Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 23
MÁNUDAGUR 13. september 2010 ÚTTKET 23
LEITARÐU AÐ BÓLFÉLAGA
EÐA FRAMTÍÐARMAKA?
Lærðu að rífast
Mundu að þið eruð par
Samkvæmt rannsókn sem
birtist í tímaritinu Journal of
Marriage and Family á sam-
bandið meiri möguleika ef
ykkur tekst að rökræða á já-
kvæðum nótum. „Þegar pör
geta sýnt hvort öðru ástúð og
bætt smá húmor inn í rifr-
ildin eru minni líkur á
að hvöss orð særi jafn
mikið,“ segir Karney
og bætir við: „Snert-
ing sýnir makanum
að þú elskir hann
jafn mikið þótt þið
séuð ekki sam-
mála. Ef ykkur
tekst að hlæja á
milli standið þið
upp enn ham-
ingjusamari
eftir deilurn-
ar.“
10 setningar sem þú vilt ekki
heyra eftir einnar
nætur gaman
1. „Ég þarf að skjótast því ég á annað stefnumót.“
2. „Það var skemmtilegt að sofa hjá einhverri sem ég þurfti
ekki að blása upp.“
3. „Ég vildi að við gætum fengið okkur saman morgun-
mat en ég á að mæta á Húð og kyn eftir hálftíma.“
4. „Við verðum að flýta okkur. Konan mín/maðurinn
minn bíður fyrir utan.“
5. „Nei, þetta er ekki reykskynjari, þetta er upptökuvél.“
6. „Er þetta allt? Og hvað á ég eiginlega að
gera við þetta?“
7. „Þeir lokuðu fyrir heita vatnið og ég hef
ekki komist í bað í nokkrar vikur.“
8. „Getum við farið heim til þín? Ég vil
ekki vekja foreldra mína.“
9. „Bræður mínir eru með góð
sambönd í undirheimunum. Þeir
passa að enginn fari illa
með mig.“
10. „Þetta gera 100 þús-
und krónur.“