Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Qupperneq 24
ÓLSARAR FENGU BIKARINN EN VÍÐIR FÉLL
Víðir úr Garði leikur í 3. deild á næsta ári en liðið féll úr 2. deild um helgina. Víð-
ismenn töpuðu fyrir Víkingi frá Ólafsvík, 3–1, fyrir vestan en liðið varð að vinna
leikinn. Fjögur stig eru nú á milli Víðis og ÍH sem bjargaði sæti sínu. Víðir fer
niður með KV. Leikurinn var síðasti heimaleikur Ólsara á tímabilinu og fengu
þeir því bikarinn fyrir sigur í 2. deild en hann tryggði liðið í síðustu umferð. Óls-
arar hafa enn að einu markmiði að keppa, að fara í gegnum mótið án þess að
tapa. Ólsarar hafa unnið sautján leiki og gert fjögur jafntefli en þeir mæta lið-
inu sem fer upp í 1. deild með þeim, BÍ/Bolungarvík, í lokaumferðinni.
NJARÐVÍK NIÐUR EN LAUST SÆTI Í
ÚRVALSDEILD Njarðvíkingar eru fallnir úr 1. deildinni en lið-
ið tapaði 3–0 fyrir Fjölni á laugardaginn. Enn er ekki ljóst hvort Fjarða-
byggð eða Grótta fari niður með Njarðvík en það ræðst í lokaumferð-
inni. Leiknir og Þór berjast svo um síðasta sætið í Pepsi-deildinni en
Leiknir gerði jafntefli gegn Fjarðabyggð, 1–1, á meðan Þór tapaði fyrir
HK, 3–2. Leiknismönnum dugar jafntefli á heimavelli í lokaumferðinni
en Þór verður að vinna Fjarðabyggð. Leiknismenn geta einnig unnið
deildina en þá þurfa þeir að vinna Fjölni og Víkingur að tapa fyrir HK.
MOLAR
HAMILTON TEKUR
ÁBYRGÐ Á MISTÖKUNUM
n Lewis Hamilton tókst ekki að kom-
ast í mark í Ítalíu-kappakstrinum
en stýrisstöng við hægra framhjól
brotnaði þegar
hann reyndi að
komast fram úr
Felipe Massa.
Skullu framhjól
þeirra saman
með fyrrgreind-
um afleiðingum.
„Þetta voru
augljóslega mín
mistök. Þetta var einn af þessum
hlutum sem kemur fyrir í keppni þar
sem ekkert er gefið eftir. Titillinn
er samt ekkert úr sögunni en það
eru svona dagar og svona mistök
sem geta kostað mann titla,“ sagði
Hamilton sem er nú í öðru sæti
stigamótsins á eftir Mark Webber.
HATTON GRIPINN
VIÐ KÓKNEYSLU
n Götublaðið News of the World
birti um helgina myndir af hnefa-
leikakappanum Ricky Hatton þar
sem hann fær sér kókaín á hóteli í
Manchester fyrir
tveimur vikum.
Blaðið segir að
góðir vinir Hatt-
ons hafi miklar
áhyggjur af
honum og eitur-
lyfjaneyslu hans
en Hatton hefur
lagt hanskana á
hilluna eftir farsælan feril. Í blaðinu
er sagt frá því hvernig Hatton saug
sjö línur af kóki, drakk ellefu glös af
bjór, fjögur vodkaskot og tvö vínglös
ásamt slatta af Sambuca í partíinu.
Myndir eru því til stuðnings en á
þeim er Hatton með andlitið ofan í
borðinu og með innsogið á fullu.
BECKHAM AFTUR
AF STAÐ
n David Beckham kom inn á sem
varamaður þegar Los Angeles
Galaxy lagði Columbus Crew, 3–1, í
MLS-deildinni.
Beckham lék
síðustu tuttugu
mínúturnar en
hann hafði ekki
spilað fótbolta í
sex mánuði eftir
að hafa orðið
fyrir meiðslum á
ökkla fyrr á árinu
sem meðal annars aftraði honum
frá því að taka þátt á HM í sumar.
„Ég hef aldrei verið eins lengi frá fót-
boltavellinum,“ sagði Beckham eftir
leikinn og hann er ekki enn búinn
að gefa landsliðið upp á bátinn. „Ég
er alltaf klár að spila fyrir England ef
kallið kemur,“ sagði Beckham.
DJOKOVIC LAGÐI
FEDERER
n Svisslendingurinn Roger Federer
vinnur ekki sinn sautjánda risatitil
í vikunni eins og allt leit út fyrir.
Hann hafði verið
í miklu stuði á
Opna bandaríska
meistaramótinu
en Serbinn
Novak Djokovic
lagði hann í
fjórum settum í
undanúrslitum
um helgina.
Djokovic hafði betur, 5:7, 6:1, 6:2 og
7:5. Federer hefur leikið til úrslita á
Opna bandaríska síðastliðin sjö ár
en nú verða það Djokovic og Rafael
Nadal sem leika til úrslita. Federer
hefur sett sér það takmark að vinna
tuttugu risamót á ferlinum en hann
hefur nú þegar unnið flest risamót í
sögunni.
24 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 13. september 2010 MÁNUDAGUR
„Fögnuðurinn var svo sannarlega
innilegur,“ sagði kampakátur Helgi
Sigurðsson, leikmaður Víkings, við
DV í gær en Víkingar tryggðu sér sæti
í Pepsi–deildinni með 2–0 sigri á KA
fyrir norðan. Á sama tíma tapaði Þór
fyrir HK, 3–2, í Kópavoginum og var
því ljóst að Víkingur myndi leika á
meðal þeirra bestu að ári. „Það var
gott að klára okkar leik sjálfir eins
og við ætluðum að gera. Svo var það
auðvitað góður bónus að hin liðin
misstigu sig,“ sagði Helgi. Þórsarar
eiga enn möguleika á sæti í Pepsi–
deildinni en til þess þarf Leiknir að
tapa fyrir Fjölni á heimavelli og Þór
að sigra Fjarðabyggð. Leiknir er með
fullt hús stiga og aðeins tvö mörk
fengin á sig á heimavelli í ár. Verð-
ur því að teljast líklegra að Leiknis-
menn fylgi Víkingi upp.
Ekkert gaman að vera
númer tvö
Víkingar eiga tvö stig á Leikni sem er
í öðru sætinu og eru með mun betri
markatölu. Jafntefli ætti því að duga
Fossvogspiltum til sigurs í fyrstu
deildinni en það yrði fyrsti titill fé-
lagsins í heil nítján ár, eða frá því að
liðið varð Íslandsmeistari árið 1991.
„Það er alveg klárt að við förum
í þann leik til að vinna hann. Við
ætlum að vinna þessa deild enda
er ekkert gaman að vera númer tvö.
Fyrsta markmiðinu hefur verið náð,
að komast upp um deild. Nú er það
að klára hitt markmiðið. Við get-
um núna farið í HK-leikinn og not-
ið hans og haft gaman í vikunni. Það
var vel fagnað eftir KA-leikinn enda
áttum við það skilið. En við vilj-
um vinna þessa deild, það er alveg
klárt,“ sagði Helgi.
Getur verið stoltur
Þetta er í annað skipti sem Helgi tek-
ur slaginn í næstefstu deild en þeg-
ar hann kom heim eftir atvinnu-
mannaferilinn gekk hann í raðir
Fram sem lék þá í 1. deild. Hann var
lykilmaður í liðinu sem komst upp
um deild og var valinn besti leik-
maður deildarinnar. Árið eftir var
hann allt í öllu í liði Vals sem varð Ís-
landsmeistari og nú var hann lykil-
þáttur í að koma uppeldisfélagi sínu
upp um deild.
„Það er mikið búið að skjóta á
mig fyrir að spila í 1. deild. En það
hefur bara verið frábært að koma
heim aftur og virkilega gott að geta
hjálpað mínu liði. Nú er ég búinn
að fara upp með tvö lið og vinna Ís-
landsmeistaratitil. Ég held ég geti
alveg verið stoltur af ferlinum eft-
ir að ég kom aftur heim. Það er þó
langt því frá að ég hafi verið einn í
því að koma Víkingi upp. Ég er með
frábæra liðsfélaga og ég hefði ekki
gert neitt án þeirra. Það var samt
virkilega gaman að taka þátt í þessu
og þó maður sé gamall getur maður
nú alveg smitað út frá sér sigurvilja,“
sagði Helgi.
Þarf að styrkja allar stöður
nema framherjann
Aðspurður um næsta ár og styrk-
leika Víkingsliðsins sagði Helgi:
„Við erum með mjög gott 1. deildar
lið en það er ekkert samasemmerki
á milli þess og úrvalsdeildarliðs,
það er alveg ljóst. Við sjáum að Sel-
foss og Hauka eru í vandræðum í ár
þannig menn mega ekkert gleyma
því að við verðum að styrkja hópinn.
Ég hef líka trú á því að menn geti
það. Það þarf að kaupa í allar stöður
nema engan framherja, það er alveg
bannað að gera það,“ sagði Helgi og
hló. „Nei, nei, ég segi svona. En að
öllu gamni slepptu þarf eitthvað að
styrkja hópinn.“
Hann bætti við: „Við ætlum okkur
stóra hluti á næsta ári. Það er gríðar-
leg tilhlökkun núna í hverfinu og
það er ekki talað um annað í
Fossvoginum. Það er mikil
gleði núna í félaginu og
allt í kringum Víking.
Þetta verður alveg
frábær vika sem er
fram undan.“
Skilar alltaf
sínum tíu
mörkum
Það virkar nú
þannig að menn
verða ekki yngri
með tímanum
og er Helgi orð-
inn 36 ára. Hann
hefur þó spilað
hvern einasta leik
með Víkingi frá því
hann kom til félags-
ins allt frá Reykja-
víkurmótinu. „Það
er alveg ótrúlegt að
hugsa til þess,“ sagði
Helgi léttur. „Skrokk-
urinn hefur verið fínn
og ég hef verið laus
við meiðsli. Það hef-
ur oft tekið lengri tíma
að jafna sig og þjálfarat-
eymið hefur oft verið
afar gott við mig að leyfa
mér að taka því rólega á
æfingum. Oft hef ég ver-
ið í keppni við tím-
ann hreinlega að
ná leikjum en ég
er svo þrjóskur
að ég vil spila
alla leiki,“
sagði Helgi
sem missteig
sig reyndar
hrapallega á
Akureyri og
er mjög tæpur
fyrir lokaleik-
inn gegn HK.
En ætlar Helgi
að halda áfram á
næsta ári? „Auðvit-
að. Annars væri ég
ekkert í þessu. Ég
veit alveg að þetta
verður ekkert
léttara
með hverju árinu en ég
hef ennþá margt fram
að færa og ég lofa að
ég skora alltaf mín
mörk. Ég hef allt-
af skorað þetta í
kringum tíu plús
mörk og ég
stefni á það að
ári. Það eru há-
leit markmið en
ef maður set-
ur sér ekki há-
leit markmið get-
ur maður alveg eins
sleppt því að taka
þátt í íþróttum,“
sagði Helgi Sigurðs-
son, fyrirliði Vík-
ings.
„ÆTLUM OKKUR
STÓRA HLUTI“
Víkingur í Reykjavík leikur í Pepsi-deildinni á næsta tímabili en það var ljóst eftir næst-
síðustu umferðina í 1. deildinni á laugardaginn. Víkingar lögðu KA-menn fyrir norðan,
1–0, á meðan Þórsarar klúðruðu sínum málum í Kópavoginum gegn HK. Helgi Sigurðsson
ákvað að taka slaginn í 1. deildinni með uppeldisfélagi sínu og hann sér ekki eftir því.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
BETRA EN Í FYRRA Leifur Garðarsson
endaði með Víkingsliðið í tíunda sæti í
fyrra en kom því upp í ár.
EFNILEGUR Sigurður Egill Lárusson er
einn þeirra ungu uppöldu Víkinga sem
munu sprikla á meðal þeirra bestu að ári.
AFTUR Á MEÐAL ÞEIRRA
BESTU Helgi Sigurðsson
leikur með uppeldisfélagi
sínu í Pepsi-deildinni að ári.
MYND KRISTINN MAGNÚSSON
DANSKUR MARKASKORARI
Jakob Spangsberg hefur verið í Víkinni
undanfarin tvö ár.
MYNDIR TOMASZ MARIAN KOLODZIEJSKI