Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Blaðsíða 12
12 fréttir 13. september 2010 mánudagur
leyndin og oddvita-
ræðið fyrir dóm
Í svarbréfi sínu til þingmanna-
nefndar Atla Gíslasonar segir Björg-
vin G. Sigurðsson að frá myndun
Viðeyjarstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks árið 1991 hafi odd-
vitar flokkanna oftast verið ráðandi
um framvindu stærri mála, ekki síst
efnahagsmála. „Sú staða hefur lík-
lega sjaldan verið jafnríkjandi og í
stjórninni sem mynduð var 2007,“
segir Björgvin og vísar þar til odd-
vitaræðisins innan ríkisstjórnar-
innar. „Hitt er deginum ljósara, að
þetta vinnulag, sem hvergi er skráð
formlega í stjórnskipan lands-
ins, hefur sett á herðar mér ábyrgð
vegna atburðarásar sem ég var þó
samhliða sviptur rétti til að taka
þátt í, þrátt fyrir að gegna embætti
viðskiptaráðherra,“ segir Björgvin í
niðurlagi bréfs síns til þingmanna-
nefndarinnar.
Stirt samband við Davíð
og Ingibjörgu
Einangrun Björgvins kom meðal
annars fram í því að forystumenn
ríkisstjórnarinnar höfðu átt 6 fundi
með bankastjórum Seðlabankans
fyrir hrun bankakerfisins án þess
að ástæða þætti til að boða við-
skiptaráðherrann á þá fundi. „Rétt
er að taka fram að ég hafði enga
hugmynd um þessa fundi fyrr en
um þá var upplýst opinberlega, að
undanteknum hinum fyrsta þeirra,
sem utanríkisráðherra greindi frá
á þingflokksfundi hjá Samfylking-
unni í febrúar 2008. Þær viðvaran-
ir sem seðlabankastjóri hefur síð-
ar sagt að hann hafi ítrekað komið
munnlega á framfæri við ríkis-
stjórnina, væntanlega af því hann
hefur talið of hættulegt að setja þær
niður með skriflegum hætti, bár-
ust mér því ekki sem viðskiptaráð-
herra.“
Björgvin segir enn fremur: „Það
hlýtur að vera óumdeilt að enginn
getur tekið afstöðu til upplýsinga
sem hann hefur ekki undir hönd-
um. Og enginn getur sýnt af sér
vanrækslu með athafnaleysi með
því að bregðast ekki við upplýs-
ingum sem fram koma á fundum
sem hann veit ekki af. Staðreyndir
um hinar pólitísku aðstæður segja
sitt um samskipti mín – eða sam-
skiptaleysi – við utanríkisráðherra
og bankastjóra Seðlabankans.“
Ráðherra valti ekki yfir
annan ráðherra
Þingmannanefndin var einhuga um
að skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis væri áfellisdómur yfir íslenskri
stjórnsýslu, verklagi hennar og skorti
á formfestu jafnt í ráðuneytinu sem
sjálfstæðum stofnunum sem heyra
undir ráðuneytin. „Svo virðist sem
aðilar innan sjórnsýslunnar telji sig
ekki þurfa að standa skil á ákvörðun-
um sínum og axla ábyrgð […] Vegna
smæðar samfélagsins skiptir form-
festa, skráning upplýsinga, verkferl-
ar, tímamörk og skýr ábyrgðarsvið
enn meira máli en í stærri samfé-
lögum,“ segir í skýrslu þingmanna-
nefndarinnar og er augljóslega vísað
til vaxandi hættu á kunningjaveldi og
klíkuskap í fámennum samfélögum.
Í ljósi þessa telur þingmanna-
nefndin mikilvægt að endurskoða
stjórnsýslulög, upplýsingalög og lög
um Stjórnarráð Íslands. Svo vill til að
Páll Hreinsson, formaður rannsókn-
arnefndar Alþingis, er meginhöfund-
ur stjórnsýslu- og upplýsingalaganna
frá því snemma á tíunda áratugnum.
Þingmannanefndin telur enn
fremur að gera verði breytingar á lög-
um og reglum þannig að komið verði
í veg fyrir að einstakir ráðherrar gangi
inn á valdsvið og ábyrgðarsvið ann-
arra ráðherra.
Þess má geta að ríkisstjórnin hef-
ur nú þegar fengið í hendur áfanga-
skýrslu um stórfellda uppstokkun og
umbætur á stjórnkerfinu.
Málsbætur Björgvins
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þá-
verandi utanríkisráðherra, ekki talin
hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi
laganna um nefndina frá 2008. Hins
vegar taldi rannsóknarnefndin að
Björgvin hefði sýnt af sér vanrækslu
í embætti.
Þingmannanefndin er hins vegar
ekki í neinum vafa um hlut Ingibjarg-
ar og vill höfða mál gegn henni fyrir
landsdómi. Svo er að sjá sem þing-
mannanefndin líti formleysi stjór-
sýslunnar og oddvitaræðið alvarlegri
augum en rannsóknarnefnd Alþing-
is að þessu leyti. Ingibjörg er talin
hafa sýnt af sér alvarlega vanrækslu á
starfsskyldum sínum sem utanríkis-
ráðherra og oddviti Samfylkingarinn-
ar í ríkisstjórn andspænis stórfelldri
hættu sem vofði yfir bönkunum og
ríkissjóði, „hættu sem henni var eða
mátti vera kunnugt um og hefði get-
að brugðist við,“ eins og segir í þings-
ályktunartillögu nefndarinnar. Ingi-
björg er jafnframt talin hafa brotið
gegn 17. grein stjórnarskrárinnar, líkt
og Geir H. Haarde, Árni M. Mathie-
sen og Björgvin G. Sigurðsson. Þar
er kveðið á um skyldu til að halda
ráðherrafundi um mikilvæg stjórn-
armálefni. „Á þessu tímabili var lítið
fjallað á ráðherrafundum um hinn yf-
irvofandi háska, ekki var fjallað form-
lega um hann á ráðherrafundum og
ekkert skráð um þau efni á fundun-
um.“ Þykir þingmannanefndinni þó
ærin ástæða hafa verið til skráningar
og formlegrar meðferðar upplýsing-
anna, ekki síst eftir fund Geirs, Árna
og Ingibjargar með formanni stjórn-
ar Seðlabankans 7. febrúar 2008.
Mismunandi ástæður
Meirihluti nefndarinnar vill höfða
mál á hendur öllum ráðherrunum
fjórum og eru sakargiftir svipaðar.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Magn-
ús Orri Schram og Oddný G. Harðar-
dóttir, tóku undir nðurstöður rann-
sóknarnefndarinnar að öðru leyti
en því að þau telja að taka verði til-
lit til verkstjórnar og raunverulegrar
verkaskiptingar sem viðhöfð var inn-
an ríkisstjórnarinnar. Björgvin G. Sig-
urðsson hafi litlar upplýsingar feng-
ið um gang mála og því ekki hægt
að fullyrða að athafnir eða athafna-
leysi viðskiptaráðherra í aðdraganda
bankahrunsins flokkist undir hug-
takið vanræksla. Þetta er grundvöllur
sérálits Magnúsar Orra og Oddnýjar
þar sem Björgvin er ekki ákærður.
Þingmannanefndin sem ákveðið hefur að
draga þrjá til fjóra ráðherra fyrir landsdóm
staðnæmist ekki síst við skort á formfestu
stjórnsýslunnar, ráðherraræðið og ólöglegt
pukur með mikilvægar upplýsingar er
varða þjóðarheill. Nefndin vill koma í veg
fyrir að einstakir ráðherrar gangi inn á
vald- og ábyrgðarsvið annarra ráðherra.
Slíkt verklag í tíð ríkisstjórnar Geirs H.
Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur einangraði Björgvin G. Sigurðsson frá
lögboðnum verkefnum viðskiptaráðherra.
jóHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Staðreyndir um hinar pólitísku
aðstæður segja sitt um
samskipti mín – eða sam-
skiptaleysi – við utan-
ríkisráðherra og banka-
stjóra Seðlabankans.
Vilja ekki ákæra RagnheiðurRík-
harðsdóttirogUnnurBráKonráðsdóttir,
fulltrúarSjálfstæðisflokksinsínefndinni,
viljaekkiákæraoggeragreinfyrir
ástæðumsínumáþingiídag.
Formlaus stjórnsýsla BjörgvinG.
Sigurðssonvissiekkiaffundumog
ákvörðunum.Formlaustoddvitaræði,
segirnefndin.