Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Page 25
GÓÐUR SIGUR BLACKPOOL Blackpool vann sinn
annan sigur í ensku úrvalsdeildinni um helgina þegar liðið lagði New-
castle á St. James‘ Park, 2–0. Charlie Adam kom nýliðunum yfir með
marki úr vítaspyrnu á lokamínútu fyrir hálfleiks og nýjasti leikmaður
liðsins, DJ Campbell, bætti við öðru á lokamínútu leiksins. Blackpool
er því komið með sjö stig af tólf mögulegum eftir fyrstu fjóra leikina
í deildinni. Blackpool var spáð falli af öllum en þeir appelsínugulu
byrja allavega mjög vel. Liðið hefur aðeins tapað einum leik af þess-
um fjórum og það var gegn stórliði Arsenal á útivelli.
CHELSEA ÓSIGRAÐ Chelsea-menn mæta ógnar-
sterkir til leiks í ár og hafa nú unnið alla fjóra leiki sína í deildinni.
Chelsea fór létt með West Ham, 3–1, um helgina en Michael Essien
skoraði tvö mörk og Salomon Kalou eitt. Scott Parker skoraði eina
mark West Ham á 85. mínútu en það var bara rétt til þess að klóra í
bakkann. „Það er náttúrulega bara eins og að fá nýjan leikmann að
fá Essien aftur úr meiðslum,“ sagði hæstánægður knattspyrnustjóri
Chelsea, Carlo Ancelotti, eftir leikinn. Chelsea er ríkjandi deildar- og
bikarmeistari og mætir feykiöflugt til leiks í ár.
MÁNUDAGUR 13. september 2010 SPORT 25
Ferrari-menn lögðu allt undir fyrir
kappaksturinn á Monza á sunnu-
daginn en hefði farið illa ætlaði
liðið að gefast upp í ár og fara að
huga að bíl næsta árs. Þeir þurfa
þó eitthvað að bíða með það því
Fernando Alonso landaði sigri fyr-
ir Ferrari á heimavelli liðsins og
varð Felipe Massa annar. Alonso
er núna 23 stigum frá efsta manni,
Mark Webber, en hann vann átj-
án stig á forystusauðina með sigr-
inum. Með þriðja sæti Massa gull-
trygði liðið endanlega þriðja sætið
í keppni bílasmiða.
Alonso var á ráspól en missti
Jenson Button fram úr sér í annarri
beygju. Alonso ók hraðar en tókst
aldrei að komast fram úr Button.
Það tókst ekki fyrr en Ferrari-menn
brugðu á það ráð að senda Alonso
ekki inn á sama tíma og Button á
viðgerðarsvæðið. Alonso var látinn
keyra aukahring til að byggja upp
forskot og dugði það til að kom-
ast út úr viðgerðarhléinu á undan
Button þegar Alonso fór inn. Gífur-
lega klókt og vel útfært hjá Ferrari-
mönnum.
Alonso ók síðan léttilega fyrst-
ur í mark, Button varð annar og
Massa þriðji. „Þetta var góður sig-
ur og virkilega klókt hjá stjórnar-
mönnum að gera þetta svona. Ég
á enn eftir að vinna upp fleiri stig
en ég var nokkuð heppinn með að
Hamilton náði ekki að klára. Ég er
búinn að minnka stigafjöldann á
milli mín og efsta manns niður í
23 stig úr 41 í einni keppni. Það er
allt hægt með þessu nýja skorkerfi
þannig að við erum ekkert hættir,“
sagði Fernando Alonso við frétta-
menn eftir keppnina. tomas@dv.is
Fernando Alonso landaði sigri á Monza:
FERRARI ENNÞÁ MEÐ
„Það var grátlegt að sjá hvernig við
köstuðum þessu frá okkur í lokin,“
sagði sársvekktur knattspyrnu-
stjóri Manchester United, Sir Alex
Ferguson, við Sky-sjónvarpsstöð-
ina eftir 3–3 jafntefli sinna manna
gegn Everton í ensku úrvalsdeild-
inni um helgina. United-menn
voru 3–1 yfir þegar 90 mínútum
var lokið en tvö mörk í uppbótar-
tíma kostuðu liðið tvö stig. Svip-
að gerðist í síðasta útileik gegn
Fulham þar sem United var 2–1
yfir og fékk vítaspyrnu en klúðr-
aði henni og fékk svo á sig mark
undir lokin. Manchester United
er nú þegar fjórum stigum á eft-
ir Chelsea sem fór létt með West
Ham, 3–1.
Rússíbani í Guttagarði
Leikur Everton og Manchest-
er United var skemmtilegur á að
horfa en mörkin vantaði framan
af. Það voru svo heimamenn sem
komust yfir með marki Mikels
Arteta á 39. mínútu eftir barna-
legan varnarleik United-manna.
Manchester-menn snéru þó tafl-
inu sér í vil og jafnaði Darren
Fletcher með viðstöðulausu skoti
af stuttu færi eftir frábæra fyrir-
gjöf frá Nani. Nani var svo aftur
með góða sendingu fyrir rétt eft-
ir að seinni hálfleikur hófst, beint
á pönnuna á Nemanja Vidic sem
kom United yfir.
Dimitart Berbatov skoraði svo
frábært mark eftir stórkostlega
sendingu Pauls Scholes og voru
þeir rauðklæddu með allt í hendi
sér á Goodison Park. En í uppbót-
artíma hrundi allt hjá United og
minnkaði Tim Cahill muninn fyrir
Everton. Það var síðan Mikel Art-
eta sem tryggði jafnteflið með skoti
í Paul Scholes og inn og þar við sat.
„Köstuðum þessu frá okkur“
Sir Alex Ferguson var eðlilega ekki
skemmt eftir leik og má fastlega
búast við því að hans menn hafi
fengið hinn víðfræga hárblásara
beint í andlitið inni í búningsklefa
eftir leik. „Við köstuðum sigrinum
frá okkur. Þetta er annar útileikur-
inn í röð sem það gerist,“ sagði Sir
Alex reiður við Sky eftir leikinn.
„Við fengum tækifæri til að jarða
Everton hér í dag en við gerðum
það ekki. Við fórum illa með mjög
mörg færi en ég var ánægður með
spilamennsku minna manna stór-
an hluta leiksins. Við spiluðum
góðan fótbolta en það var grátlegt
að sjá hvernig við fórum að ráði
okkar undir lokin,“ sagði Sir Alex
Ferguson.
AFTUR SLYS Á ÚTIVELLI
Manchester United gerði sitt annað jafntefli á útivelli í jafnmörgum útileikjum um
helgina. United-menn fengu þá á sig tvö mörk í uppbótartíma gegn Everton. Í síð-
asta útileik gegn Fulham kastaði United einnig frá sér unnum leik.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
JÖFNUNARMARKIÐ
Mikel Arteta bjargaði
stigi fyrir Everton-menn.
MYND REUTERS
BRJÁLAÐUR Ferguson var ekki
sáttur við sína menn. MYND REUTERS
KÁTIR PILTAR Ferrari-menn fögnuðu vel á heimavelli. MYND REUTERS
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Everton - Manchester United 3-3
1-0 Steven Pienaar (39.), 1-1 Darren Fletcher (43.), 1-2 Nemanja
Vidic (48.), 1-3 Dimitar Berbatov (67.), 2-3 Tim Cahill (90.), 3-3
Mikel Arteta (90.).
Arsenal - Bolton 4-1
1-0 Laurent Koscielny (24.), 1-1 Johan Elmander (44.), 2-1
Mrouane Chamakh (58.), 3-1 Alexandre Song (78.), 4-1 Carlos
Vela (83.). n Gary Cahill, Bolton (64.).
Fulham - Úlfarnir 2-1
0-1 Jelle Van Damme (10.), 1-1 Moussa Dembélé (49.), 2-1 Moussa
Dembélé (90.). n Christophe Berra, Úlfarnir (89.)
Manchester City - Blackburn 1-1
0-1 Nikola Kalinic (25.), 1-1 Patrick Vieira (56.).
Newcastle - Blackpool 0-2
0-1 Charlie Adam (45. víti), 0-2 DJ Campbell (90.).
WBA - Tottenham 1-1
0-1 Luka Modric (27.), 1-1 Chris Brunt (41.).
West Ham - Chelsea 1-3
0-1 Michael Essien (2.), 0-2 Salomon Kalou (18.), 0-3 Michael
Essien (83.), 1-3 Scott Parker (85.).
Wigan - Sunderland 1-1
0-1 Asamoah Gyan (66.), 1-1 Antolín Alcáraz (87.).
n Lee Cattermole, Sunderland (22.)
Birmingham - Liverpool 0-0
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Chelsea 4 4 0 0 17:1 12
2. Arsenal 4 3 1 0 13:3 10
3. Man. Utd 4 2 2 0 11:5 8
4. Blackpool 4 2 1 1 8:8 7
5. Birmingham 4 1 3 0 6:5 6
6. Fulham 4 1 3 0 6:5 6
7. Aston Villa 3 2 0 1 4:6 6
8. Man. City 4 1 2 1 4:2 5
9. Wolves 4 1 2 1 5:5 5
10. Sunderland 4 1 2 1 4:4 5
11. Tottenham 4 1 2 1 3:3 5
12. Bolton 4 1 2 1 6:7 5
13. Liverpool 4 1 2 1 2:4 5
14. Newcastle 4 1 1 2 7:6 4
15. Blackburn 4 1 1 2 4:5 4
16. WBA 4 1 1 2 2:8 4
17. Wigan 4 1 1 2 2:11 4
18. Everton 4 0 2 2 4:6 2
19. Stoke City 3 0 0 3 2:6 0
20. West Ham 4 0 0 4 2:12 0
ENSKA B-DEILDIN
Nottingham Forest - Millwall 1-1
Leeds United - Swansea City 2-1
Burnley - Preston North End 1-2
Derby County - Sheffield United 0-1
Watford - Doncaster Rovers 2-2
Cardiff City - Hull City 2-0
Norwich City - Barnsley 2-1
Scunthorpe United - Bristol City 0-2
Reading - Crystal Palace 3-0
Portsmouth - Ipswich Town 0-0
Coventry City - Leicester City 1-1
QPR - Middlesbrough 3-0
STAÐA EFSTU LIÐA
Lið L U J T M St
1. QPR 5 4 1 0 14:2 13
2. Cardiff 5 4 1 0 11:2 13
3. Ipswich 5 3 2 0 8:3 11
4. Millwall 5 3 1 1 12:5 10
5. Burnley 5 3 1 1 9:5 10
6. Leeds 5 3 1 1 8:5 10
7. Norwich 5 3 1 1 8:5 10
8. Reading 5 2 2 1 8:5 8
9. Coventry 5 2 2 1 8:7 8
10. Doncaster 5 2 2 1 8:8 8
11. Barnsley 5 2 1 2 7:9 7
12. Sheffield Utd 5 2 1 2 3:5 7
13. Watford 5 1 3 1 7:7 6
14. Swansea 5 2 0 3 6:6 6
15. Scunthorpe 5 2 0 3 5:6 6
16. Bristol City 5 1 2 2 6:9 5
17. Nottingham F. 5 0 4 1 4:5 4
18. Derby 5 1 1 3 6:8 4
19. Hull 5 1 1 3 3:9 4
20. Middlesbro 5 1 1 3 2:8 4
21. Cr. Palace 5 1 0 4 4:11 3
22. Preston 5 1 0 4 4:11 3
23. Leicester 5 0 2 3 4:9 2
24. Portsmouth 5 0 2 3 1:6 2
FORMÚLA 1
STIGAKEPPNI ÖKUMANNA
Nafn Lið Stig
1. Mark Webber Red Bull 187
2. Lewis Hamilton McLaren 182
3. Jenson Button McLaren 165
4. Fernando Alonso Ferrari 164
5. Sebastian Vettel Red Bull 163
STIGAKEPPNI BÍLASMIÐA
Lið Stig
1. Red Bull 350
2. McLaren 347
3. Ferrari 288
4. Mercedes 157
5. Renault 58