Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 3
mánudagur 13. september 2010 fréttir 3
Ég taldi að hann yrði að víkja.
Séra Halldór í Holti Halldór
Gunnarsson sóknarprestur fékk
staðfestingu á orðum Sigrúnar Pálínu
hjá móður sinni og sannfærðist
endanlega þegar hann bar framburð
hennar saman við framburð Ólafs.
Í kjölfarið óskaði hann eftir því að
kirkjumálaráðherra viki biskupi úr
embætti.
Bræðurnir Kristinn Jón og Gabríel Gíslasynir eru þakklátir fyrir að hafa komist
lifandi frá bílveltu á Hringbraut um helgina. Bíllinn, sem Kristinn ók, var einn
flottasti sportbíll landsins en hann gjöreyðilagðist. Kristinn fékk bílinn upp í sem
greiðslu þegar hann seldi hlut sinn í pítsastaðnum Rizzo.
„Þetta var skelfileg lífsreynsla, ég
hélt að þetta yrði mitt síðasta,“ seg-
ir Kristinn Jón Gíslason í samtali
við DV. Kristinn var bílstjóri Merce-
des Benz-bifreiðarinnar sem valt á
Hringbrautinni aðfaranótt laugar-
dags. Með Kristni í bílnum þessa
nótt var yngri bróðir hans Gabríel
en það þykir í raun með ólíkind-
um hversu vel þeir sluppu frá slys-
inu. „Við hefðum getað farið alveg
í stöppu, bílslys eru með því alvar-
legasta sem fólk lendir í, ég tala nú
ekki um bílveltur,“ segir Kristinn.
Flottasti sportbíll landsins
Í viðtali við DV.is á laugardaginn
sagði varðstjóri lögreglu að bif-
reiðin hefði verið í algjörri í klessu
þegar lögreglan kom að henni. Þá
sagði hann að grunur léki á að um
hraðakstur hefði verið að ræða.
Kristinn Jón segir í samtali við DV
að hann hafi ekki ekið of hratt,
hann hafi litið af veginum í ör-
skotsstund og áður en hann vissi
af hafi bíllinn verið kominn upp á
kantinn á umferðareyju. Eftir það
hafi hann misst alla stjórn á hon-
um.
Að sögn Kristins lét athafna-
maðurinn og verktakinn Engilbert
Runólfsson hann fá bílinn upp í
sem greiðslu fyrir hlut Kristins í
pítsastaðnum Rizzo. Bifreiðin var
einn flottasti sportbíll landsins,
metin á tæplega 35 milljónir króna.
Bíll sem þessi kostar nýr tæpar 55
milljónir króna hjá Öskju, sam-
kvæmt upplýsingum DV.
Missti alla stjórn
„Um leið og framdekkið krækti upp
á kantinn hafði ég ekkert meira
með það að gera að stýra bílnum,
hann bara kastaðist beint upp á
grasbalann og að veghandriðinu,“
segir Kristinn sem er að vonum
ánægður með að ekki fór verr. „Það
var ekkert hægt að bremsa á gras-
inu og þar flugum við bara áfram
beint á veghandrið og þannig kast-
aðist bíllinn áleiðis upp í loftið og
snérist í loftinu. Með því að keyra á
veghandriðið kom svona hálfgerð
„skutla“ á bílinn,“ segir Kristinn
enn fremur. Eins og fyrr segir kom-
ust Kristinn og Gabríel bróðir hans
ómeiddir frá þessari bílveltu en
það þykir kraftaverki líkast. Krist-
inn segir slíka atburði verða til þess
að menn líti lífið og tilveruna öðr-
um augum en áður.
Þakklátir bræður
„Maður er bara þakklátur fyrir að
lifa þetta af, það er það dýrmæt-
asta af öllu. Svo er maður bara
reynslunni ríkari, maður metur til-
veruna upp á nýtt eftir svona atvik.“
Hann segir lífsreynsluna hafa verið
magnþrungna. Þegar bíllinn lenti á
hvolfi hafi hann í fyrstu spurt bróð-
ur sinn hvort það væri í lagi með
hann en svo hafi þeir báðir þreif-
að á sér til þess að athuga hvort
allt væri í lagi. „Við trúðum því ekki
sjálfir. Að lenda á veghandriði á 70
til 80 kílómetra hraða er bara geð-
veiki. Auðvitað vorum við þvílíkt
sáttir að ganga frá þessu lifandi. En
bíllinn, hann er náttúrulega tapað-
ur.“
„Slow motion“
Aðspurður hversu langan tíma
þetta hafi tekið segir Kristinn:
„Þetta bara gerðist á tveimur,
þremur sekúndum en það var eins
og allt væri í „slow motion“ þegar
púðarnir komu út allan hringinn.
Það var náttúrulega eins og mað-
ur hefði verið settur í dún, það
voru púðar úti um allt og bíllinn
er sterkur og það var ábyggilega
blanda af þessu öllu saman sem
bjargaði lífi okkar á endanum.“
Kristinn segir að hann hefði
aldrei keypt sér svo flottan bíl sjálf-
ur, en að hann hafi fengið hann
upp í þegar hann seldi hlut sinn
í pítsastaðnum Rizzo. Þá segist
hann hafa ætlað sér að selja bílinn,
en nú sé úti um allar slíkar áætlan-
ir. Hann vill ekki tjá sig um trygg-
ingarmálin og bendir á að lögfræð-
ingur hans sjái um allt slíkt.
Við hefðum getað farið al-
veg í stöppu, bílslys
eru með því alvarleg-
asta sem fólk lendir í,
ég tala nú ekki um bíl-
veltur.
„ÞAKKLÁTUR FYRIR
AÐ LIFA ÞETTA AF“
Jón bJarKi MaGnúSSon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Í klessu Varðstjóri lögreglunnar sagði í samtali við DV.is um helgina með
ólíkindum að ekki hefði farið verr.
Púðarnir björguðu „Það var náttúrulega eins
og maður hefði verið settur í dún, það voru
púðar úti um allt,“ segir Kristinn, sem er hægra
megin á myndinni, í samtali við DV.
Mynd SiGtryGGur ari