit- uðu að mæta í kvöldverð ásamt þeim hjónum. Jó- hanna mun hafa haldið ró sinni þrátt fyrir að hún sé afar viðkvæm fyrir fordómafullum umræðum um hjónaband sitt. Það vekur mikla athygli að þær stöllur sjást yfirleitt ekki saman á mynd. Virðast þær forðast það í lengstu lög að láta ljósmyndara ná slíkum myndum. GEÐSTIRÐUR RÁÐHERRA n Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra ber þess flest merki að vera einstaklega geðstirður þessa dagana. Árni Johnsen þing- maður fullyrti að Steingrím- ur hefði sem samgönguráð- herra fyrir 18 árum látið stytta ferjuna Herjólf svo hægt yrði að smíða hann á Akureyri.  Steingrím- ur brást illa við því sem hann kall- aði óbein landráðabrigsl Árna. „Og skammastu þín, Árni Johnsen!“ sagði Steingrímur. EINTAKIÐ ÞÓR SAARI n Það var ekki aðeins Árni Johnsen sem fékk á baukinn hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Þór Saari fékk einnig sitt þegar fjár- málaráðherrann lýsti því hve sorg- legt væri fyrir Alþingi að sitja uppi með „eintök eins og háttvirt- an þingmann Þór Saari“. Hann var ekki sáttur við einkunn ráðherrans, uppnefni og hrakyrði. „Slíkur er nú málflutningur þessa hæstvirta ráð- herra og ég tel að hann eigi skömm skilið fyrir háttsemi sína.“ SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.