Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 4
4 fréttir 13. september 2010 mánudagur
• Hindrar blöðrumyndun
– verndar fætur
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
• Gervihúð sem andar
Compeed
plásturinn
yfirmaður í íslands-
banka fær afskrifað
Útlit er fyrir hundraða milljóna króna afskriftir vegna verktakafyrirtækis sem tengist
félagi í eigu yfirmanns í Íslandsbanka, Bjarneyjar Harðardóttur. Fyrirtækið sem um
ræðir er SÆ14 ehf. Nýtt fyrirtæki hefur verið stofnað á rústum þess gamla. Félagið
skuldar Íslandsbanka 400 milljónir króna.
Bjarney Harðardóttir, forstöðu-
kona markaðssviðs Íslandsbanka,
er stjórnarformaður Búa eignafé-
lags sem á 50 prósenta hlut í eign-
arhaldsfélaginu SÆ14, áður kallað
Húsbygg ehf., sem tekið var til gjald-
þrotaskipta þann 31. mars. SÆ14
skuldar Íslandsbanka fjögur hund-
ruð milljónir króna.
Allt útlit er fyrir að stór hluti
skuldarinnar verði afskrifaður og nú
hefur nýtt félag verið stofnað á rúst-
um þess gamla.
Mikil rýrnun eigna
Í beiðni um gjaldþrotaskipti fyrir
SÆ14 segir að nú sé svo komið fyr-
ir félaginu að í því sé engin starf-
semi og engin innkoma. Í nýja fé-
laginu, sem stofnað var á rústum
þess gamla stuttu eftir úrskurð um
gjaldþrot, er starfsemin hins vegar
sú sama: verktakastarfsemi, kaup á
húsum og lóðum, hönnun og bygg-
ing mannvirkja og leiga og rekstur
fasteigna.
Ástæða gjaldþrotaskiptanna er
sögð vera ástandið í byggingargeir-
anum á Íslandi sem valdi því að fé-
lagið geti ekki með nokkru móti
borgað af þeim skuldum sem á því
hvíli og séu skuldir félagsins orðnar
langt umfram eignir þess.
Samkvæmt kröfulista og úr-
skurðinum um gjaldþrot voru
skuldir töluvert umfram eignir, eða
626 milljónir á móti 334 milljónum
króna. Ekki liggur enn fyrir hversu
mikið af eignum sem fyrirtæk-
ið átti fást upp í skuldir og skoðar
skiptastjóri rýrnun þeirra í kjölfar
rekstrarerfiðleika fyrirtækisins.
Eins og áður sagði er allt útlit
fyrir að stórfelldar afskriftir verði
á skuldum félagsins sem voru að
stórum hluta hjá Íslandsbanka,
vinnustað Bjarneyjar. Skiptastjóri
þrotabúsins segir afar óljóst hver
eignastaða SÆ14 ehf. hafi í raun
verið við gjaldþrotaskiptin og sé
hún nú athuguð.
Bjarney kannast ekki við
stöðuna
Bjarney segir betur fara á því að þeir
sem tengist félaginu beint séu spurðir
um afdrif þess og lánastöðu og þver-
tekur fyrir að fyrirtækið hafi notið
góðs af störfum hennar hjá Íslands-
banka og helmingseignarhlut fé-
lags hennar í fyrirtækinu. Hún kem-
ur af fjöllum hvað varðar stórfelldar
skuldir félagsins. „Ég hef ekki nokkra
vitneskju um stöðu Húsbygg [SÆ14,
innskot blaðamanns] né lánamál,
eðlilegt er að þessi spurning sé borin
undir þá sem reka það félag eða sitja
í stjórn þess,“ segir Bjarney í bréfi til
DV.
Samkvæmt Lánstrausti er Bjarney
hins vegar stjórnarformaður Búa,
sem á 50 prósenta hlut í SÆ14.
Góð staða fjölskyldufélags
Búi ehf. er vel stætt félag. Eigið fé fé-
lagsins er 258.886.565 milljónir króna.
Tap þess með tilliti til afkomu hlut-
deildarfélags var 74.487.922 milljónir.
Greiddur arður er sagður í ársreikn-
ingi vera 33 milljónir. Bjarney fer með
þriðjungshlut í fyrirtækinu og er pró-
kúruhafi og stjórnarformaður. Aðr-
ir hluthafar eru faðir hennar Hörður
Jónsson og Pálmar Harðarson bróð-
ir hennar. Eignarhluti í Húsbygg sem
nú heitir SÆ14 var metinn á bókfærðu
verði í ársreikningi félagsins upp á
251.364.966 krónur. Nafnverð hlutar-
ins er 600.000 krónur. Eignarhluturinn
í SÆ14 er eini eignarhluti hlutdeildar-
félags Búa ehf.
Stjórnarformaður Húsbyggs er
Hjörleifur Einar Árnason. Stjórnar-
maður er Pálmar Harðarson.
Góð ímynd mikilvæg bankanum
Þrátt fyrir þessi tengsl við skuldum
vafið fyrirtæki í þroti fjármögnuðu
af bankanum sem hún vinnur fyrir
sagði Bjarney Harðardóttir í frétt DV
4. september bankann gera þá kröfu
að þeir aðilar sem starfi hjá eða fyrir
bankann væru til fyrirmyndar að því
leyti að þeir hefðu trausta greiðslu-
sögu og væru ekki skráðir á van-
skilaskrá hjá Lánstrausti. Þetta sagði
Bjarney vegna þeirrar staðreyndar
að fyrirsætur og leikarar sem koma
til greina í auglýsingar og kynning-
arefni fyrir Íslandsbanka eru settir í
greiðsluathugun að þeim forspurð-
um til að tryggja góða ímynd bank-
ans og að þeir væru ekki ráðnir væri
greiðslusaga þeirra slæm.
Ljóst er hins vegar að Bjarney
sjálfist tengist félagi sem skuldar
bankanum sem hún vinnur hjá fleiri
hundruð milljónir króna.
kristjana GuðBrandsdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Eðlilegt er að þessi spurning
sé borin undir þá sem
reka það félag eða sitja í
stjórn þess.
bílvelta í
biskupstungum
Bíll valt við bæinn Múla í Biskups-
tungum á sunnudagsmorgun. Þrír
voru í bílnum og voru tveir fluttir á
slysadeild. Sá þriðji slapp ómeidd-
ur. Verið er að rannsaka hvort öku-
maðurinn hafi verið undir áhrifum
áfengis. Þá var annar ökumaður
stöðvaður aðfararnótt sunnudags
skammt frá Reykholti í Biskupstung-
um grunaður um ölvun við akstur.
Glitnir sektaður
Hinn gjaldþrota banki Glitnir var
sektaður árið 2007 fyrir að tilkynna
ekki um áform sín um að opna þá
útibú í New York, að því er RÚV
greindi frá á sunnudag. Sektin kom
frá Fjármálaeftirlitinu sem frétti af
opnun útibúsins í fjölmiðlum. Sjö
fyrrverandi stjórnendur og lykil-
persónur Glitnis þurfa nú að verjast
stefnu slitastjórnar bankans fyrir
bandarískum dómstólum en slita-
stjórnin reynir nú hvað hún get-
ur að sýna fram á viðskiptatengsl
sjömenninganna við Bandaríkin og
réttlæta málarekstur sinn fyrir þar-
lendum dómstólum. Sjömenning-
arnir fara fram á frávísun og segja
málið ekki eiga erindi fyrir banda-
rískan dómstól.
fundu íshelli
170 metra langur íshellir fannst ný-
lega í Hattardal í Álftafirði. Frá þessu
var sagt á fréttavef Bæjarins besta
þar sem fram kemur að lofthæðin í
miðjum hellinum sé um 5 metrar og
breidd munnans mælist 12 metrar.
Í báða enda er hellirinn opinn og
seytlar lítill lækur í gegnum hann. Á
sama stað fannst annar íshellir árið
1963 en sá var talvert styttri en þessi
sem nú er fundinn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
leitar enn að eldri karlmanni sem
grunaður er um að hafa áreitt barn
kynferðislega síðastliðið föstudags-
kvöld í Laugarneshverfinu í höfuð-
borginni. Að sögn lögreglu er hann
talinn hafa þuklað á barninu með
ósæmilegum hætti.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu er
rannsókn í fullum gangi og stendur
leit yfir að meintum barnaníðingi sem
leitaði á tíu ára dreng á lóð Laugalækj-
arskóla á föstudagskvöld. Að sögn lög-
reglunnar voru nokkrir ungir drengir
saman að leik þegar karlmaður, sem
talinn er vera á milli fimmtugs og sjö-
tugs, leitaði á einn þeirra. Maðurinn
er talinn hafa farið með unga dreng-
inn afsíðis að nærliggjandi stigagangi
sem er við skólalóðina, og káfað á hon-
um þar. Hvorki er vitað hver maður-
inn er né hvernig hann fékk drenginn
til að fara með sér. Lögregla styðst við
lýsingu á manninum við leitina. Lög-
reglumenn leituðu að hinum meinta
barnaníðingi í Laugardalnum á föstu-
dagkvöld þar sem að minnsta kosti
fjórir lögreglubílar tóku þátt í leitinni.
Lögreglumennirnir leituðu meðal
annars við Laugalækjarskóla og Engja-
veg þar sem tvö íþróttafélög, Ármann
og Þróttur, eru með aðsetur.
Þeir sem telja sig búa yfir einhverj-
um upplýsingum eru beðnir um að
hafa samband við lögregluna í síma
444 1104. trausti@dv.is
Meintur barnaníðingur á ferð í Laugardalnum:
Káfaðiáungumdreng
Laugalækjarskóli Drengurinnvaraðleikviðskólann.
starfsmaðurinn tengdur við miklar skuldir
StarfsmaðurÍslandsbanka,BjarneyHarðardóttir,
eróbeinneigandigjaldþrotafélagssemskuldar
Íslandsbanka400milljónirkróna.