Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2010, Side 26
Þokkadísin Kristrún Ösp
Barkar dóttir nýtur nú lífsins
í Faro í Portúgal þar sem hún
dvelur ásamt sínum fyrrver-
andi, knattspyrnustjörnunni
Dwight York. Á Facebook-síðu
sinni skrifar glamúrfyrirsætan
um lífsreynsluna. Þar kemur
fram að vinirnir hafi farið út að
borða saman eitt kvöldið. Dög-
unum eyði hún hins vegar við
kokteiladrykkju við sundlaugar-
bakkann þar sem golfvöllur er í
grenndinni og fótboltakappinn
er víst forfallinn golfari.
Hópur vinkvenna skipar knatt-
spyrnuliðið FC-Ógn sem hittist
reglulega við Ægisíðu til þess að
spila fótbolta. Á meðal meðlima eru
leikkonan Lilja Nótt Þórarinsdótt-
ir og sjónvarpskonan María Sigrún
Hilmarsdóttir sem enn hefur þó
ekki fundið stund aflögu til þess að
mæta á æfingu.
Rakel Garðarsdóttir, laganemi
og fyrrverandi framkvæmdastýra
Vesturports, er einnig partur af lið-
inu sem hún segir að stækki með
hverri æfingu. „Mætingin var í
fyrstu dræm en þetta vatt síðan upp
á sig og sífellt fleiri bættust í hópinn.
Þetta er alveg rosalega skemmtilegt,
mikið stuð og mikil barátta.“
Aðspurð hvernig nafnið FC-Ógn
hafi komið til segir Rakel að það
hafi eiginlega bara komið af sjálfu
sér. „Ætli við séum ekki bara svona
harðar píur?“ segir hún og hlær.
Rakel segir að þótt nafn liðsins sé
ógnvænlegt séu þetta þó bara stelp-
ur sem hittist til að vera úti, hreyfa
sig og hafa gaman. „Þetta er bara al-
veg eins og að fara út að leika. Við
hittumst, spilum og förum síðan að
slúðra þegar æfingin er búin.“ En
þrátt fyrir að vera fyrst og fremst til
gamans gert er mikill metnaður í
gangi og er markið sett hátt. „Við
erum loksins orðnar almennilegt
lið, komnar með búninga og svona.
Síðan erum við farnar að skipu-
leggja árshátíðina okkar, það er allt
að gerast.“
Vaskur hópur kVenna skipar liðið FC-óGn:
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnars-
dóttir fékk heldur skemmtilega
heimsókn um helgina þegar ís-
lenski sjónvarpsmaðurinn Jón
Ársæll Þórðarson kíkti til hennar
ásamt tökuliði sínu en Jón Ársæll
er staddur í Búlgaríu til að gera
þátt um stjörnuna. Eins og frægt
er birtist Ásdís á forsíðu búlgarska
Playboy á dögunum. Hún situr
ekki aðgerðarlaus þessa dagana
frekar en fyrri daginn en fjölskyld-
an er nú að undirbúa flutning til
Þýskalands þar sem eiginmaður
hennar Garðar Gunnlaugsson
knattspyrnumaður er á samningi.
Ásdís á eflaust eftir að taka Þýska-
land með stormi eins og henni
einni er lagið.
26 fólkið 13. september 2010 mánudagur
Ógnvænlegar boltapíur
Rakel á harðaspretti Það er
ekkert gefið eftir á æfingum hjá
FC-Ógn. Mynd SigtRygguR ARi
Drekkur
kokteila í
portúgal
í heimsókn
hjá Ásdísi Rán
Jón ÁRsæll
lætur
bartana
duga
Ég er ekki þessi Elvis-eftirherma sem fer og lætur breyta á sér andlitinu til að líkjast goðinu, ég er bara eðlilegur og ánægður með að vera með barta eins og hann,“ segir Jósef Ólason, Elvis-aðdáandi og eftirherma.
Jósef er sennilega einn heitasti Elvis-aðdáandi sem fyrirfinnst á hér á landi en
hann er stofnandi aðdáendaklúbbs Elvis á Íslandi sem á tíu ára afmæli um
þessar mundir. Jósef undirbýr því af fullum krafti afmælishátíð félagsins sem
haldin verður í Reiðhöllinni í Víðidal þann 18. september.
Á Facbook-síðu félagsins kemur fram að markmið þess sé að halda minn-
ingu Elvis Presley á lofti, syngja lög eftir kónginn og halda skemmtanir. Jósef
mun sjálfur koma fram á hátíðinni ásamt öðrum Elvis-aðdáendum og lofar
hann góðri skemmtun, en um hundrað manns hafa staðfest komu sína á Fés-
bókarsíðu félagsins.
Jósef segist hafa verið einlægur Elvis-aðdáandi frá átta ára aldri en hann
skartar myndarlegum Elvis-börtum og á tvo sérsaumaða Elvis-galla. „Kon-
an mín og tengdamamma hafa stutt mig alveg heilshugar í áhugamáli mínu
og gáfu mér þessa galla að gjöf. Þeir voru saumaðir af áttræðri konu að nafni
Rakel og eru mjög vel gerðir.“ Að sögn Jósefs er kona hans líka mikill Elvis-
aðdáandi, en tíu ára dóttir þeirra hjóna heitir Lísa María í höfuðið á dóttur
kóngsins.
Jósef er í engum vafa um að Elvis sé á lífi og hefur sínar eigin kenningar
um það. „Elvis er á lífi og hann býr á búgarði nálægt Graceland.“ Jósef segir að
þar sé hann umlukinn lífvörðum sem verndi hann fyrir ágangi blaðamanna
og aðdáenda og hiki ekki við að skjóta á fólk sé þess þörf. Hann segir að allt
í kringum dauða Elvis sé mjög óljóst og nefnir sem dæmi að engar lækna-
skýrslur séu til varðandi andlát hans. Einnig segir hann að í kistu Elvis liggi
eftirmynd af honum úr postulíni. Draumur Jósefs er að heimsækja Graceland
einn daginn og hann bætir við: „Það mun ég gera áður en ég fer yfir móðuna
miklu.“ hanna@dv.is
afmælishátíð Elvis-fÉlagsins:
Jósef Ólason er stofnandi aðdáenda-
klúbbs elvis presley á Íslandi. klúbb-
urinn heldur upp á tíu ára afmæli í
reiðhöllinni í Víðidal um næstu helgi.
Dóttir Jósefs heitir í höfuðið á dóttur
kóngsins en Jósef er handviss um að
elvis sé enn á lífi.
Jósef Ólason Markmið klúbbsins
er að halda minningu Elvis Presley
á lofti. MyndiR SigtRygguR ARi
Flottur galli Áttræð kona að nafni Rakel saumaði hann.