Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 52
52 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 10. september 2010 FÖSTUDAGUR GOOGLE TV Í HAUST Google hefur upplýst að Google TV sem fyrst var kynnt í maí fyrr í ár kæmi á markað nú á haustmánuðum í Bandaríkjunum og síðan á alþjóða- markað strax á næsta ári. Google TV er í raun hugbúnaður sem byggður er á Android-stýrikerfinu og gerir það kleift að kaupa eða leigja kvikmynd- ir og sjónvarpsþætti í gegnum netið sem síðan er streymt til viðkomandi. Hvert það fyrirtæki sem nýtir sér hug- búnaðinn getur bætt við eigin forrit- um eða samhæft hann við vöru sína. Þegar er vitað að Logitech og Sony ætla að setja tæki á markað á næst- unni með Google TV-hugbúnaði. Google kynnti nýja útgáfu af leitarvél sinni í vikunni: Sýnir strax niðurstöður Google kynnti nýja útgáfu af leit- arvél sinni í vikunni sem kallast Google Instant. Nýja útgáfan sýnir niðurstöður um leið og hluti orðs eða orða er sleginn inn og í yfir- lýsingu frá leitarrisanum segir að leitartími styttist að meðaltali um tvær til fimm sekúndur. Miðað við þann fjölda sem notar Goog- le-leitarvélina í hverri viku gæti þetta þýtt að um ellefu klukkutím- ar sparist á hverri sekúndu í leitar- tíma á heimsvísu. Google Instant verður aðeins hægt að nýta sér í nýjustu útgáfum stærstu vafranna, IE8, Firefox 3, Google Chrome og Apple Safari 5 og að auki þarf viðkomandi að vera skráður inn í þjónustu Google (Google Acc- ount). Fyrir tíu árum þótti sú hug- mynd að hægt væri að framkalla vefleitarniðurstöður samstund- is við innslátt bókstafs svo fárán- leg og óraunhæf að hún var notuð sem aprílgabb hjá ... Google. Nýja útgáfan mun væntanlega styrkja stöðu leitarrisans enn frek- ar gagnvart keppinautunum. Bing, leitarvél Microsoft, hefur undan- farna mánuði náð umtalsverðum árangri vestanhafs og eftir sam- runa við Yahoo má leiða að því lík- ur að Bing sjái um fjórðung allrar vefleitar í Bandaríkjunum. Hins vegar er talið að leitarvélin skili enn sem komið er engum tekjum til Microsoft, rekstrarkostnaður sé álíka mikill og tekjurnar. Ef Goog- le Instant eykur vinsældir Google gæti Bing því lent í erfiðleikum. palli@dv.is Google Instant Fyrirtækið nýtir sér meðal annars tónlistarmyndband Bob Dylans frá árinu 1965 við lagið „Subterranean Homesick Blues” til að kynna hina nýju þjónustu. Hægt er að skoða kynninguna á YouTube. YFIR 10000 FORRIT Á APP WORLD Blackberry App World, vefverslun fyrir snjallsíma frá RIM, skreið yfir tíu þúsund forrita þröskuldinn í vik- unni. Það er þó langt í að vefversl- unin komist með tærnar þar sem App Store fyrir iPhone eða Android Market hafa hælana. Talið er að App Store sé með um 250 þúsund forrit og Android Market með um 70–100 þúsund. Blackberry-snjallsímar eiga ekki sömu vinsældum að fagna og iPhone eða Android-símar, hafa ekki stóra snertiskjái og er frekar ætlað að vera fyrirtækjasímar og því oft læstir fyrir innsetningu nýrra forrita. Það gerir þá ekki fýsilegan kost fyrir for- ritaþróendur. TOSHIBA LIBRETTO Toshiba fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli sínu í fartölvugeiranum og hefur af því tilefni sett á markað Toshiba Libretto W105. Fartölvan verður til sölu á almennum mark- aði í stuttan tíma og kostar um 1.100 Bandaríkjadali vestanhafs. Tölvan keyrir á Windows 7 og skartar tveim- ur 7 tommu snertiskjáum, 1.2 GHz Pentium U500 örgjörva, 64GB SSD og 2GB vinnsluminni. iOS 4.1 er hægt að nálgast í gegn- um iTunes og meðal nýjunga má nefna stuðning fyrir sjónvarps- þætti (TV show rentals), mögu- leika á að senda háskerpumynd- skeið á YouTube og MobileMe og aukna samhæfni við tæki búin AVRCP-tækni sem þýðir að nú munu flest ef ekki öll Blátann- ar-heyrnartól virka sem skyldi. Stuðning við Facetime er líka að finna í uppfærslunni en nánar var fjallað um Facetime í síðasta helg- arblaði. Að auki er að finna nýja stillingu fyrir myndavélar iPhone og iPhone Touch sem kallast High Dynamic Range Photos og felst í því að þrjár myndir eru teknar með mismunandi lýsingartíma (expos- ure level) og þær síðan sameinað- ar til að framkalla sem besta út- komu myndarinnar. Game Center iOS 4.1 innleiðir einnig nýtt sam- skiptakerfi fyrir leikjaunnendur sem kallast Game Center. Með því að nota kerfið er hægt að bæta við vinum og skora á þá í leikjum, (head-to-head matches) láta flokka sig eftir færni og spila við aðra í sama flokki og sjá hæstu stigin. Game Center verður hægt að nota á annarrar kynslóðar iPod Touch og nýrri auk iPhone 3GS og iPhone 4. iOS 4.2 fyrir iPad Á Special Event-kynningunni í byrj- un mánaðarins upplýsti Steve Jobs, framkvæmdastjóri Apple, um næstu uppfærslu stýrikerfisins sem von er á í nóvember. Sú uppfærsla mun gleðja iPad-eigendur verulega sem þá öðl- ast alla þá eiginleika sem iPhone SGS og 4 njóta nú, þar á meðal má nefna fjölvinnslu (multitasking). Í þessari uppfærslu verður einnig að finna þráðlausa prentun og Air- Play (áður AirTunes) en með AirPlay má til að mynda streyma þráðlaus- um myndskeiðum frá iPad í Apple TV. Óraunhæft verð Apple-vörur njóta sífellt meiri vin- sælda nú á dögum en það sem fælir marga kaupendur frá hér á landi er verðið. Hjá epli.is, sem er einn helsti söluaðili á Apple-vörum á Íslandi, er hægt að forpanta hinn nýja iPod Nano en von er á honum til landsins í október. 8GB útgáfan kostar 36.850 kr. en 16GB útgáfan 43.640 kr. Tölu- verður munur er á verði á iPod hér á landi miðað við önnur lönd og er helst um að kenna íslenskum tolla- lögum en þar er iPod skilgreindur sem upptökutæki og settur á hann um 33% tollur. Hvorki söluaðilar né neytendur eru ýkja hrifnir af þessari flokkun á iPod hér á landi. Til við- miðunar kostar 8GB iPod Nano rétt tæpar 25 þúsund krónur í vefverslun Apple í Danmörku og er þá meðtal- inn virðisaukaskattur og önnur gjöld. Í vefverslun Apple í Bandaríkjunum kostar hann 149 dollara fyrir utan söluskatt sem er á bilinu 0–9% í fylkj- um Bandaríkjanna. palli@dv.is Í síðasta helgarblaði var rangt far- ið með að Apple hefði kynnt nýjar vörur á WWDC-ráðstefnu (Apple Worldwide Developers Conference) í byrjun mánaðarins. Hið rétta er að Steve Jobs kom fram á Apple Special Event 1. september til að kynna ýms- ar nýjungar en WWDC-ráðstefnan var hins vegar haldin í júní. Í kjölfar nýrra útgáfna á iPod hefur Apple-fyrirtækið nú sent frá sér iOS 4.1, uppfærslu á stýrikerfi fyrir iPod Touch og iPhone. iOS 4.1 KOMIÐ Í ITUNES iPod Nano Ótrúlegur verðmunur er á iPod á Íslandi miðað við önnur lönd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.