Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Qupperneq 11
mánudagur 13. september 2010 fréttir 11
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, segir að allar ráðagerðir
um að bjarga bönkunum hafi mis-
heppnast. Bæði rannsóknarnefnd
Alþingis og þingmannanefnd, sem
fjallaði um niðurstöður þeirrar
skýrslu, telja að stjórnsýslan undir for-
ystu Geirs og Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur hafi verið ámælisverð og krefjast
breytinga. Geir spyr um ábyrgð Jóhönnu
Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðins-
sonar í núverandi ríkisstjórn.
„Þungbær
reynsla“
„Niðurstaða meirihluta þingmanna-
nefndar, sem fjallað hefur um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um
ákærur á hendur fyrrverandi ráð-
herrum, veldur mér miklum von-
brigðum. Ég tel að meirihlutinn hafi
komist að rangri niðurstöðu. Komi til
þess að Alþingi samþykki tillögu um
að stefna mér fyrir landsdóm verður
það þungbær reynsla en sá sem hef-
ur hreinan skjöld er ekki hræddur við
að fá úrlausn sinna mála fyrir óháð-
um og óvilhöllum dómstóli eins og
landsdómi er ætlað að vera.“
Þetta segir Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra og formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu
eftir að ljóst varð að allir flokkar nema
Sjálfstæðisflokkurinn – og þar af leið-
andi mikill meirihluti Alþingis – vilja
höfða mál gegn honum fyrir lands-
dómi vegna bankahrunsins.
„Ég hef gert grein fyrir minni hlið
þessara mála í tveimur ítarlegum
greinargerðum, til rannsóknarnefnd-
ar Alþingis og til þingmannanefndar-
innar, sem báðar liggja fyrir opinber-
lega. Niðurstaða þeirra þingmanna
er mynda meirihluta í nefndinni er
eigi að síður sú að meiri líkur séu á
að ég verði sakfelldur fyrir brot á lög-
um en sýknaður. Ella hefðu þeir al-
þingismenn sem skipa meirihlutann
ekki haft leyfi til að leggja til við Al-
þingi að það samþykki ákæru því slíkt
væri ekki í samræmi við íslenskar og
alþjóðlegar réttarfars- og mannrétt-
indareglur.“
Vissi ekki
Geir segist á löngum stjórnmálaferli
og í þau ellefu ár sem hann sat sam-
fellt í ríkisstjórn ævinlega hafa reynt
að sinna störfum sínum heiðarlega
og af samviskusemi. „Ég hefði aldrei
getað ímyndað mér að nafn mitt yrði
nokkurn tíma nefnt í sömu andrá og
landsdómur eða að ég kynni að verða
sakaður um að vanrækja störf mín
þannig að varðaði við lög um ráð-
herraábyrgð. Það eitt er mikið áfall.
Allt árið 2008 voru mál er vörð-
uðu stöðu viðskiptabankanna, hvort
og hvernig takast mætti að koma í
veg fyrir að þeir yrðu hinni alþjóðlegu
fjármálakreppu að bráð, mitt aðalvið-
fangsefni. Þessi vinna stóð sleitulaust
af minni hálfu, annarra ráðherra sem
að málum komu, embættismanna
og þeirra stofnana sem í hlut áttu.
Ég vissi ekki hversu mjög bankarnir
höfðu verið veiktir innan frá. Það kom
ekki í ljós fyrr en eftir ítarlega rann-
sókn rannsóknarnefndar Alþingis.“
Hvað um Össur og Jóhönnu?
Geir segir að allar ráðagerðir um að
bjarga bönkunum hafi misheppnast.
„Það var reiðarslag fyrir mig eins og
landsmenn alla. Ég stend við þá sann-
færingu mína að embættisfærsla mín
sem forsætisráðherra hafi ekki valdið
bankahruninu og það hafi hvorki ver-
ið á mínu færi né annarra ráðherra að
koma í veg fyrir það á árinu 2008 eins
og málum var háttað. Heldur ekki
þeirra tveggja áhrifamiklu ráðherra,
sem sátu í minni ríkisstjórn, og sitja í
æðstu valdastólum í núverandi ríkis-
stjórn, en hafa af einhverjum ástæð-
um verið undanþegnir umfjöllun
þingmannanefndarinnar.“
Geir ætlar ekki að tjá sig meira
um málið og kveðst bíða ákvörðun-
ar Alþingis en fyrir helgi var lögð fram
þingsályktunartillaga um að höfða
mál gegn honum fyrir landsdómi.
„Ábyrgð þingmanna er mikil þegar
kemur að því að beita ákæruvaldi í
fyrsta sinn í sögunni, eins og nú hef-
ur verið lagt til. Verði sakborningar
sýknaðir mun það verða mikill áfell-
isdómur yfir störfum þingmanna-
nefndarinnar og þingsins. Þeir þing-
menn sem samþykkja ákæruna verða
að vera reiðubúnir að horfast í augu
við sína ábyrgð á því þegar öll kurl
koma til grafar.“
JóHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
27. September 2008
„Nei, nei, nei, nei, ég var að koma frá
Bandaríkjunum í morgun eins og þið
vitið, búinn að vera nokkra daga í
burtu og ákvað að nota daginn í að
setja mig inn í það sem er búið að vera
að gerast á meðan ég var fjarverandi.“
Geirvarspurðurhvortfundurhans
meðseðlabankastjórunumþremurí
Stjórnarráðinuhefðiveriðkrísu-
fundur.GrafalvarlegstaðaGlitnis
varrædd.Geirflýttiheimförsinnifrá
Bandaríkjunumtilaðmæta.
28. September 2008
„Nei, ég á ekkert sérstaklega von á
því, það náttúrlega kemur fjárlaga-
frumvarpið á miðvikudaginn og
ég verð með stefnuræðu í Alþingi á
fimmtudaginn. Það er allt saman á
bara hefðbundnu róli.“
SvarGeirsviðþvíhvortvonværi
áyfirlýsingueðaaðgerðum
ríkisstjórnarinnaríefnahagsmálum
eftirleynifundmeðfulltrúumallra
flokka.Veriðvaraðkynnaalvarlega
stöðuíefnahagsmálumfyrir
viðstöddum.
28. September 2008
„Ja, ég myndi nú ekkert lesa neitt
sérstakt í það, við vinnum oft um
helgar [...] maður þarf stundum að
finna tíma þar sem menn geta talað
saman í ró og næði án þess að vera í
eilífri tímapressu.“
Geiraðspurðurhvortekkiværi
óvenjulegtaðhannfundaðitvisvaryfir
helgimeðyfirstjórnSeðlabankans.
29. September 2008
„Það var ekkert sérstakt sem gekk á,
ég tala mikið við þessa menn og við
ákváðum að hittast í gærkvöldi. Ég
nota gjarnan tækifærið og spjalla við
Björgólf Thor þegar hann er á landinu
og mér finnst ég hafa gagn af því og
það er ekkert óeðlilegt við það að við
hittumst eftir þessar breytingar sem
orðið hafa á markaðinum.“
Geirvildilítiðtjásigumhvaðhefði
fariðframáfundinum,ensagðiað
ekkihefðiveriðfariðframásamein-
inguGlitnisogLandsbankansmeð
formlegumhætti.Framhefurkomið
aðforsvarsmennLandsbankans
lögðutilaðGlitnir,Landsbankinnog
Straumuryrðusameinaðir.
5. október 2008
„Nei, nei. Ég myndi ekki segja að við
værum neitt sérstaklega verr stödd.“
ÞessusvaraðiGeirH.Haarde
aðspurðurhvortÍslandværiverrstatt
enaðrarþjóðir.Daginneftirvoru
neyðarlöginsettþarsemFjármála-
eftirlitinuvargefinheimildtilaðtaka
yfirbankastofnanir.
6. október 2008
Geirneitaðiaðræðaeinstakastöðu
bankaaðspurðurhvortLands-
bankinnfærisömuleiðogGlitnir
áblaðamannafundi6.október.
DaginneftirfórFjármálaeftirlitiðinní
Landsbankannogyfirtókreksturinn.
9.októbergerðistslíkthiðsamahjá
Kaupþingi.
Ósannindi Geirs
Ég stend við þá sannfæringu
mína að embættisfærsla
mín sem forsætisráð-
herra hafi ekki valdið
bankahruninu …
„Þungbær reynsla“
ÞingnefndinvilldragaGeir
H.Haardefyrirlandsdóm,
þingiðáeftiraðafgreiða
málið.MeðGeirámyndinni
erBjörgvinG.Sigurðsson,
þáverandiviðskiptaráðherra.