Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Síða 22
22 ÚTTEKT 13. september 2010 MÁNUDAGUR
Samkvæmt nýrri rannsókn eru þau pör sem bíða með líkamlegt
samneyti í upphafi sambandsins hamingjusamari en þau sem
hoppa strax upp í rúm. Hins vegar geta þeir óþreyjufullu einnig
búist við að finna sanna ást.
Sambönd sem hefjast á einnar nætur gamni eru ekki endi-lega dæmd til að mistakast, samkvæmt nýrri rannsókn
sem framkvæmd var í Iowa-háskóla.
Í rannsókninni komst félagsfræðing-
urinn Anthony Paik að þeirri nið-
urstöðu að ánægja er meiri í sam-
böndum hjá pörum sem bíða með
líkamlegt samneyti en hjá þeim sem
sofa saman á fyrsta stefnumóti eða
voru bólfélagar áður en þau ákváðu
að láta reyna á alvarlegt samband.
Paik, sem er aðstoðarprófessor í UI
College of Liberal Arts and Sciences,
segir rannsóknina gefa til kynna að
það sé gott fyrir framtíðina að bíða
með líkamlegt samband fyrst um
sinn en að þeir sem
hoppi
strax
upp í rúm geti einnig átt von á ham-
ingjuríku sambandi og fundið sanna
ást.
Paik segir að þótt pör sem hoppi
strax upp í rúm saman mælist held-
ur óhamingjusamari en hin sem bíða
sé þar hinu snemmbúna kynlífi ekki
um að kenna. „Langtímasambönd
eru ekki fyrir alla. Sumum líkar bet-
ur að stunda skyndikynni. Það er því
frekar gerð einstaklingsins en gerð
sambandsins sem ræður. Þeir sem
hafa átt í mörgum samböndum eru
líklegri til að stunda skyndikynni og
einnig til að vera óhamingjusamir
þegar þeir eru á föstu.“
Í rannsókninni kom í ljós að hluti
þeirra sem stunda stefnumót hef-
ur litla trú á sannri ást. „Okkur kom
á óvart að þeir sem hafa í rauninni
litla trú á sannri ást gefa sig samt
út fyrir það sem sýnir okkur að
á „markaðnum“ finnast þeir
líka sem eru í rauninni
bara að leita eftir skyndi-
kynnum. Stefnumótin
sameina því „players“
og þá sem leita að al-
varlegum sambönd-
um.“
Rannsóknin, sem
birtist í tímaritinu
Social Science Res-
earch, byggðist á
svörum 642 gagn-
kynhneigðra ein-
staklinga í Chicago. Ánægja sam-
bandsins var mæld með spurningum
um sambandið, framtíðina, ánægju
með nánd og hvernig fólk sæi lífið
fyrir sér án makans. Einnig var spurt
hvenær viðkomandi hefði fyrst sofið
hjá makanum.
Niðurstöður Paiks og félaga gefa
einnig til kynna, líkt og fyrri rannsókn-
ir um efnið, að ógiftir og barnlausir
séu óhamingjusamari í samböndum
sínum en gift barnafólk og að pör, þar
sem hvor aðili eigi í góðu sambandi
við fjölskyldu hins, séu hamingjusam-
ari en þau sem eigi í slæmu eða litlu
sambandi við tengdafjölskyldu sína.
Í annarri amerískri rannsókn,
sem birtist í Journal of Sex Research,
kemur fram að einnar nætur gaman
getur haft slæm áhrif á andlega líðan
ungra kvenna. Í rannsókninni kom í
ljós að 18% kvenna og 3% karla höfðu
talið að skyndikynnin yrðu upphafið
að alvarlegu sambandi og orðið fyr-
ir miklum vonbrigðum þegar svo
varð ekki. Um 7% karlmanna sögðu
skyndikynnin hafa verið hluta af til-
raunastarfsemi en 14% kvennanna
sögðu það sama. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að skyndikynni eiga
sér frekar stað milli kunningja en
ókunnugra. „Við sjáum fólk sofa hjá
hinum og þessum í sjónvarpsþáttum
en við sjáum aldrei afleiðingarnar,“
segir Simon Holowatz kennari við
Penn State University Health Serv-
ices. „Slíkt veldur misskilningi hjá
þeim sem eru að stíga sín fyrstu
skref í ástarlífinu. Kynlíf innan
ástarsambands hefur betri
áhrif á andlega líðan
okkar. Þar ríkir traust
og kvíðinn sem getur
fylgt fyrsta skiptinu
er minni.“
LEITARÐU AÐ BÓLFÉLAGA
EÐA FRAMTÍÐARMAKA?
Notaðu eyrun, ekki munninn
Ef þú hljómar eins og biluð plata
reyndu þá að ýta á pásu-takkann.
„Kannanir benda til þess að ein-
staklingar í óhamingjsömum sam-
böndum eigi það til að endurtaka
sig í von um að hlustað sé á þá. Slíkt
virkar sjaldnast. Þeir reyna að tala
hvor til annars í stað þess að tala
hvor við annan,“ segir Benjamin
Karney hjá Relationship Institute
við University of California í Los
Angeles.
Engin neðanbeltishögg
Hanskarnir vilja gjarnan fjúka af
í hita leiksins. Vandamálið við
það, samkvæmt Ritu DeMaria við
Council for Relationships í Phila-
delphiu, er að um leið og særandi
athugasemdir hafa farið í loftið er
möguleikinn á að leysa málin far-
inn.
Samkvæmt rannsókn á vegum
háskóla í Chicago sýnir fólk meiri
viðbrögð við neikvæðum fréttum
en jákvæðum, sem á rætur að rekja
aftur í fornöld þegar tilvist manns-
ins byggðist á því að geta forðað sér
undan hættum. „Þess vegna verður
þú að passa hvað þú lætur út úr þér.
Mundu að markmiðið er ekki að
særa sem mest heldur leysa vanda-
málin. Í stað þess að öskra: „Þú ert
svo latur!“ skaltu reyna að segja
honum hvernig aðgerðaleysi hans
hefur áhrif á þig. Prófaðu í staðinn
að segja: „Ég er þreytt á að þurfa að
sjá um öll okkar mál og vildi að þú
tækir einhverja ábyrgð.“
Ekki keppa um sigur
„Hvort er mikilvægara fyrir þig, að
hafa rétt fyrir þér eða ná sáttum við
makann?“ spyr Karney sem seg-
ir vandamálin leysast mun fyrr ef
pör hætti að keppa um hver hafi
rétt fyrir sér og hver rangt. „Reyn-
ið að finna milliveginn. Ef það fer
í taugarnir á honum hversu mörg
SMS þú sendir honum þegar hann
er á djamminu með vinum sínum
reyndu þá að útskýra fyrir honum
að þú sért áhyggjufull ef þú heyr-
ir ekki í honum en að þú ætlir að
reyna að taka þig á.“
Lærðu að rífast