Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Side 42
Þórunn fæddist að Bíldsfelli í
Grafningi í Árnessýslu. Hún út-
skrifaðist frá Kvennaskólanum
í Reykjavík 1958, frá Leiðsögu-
mannaskólanum 1970, frá Mark-
aðsskóla Íslands 1989 og lauk
prófum í opinberri stjórnsýslu og
stjórnun frá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands 1999.
Þórunn starfaði við Lands-
banka Íslands 1958–59, var flug-
freyja hjá Loftleiðum 1960–62,
leiðsögumaður og fararstjóri 1975–
79, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV
á hinum ýmsu tímum um lengri
og skemmri tíma, blaðamaður við
Vísi 1980–81 og við DV 1981–86,
ritstjóri Vikunnar 1986–88, útgef-
andi og ritstjóri tímaritsins Far-
vís (síðar Farvís-Áfangar) 1988–95
og starfrækti útgáfufyrirtækið Far-
veg hf., ritstýrði jafnframt Súlunni
sem Félag íslenskra ferðaskrifstofa
gaf út, ritstýrði afmælisriti Lions-
hreyfingarinnar sem kom út í til-
efni fjörutíu ára afmælis Lions á
Íslandi, var ritstjóri Lionsblaðsins
1994–96, var upplýsinga- og ferða-
málafulltrúi Ísafjarðarkaupstaðar
(síðar Ísafjarðarbæjar) 1996, að-
stoðarmaður bæjarstjóra Ísarfjarð-
ar 1996–98, verkefnastjóri hjá At-
vinnuþróunarfélagi Vestfjarða hf.
1998, sveitarstjóri Borgarfjarðar-
sveitar 1998–2002 og starfaði hjá
RÚV 2003–2007.
Þórunn var varaborgarfulltrúi í
borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á árunum 1978–90,
sat í fjölda nefnda á vegum borg-
arinnar, s.s. umhvefismálaráði og
var formaður Jafnréttisnefndar
Reykjavíkurborgar 1991–94. Hún
var formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna 1985–89, sat í
stjórn Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, var m.a. formaður
málefnanefndar og átti sæti í mið-
stjórn flokksins og flokksráði um
skeið. Hún var kjörin af Alþingi í
útvarpsráð 1995–99 og 1999–2003,
átti sæti í stjórn Menningarsjóðs
útvarpsstöðva sem fulltrúi RÚV og
var skipuð í samvinnunefnd um
miðhálendið árið 2000.
Þórunn gekk til liðs við Lions-
hreyfinguna á Íslandi 1984 og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
á þeim vettvangi. Hún var fyrsta
konan á Norðurlöndum sem tók
sæti í fjölumdæmisstjórn Lions,
gegndi embætti kynningarstjóra
1988–90 og tók síðan við embætti
svæðisstjóra í umdæmi 109A en
hún var fyrst kvenna innan Lions-
hreyfingarinnar til að gegna emb-
ætti svæðisstjóra.
Fjölskylda
Fyrri maður Þórunnar var Guð-
mundur Arason, f. 25.6. 1938, for-
stjóri. Þau skildu.
Börn Þórunnar og Guðmundar
eru Elíza Guðmundsdóttir, f. 14.11.
1962; Ari Guðmundsson, f. 7.12.
1963, en kona hans er Jóhanna Jó-
hannsdóttir og er sonur þeirra Eyj-
ólfur Andri Arason; Gestur Ben
Guðmundsson, f. 1.9. 1966, en
börn hans eru Viktor Ben og Ein-
ar Ben; Ingi Þór Guðmundsson, f.
1.3. 1971, en kona hans er Rann-
veig Haraldsdóttir og eru börn
þeirra Þórunn Hekla, Aron Snær,
Ísak Nói; Hjördís Guðmundsdótt-
ir, f. 17.10. 1972, en maður hennar
er Ómar Karl Jóhannesson og eru
dætur þeirra Elísa Gígja og Inga
Lilja.
Seinni maður Þórunnar var Eg-
ill Gr. Thorarensen, f. 17.11. 1944,
framkvæmdastjóri. Þau skildu.
Foreldrar Þórunnar: Jón Elías
Jónsson og Hjördís Guðmunds-
dóttir, f. 1.9. 1920, fyrrv. ráðskona
Íslandsbanka.
Kjörfaðir Þórunnar var Gestur
Benediktsson, f. 20.7. 1904, d. 24.9.
1965, veitingaþjónn.
Ætt
Foreldrar Jóns Elíasar voru Sig-
ríður Sigurðardóttir frá Ármúla í
Ásahreppi í Rangárvallasýslu, og
Jón Oddsson frá Þúfu í Landsveit,
en hann var sonur Odds Erlends-
sonar, b. og hreppstjóra, og Elínar
Hjartardóttur húsfreyju.
Hjördís er dóttir Þórunnar
Oddsdóttur og Guðmundar Jóns-
sonar, skósmiðs í Reykjavík, en for-
eldrar hans voru Jón Mikael Hann-
esson og Anna Gränz. Þórunn
var dóttir Eggrúnar Eggertsdótt-
ur (Eyrarætt í Flókadal) og Odds
Þórarinssonar en foreldrar hans
voru Þuríður Oddsdóttir og Þórar-
inn Hafliðason frá Kirkjubæ í Vest-
mannaeyjum.
MINNING
MINNING
Þórunn Gestsdóttir
FYRRV. RITSTJÓRI OG SVEITARSTJÓRI
Fædd 29.8. 1941 – dáin 5.9. 2010
42 MINNING 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
MERKIR ÍSLENDINGAR
Lárus
Salómonsson
LÖGREGLUVARÐSTJÓRI
f. 11.9. 1905, d. 24.3. 1987
Lárus Salómonsson fæddist á Laxár-
bakka í Miklaholtshreppi en foreldr-
ar hans voru Salómon Sigurðsson,
bóndi á Laxárbakka og í Drápuhlíð
í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, f.
26.12. 1851, d. 11.12. 1908, og Lár-
usína Lárusdóttir Fjeldsted, f. 4.9.
1874, d. 17.3. 1942, húsfreyja.
Lárus hóf störf í lögreglunni í Kefla-
vík árið 1935. Hann var settur lög-
reglumaður í Reykjavík 1936 og
starfaði þar lengi en starfaði síð-
ar sem varðstjóri á Seltjarnarnesi
til starfsloka 1975. Hann vann við
sumarlöggæslu á Raufarhöfn 1953,
á Húsavík 1954 og 1955 og var boð-
unarmaður hjá tollstjóra 1954.
Lárus var mikill glímumaður. Hann
varð 10. beltishafi Íslandsbeltisins
sem einnig er kallað Grettisbelt-
ið, og vann það einnig árin 1933 og
1938.
Kona Lárusar var Kristín Gísla-
dóttir, f. 18.6.1908 á Hrútsstöðum í
Gaulverjabæjarhreppi, d. 20.4. 1983.
Börn Lárusar og Kristínar: Ár-
mann Jakob, sem var lögreglumað-
ur i Kópavogi; Grettir, sem var lengi
bifreiðarstjóri í Reykjavík; Kristján
Heimir, sem var lengi vinnuvéla-
stjóri í Kópavogi; Brynja húsfreyja á
Seltjarnarnesi, og Lárus, vinnuvéla-
stjóri í Reykjavík.
Hálfbróðir Lárusar var Helgi
Hjörvar, rithöfundur og útvarps-
maður.
Albræður Lárusar voru Pét-
ur Hoffmann, formaður í Selsvör;
Gunnar Úrsus aflraunamaður;
Lúther pípulagningamaður, og Har-
aldur, faðir Auðar Haralds rithöf-
undar.
Sigurður, afi Lárusar, var bóndi
í Miklholti í Hraunhreppi í Mýra-
sýslu, sonur Horna-Salómons, en
frá honum er komin fjölmenn ætt.
Freymóður
Jóhannesson
MÁLARAMEISTARI,
LISTMÁLARI OG TÓNSKÁLD
f. 12.9.1895, d. 6.3. 1973
Freymóður fæddist í Stærra-Árskógi
á Árskógsströnd í Eyjafirði, sonur Jó-
hanns T. Þorvaldssonar og Hallfríð-
ar Jóhannsdóttur. Freymóður lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Akureyrar, stundaði málaranám hjá
Ástu málara, framhaldsnám í mál-
araiðn í Kaupmannahöfn, nám við
Teknisk Selskabs Skole og listnám í
Kunstakademiet, stundaði listmál-
aranám á Ítalíu og í Danmörku og
nám í leiktjaldagerð við Konunglega
leikhúsið i Kaupmannahöfn.
Freymóður var málarameist-
ari á Akureyri um skeið, listmálari í
Óðins véum í Danmörku 1936–39 og
síðan í Reykjavík og vann þar, en auk
þess við Hagstofuna í Reykjavík.
Myndir Freymóðs voru gjarn-
an landslagsmyndir í súperrealísk-
um stíl enda var honum meinilla
við aðrar stefnur, einkum abstrakt-
málverk sem hann sá ástæðu til að
andæfa. Hann hélt því t.a.m. fram
að þróun í myndlistarstefnum síð-
ari ára væri flótti undan ljósmynda-
tækninni.
Freymóður var mikill bindind-
ismaður og sem slíkur frumkvöðull
að hinum merku dægurlagakeppn-
um SKT sem haldnar voru í Gúttó
og Austurbæjarbíói á sjötta ára-
tugnum. Undir höfundarnafninu
Tólfti september samdi Freymóður
afar vinsæl og grípandi dægurlög og
texta en meðal þekktustu laga hans
eru Frostrósir, Draumur fangans,
Litla stúlkan við hliðið og Litli tón-
listarmaðurinn, sem öll hafa orðið
sígild. Þá var hann siðavandur með
afbrigðum og gagnrýndi harkalega
sýningu kvikmyndarinnar Tákn-
mál ástarinnar sem var sænsk kyn-
fræðslumynd og sýnd í Hafnarbíói
um 1970.
Björn Ingvarsson
FYRRV. YFIRBORGARDÓMARI Í REYKJAVÍK OG LÖGREGLUSTJÓRI
Björn fæddist í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1938, lauk embættisprófi
í lögfræði frá Háskóla Íslands 1944,
öðlaðist hdl.-réttindi 1946, sótti
námskeið hjá Sameinuðu þjóðun-
um í Lake Success í New York 1949,
dvaldi við nám í Genf og London hjá
British Council árin 1953–54 á veg-
um United Nations Technical Assis-
tance og kynnti sér meðferðarúrræði
fyrir afbrotaunglinga og stundaði
nám við Nato Defence College í Róm
1973.
Björn var búsettur að Kaup-
angi í Eyjafirði þar sem hann fékkst
við lögfræðistörf, útgerð og búskap
á árunum 1944–47, var búsettur í
Hafnarfirði frá 1947, var fulltrúi hjá
bæjarfógetanum í Gullbringu- og
Kjósarsýslu 1947–54, var settur lög-
reglustjóri á Keflavíkurflugvelli 1954
og starfaði þar til 1973 og var yfir-
borgardómari í Reykjavík á árunum
1974–87 er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Björn sat í hreppsnefnd Öngul-
staðahrepps og var varaoddviti þar
1946, sat í stjórn málfundafélagsins
Magna í Hafnarfirði 1952-54 og var
formaður þess 1962-64, sat í yfirkjör-
stjórn Reykjaneskjördæmis frá 1959
og var oddviti yfirkjörstjórna 1972.
Hann var mikill hestamaður, var for-
maður hestamannafélagsins Sörla
í Hafnarfirði 1964-67 og varð síðar
heiðursfélagi þess. Þá var hann for-
maður Dómarafélags Íslands 1973-
75.
Fjölskylda
Björn kvæntist 12.2. 1944 Margréti
Þorsteinsdóttur, f. 12.2. 1922, d. 29.8.
2009, húsfreyju. Hún var dóttir Þor-
steins Jónssonar, f. 20.7. 1889, d. 13.10.
1976, kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði,
og k.h., Sigríðar Þorvarðardóttur Kjer-
úlf, f. 25.5. 1891, d. 13.6. 1973, hús-
freyju.
Synir Björns og Margrétar: Ingv-
ar Björnsson, f. 8.7. 1944, d. 7.4. 1997,
lögmaður, en fyrri kona hans var
Herta Kristjánsdóttir, f. 20.3. 1944,
og eru börn þeirra Margrét Úrsúla, f.
21.9. 1966, Björn Ólafur, f. 24.7. 1969,
og Sigurlína Valgerður, f. 14.11. 1978,
en seinni kona Ingvars var Kolbrún
Baldvinsdóttir, f. 26.2. 1944; Þorsteinn
Björnsson, f. 31.7. 1945, prentari í
Reykjavík, en fyrri kona hans var Jón-
ína Jónsdóttir, f. 5.9. 1946, og eru synir
þeirra Jón Örn, f. 22.5. 1969, og Ingv-
ar Björn, f. 29.7. 1974, en seinni kona
Þorsteins er Anna Heiðdal, f. 14.5.
1944; Björn Björnsson, f. 8.6. 1947, d.
18.12. 2009, en fyrrv. sambýliskona
hans er Sigrún Halldórsdóttir, f. 12.3.
1950, og eru börn þeirra Halldór Guð-
finnsson, f. 30.11. 1973 (uppeldisson-
ur), Hildigunnur Guðfinnsdóttir, f. 6.7.
1977 (uppeldisdóttir), Björn Viðar, f.
23.7. 1986, og Margrét, f. 10.12. 1991.
Systkini Björns: Kristín, f. 1918;
Helga, f. 1924, nú látin; Hulda, f. 1926,
nú látin; Gunnar, f. 1930, nú látinn;
Hjördís, f. 1932, nú látin; Inga, f. 1933;
Sigurður, f. 1935.
Uppeldissystir Björns var Þóra
Björk Kristinsdóttir, f. 1936.
Foreldrar Björns voru Ingvar
Jónadab Guðjónsson, f. 17.7. 1888,
d. 8.12. 1943, útgerðarmaður í Kaup-
angi í Eyjafirði, og Jónína Björnsdóttir,
f. 25.7. 1897, d. 9.12. 1977, síðar hús-
freyja og prestsfrú á Syðra-Laugalandi
í Eyjafirði.
Stjúpfaðir Björns var séra Benja-
mín Kristjánsson, f. 11.6. 1901, d. 3.4.
1987, prestur og prófastur á Syðra-
Laugalandi.
Ætt
Ingvar var sonur Guðjóns Helgason-
ar, fiskmatsmanns á Akureyri, og k.h.
Kristínar Árnadóttur húsfreyju.
Jónína var dóttir Björns Ólafs
Jónssonar, skipstjóra á Karlsstöðum í
Fljótum í Skagafirði, og k.h. Guðríðar
Hjaltadóttur húsfreyju.
Fæddur 20.5. 1917 – dáinn 28.8. 2010
\\ELVIS\Elvis MSA1\_DV\CMYK_
MYNDIR\DV100609137.jpg