Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 18
Trillukarlar
móðgaðir
n Þórunn Sveinbjarnardóttir,
fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn
Geirs Haarde, var ómyrk í máli í
skrifum sínum
til þingmanna-
nefndar Atla
Gíslasonar. „Á
stundum hefur
mér fundist að
ráðherrar í rík-
isstjórn Íslands
séu eins og 12
trillukarlar sem
hittast í kaffi tvisvar í viku, bera
saman aflabrögð og horfur, standa
saman gegn utanaðkomandi áreiti
eða ógnunum en eru jafnframt í
samkeppni innbyrðis um aflann,“
segir Þórunn. Meðal trillukarla er
lítil ánægja með að vera spyrtir við
þessa mestu hörmungarstjórn Ís-
landssögunnar.
Björn ingi óhress
n Litlir kærleikar eru milli Sigur-
jóns Magnúsar Egilssonar, verð-
launaðs fjölmiðlamanns, og Björns
Inga Hrafnsson-
ar, eins eigenda
Pressunnar, eftir
að sá fyrrnefndi
sagði á Fésbók-
arsíðu sinni að
Pressan væri
til sölu. Voru í
framhaldinu
vangaveltur á
þræðinum um erfiða stöðu Press-
unnar. Björn Ingi mun vera mjög
ósáttur við þessa umræðu þar sem
vefmiðillinn sé í ágætri stöðu. Þótt
Pressan sem heild sé ekki til sölu
munu menn þar á bæ vera að leita
að auknu hlutafé.
jón og jón Ásgeir
n Sögusagnir eru uppi um að Jón
Ólafsson athafnamaður vinni að
því að komast yfir ráðandi eignar-
hlut í 365. Þannig
myndi Jón að
nýju verða aðal-
eigandi Stöðvar
2. Ekki er hægt að
fullyrða um það
hvort flugufótur
sé fyrir málinu.
Þó er talið hæpið
að núverandi eig-
andi, Ingibjörg Pálmadóttir eða með
öðrum orðum Jón Ásgeir Jóhannes-
son, hafi burði til að halda fyrirtæk-
inu. Þetta gæti því einungis verið
spurning um að þeim takist að stýra
félaginu í aðrar hendur.
lykilorð Þóru
n Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi
Kastljóskona, er þessi misserin í
Ósló í Noregi þar sem hún starfar
við kvikmynda-
gerð. Greinilegt
er að í útlegðinni
vill hún ekki
missa af því að
lesa DV á net-
inu án þess þó
að borga. Hún
upplýsti á Fés-
bókarsíðu sinni
að komið væri babb í bátinn. Hún
hefði lesið DV með áskriftarlykil-
orði borgarstjórnar en nú væri búið
að breyta því. Systir Þóru er Sóley
Tómasdóttir borgarfulltrúi sem
sver af sér aðild að málinu.
Tryggvi Þór Herbertsson er sleginn. Óttasleginn. Hann óttast að þingmenn muni spillast vegna þess að þeir
eru bara með hálfa milljón á mánuði
í laun.
Tryggvi greindi frá hræðslu sinni í viðtali við Austur-gluggann á dögunum. Hann kvaðst telja að lág laun ykju
hættuna á því að störf þingmanna
myndu „ekki markast af hugsjón
heldur þeirri hönd sem fæðir mann“.
Á sama hátt mætti óttast að starfsmenn stórmarkaða fari að selja eiturlyf með-fram störfum sínum, vegna
þess hve launin eru lág. Hjúkrunar-
fræðingar gætu farið að stela úr vös-
um sjúklinga, því launin eru svo lág.
Og sorphirðumenn gætu leiðst út
í að selja aðgang að líkama sínum,
vegna þess að laun þeirra eru miklu
lægri en hálf milljón. Og lögreglu-
menn, sem eru algerir láglauna-
menn, eru eflaust alltaf að draga
sér fé vegna launataxtans. Neyðin
kennir naktri konu að spinna og
spillir alþingismanni.
Við Íslendingar þekkjum mörg dæmi þess að ef menn fá bara nógu há laun eru þeir óspilltir eins og
hrein mey að vori. Hreiðar Már Sig-
urðsson og Sigurður Einarsson voru
með 800 milljónir króna í laun árið
2007. Þeir voru launahæstu stjórn-
endur Norðurlandanna. Forstjóri
Nokia var bara með helminginn
af þeirra launum. Enda voru þeir
hreinir í hjarta eins og kórdrengir
í sal drottins. Svo fengu Hreiðar og
Sigurður milljarða að láni hjá bank-
anum sínum og við það er óhætt að
segja að þeir hafi ummyndast og
tekið á sig fas og ásjónu engils.
Tryggvi Þór er líka smeyk-ur um að hin svívirðilegu lágmarkslaun þingmanna fæli hæft fólk frá þingstörf-
um. Þetta þekkjum við vel. Til dæmis
reyndist nauðsynlegt að hækka laun
seðlabankastjóra sumarið 2005.
Tveimur vikum síðar var Seðlabank-
inn svo lánsamur að klófesta Davíð
Oddsson í stól seðlabankastjóra. Hug-
myndin með launahækkuninni var
að tryggja að Seðlabankinn stæðist
samkeppni við einkareknu bankana
um bankastjóra. Þar var mikil sam-
keppni og mikil hæfni á báða bóga.
Óspilltu sakleysi Davíðs verður að-
eins líkt við nýfallna snjódrífu á fyrsta
vetrardag. Reynslan af óförum okkar
í bankakerfinu segir hins vegar að við
hefðum átt að spara minna í launum
bankastjóranna!
En skilaboð Tryggva eru skýr: Borgið mér meira, annars gæti ég tekið við mútum!
TRYGGVI SPILLIST
„Hann hringdi í mig
þegar við vorum í
Reykjavík í einhverju
fríi og spurði hvort að
ég vildi vera kærastan
hans. Það voru engir
múmínálfar með,“
segir BIrGITTA
JÓnSdÓTTIr, þingkona Hreyfingar-
innar. Birgitta sagði frá því í viðtali í
helgarblaði DV að Jón Gnarr og hún
hefðu verið kærustupar þegar hún var
15 ára. „Ég var fyrsta kærastan hans og
hann var fyrsti kærastinn minn,“ sagði
Birgitta í viðtalinu.
HVaða PIkköPPLínu
noTaðI boRGaR-
STjóRInn?
„Þetta var mjög
„low-profile“.“
n Jóhannes Jónsson, oftast
kenndur við Bónus, gekk að eiga Guðrúnu
Þórsdóttur á heimili þeirra við látlausa athöfn.
– DV
„Þetta virðist
bara vera
einshvers konar
sérheimur þar
sem það þykir allt í
lagi að vera óheiðarlegur.“
n Birgitta Jónsdóttir um hvernig vinnustaður
Alþingi er í hennar augum. – DV
„Þá hafði hann
notað nýja
pjöllusjampóið
mitt í hárið.“
n Vala Grand um vandræðalega uppákomu
sem pabbi hennar lenti í. – Monitor
„Ég varð vör við að margir
Færeyingar sem ég hitti í
þessari ferð voru
miður sín vegna
ummæla þessa
manns.“
n Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
þegar hún var spurð út í opinbera heimsókn sína
til Færeyja. – Vísir
„Ég hef fengið til mín fullt
af konum sem hafa glímt
við ófrjósemi en með því
að breyta mataræðinu
hafa þær náð að verða
ófrískar.“
n Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringar-
þerapisti. – Nýtt Líf
Nauðsynlegt uppgjör
Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, oddvitar hörmunga-stjórnarinnar frá 2008, eru bæði saklaus þar til annað sannast.
Það má ekki gleymast í hita þess leiks sem
nú stendur þegar þingmannanefnd Atla
Gíslasonar leggur til að þrír til fjórir ráð-
herrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna
vítaverðrar vanrækslu í undanfara hruns ís-
lenska fjármálakerfisins.
Það er algjörlega nauðsynlegt að grand-
var dómstóll fari yfir mál ráðherranna með
það fyrir augum að sýkna eða sakfella eft-
ir atvikum. Þjóðin, sem býr við gríðarlega
skert kjör eftir hrunið, beinlínis kallar eftir
þessu uppgjöri við þá sem stjórnuðu landinu.
Það er engin ástæða til að leggjast í röfl um
tækniatriði hvað landsdóm varðar. Þjóðinni
og ráðherrunum er nauðsynlegt að kveðinn
verði upp dómur um frammistöðu þeirra á
einum stærstu örlagatímum þjóðarinnar.
Þetta uppgjör má ekki verða pólitískt. Það
verður að eiga sér stað af fullum heilindum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni
Benediktsson, er eini stjórnmálaleiðtog-
inn sem treystir sér til að sýkna ráðherr-
ana. Hann vill ekki að dómstóll fjalli um mál
þeirra. Sú afstaða er ömurleg og einkenni
þess að pólitísk sjónarmið eigi að ráða þess-
um hluta uppgjörsins.
En þótt ráðherrarnir allir séu enn sak-
lausir eru teikn á lofti um að þeir verði sak-
felldir á endanum. Geir forsætisráðherra
varð uppvís að ýmsum lygum í aðdraganda
hrunsins. Hann svaf því ekki aðeins á verð-
inum heldur afvegaleiddi þjóðina þegar
óveðursský hrunsins hrönnuðust upp. Því
fór sem fór.
Hugsanlegt er að vörn Geirs verði sú að
það sem hann gerði hafi verið af gáleysi. Þá
gæti hann skotið sér á bak við það að hafa
ekki haft yfirsýn og þess vegna orðið að van-
rækslumanni. Hvað sem því líður er nauð-
synlegt að dómstóll fjalli um málið.
Það er þó ástæða til að óska Atla Gíslasyni,
formanni nefndarinnar, til hamingju með
að vinna að því að þjóðin nái að gera upp við
hrunverja. Alþingi mun taka lokaákvörðun
um landsdóm. Gangi það eftir að réttað verði
yfir ráðherrum fæst niðurstaða sem líklegt
er að þjóðin muni sætta sig við. Þar skiptir
engu máli hvort um er að ræða sekt eða sak-
leysi. Aðalatriðið er sjálft uppgjörið. Þangað
til niðurstaða fæst eru ráðherrarnir saklaus-
ir en undir grun hjá heilli þjóði um að hafa
brotið gróflega af sér.
ReYnIR TRauSTaSon RITSTjóRI SkRIfaR. Það er engin ástæða til að leggjast í röfl um tækniatriði.
leiðari
spurningin
svarthöfði
bókstaflega
18 umræða 13. september 2010 mánudagur
sandkorn
tryGGVaGötu 11, 101 reykJaVík
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
ritStjórar:
Jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
umSjón helgarblaðS:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
umSjón innblaðS:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
dv á netinu: DV.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.