Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Qupperneq 8
8 fréttir 13. september 2010 mánudagur
„ÉG VAR BARA
STEINSOFANDI“
Knattspyrnukonan Hólmfríður Magnúsdóttir steinsvaf á meðan bygging í nokkurra metra fjarlægð frá
heimili hennar fuðraði upp í stórbruna í Coatsville í Bandaríkjunum. Hún vaknaði ekki fyrr en slökkvi-
liðsmenn brutu niður hurðina hjá henni og komu henni út. Hún segir óhugnanlegt hversu eldurinn
teygði sig nálægt henni þar sem hún svaf en segir kraftaverk að enginn hafi látið lífið.
„Ég tel mjög vel sloppið að enginn
hafi dáið því þetta gerðist um nótt
þegar allir voru sofandi. Það er eig-
inlega bara kraftaverk því þessi hús
fuðra bara upp þegar þau brenna,“
segir Hólmfríður Magnúsdótt-
ir, landsliðskona í knattspyrnu.
Hólmfríður vaknaði upp við vond-
an draum aðfaranótt föstudags
þegar slökkviliðsmenn brutu sér
leið inn í íbúð hennar í Coatsville í
Bandaríkjunum. Hús, sem stendur
í aðeins nokkurra metra fjarlægð
frá heimili hennar, stóð þá í ljós-
um logum og eldtungurnar teygðu
sig að svefnherbergisglugga knatt-
spyrnukonunnar íslensku.
„Mjög óþægilegt“
„Þessi blokk sem brann er á end-
anum og það kviknaði í á fjórðu
hæð, ég bý í svona tíu skrefa fjar-
lægð frá þessari blokk á fjórðu hæð
líka þannig að ég var fáránlega ná-
lægt þessu. Ég var steinsofandi og
var vakin hálf tvö þegar slökkvi-
liðsmennirnir voru búnir að brjóta
hurðina hjá mér til að koma mér
út,“ segir Hólmfríður í samtali við
DV.
Hún segir að það hafi verið afar
óhugnanlegt að vakna við slökkvi-
liðsmenn í íbúðinni hjá sér. Hún
hafi litið út og séð að eldurinn var
alveg við gluggann hjá henni, enda
bara næsti gluggi við.
„Ég vissi náttúrulega ekki þá
hvort þetta væri mín blokk eða ekki
sem væri að brenna. Það var mjög
óþægilegt. Svo ég hljóp bara út á
bolnum og stuttbuxunum og það
var geðveikt mikið af slökkviliðs-
bílum fyrir utan.“
Steinsvaf í gegnum allt
Hólmfríður segir að eldurinn hafi
komið upp klukkan korter í eitt að
nóttu en hún varð einskis vör. „Ég
hafði sofið í 45 mínútur við þetta og
ekki vaknað við neitt. Til að verja
blokkina mína voru þeir búnir að
vera að sprauta vatni á hana, þar á
meðal á gluggann minn á fullu, en
ég vaknaði bara ekkert við það, ég
var bara steinsofandi.“
Hólmfríður segir að slökkvi-
liðsmennirnir hafi lagt sig í gríð-
arlega hættu við slökkvistörfin.
Samkvæmt bandarískum fjölmiðl-
um slösuðust sjö slökkviliðsmenn
alvarlega við að ráða niðurlögum
eldsins. „Ég sá allavega þrjá sem
voru uppi í blokkinni þegar hluti
af henni hrundi. Einn brann illa
og annar fótbrotnaði held ég. Það
var óhugnanlegt að sjá slökkviliðs-
mennina borna burt á sjúkrabör-
um.“
Klukkan var langt gengin í 6
þegar loksins var búið að slökkva
eldinn, að sögn Hólmfríðar, sem
í millitíðinni þurfti að standa úti.
Hún segir blokkina sína hafa slopp-
ið alveg en vegna hitans og ná-
lægðarinnar hafi allt verið bráðnað
í kringum herbergisglugga hennar.
Ein heima og meidd
Hólmfríður segir að þá hafi hún
ekkert verið sérstaklega spennt
fyrir því að fara að sofa. „Svo er ég
líka meidd þannig að ég er bara
ein hérna,“ segir Hólmfríður sem
leikur með Philadelphia Inde-
pendence. Herbergisfélagi hennar
er ensk stúlka sem var á ferðalagi
með liðinu. „Þannig að þær eru all-
ar þar og ég bara ein hérna í ein-
hverjum svaka bruna.“
Hún kveðst alveg vera búin að
jafna sig eftir lífsreynsluna. „Gær-
dagurinn fór í að ná mér. Það er
bara svo óhugnanlegt að hugsa um
hvað þetta var nálægt mér og ég
bara sofandi.“
„Ég náði að sofa í nótt. Ég svaf
reyndar ekki heima. Ég er með
góða íslenska fjölskyldu hérna úti
sem ég þekki og fékk að sofa hjá
þeim í nótt,“ segir Hólmfríður.
Samkvæmt fréttum úr banda-
rískum fjölmiðlum þurftu 150
manns að yfirgefa heimili sín
vegna stórbrunans. Þess má geta
að eldsupptök eru talin vera af
völdum reykinga.
Sigurður MikaEl jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Ég var steinsofandi og var vakin hálf tvö þegar slökkvi-
liðsmennirnir voru búnir að brjóta
hurðina hjá mér til að koma mér út.
Eldsvoði í uSa Hérsést
slökkviliðsprautavatniá
svefnherbergisgluggaHólm-
fríðarámeðaneldtungurnar
standafráhúsinuviðhliðinaá.
SíMaMynd HólMfríður MagnúSdóttir
Slapp með skrekkinn Hólmfríður
steinsvafíöllumlátunumogvaknaði
ekkifyrrenslökkviliðsmennbrutu
niðurhurðinahjáhenni.