Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Síða 20
Mið-Ísland heldur í hringferð og skemmtir í framhaldsskólum:
Fyndnir allan hringinn
ÍSLAND Í LIFANDI
MYNDUM
Kvikmyndasafn Íslands sýnir á
þriðjudag og laugardag verkið Ísland
í lifandi myndum eftir Loft Guð-
mundsson. Um er að ræða mynd
í 90 mínútna lengd sem markar
upphafið að svarthvítum heimild-
armyndum Lofts sem er einn helsti
frumkvöðull íslenskrar kvikmynda-
gerðar. Báðar sýningarnar fara fram
í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnar-
firði. Sú á þriðjudaginn hefst klukk-
an 20.00 en sú á laugardag klukkan
16.00. Aðgangseyrir er 500 krónur og
er hægt að verða sér úti um frekari
upplýsingar á kvikmyndamidstod.is.
BRESTIR
BIBLÍUNNAR
Bókaforlagið Veröld hefur sent
frá sér bókina Þú sem ert á himn-
um eftir Úlfar Þormóðsson. Und-
irtitill bókarinnar er Rýnt í bresti
Biblíunnar með guði almáttug-
um en í bókinni fer Úlfar í gegn-
um Biblíuna, bók fyrir bók, og
leitast við að draga upp mynd af
þeim guði sem þar er að finna. Á
meðal þess sem Úlfar kemst að á
þessu ferðalagi sínu er að sá guð
sem skrifað er um í Biblíunni sé
nokkuð ólíkur þeim góðlátlega
guði sem kirkjan boðar að vaki
yfir okkur. Þú sem ert á himnum
er 400 blaðsíður að lengd. Eyjólf-
ur Jónsson braut bókina um og
Ragnar Helgi Ólafsson hannaði
kápu.
ENN BÆTIST VIÐ
HJÁ BÓ
Breska sópransöngkonan Summer
Watson hefur bæst í hóp þeirra sem
fram koma á tónleikunum Jólagestir
Björgvins laugardaginn 4. desember
í Laugardalshöllinni.
Summer er þriðja alþjóðlega
stjarnan sem staðfestir komu sína
á tónleikana en áður hefur verið
greint frá því að Paul Potts og Euro-
vision-stjarnan Alexander Rybak
yrðu á meðal gesta. Þar utan kemur
fram fjöldinn allur af innlendum
tónlistarmönnum og má þar nefna
sem dæmi aðra Eurovision-stjörnu,
Jóhönnu Gúðrúnu Jónsdóttur.
20 FÓKUS 13. september 2010 MÁNUDAGUR
HJÁLMAR Á BÓK Hjálmar, ásamt Guðmundi
Frey Vigfússyni (Gúnda), vinna nú að veglegri ljós-
myndabók sem skartar myndum af ferli Hjálma allt frá
upphafi til dagsins í dag. Bókin mun koma út fyrir jólin
en henni fylgir diskur með lögum sem ekki hafa ratað
inn á fyrri plötur sveitarinnar. Á meðal ljósmynda sem
prýða bókina eru myndir frá ferð Hjálma til Jamaíka,
myndir frá hljóðritun á öllum plötum sveitarinnar og
ýmsar tónleikamyndir.
Það er ekki lítið verkefn-ið sem hópurinn á bak við „Framtíð vonarinn-ar“ tekur sér fyrir hendur.
Við höfum séð ágætis bylgju af mynd-
um sem taka beint og óbeint á hrun-
inu og þessi er klárlega á svipuðum
slóðum. Draumalandið tók mikið á
þeirri stefnu sem leiddi til hrunsins.
Guð blessi Ísland tók á snertiflötum
hrunsins við venjulegt fólk frá sjón-
arhóli íslensks leikstjóra sem búsett-
ur er erlendis. Maybe I should have er
gerð af Íslendingum og fer dýpra í að
skýra hlutina út frá hagtölum og sta-
tistík en með skemmtanagildið í há-
sæti.
Hér er komin mynd gerð af Bret-
um um framhaldið, sjálft risið úr
öskustónni. Myndin er leidd áfram af
viðtölum við fullt af áhugaverðu fólki
með áhugaverðar hugmyndir, Vigdísi
Finnbogadóttur, Ómar Ragnarsson,
Guðjón í Oz, Katrínu Jakobsdóttur,
fólk innan lífræna geirans, athafna-
menn, fræðimenn og fleiri og fleiri.
Hér er horft með sjálfbærum gler-
augum á fortíð, nútíð og fókus erað
á framtíð stórra hugmynda á litlum
skala.
Ísland er notað sem dæmi um
land sem hefur allt til að vera fána-
beri nýrrar framtíðar og hér er allt sett
í samhengi, efnahagskerfið jafnt sem
náttúran, enda gilda sömu grunnlög-
mál þar eins og annars staðar. Endur-
nýjanlegir orkugjafar, lífræn ræktun
og sjálfbærni á öllum sviðum samfé-
lagsins er því fyrirferðarmikið í mynd-
inni. Mjög snjallt að nota einfalt lítið
dæmi eins og Ísland til að setja ástand
heimsins í skýrt samhengi sem fólk
skilur. Fljótlega áttar maður sig á
hvernig hrunið snerist ekki bara um
lán sem hækkuðu, heldur dýpri hluti
sem eiga rót í einkavæðingu bank-
anna, fiskimiðanna í formi kvótakerf-
isins og fyrst og fremst því að hugsa
ekki sjálfbært.
Þetta er mynd sem hefur miklar
upplýsingar fram að færa en útfærsl-
an sér til þess að engir dauðir punkt-
ar eru hér. Tökur eru frábærar, ekki
síst á landslagsmyndum og skotum
af lundapysjum sem láta gamminn
geisa. Tónlistin er frábær, Biggi Hilm-
ars, Damien Rice, Ampop, Lára Rún-
arsdóttir og Blindfold magna áhrif-
in til muna. Hreyfimyndagerð Unu
Lorenzen er frábær, hún er greini-
lega með þeim betri hér á landi í þeim
geira. Skemmtilegur hreyfimynda-
inngangurinn minnir á Monty Pyt-
hon og í seinniparti á Yellow Submar-
ine þegar Bítlaleg tónlist dettur inn.
Kvikmyndagerðarmennirnir hafa náð
kjarna þess að gera heimildamyndir
með kjöt á beinunum á 21. öldinni.
Það skiptir öllu að hafa grafík, klippur,
myndskreytingu og tökur hraðari eft-
ir því sem umræðan er dýpri/hægari.
Fullt hús stiga fyrir það.
Myndin gerir frábærlega í að setja
vandamál Íslands í alþjóðlegt sam-
hengi en á sama tíma kveikir hún
von rétt eins og blómið sem vex upp
úr urðinni á plakatinu. Svo myndin
stendur svo sannarlega undir nafni.
Það er eitt að rífa það gamla niður,
sem er klárlega nauðsynlegt, en að
gagnrýnin innihaldi þessa von og já-
kvæðni fyllir áhorfandann krafti til
þess að vilja breyta til. Myndin sýnir
að efnahagsmódelið sem við fylgd-
um/fylgjum er ekki sjálfbært, það
hrynur fyrr eða síðar rétt eins og
ástand jarðar ef við hugsum ekki sjálf-
bært. Sjálfbærnikrafan kristallast í
herðapúðasöngnum góðkunna, það
gengur nefnilega ekki að taka bara út
úr Gleðibankanum. Menn verða að
leggja inn líka, það er kjarni íslenska
blómsins sem vex upp úr urðinni.
Erpur Eyvindarson
GLEÐIBANKIsjálfbærninnar
FUTURE OF HOPE
Leikstjóri: Henry Bateman
KVIKMYNDIR
FUTURE OF HOPE Henry Bateman,
sem gerir myndina, við tökur.
HVAÐ HEITIR LAGIÐ?
„Þar má sjá, þegar sólin
súnkar í hafið og býður
góða nótt.“
SVAR: IEGRIL - BJARTMAR OG BERGRISARNIR
„Við byrjum á því að fara út á land og
síðan tökum við skólana í borginni,“
segir Bergur Ebbi Benediktsson, einn
meðlima uppistandshópsins Mið-Ís-
lands. Bergur leggur af stað í dag í
hringferð ásamt þeim Dóra DNA,
Ara Eldjárn og Jóhanni Alfreði en
þeir félagar ætla vera með uppistand
í framhaldsskólum landsins.
„Við byrjum á Ísafirði og höldum
svo áfram hringinn.“ Bergur segir
þá félaga koma við í flestum skólum
landsins en ekki þó öllum. „Það væri
gaman að geta sagt öllum. En þar
sem er stutt á milli skóla bjóðum við
nemendum úr hinum skólunum að
koma og vera með.“
Bergur segir mikinn spenning í
hópnum og að þetta sé fyrsta alvöru
uppistandsferð þeirra félaga. „Þetta
hafa bara verið svona skottúrar hing-
að til. Maður hefur einmitt alltaf öf-
undað þessa uppistandara í Banda-
ríkjunum af því að vera „on the
road“.“ Þeir félagar verða allir með
nýtt efni í farteskinu en Bergur segir
að ferðalag af þessu tagi bjóði upp á
ótal möguleika í uppistandi. „Atrið-
ið manns breytist alltaf aðeins eft-
ir því sem maður flytur það oftar og
svo bætist líka inn staðbundið grín.
Eitthvað sem maður tekur bara eftir
á leiðinni. „Svona er þetta á Höfn“ og
þannig brandarar.“
Bergur telur það mikil forréttindi
að fá að skemmta menntaskólanem-
endum. „Þeir eru svo móttækilegir
fyrir öllu. Bæði ef eitthvað er fynd-
ið og svo ef eitthvað er ekki alveg að
hitta í mark þá fær maður samt klapp
á bakið fyrir góða tilraun. Það verð-
ur líka gaman að geta látið allt flakka.
Maður hefur verið skemmta mik-
ið í fyrirtækjum og á árshátíðum og
svona þar sem maður þarf oft aðeins
að passa sig.“
Að lokum segir Bergur það líka
tilvalið að ferðin sé farin á þessum
tíma. „Það er tilvalið að vera með
grín þegar allir eru orðnir svolítið
pirraðir og byrjaðir aftur að vinna og
í skólanum. Ekki bara yfir sumartím-
ann í tengslum við einhverja pulsu-
hátíð.“ asgeir@dv.is