Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Blaðsíða 19
Halla Gunnarsdóttir hefur
verið ráðin aðstoðarmaður Ögmundar
Jónassonar í dómsmála- og mannrétt-
indaráðuneytinu. Höllu líst vel á starfið
og hún segir fátt skemmtilegra en að
fylgjast með hálfgerðum anarkista að
störfum inni í fastmótuðu kerfi.
Gleðin er
besta víman
Spurninguna hér
að ofan má skilja
á tvo vegu, og því
má svara henni
á tvo vegu einn-
ig (að minnsta
kosti). Annars
vegar má koma
með pólitísk-
ar réttlætingar.
Hins vegar má
velta því fyrir
sér hvers vegna
samfélagið hag-
ar því þannig að ég myndi frek-
ar teljast til vinstri en hægri. Hvað
merkir þetta í raun?
Merkimiðarnir vinstri og hægri
komu fyrst upp árið 1789 í tengsl-
um við endurreisn franska þjóð-
þingsins, en konungssinnar sátu
hægra megin við konung á með-
an byltingarsinnarnir sátu vinstra
megin. Deilurnar fóru að lokum
þannig að þingið lét taka konung af
lífi en varla er hægt að segja að saga
vinstrihreyfinga hafi verið samfelld
sigurganga upp frá því.
Fram eftir 19. öld börðust evr-
ópskir vinstrimenn meðal annars
fyrir frjálsri verslun, einstaklings-
frelsi og þjóðernishyggju, og þá
gegn því konungs-, aðalsmanna-
og klerkaveldi sem almennt var
ráðandi í álfunni. Stefna Jóns Sig-
urðssonar var náskyld þessum hug-
myndum. Undir lok aldarinnar
höfðu hægrimenn þó tekið þessa
málaflokka til sín og 100 árum síð-
ar höfðu þeir alfarið lagt undir sig
slag orð vinstrimanna um frelsi.
Hvað er frelsi?
Í Fréttablaðinu bendir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri NASDAQ OMX/
Iceland, réttilega á að tveir máttar-
stólpar norræna módelsins byggi
annars vegar á öflugu velferðarkerfi
og hins vegar „… á vel skipulögðum
og öguðum markaðsbúskap sem
er aflvélin sem knýr áfram velferð-
arkerfið.“ Þetta skilja vinstrimenn
og hafa því, þvert á áróður hægri-
manna, mikinn hag af því að efna-
hagskerfið starfi sem best. Í nýlegri
könnun Newsweek komu Norð-
urlöndin (utan Íslands) afskap-
lega vel út í alþjóðlegum saman-
burði um þá staði sem best væri að
búa á. Það eru líklega mörg lönd í
heiminum sem myndu vilja búa við
norrænt velferðarkerfi. Það eru því
miður ekki jafn mörg lönd sem hafa
efni á því.
Á 18 ára valdasetu Sjálfstæðis-
flokksins var efnahagur Íslands
lagður í rúst. Þetta bitnar á end-
anum einnig á velferðarkerfinu og
stefnir því í hættu. Því hlýtur það
að vera fyrsta og helsta verkefni
vinstristjórnar að reyna að reisa
efnahaginn við eftir bestu getu.
Hver svo sem eftirmæli núverandi
vinstristjórnar verða má slá því
föstu að hún mun skila þjóðarbú-
inu af sér í mun betra ástandi en
hún tók við því í. Það sama verður
seint sagt um hægristjórnina sem
hún tók við af.
Frjáls verslun til vinstri
Vandamál Íslands eru þó ekki að-
eins fólgin í Hruninu og afleið-
ingum þess, heldur einnig í einni
helstu orsök Hrunsins. Hún er sú
að hér er lítið viðskiptafrelsi. Örfá-
ir auðhringir stjórna svo til öllum
geirum, sjá til þess að samkeppni sé
lítil sem engin og að engir nýir að-
ilar komist inn á markað. Þetta sést
nú einmitt á matvöruverðinu. Allt
hækkaði í kjölfar hruns krónunnar,
en í eðlilegu samkeppnisumhverfi
myndi verðlag lækka aftur þar sem
kaupmenn myndu keppast um að
bjóða vörur á betri kjörum. Þar sem
engin er samkeppnin hafa kaup-
menn aðeins hag af því að hækka
vörur en aldrei að lækka, sérstak-
lega þegar kemur að nauðsynjavöru
eins og mat. Hvert annað eigum við
svo sem að fara?
Á Íslandi hefur umræðan hins
vegar verið svo undarleg að ef mað-
ur minnist á samkeppnislög hljóti
maður að teljast argasti kommún-
isti, en ef maður styður fákeppni og
stöðuga eignasamþjöppun sé mað-
ur á einhvern hátt hlynntur frjáls-
um markaði. Þessum hugtakarugl-
ingi verður að snúa við. Ég styð
frjálsa verslun. Þess vegna er ég
vinstrimaður.
Hvers vegna er ég vinstrimaður?
1 Bílstjóri kvartar til umboðs-manns Guðmundur Nordal er
ósáttur við endurmenntunarnám-
skeið sem atvinnubílstjórum er skylt
að sækja.
2 bjargað úr þrælahaldi í brasilíu 95 manns var bjargað
úr aðstæðum sem líkja má við
þrælahald í Brasilíu.
3 myrti sex vegna morgun-verðar 47 ára Bandaríkjamaður
myrti eiginkonu sína og sex aðra um
helgina.
4 Árni stjórnarformaður send-ir Árna bæjarstjóra reikn-
inga Árni Sigfússon situr beggja
vegna borðsins sem bæjarstjóri og
stjórnarformaður eignarhaldsfélags-
ins EFF.
5 arna víf enn ófundin Ung stúlka sem leitað hefur verið að er ófundin.
6 mikið Áfall“ Geir H. Haarde um niðurstöðu þingmannanefndar.
7 eftirsótti folinn er mýta Það að konur leiti í yngri menn er mýta
samkvæmt rannsókn.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er konan? „Halla Gunnarsdóttir.
Fyrrverandi lagerstarfsmaður, sjoppu-
kona og sundlaugarvörður.“
Hvar ertu uppalin? „Í Mosfellsbæ, sem
einu sinni var sveit en er það ekki lengur.“
Hvað drífur þig áfram? „Gleðin, hún
er besta víman.“
afrek vikunnar? „Að flytja úr póstnúm-
eri 105 í 101 og að byrja í nýju starfi.“
Hvernig líst þér á nýja starfið? „Mjög
vel. Þrælskipulagði ráðuneytisstjórinn
er búin að draga mig um alla ganga
í Skuggasundi og kynna mig fyrir
kröftugu starfsfólki. Ég er samt enn að
læra nöfnin.“
Hvernig er að vinna með Ög-
mundi? „Það er fátt skemmtilegra en
að fylgjast með hálfgerðum anarkista að
störfum inni í fastmótuðu kerfi.“
Hvar líður þér best? „Á Borgarfirði
eystra þegar sést í öll fjöllin.“
Átt þú þér fyrirmynd? „Já, þær eru
mjög margar. Mamma, amma, eiginlega
allar vinkonur mínar og almennt
skemmtilegar, sterkar og klárar konur.“
Hver er uppáhaldsmaturinn? „Allt
sem bragð er af, nema svín.“
Hvað er fram undan? „Mikil vinna. Auk
vinnunnar í dómsmálaráðuneytinu er ég
að leggja lokahönd á ævisögu Guðrúnar
Ögmundsdóttur og að taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið í fræðistörfum
síðastliðið vor.“
Með hverjum heldurðu í enska? „Ars-
enal. Nema ef þú ert að vísa til karlafót-
boltans, ég fylgist ekki með honum.“
maður dagsins
kjallari
„Já, ég er mjög hlynntur því.“
Örn BerGMann Jónsson,
20 ÁrA kAUpMAðUr
„Já.“
JóHanna raGnarsdóttir,
51 ÁrS viNNUr við FÉlAGSStÖrF
„Já.“
sævar eyJólFson,
32 ÁrA pArkEttSlÍpAri
„Já, ég held ég sé hlynntur því. Þetta er
ljótt mál sem menn mega ekki komast
upp með að ekkert sé gert í.“
rúnar GeorGsson,
67 ÁrA Öryrki
„Já, mér finnst alveg mega rétta yfir
þeim.“
Halldór Fannar Halldórsson,
26 ÁrA EiNkAÞJÁlFAri
ertu hlynnt/ur því að rÁðherrarnir fjórir verði sóttir til saka?
dómstóll götunnar
mánudagur 13. september 2010 umræða 19
Það eru líklega mörg lönd í
heiminum sem myndu
vilja búa við norrænt
velferðarkerfi.
valur
Gunnarsson
rithöfundur skrifar
að mörgu að hyggja Þeir voru í þungum þönkum þegar þeir gengu út af þingflokksfundi Samfylkingarinnar, þeir Árni páll
Árnason velferðarráðherra og Helgi Hjörvar alþingismaður, á laugardag. Á fundinum var kynnt niðurstaða þingmannanefndar um
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Allt bendir til þess að landsdómur veri kallaður saman og ráðherrar hrunsins verði dregnir fyrir
dóm. Málið verður rætt á Alþingi í dag. Mynd siGtryGGur ari