Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 38
38 VIÐTAL 10. september 2010 FÖSTUDAGUR Auðvitað er skemmtilegra í vinnunni þegar mikið gengur á. Eldgos og rann-sóknarskýrsla í einni og sömu vikunni, það er fjör! Það verður ekki sagt að við eigum í vandræðum með að finna efni og ekki bara af því að allt er á heljarþröm. Okkar um- fjöllun snýst ekki bara um fréttir og pólitík heldur speglum við það sem er að gerast í samfélaginu, hvort sem það eru mótmæli, listir, menning, ný- sköpun eða einhver sérviska,“ segir fjölmiðlakon- an Þóra Arnórsdóttir, aðstoðarritstjóri Kastljóss. VISSI EKKERT UM FJÖLMIÐLA Þóra hefur starfað við fjölmiðlabransann frá ár- inu 1998 þegar hún hóf störf í Dægurmálaút- varpi Rásar 2. Örlögin leiddu hana í útvarpið en þáverandi ritstjóri Dægurmálaútvarpsins, Leif- ur Hauksson, bauð henni starfið þegar hún kom heim úr námi. „Þá var Sigmar Guðmundsson að hætta og ég fór í hans starf. Leifur hafði tekið við mig viðtal og varð hugsað til mín þegar vantaði unga manneskju í þáttinn. Ég hafði tekið áhuga- próf námsráðgjafar við Háskóla Íslands og feng- ið þá niðurstöðu að ég ætti að vera í útvarpi en vissi sjálf ekkert hvað ég ætlaði að verða. Fjöl- miðlar voru örugglega á listanum enda líkaði mér strax vel við starfið,“ segir Þóra og bætir við að samstarfsmenn hennar í Dægurmálaútvarp- inu, Leifur, Ævar Örn Jósepsson og Lísa Pálsdótt- ir, hafi reynst sér vel. „Ég vissi ekkert í minn haus og lærði allt sem ég þurfti að læra af þeim. Þetta var frábær leið til að byrja,“ segir Þóra sem var í útvarpinu í þrjú og hálft ár áður en hún færði sig yfir á fréttastofu Sjónvarps. FLAUG Í GEGNUM SKÓLA Þóra ólst upp í vesturbæ Kópavogs og gekk í Kársnes – og Þinghólsskóla og fór svo í Mennta- skólann við Hamrahlíð. Hún á fjóra eldri bræð- ur og var orðin svo óþolinmóð að hefja sjálf nám að hún heimtaði að fá að byrja fimm ára í skóla. „Hluti af því að koma úr stórri fjölskyldu er að hafa alltaf einhvern til að hjálpa þér með nám- ið ef þess þarf. Mér gekk samt alltaf vel í skóla og fór eiginlega alltof auðveldlega í gegnum grunn- og menntaskóla. Ég kláraði tvær brautir í MH en þegar ég hóf háskólanám fann ég að mig vant- aði upp á agann og vinnubrögðin. Ég mæli þess vegna með því að fólk læri strax að læra því það þýðir ekkert að slugsa þegar þú ert komin í há- skóla.“ Hún segist varla dómbær á það hvort hún hafi verið góður unglingur en þar sem hún hafi ver- ið farin að vinna allar helgar 16 ára þá hljóti það að vera. „Ég var líka á fullu í handbolta svo það var ekki mikill tími fyrir einhverja vitleysu. Ég var sjálfstæð, vann mikið og gat keypt mér bíl 17 ára og kaus að sjá um mig sjálf. Félagsskapurinn í handboltanum var líka góður, þegar við skemmt- um okkur var tryllingslega gaman en ekki bein- línis neitt rugl. Þetta voru og eru sérdeilis heil- steyptar stelpur, við hittumst enn í fótbolta og merkum félagsskap sem heitir Kokteill og kjóll og skýrir sig sjálfur.“ Þóra er með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands og tók hluta af náminu úti á Ítalíu. Eftir að hafa reynt fyrir sér sem fréttamaður á fréttastofu Sjónvarps dreif hún sig út í frekara nám og urðu hagfræði og alþjóðastjórnmál við Johns Hopkins School of Advanced International Studies fyrir valinu. „Ég valdi þennan skóla því hann er einn sá besti á þessu sviði og auk þess var sá bónus að hægt var að taka fyrra árið í Bologna á Ítalíu en það seinna í Washington D.C.,“ segir hún og bætir við að tíminn í Bandaríkjunum hafi verið skemmtilegur. „Ég ákvað að fyrst ég væri á ann- að borð að fara til Bandaríkjanna í nám þá ætlaði ég að kynnast þessum menningarheimi. Margir af mínum bestu vinum eru Bandaríkjamenn eft- ir þessi ár og þeir hafa verið mínir bestu ferðafé- lagar vítt og breitt um heiminn. Bandaríkin eru sem sagt fjölþætt og fallegt land og þar er gott að vera — ef maður er ekki fátækur eða veikur — og í þessu námi er þetta höfuðborg heimsins.“ YNGST Í STRÁKAHÓPI Foreldrar Þóru, Arnór Hannibalsson, fyrrver- andi heimspekiprófessor, og Nína Sveinsdóttir viðskiptafræðingur voru um fertugt þegar Þóra kom í heiminn. „Það var barasta notalegt að alast upp í strákahópnum svona mestmegnis. Auðvit- að stríddu þeir mér og rifust dálítið en almennt voru þeir góðir við mig og elsti bróðir minn, sem er þrettán árum eldri en ég, var mér sjálfsagt ein- hvers konar föðurímynd. Hann leyfði mér að dröslast með sér út um allt. Lánaði mér bílinn sinn í kvennarallíkrosskeppni skömmu eftir að ég fékk bílpróf og æpti svo eins og óður maður á hliðarlínunni og svo framvegis. Ég held að það sé kostur að alast upp í stórum systkinahópi því þar lærirðu að deila og svo er alltaf eitthvað að ger- ast. Það þýddi ekkert vol og væl og þar sem ég var yngst þurfti ég að berjast fyrir mínu. Ég held því fram að miðað við stöðu mína sem einkadóttir, yngst af fimm, hafi ég samt ekki verið dekruð eins og mér bar. En líklega er ég ekki besti dómarinn í því máli.“ Þegar Þóra kom heim frá Bandaríkjunum fór hún aftur á fréttastofu Sjónvarpsins, þaðan í Spegilinn og svo yfir á Stöð 2 þar sem hún var í tvö ár áður en hún færði sig aftur yfir til Ríkis- sjónvarpsins árið 2007. „Það var gott að prófa bæði fréttadeild Stöðvar 2 og Ísland í dag en ég þekki Efstaleitið orðið mjög vel enda búin að vera þar lengi,“ segir hún og bætir við að sjónvarp og útvarp séu afar ólíkir miðlar. „Mér finnst mjög gaman að vinna í útvarpi og þar geturðu komið upplýsingum á framfæri strax og án þess að fara í hár og smink. Þú þarft í rauninni ekki að hugsa um neitt annað en innihaldið. Sjónvarpið er hins vegar enn sterkari miðill og þegar gýs eða brenn- ur er að mörgu leyti skemmtilegra að vera þar, að geta sýnt lifandi myndir.“ Í DRAUMASTARFINU Yfirmaður Þóru í Kastljósinu er vinur hennar Sig- mar Guðmundsson en þau vinna líka saman að spurningaþættinum vinsæla Útsvari. „Við Sigmar erum ólík að mörgu leyti en okkur hefur alltaf gengið vel að vinna saman. Við fjórmenningarn- ir í Kastljósinu hlæjum að því þegar Sigmar seg- ist vera þessi ofsalegi skaphundur því við verð- um hreint ekki vör við það. Hann er alveg laus við alla spéhræðslu og komplexa og fer aldrei í fýlu. Ef þú gerir grín að honum eða breytir fésbókar- statusnum hans alveg óvart eða sendir sms-skila- boð úr símanum hans jafnóvart máttu samt bú- ast við því að fá það tvöfalt til baka,“ segir hún brosandi. Þegar hún er innt eftir draumastarfinu segist hún ekki sækjast eftir starfi Sigmars. „Ég vil stundum komast heim til mín áður en börn- in sofna. Hans ábyrgð er meiri og hann er oftar lengur fram á kvöld. Annars er ég ekki frá því að það sé skemmtilegra að vera aðstoðarritstjóri því þannig get ég unnið meira efni og farið út í sam- félagið á meðan hann er fastur á skrifstofunni. Ætli ég sé ekki bara í draumastarfinu mínu, hér heima allavega. Ég sé ekki hvað ætti að geta slegið það út. En öll tilboð eru skoðuð, mjög hátt kaup fyrir þægilega dagvinnu með löngum sumarfrí- um væri til dæmis freistandi,“ segir hún brosandi. FANN ÁSTINA Í VINNUNNI Sambýlismaður Þóru er fréttahaukurinn Svavar Halldórsson en þau Svavar kynntust þegar þau störfuðu saman á RÚV árið 2004, hún hjá frétta- stofu Sjónvarps, hann hinum megin við þilið á fréttastofu Útvarps. Svavar er stjórnmálafræð- ingur og með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu. Þau Þóra eiga saman tvö börn, Halldór, sem fæddist árið 2005, og Nínu, sem kom í heiminn vorið 2008. Auk þess á Svavar þrjár stelpur af fyrra sambandi sem eru 11, 12 og 13 ára. Það er því stór fjölskylda sem hefur komið sér fyrir í Hafn- Þóra Arnórsdóttir, aðstoðarritstjóri Kastljóssins, segir örlögin hafa leitt sig í fjölmiðla. Þóra og frétta- maðurinn Svavar Halldórsson eiga saman tvö börn auk þess sem Svavar á þrjár dætur af fyrra sambandi. Þóra er önnum kafin í vinnu og móðurhlutverkinu og segir lítinn tíma afgangs fyrir sig og eiginmanninn. Þau séu hins vegar sátt við annríkið og stefni að því að hafa það náðugt saman í ellinni. FANN ÁSTINA Í VINNUNNI Ég hafði alveg hugsað mér að verða mamma en bjóst ekki við að tapa mér svona al- gerlega þegar að því kæmi. Það varð hins vegar raunin. M Y N D R Ó B ER T R EY N IS SO N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.