Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 20
20 úttekt 1. október 2010 föstudagur Í frétt DV á miðvikudaginn kom fram að hjá ríkissaksóknara eru mun fleiri nauðgunarmál felld niður en ákært er í. Árið 2009 var hlutfall niður- felldra mála 66%, árið 2008 var hlut- fallið 69%, árið 2007 var það 83% og 73% árið 2006. Áður en ríkissak- sóknari tekur ákvörðun um að fella málið niður fara aldrei færri en tveir saksóknarar yfir málið og samþykkja niðurfellinguna. Þar sem hlutfall niðurfelldra mála er svo hátt fékk blaðamaður leyfi fyrir því að skoða lögregluskýrslur í málum sem hafa verið felld niður hjá embætti Ríkis- saksóknara. Ríkissaksóknari fékk upplýsing- ar um 42 nauðgunarmál eftir rann- sókn lögreglu víðs vegar um landið en hann tekur svo ákvörðun um það hvort ákæra sé gefin út eða málið lát- ið niður falla. Af þessum 42 málum voru 28 nauðgunarmál felld niður hjá ríkissaksónara en ákært í 15. Tölurnar eru svipaðar fyrir árið 2008. Þá fékk ríkissaksóknari upp- lýsingar um 46 nauðgunarmál. Eftir skoðun felldi ríkissaksóknari 32 mál niður en gaf út ákæru í 14 nauðgun- armálum. Árið 2007 fékk ríkissaksóknari 71 nauðgunarmál til umfjöllunar. Hann felldi 59 mál niður en gaf út ákæru í 19 málum. Árið 2006 barst ríkissak- sóknara upplýsingar um 69 mál og felldi 51 mál niður en gaf út ákæru í 18. Árið 2005 fékk ríkissaksóknari 52 nauðgunarmál á borð til sín. Felldi hann 33 mál niður en gaf út ákæru í 19. Hélt áfram eftir að Hún bað Hann um að Hætta Árið 2010 frásögn hennar: Stelpa og strák- ur fóru saman heim til hans. Þar ætl- uðu þau að hafa samræði. Hann var svolítið harðhentur þegar þau voru að kela en hún lét það ekki trufla sig. Hún vildi að hann notaði smokk en hann hélt reisn sinni ekki nægilega vel til að smokkurinn héldist á. Það varð því ekkert úr samförunum en þau héldu ástarleik sínum áfram. Allt í einu tók hann sig til, hélt henni niðri og fór inn í hana. Hún bað hann um að hætta en hann hélt áfram í smá- stund áður en hann varð við þeirri bón. Í kjölfar- ið kærði hún hann fyrir nauðgun. Við rannsókn málsins sagði hún að hún hefði verið til í samfarir ef hann hefði ekki haldið sér niðri og ef hann hefði notað smokk, sem hann gerði ekki. Hún sagði líka að hún hefði kannski getað fyrirgef- ið honum ef hann hefði iðrast gjörða sinna, sem hann gerði ekki. Atvikið varð til þess að henni leið bölvanlega og hafði hún meðal annars íhugað sjálfsvíg. Hún gat ekki sætt sig við þetta. frásögn hans: Hann sagði aftur á móti að hann hefði ekki ætlað að særa hana eða meiða. Þau hefði ver- ið í ástarleik og hann hefði sett lim sinn inn í hana til þess að ná upp fullri reisn. niðurstaða: Önnur sönnun- argögn voru ekki til í málinu sem byggðist á orði gegn orði og var fellt niður hjá ríkissaksóknara þar sem líkur til sakfellingar voru nánast eng- ar. Játaði athæfið en ekki nauðgun Valtýr segir að vandinn við þetta mál hafi verið að ásetn- ingur hafi ekki verið til stað- ar. „Hann verður að vita að hann sé að beita hana nauðung. Hann verð- ur að hafa ásetning um nauðgun. Þau eru þarna í ástar- leik. Ég gæti líkt þessu við hnefaleik tveggja manna. Allt í einu fer annar maðurinn að slá fast og hinn biður hann um að hætta. Hann gefur eitt högg í viðbót en er svo kærður fyrir líkamsárás. Þetta er erfitt mál. Það er á mörkunum að hann hætti nógu snemma og sá saksóknari sem hafði málið til meðferðar varð að meta það hvort það væri möguleiki á því að dómari myndi sakfella í málinu. Hann kannaðist við að hafa ekki hætt samförum um leið og hún ósk- aði þess en leit ekki á að hann væri að gera henni neitt illt. Enda var ást- arleikurinn sem fór fram með sam- þykki beggja aðila, og það er óum- deilt, í gangi á þessum tíma. Með hliðsjón af því sem á undan var geng- ið í þeirra samskiptum og aðstæðum öllum var ekki unnt að byggja á því að sú háttsemi sem hann játar, að hafa sett lim sinn í stutta stund inn í leggöng hennar hafi falið í sér refsi- vert athæfi, þar sem hann taldi að hún væri samþykk því sem þau voru að gera og hafði því ekki ásetning um að beita ofbeldi eða ólögmætri nauðung samkvæmt skilgreiningu laganna.“ „Það þyrfti þá að byggja ansi stór fangelsi“ „Þýðingarmesta reglan í allri okkar vinnu er að okkur ber, í samvinnu við lögreglu, að sjá til þess að þeir sem fremja afbrot fái viðurlög. Okkur ber að gera það samkvæmt lög- um. En þar segir líka að ákærandi skuli vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að atriðum sem horfa til sýknu og sektar. Þessi grundvallarregla í réttarríkinu skil- ur okkur frá lög- regluríki. Þarna játaði hann verknað- inn, en játaði ekki að hafa ætlað að nauðga manneskj- unni. Það er heljar- innar munur þar á. Ég er hræddur um að það þyrfti þá að byggja ansi stór fangelsi ef menn ætluðu sér að telja öll svona atvik sem nauðgan- ir og dæma alla. Það væri ekki bara alvarlegt heldur skelfilegt að senda menn á Litla Hraun án þess að þeir viti nokkurn tímann af hverju, hvað þeir gerðu. Þú getur rétt ímyndað þér að eftir svona djamm væri lífi þeirra lokið. Ég þarf ekki að setja mig í spor þessara manna til þess að skilja það. Menn geta bara hugsað það sjálfir, hver fyrir sig. Maður vil ekki búa í þannig ríki. Við höfum verið upptekin af því á liðnum árum að mæla lífsgæði þjóð- arinnar með vísan til þjóðartekna. Til eru þó aðrir mælikvarðar. Það að búa í réttarríki er að magra mati meðal eftirsóknarverðustu lífsgæða hverrar þjóðar, í það minnsta í hug- um þeirra sem ekki búa í slíku ríki. Því ef við glötum því líka er að mínu mati endanlega ekkert eftir.“ Kærði eiginmanninn fyrir Kynferðisbrot Árið 2009 frásögn hennar: Kona kærði eig- inmann sinn fyrir ítrekuð kynferð- isbrot níu mánuðum eftir að þau gengu í hjónaband. Eftir brúðkaup- ið breyttist fas hann og hann varð ógnandi og kom ítrekað fram vilja sínum við hana. Hún var óttaslegin, áhyggjufull, henni blæddi og hún fann til. Framan af sagði hún engum frá þessu og það varð enginn vitni af árásunum. Hún taldi svo í sig kjark og sagði mágkonu sinni frá þessu sem og samstarfskonu. Hún kærði manninn fyrir nauðgun. frásögn hans: Maðurinn neitaði allri sök. Önnur gögn: Samstarfskona hennar staðfesti frásögn hennar en systir hins kærða gerði það ekki. Hún sagðist ekki hafa orðið vör við ofbeldið. Lögreglan hætti rannsókn málsins. Sú ákvörðun var kærð til ríkissaksóknara sem óskaði eftir frekari rannsókn á málinu. Þá kom fram að konan hafi verið í langtíma lyfja- og sálfræðimeðferð hjá Land- spítalanum sem rekja mætti til kyn- ferðisofbeldis. Annarra sönnunar- gagna var ekki hægt að afla. niðurstaða: Málið var fellt nið- ur hjá ríkissaksóknara þar sem kon- an sagði fyrst frá ofbeldinu skömmu áður en hún lagði fram kæru. Ann- að vitnið, systir hins kærða, staðfesti ekki frásögn hennar. Þó að andleg vanlíðan hennar væri ekki dregin í efa voru engin sönnunargögn til staðar og ekkert vitni varð að atburð- unum. Því var málið byggt á orði gegn orði og ekki líklegt til sakfellis. Óásættanleg- ur mælikvarði Valtýr segir að konan hafi ver- ið af erlendu bergi brot- in og hún hafi aldrei mótmælt samför- unum. „Það vantaði eitthvað í þetta mál. Það var alveg ljóst að hún mót- mælti aldrei eða hafði ekki þorað því. Hann var nú eitthvað ofbeldis- hneigður.“ Fórnarlömb kynferðisofbeld- is hafa oft lýst því að þau frjósi þeg- ar atburðurinn hefst. „Það þarf ekki að mótmæla nauðgun en þú þarft að gefa það í skyn með einhverjum hætti svo maðurinn viti að hann sé að brjóta gegn vilja þínum. Ef þú frýst verður gerandinn samt að vita að þú stirðnir upp vegna þess að þú vilt þetta ekki. Einhvern vegin verður hann að vita að hann sé að brjóta á annarri manneskju. Ég hef séð nokkur svona mál. Það er ekki óalgengt að fólk hafi verið saman. Þau byrja að kyssast og láta vel að hvort öðru. Síðan allt í einu frís konan en segir aldrei neitt. Á hann bara að ganga út frá því að konan sé þá andsnúin þessu? Hvernig á hann að vita það? Er mælikvarðinn endi- lega sá að hún sé ekki virk í rúminu með honum, taki ekki þátt? Það held ég að sé nú bara mismunandi Á móti kemur að það er auðvelt að segja: „Af hverju gerðir þú ekk- ert?“ „Af hverju sagðir þú ekkert?“ Það er ekki óalgengt að það sé með réttu að hún hafi frosið. Sérstaklega þegar um er að ræða ungar stelpur sem átta sig ekkert á því hvað er að gerast og eru allt í einu komnar í að- stæður sem þær ætluðu sér aldrei að lenda í. En við komum alltaf að því sama. Gerandinn verður að vita að hann DV fékk aðgang að lögregluskýrslum í nauðgunarmálum sem hafa verið felld niður hjá embætti Ríkissaksóknara og fór yfir niðurstöðurnar með Valtý sigurðssyni ríkissak- sóknara. Þar kemur meðal annars fram að ásetningur verði að vera til staðar til þess að ákæra sé gefin út. Áfengisdrykkja hefur áhrif á trúverðugleika sem og tengsl vitna. Sífellt fleiri vernda vini sína með lygum og ríkissaksóknari verður í æ ríkari mæli að reiða sig á tæknivinnu lögreglu. Ekki er hægt að ná sakfellingu í málum sem byggð eru á orði gegn orði. ingibJÖrg dÖgg KJartansdÓttir blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is „Hann verður að Hafa ásetning“ Að sjálfsögðu skiptir það máli hversu drukknar þær eru. Þannig að við rann- sókn málsins er reynt að spyrja mjög ítarlega um áfengisneyslu. Valtýr sigurðsson „Þarna játaði hann verknaðinn, en játaði ekki að hafa ætlað að nauðga manneskjunni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.