Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 14
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 192,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,6 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 192,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,7 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 192,3 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,3 kr.
Melabraut VERÐ Á LÍTRA 192,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 192,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,6 kr.
VODAFONE KÆR-
IR VEGNA SEKTAR
Neytendastofa sektaði Vodafone á
dögunum um 2,6 milljónir króna
fyrir villandi auglýsingu, eins og
DV greindi frá. Vodafone er ósam-
mála Neytendastofu og vill koma
eftirfarandi athugasemd á fram-
færi: „Vodafone er ósammála þeirri
túlkun Neytendastofu, að fyrir-
tækið hafi með birtingu umræddra
auglýsinga í nóvember á síðasta
ári brotið gegn lögum um eftirlit
með viðskiptaháttum og mark-
aðssetningu. Umræddar auglýs-
ingar byggðust á raunverulegum
dæmum og raunverulegum kostn-
aði viðskiptavina, sem lækkuðu
fjarskiptakostnað sinn með því að
flytja viðskiptin til Vodafone. Voda-
fone mun kæra ákvörðunina til
áfrýjunarnefndar neytendamála.“
VILL LEIÐARLJÓS
AFTUR
n Eldri kona hringdi og var hreint
ekki skemmt yfir því að Ríkissjón-
varpið hefði tekið Leiðarljós af dag-
skrá. Hún sagði að hlé hefði átt að
gera á sýningum á meðan Heims-
meistaramótið í knattspyrnu fór
fram en bætti því við að þættirnir
væru enn ekki komnir
á dagskrá, þó keppnin
væri löngu búin. Hún
velti því enn fremur
upp hvort Stöð 2 gæti
tekið sýningar þátt-
anna vinsælu að sér og
sagði að fólk á öllum aldri
hefði gaman að Leiðarljósi.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
ÓDÝR MATUR Í
HÁDEGI
n Lofið fær Íslenski barinn við Aust-
urvöll fyrir að selja ekta íslenskan
mat á góðu verði. Í hádegi er hægt
að fá rétt dagsins, sem oftast er kjöt-
réttur, ásamt súpu og brauði, á 1.000
krónur. Það gerist ekki lægra
og til samanburðar má nefna
að skyndibitastaðir selja
báta og lokur á nánast
sama verði. Á Íslenska
barnum fær maður því
mikið fyrir peninginn í
þeim samanburði.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON baldur@dv.is 13. september 2010 MÁNUDAGUR
FAGNA LÖGUM UM HÓPMÁLSÓKN Neytendasamtökin
fagna því að lög sem heimila hópmálsókn hafi verið samþykkt en þau hafa hvatt til
slíkrar lagasetningar um árabil. Lögin séu löngu tímabær. „Hópmálsókn er úrræði
sem er til dæmis notað þegar hópur fólks gerir skaðabótakröfu á hendur tiltekn-
um aðila. Slíkt úrræði er mjög mikilvægt fyrir neytendur því oft er ekki um það háar
upphæðir að ræða fyrir hvern og einn að það svari kostnaði að höfða mál fyrir dóm-
stólum. Háar upphæðir geta þó verið í húfi fyrir hópinn í heild. Það kom berlega í
ljós eftir að upp komst um verðsamráð olíufélaganna hversu mikilvægt það er fyrir
neytendur að geta höfðað sameiginlegt mál fyrir dómstólum,“ segir á ns.is.E
L
D
S
N
E
Y
T
I
HELMINGI ÓDÝRARA Í NAUTILUS
Í Nautilus er í allt öðrum verðflokki en aðrar helstu líkamsrækt-
arstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Í stærri og íburðarmeiri lík-
amsræktarstöðvum er kortið um helmingi dýrara en þar. Flestar
stöðvarnar gera vel við námsmenn, sem geta fengið mun meira
fyrir peninginn en óbreyttir kaupendur.
Þeir sem vilja ódýrt kort í líkams-
rækt ættu að kaupa sér kort í einni
af sjö líkamsræktarstöðvum Nau-
tilus – Actic. Kortin í þær stöðvar
eru um helmingi ódýrari en í World
Class, Sporthúsið, Hreyfingu, Bað-
húsið og Hress – þótt aðstaðan sé ef
til vill ekki í sama flokki og í stærstu
stöðvunum.
DV kannaði verð á kortum í sex
af helstu líkamsræktarkeðjunum
sem starfræktar eru á höfuðborg-
arsvæðinu. Hægt er að spara um
30 þúsund krónur á ári með því að
velja ódýrasta kostinn.
Ódýrt og einfalt
Rétt er að taka fram strax að ekki er
tekið tillit til þjónustu, aðstöðu eða
fríðinda í þessari verðkönnun á lík-
amsræktarkortum. Einungis er horft
á verð á þriggja, sex eða tólf mán-
aða kortum. Þá skal ekki útilokað að
ódýrari kort sé hægt að fá í minni lík-
amsræktarstöðvum eða í stöðvum á
landsbyggðinni.
Árskort í Nautilus kostar á bilinu
26 til 36 þúsund krónur en verðið er
misjafnt eftir sveitarfélögum. Í Nau-
tilus í Vestmannaeyjum og á Hellu
kostar árskortið um 26 þúsund krón-
ur en í Kópavogi og á Álftanesi kostar
það 36 þúsund krónur. Ræðst það lík-
lega af muni á aðstöðu. Þeir sem vilja
komast í ódýra líkamsrækt, en gera
ekki kröfu um heita potta, spameð-
ferðir, nudd og annan lúxus ættu, út
frá verðinu, að velja Nautilus. Kort-
ið þar kostar ámóta mikið og árskort
í allar sundlaugar Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur.
Staðgreitt eða í áskrift
Hinar líkamsræktarstöðvarnar;
World Class, Sporthúsið, Hress,
Hreyfing og Baðhúsið eru í öðrum
verðflokki, enda er þjónusta og um-
gjörð þar yfirleitt meiri en í stöðv-
um Nautilus. Af þessum stöðvum
er ódýrast að kaupa árskort í Bað-
húsinu (sem er aðeins fyrir konur),
Hress heilsurækt og Sporthúsinu.
Staðgreidd árskort kosta þar um 60
þúsund krónur en í Sporthúsinu
fylgir gjarnan veglegur kaupauki – til
dæmis kort í sund og afsláttarkort á
hina ýmsu staði.
Flestar líkamsræktarstöðvarnar
eiga það sameiginlegt að bjóða kort-
höfum upp á ókeypis tíma eða nám-
skeið undir leiðsögn þjálfara. Þau
verða ekki tíunduð hér en neytendur
eru hvattir til að kynna sér vel hvaða
þjónusta er í boði í hverri stöð.
Árskort í Hreyfingu er nokkru dýr-
ara en í hinar stöðvarnar. Það kost-
ar í heildina að lágmarki 75 þúsund
krónur en samkvæmt heimasíðu
fyrirtækisins þarf að greiða ákveðna
upphæð á mánuði, að viðbættu
2.900 króna samningsgjaldi. Ódýr-
ustu áskrift fylgir afsláttur í nudd- og
spameðferðir, svo dæmi sé tekið. Í
hinum líkamsræktarstöðvunum, öll-
um nema Nautilus, er einnig hægt
að vera í nokkurs konar áskrift. Í því
felst að korthafar gangast við því
að greiða fasta upphæð á mánuði.
Þegar upp er staðið er það yfirleitt
nokkru dýrara en að staðgreiða alla
upphæðina við kaup á kortinu.
Lesið samninginn
DV hvetur neytendur til að lesa alla
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Líkamsræktarstöð 3 mán. 6 mán. 12. mán Fríðindi Athugasemdir
Nautilus / Actic x 21.419* 31.419* Kortin gilda líka í sund. *Meðalverð – misjafnt eftir sveitarfélögum. Para- og
námsmannaafsláttur.
Hress heilsurækt 23.990 39.990 58.990 Fjöldi opinna tíma fyrir korthafa. Námsmenn fá árskort á verði 6 mánaða korts.
Baðhúsið 24.900 39.900 59.950 Alls kyns námskeið fylgja kortum. Baðhúsið er bara fyrir konur. *Hægt að kaupa skóla-
áskrift í 10 mánuði fyrir 4.590 á mánuði.
Sporthúsið 24.900 36.900 61.000 Kaupaukar (t.d. sundlaugakort)
fylgja 10 og 12 mán. kortum.
Námsmenn fá 10 mánaða skólakort nánast á verði
6 mán.
World Class 26.780 43.310 63.420 Gildir í allar stöðvar WC og í þrjár
sundlaugar.
Námsmenn fá 9 mánaða kort á verði 6 mánaða.
Hreyfing 24.900 41.500 74.780* Grunnáskrift fylgir m.a. afsláttur í
nudd- og spameðferðir.
*Föst 4.950 króna greiðsla á mánuði + 2.900 króna
samningsgjald við upphaf.
VERÐ Á KORTUM Í LÍKAMSRÆKT
Nautilus Kópavogi
Árskort: 35.990 kr.
Hress heilsurækt Hafnarfirði
Árskort: 58.990 kr.
World Class Laugum
Árskort: 63.420 kr.
Tekið á því Líkamsræktarstöðvarnar
bjóða flestar upp á opna tíma þar sem
korthafar geta æft undir handleiðslu
þjálfara.