Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Side 17
MÁNUDAGUR 13. september 2010 ERLENT 17
Petra Kujau var undirmaður Kon-
rads Kujau um tíma. Saksóknarar
drógu hins vegar í efa að hún væri
skyld falsaranum fræga.
FALSAÐI FÖLSUÐ VERK
Þrátt fyrir að allir vissu
að málverkin væru
fölsuð keypti al-
menningur verk
hans fyrir háar
fjárhæðir en Kon-
rad öðlaðist heims-
frægð fyrir fölsunar-
skandalinn árið
1983.
Dagbækur Hitlers Frægasta forsíða þýska tímaritsins Stern fyrr og síðar frá því í apríl 1983 en þá birti það brot úr dagbókum Hitlers, sem reyndust svo falsaðar. Blaðamaður Stern var dæmdur í fjögurra ára fangelsi vegna hneykslisins. Blaðið keypti dagbækurnar á 700 milljónir króna.
Frakkinn Philippe Croizon missti
útlimina í slysi fyrir 16 árum. Árið
2008 gat hann varla synt tvær ferð-
ir í sundlauginni. En í vikunni mun
Croi zon reyna að verða fyrsti útlima-
lausi maður sögunnar til að synda
yfir Ermarsundið á milli Frakklands
og Englands – heila 34 kílómetra.
Að deyja eða lifa
Croizon er 42 ára og býr í Saint-Rémy-
sur-Creuse í vesturhluta Frakklands.
Hann missti hendurnar og fæturna
eftir að hann varð fyrir skelfilegu
rafmagnsstuði á heimili sínu. Þegar
hann lá á sjúkrahúsinu horfði hann
á heimildarmynd um enska konu
sem synti yfir Ermarsundið. Það fyllti
hann innblæstri.
„Mér voru boðnir tveir kostir eftir
slysið: að deyja eða ákveða að lifa. Ég
ákvað að byggja sjálfan mig upp aft-
ur. Á meðan ég horfði á heimildar-
myndina hugsaði ég: „Af hverju geri
ég þetta ekki líka?“ segir Philippe
Croizon við breska blaðið Indepen-
dent.
Stífar æfingar
Croizon ætlar nú að gera atlögu að
þrekvirkinu, en hann hefur stund-
að stífar æfingar í tvö ár – synt allt að
35 klukkustundir á viku. Til að auð-
velda sér sundið verður hann með
sérhannaða gervifætur, sundblöðkur
og snorku. Hann segir að það sem
bjargað var af höndunum muni veita
honum jafnvægi.
Flestir þeir sem synda Ermar-
sundið komast í land á tíu tímum,
synda á fjögurra kílómetra hraða.
Croizon ætlar að reyna að synda á
þriggja kílómetra hraða og stefn-
ir á að ljúka sundinu á 20 til 24 tím-
um. Hann mun taka sér mínútuhvíld
reglulega til að matast og drekka
vatn.
Dreif varla tvær ferðir
Frakkinn hefur þurft að leggja gífur-
lega orku í þjálfunina en hann hafði
aldrei haft áhuga á sundi áður en
hann slasaðist. Þegar hann lagði af
stað í þetta ótrúlega þrekvirki höfðu
fáir trú á honum.
„Þegar ég hitti hann fyrst í sept-
ember 2008 gat hann ekki einu sinni
synt tvær ferðir í lauginni,“ segir
þjálfarinn hans, Valérie Carbonel.
„Hann hafði ekkert þol og gervilim-
irnir hjálpuðu honum alls ekkert.“
En tveimur árum síðar synti Croi-
zon, merkilegt nokk, frá Noirmouti-
er-eyju að Atlantshafsströnd Frakk-
lands. Sundferðin tók fimm tíma
– eða einum tíma skemur en búist
var við.
Fjölskyldan mikilvæg
Sundkappinn lítur á sig sem „sófa-
íþróttamann“ en hann hefur upp á
síðkastið misst tólf kíló í gríðarlega
umfangsmiklum líkamsæfingum þar
sem hann hefur lyft lóðum og synt.
Hann er afar þakklátur fjölskyld-
unni fyrir mikilvægan stuðning. „Ég
á stóra fjölskyldu og hún er mjög
ánægð með mig. Eftir tveggja ára æf-
ingaferli þar sem ég hef bara borðað,
sofið og synt, hafa þau þurft að taka
þátt í þessu með mér. Þegar ég syndi
hugsa ég um börnin mín. Þau hafa
hvatt mig áfram og halda mér and-
lega sterkum,“ segir Croizon.
Hann hefur fengið stuðnings-
skeyti frá Nicolas Sarkozy, forseta
Frakklands, og fleiri valdamiklum
mönnum. „Draumur minn hefur
ræst. Ég geri þetta fyrir sjálfan mig
en einnig til að sýna gott fordæmi.
Mig langar að sýna þeim sem þjást
að það sé allt hægt, og maður megi
aldrei hætta að berjast,“ segir sund-
garpurinn Philippe Croizon.
Frakkinn Philippe Croizon, sem missti hendur og fætur í skelfi-
legu slysi fyrir 16 árum, ætlar að verða fyrsti handa- og fótalausi
maður sögunnar til að synda yfir Ermarsundið. Hann hafði eng-
an áhuga á sundíþróttum fyrir slysið.
Syndir útlimalaus
yfir Ermarsundið
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Mig langar að sýna þeim sem
þjást að allt sé hægt
og maður megi aldrei
hætta að berjast.
Sundgarpur Phillipe Croi-
zon styðst við gervilimi og
blöðkur. Hann ætlar að verða
fyrsti útlimalausi maðurinn
sem syndir yfir Ermarsundið –
heila 34 kílómetra.
„Við erum
heimilislaus“
Milljónir Pakistana og fórnarlamba
flóðanna þar í landi héldu upp á
eid, lokadaga ramadan-föstunnar, í
tjöldum og skýlum sem undanfarið
hafa borist frá hjálparsamtökum.
Stelpur sem söfnuðust saman í
einum búðunum nálægt orkuveri í
borginni Muzaffargarh fengu hjálp-
arstarfsmenn til þess að mála hend-
ur þeirra í tilefni dagsins. Mæður
þeirra, sem stóðu hjá, sögðu þessar
litlu hamingjustundir brátt verða á
enda. „Við njótum ekki hamingjunn-
ar sem vanalega fylgir eid. Hvað er
hamingja?“ spurði Amama Bibi, 25
ára. „Við erum heimilislaus.“
1.750 manns hafa látist í flóðun-
um.
Túrtappi í
morgunkorni
Thomas Roddenberry í Georgíu í
Bandaríkjunum hefur höfðað mál
gegn framleiðendum morgunkorns
eftir að hann fann notaðan túrtappa
í morgunkorninu sínu.
Atvikið segir Thomas hafa átt sér
stað árið 2008 er hann keypti sér
pakka af morgunkorninu Chocolate
Chip Crunch. Eftir að hafa hellt
korninu í skál og fengið sér bita upp-
götvaði hann túrtappann í skálinni
sinni. Til að bæta gráu ofan á svart
segir hann ljóst að tappinn hafi verið
notaður.
Sagði upp
í beinni
Norsk kona sem vann sem frétta-
maður hjá norska ríkisútvarp-
inu sagði upp starfi sínu í beinni
útsendingu á laugardagsmorgun.
Áður en hún sagði upp kvartaði
hún í útsendingunni yfir vinnu-
aðstöðunni og bað yfirmann sinn
um að bæta úr henni.
Konan sem um ræðir átti að
lesa fréttir frá Austur-Noregi en
byrjaði á því að kvarta yfir að-
stöðunni og sagði síðan upp. Þar
að auki birti hún uppsagnarbréf
sitt á fréttavef ríkisútvarpsins en
bæði upptakan af fréttatímanum
og uppsagnarbréfið hafa nú verið
fjarlægð af vefnum.
Mótmælandi
skotinn til bana
Mótmælandi var skotinn til bana
þegar sveitir Nató skutu á mótmæl-
endur í Kabúl í Afganistan í gær.
Atvikið gerðist í borginni Faizabad í
norðurhluta Afganistan eftir að hóp-
ur mótmælenda safnaðist saman
fyrir utan herstöð Nató til þess með-
al annars að mótmæla hugmynd-
um prests í Flórída um að brenna
Kóraninn.
Talið er að mótmælendurn-
ir í Faizabad hafi verið um 10.000.
Talsmaður Nató segir að málið sé til
rannsóknar.