Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 44
Sunnudaga- morðinginn Carl Eugene Watts, einnig þekktur sem Coral, Kórall, öðlaðist friðhelgi fyrir tug morða sem hann framdi með því að semja við saksóknara árið 1982. Hann var bandarískur raðmorðingi og fékk viðurnefnið The Sunday Morning Slasher. Hann framdi allt að áttatíu morð. Carl Eugene Watts var skilnaðarbarn. Hann fæddist 1953 í Texas. Tveimur árum síðar skildu foreldrar hans og Carl fylgdi móður sinni auk þess sem hann var um tíma í umsjá ömmu sinnar. Í æsku fékk hann heilahimnubólgu sem fylgdi hár hiti og urðu veikindin til þess að hann gat ekki klárað átt- unda bekk. Þegar hann snéri aftur í skólann kom í ljós að hann átti við námsörðugleika að stríða auk þess sem framferði hans í garð bekkjar- systra hans var verulega ábótavant. Sextán ára að aldri las hann náms- efni þriðja bekkjar og var fórnar- lamb eineltis í skóla. Þrátt fyrir slakan námsárangur sýndi Carl mikla íþróttahæfileika og fékk íþróttastyrk og inngöngu í Lane-miðskólann í Tennessee. En skólavist þar fékk skjótan endi því eftir aðeins þrjá mánuði var hann rekinn í kjölfar ásakana um árásir og stjákl í kringum námsstúlkurn- ar. Einnig var hann grunaður um morð á námsstúlku, en áþreifanleg- ar sannanir skorti til að styðja þann grun. Carl flutti þá á heimaslóðir í Texas. Gekk lengi lausum hala Raðmorðaferill Carls hófst þegar hann var tvítugur, 1974, en þess ber að geta að löngu fyrr hafði hann verið úrskurðaður hættulegur ein- staklingur og vistaður á stofnun um einhverja hríð. Carl ánetjaðist fíkni- efnum og gerðist einrænn. Carl stundaði að ræna konum af heimili þeirra og pyntar þær og síð- an myrða. Þann 30. október 1974 féll Gloria Steele fyrir hendi Carls, eftir að hafa sætt pyntingum og mis- þyrmingum. Talið er að Gloria hafi verið annað fórnarlamb Carls, en þeim átti eftir að fjölga næstu árin. Síðar kom í ljós að kona að nafni Lenore Knizacky hafði sloppið með skrekkinn aðeins fimm dögum fyrr eftir að hafa farið til dyra á heim- ili sínu. Gloria hafði ekki verið jafn heppin, hún hafði verið stungin þrjátíu og þrisvar í bringuna. Í nóv- ember slapp Diane Williams með naumindum úr klónum á Carl og gat gefið lögreglu lýsingu á bíl hans. Engu að síður komst Carl, næstu átta árin, upp með morð á ótal kon- um á aldrinum 14 til 44 ára og beitti ýmsum aðferðum. Hann kyrkti fórnarlömb sín, stakk þau til bana, barði til dauða og drekkti þeim. Víðförull morðingi Ástæður þess að Carl komst upp með ódæði sín voru af ýmsum toga. Morðin framdi Carl í nokkrum lög- regluumdæmum og tilkoma DNA- rannsókna hafði lítið að segja því ólíkt flestum raðmorðingjum átti Carl ekki meira við fórnarlömb sín en nauðsyn krafði og því var engin lífsýni að finna, enda virtust morð- in ekki vera af kynferðislegum toga. Fólk sem þekkti til Carls grunaði hann ekki um græsku og því fór svo að hann var ekki grunaður um morðin fyrr en eftir að hann var handtekinn árið 1982, eftir að hann braust inn til tveggja ungra kvenna í Houston og reyndi að myrða þær. Á meðan Carl var í varðhaldi rann upp fyrir lögreglunni ljós og hún fór að tengja hann við nýlega framin morð á konum. Einnig kom í ljós að yfirvöld í Michigan, þar sem Carl hafði haft búsetu allt til ársins 1981, höfðu hann sterklega grunað- an um morð á að minnsta kosti tíu konum og stúlkum. Reyndar hafði Carl verið yfirheyrður vegna þeirra morða árið 1975, en yfirvöld skorti sönnunargögn. Sextíu ár í kjölfar samnings Þrátt fyrir að saksóknari í Texas væri nær fullviss um sekt Carls skorti til- finnanlega sannanir til að sakfella hann. Því gerðu þeir samning við Carl um að hann upplýsti um glæpi sína og játaði sekt og nyti fyrir vikið friðhelgi hvað varðaði morðákæru. Í hennar stað yrði hann ákærður fyr- ir innbrot með morðásetningi, en sú ákæra varðaði allt að sextíu ára fangelsisvist. Carl játaði á sig tólf morð í Texas. Yfirvöld í Michigan voru hins vegar ekki á þeim buxunum að semja við morðingja og því var máli hans í því ríki haldið opnu. Síð- ar fullyrti Carl að hann hefði myrt fjörutíu konur og gaf sterklega í skyn að fórnarlömbin væru jafnvel fleiri en áttatíu. En hann vildi ekki játa þau á sig því hann vildi ekki vera álitinn fjöldamorðingi. Allt að einu. Skömmu eftir að hann hóf afplánun komst áfrýjun- ardómstóll í Texas að þeirri niður- stöðu að láðst hefði að upplýsa Carl um að fulla baðkarið, sem hann hafði reynt að drekkja einu fórnar- lambinu í, væri talið banvænt vopn. Þess vegna varð Carl, með tilliti til laga, afbrotamaður „án ofbeldis- hneigðar“ sem gerði honum kleift að sækja um lausn áður en afplán- un lyki, kysi hann að gera það. Ef svo færi gat Carl orðið frjáls maður árið 2006. Sakfelldur fyrir morð Snemmbúin lausn Carls var nokkuð sem yfirvöldum í Michigan hugnað- ist ekki og árið 2004 kom Mike Cox, yfirsaksóknari fylkisins, fram í sjón- varpi og bað hvern þann sem byggi yfir upplýsingum um Carl að gefa sig fram til að tryggja áframhaldandi fangavist hans. Mike Cox varð að ósk sinni því maður að nafni Joseph Foy frá Mich- igan gaf sig fram og bar vitni um að hann hefði séð mann sem svipaði til lýsingar af Carl myrða konu að nafni Helen Dutcher í desember 1979, en Helen lést eftir að hafa verið stungin tólf sinnum með eggvopni. Þrátt fyrir að Carl nyti friðhelgi hvað varðaði morðin í Texas var sú ekki raunin um morð í Michigan og til að baktryggja sig fór Mike Cox fram á að hægt yrði að leggja játn- ingar Carls í Texas fram sem sönn- unargögn. Cox hafði erindi sem erf- iði. Þann 17. nóvember 2004 komst kviðdómur í Michigan að þeirri niðurstöðu að Carl væri sekur um morðið á Helen Dutcher og hann var dæmdur til lífstíðarfangelsis. En sagan var ekki öll því tveimur dögum síðar hófst vinna yfirvalda í Michigan við að fá hann sakfelldan fyrir morðið á Gloriu Steele sem var stungin til bana árið 1974. Réttarhöld vegna morðsins á Gloriu hófust í Kalamazoo 25. júlí 2006, lokaræður voru fluttar þann 26. og kviðdómur kvað upp sektar- dóm þann 27. Carl „Coral“ Eugene Watts lést úr krabbameini 21. september 2006 á fangelsisjúkrahúsi í Jackson í Michi- gan. 44 sakamál umsjón: kolbEinn þorStEinSSon kolbeinn@dv.is 10. september 2010 föstudagur Síðar fullyrti Carl að hann hefði myrt fjörutíu konur og gaf sterklega í skyn að fórnarlömbin væru jafnvel fleiri en áttatíu. Afkastamikill raðmorðingi Carl Eugene Watts gaf í skyn að fjöldi fórnarlamba hans væri yfir áttatíu. nokkur fórnarlamba Carls Fórnarlömbin voru á aldrinum 14 til 44 ára og morðaðferðir hans voru mismunandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.