Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Qupperneq 46
NafN og aldur?
„Charlottte Bøving, 46 ára.“
atviNNa?
„Leikkona, leikstjóri, handritshöfundur og mark-
þjálfi.“
Hjúskaparstaða?
„Gift.“
fjöldi barNa?
„Þrjú.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Við eigum naggrís og fimm hesta.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Mína eigin, ég frumsýndi Þetta er lífið í Iðnó á laug-
ardaginn síðasta. Þar syng ég og tala um lífið við und-
irleik Pálma Sigurhjartarsonar píanóleikara.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Ég held ekki.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Það er hvítur peysujakki, því hann heldur á mér
hita.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei. Ég trúi að því meira sem maður hugsar um
þyngdina, því meira verði af henni. Eins og með allt
annað í lífinu; Það sem þú veitir athygli, vex og verður
stærra.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Kannski... ég trúi að þegar við yfirgefum þennan
heim fari sálin út í hið óendanlega og kannski kemur
hún aftur í öðru formi, kannski!“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Ég skammast mín ekki, það er óþarfa eyðsla á orku
og tíma.
En ég söng einu sinni alltaf „Skiloptu, jæjæjæ“ við
Bítlalag sem átti að hljóma „She loves you, yeah yeah
yeah“ – það var vandræðalegt.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Michael Jackson klikkar aldrei.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Til að sýna Þetta er lífið fyrir fullum sal af glöðu fólki í
Iðnó á laugardaginn klukkan 14 og 20.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„The Big Chill. Frábær tónlist og leikur.“
afrek vikuNNar?
„Að frumsýna einleikinn Þetta er lífið sem ég
skrifaði sjálf og setti upp. Þar syng ég dönsk lög
og flyt hugleiðingar um lífið á íslensku.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Já. Láttu mig fá hljóðfæri og ég skal spila á það.
Ég spila til dæmis bæði á flautu og gítar í sýn-
ingunni minni.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Það er hægt að sjá bæði kosti og galla við það,
mér finnst maður verði að hugsa bæði „lókalt“
og „glóbalt“.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að lifa lífinu lifandi.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú
vilja Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Engan. Ég myndi frekar vilja fara með vin-
konu.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, mörg. Ég skrifaði mest þegar ég var yngri
og þjáðist af óendurgoldinni ást. Það er best
að skrifa þegar maður er óhamingjusamur. (En
ekki of óhamingjusamur.)“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég er of alvarleg til að gera prakkarastrik og ég
hef heldur ekki tíma til þess. Nú virðist ég mjög
leiðinleg!“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Það verða aðrir að dæma.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Já, marga! En ég ætla að halda þeim fyrir sjálfa
mig...“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Ég þarf að hugsa mig betur um áður en ég get
svarað þeirri spurningu.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Inni í mér þegar ég er alveg tóm.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN
þú ferð að sofa?
„Ég set bleyjur á tveggja ára tvíburadætur mínar,
því þær taka bleyjurnar alltaf af sér áður en þær
fara að sofa.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Von, vilji og vitsmunir.“
Leikkonan og leikstjórinn Charlotte Bøving frumsýndi nýverið
einleik sinn Þetta er lífið í Iðnó. Charlotte finnst tímaeyðsla að
skammast sín og hlakkar mest til að syngja um lífið á íslensku.
Hún segir að Michael Jackson klikki aldrei þegar kemur að
tónlist sem kveiki í henni.
of alvarleg fyrir
prakkarastrik
46 hin hliðin 10. september 2010 föstudagur
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Loksins fáanLeg
aftur á ÍsLandi
Bók sem
hefur hjálpað
mörgum til
betra lífs
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s