Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 62
Fyrirsætan og athafnakonan Ás-
dís Rán Gunnarsdóttir er búin
að fá sér stórt húðflúr á annan
handlegginn. Hún tilkynnti það á
Facebook-síðu sinni að hún hefði
ætlað í gæludýrabúð en endað
á húðflúrstofu við hliðina. Segir
hún að húðflúrið nái frá lófa og
upp handlegginn en hún ætlar
að frumsýna það seinna þegar
hún hefur meiri tíma. Ásdís er
nú í óða önn að pakka niður því
hún er að kveðja Búlgaríu með
söknuði. Næsti áfangastaður er
München þar sem eiginmaður
hennar, Garðar Gunnlaugsson,
leikur með neðrideildar liðinu
Unterhaching.
Fjölmiðlakonan Tobba Marin-
ós hefur verið ráðin kynning-
arfulltrúi Skjás Eins samkvæmt
Fréttablaðinu. Tobba sagði upp á
Séð og heyrt um leið og ritstjór-
inn, Eiríkur Jónsson, var rekinn
en skipulagsbreytingar hafa ver-
ið hjá Birtíngi útgáfufélagi sem
gefur meðal annars út Séð og
heyrt, Vikuna og Nýtt Líf. Fram
kemur í Fréttablaðinu að Tobba
hafði samband við Sigríði Mar-
gréti Oddsdóttur, sjónvarpsstjóra
Skjás Eins, og bauð fram krafta
sína sem Sigríður vildi hiklaust
nýta.
Tobba fer því úr slúðurgeir-
anum yfir í kynningarmálin þar
sem hún mun meðal annars sjá
um kynningarmál á sínum eig-
in þætti. Fyrr í sumar tryggði
Skjár Einn sér sjónvarpsréttinn
á Makalausri, metsölubók Tobbu
um ástir og ævintýri ungrar
stúlku. Þarf Tobba því að tryggja
að sinn eigin þáttur verði vel aug-
lýstur auk þess sem ný sjónvarps-
stöð, Skjár Golf, er nýfarin í loft-
ið. Mun Tobba því hafa nóg að
gera.
Skjár Einn gaf Tobbu sitt fyrsta
tækifæri í sjónvarpi en hún var
kynnir Djúpu laugarinnar ásamt
Ragnhildi Magnúsdóttur þegar
hún fór aftur af stað fyrr á árinu.
Endaði það samstarf ekki vel eins
og kom fram í DV en ást Tobbu og
Skjás Eins virðist mikil.
tomas@dv.is
ÁSDÍS KOMIN
MEÐ HÚÐFLÚR
TOBBA MARINÓS RÁÐIN FJÖLMIÐLAFULLTRÚI SKJÁS EINS:
Rapparinn Erpur Eyvindarson
eða Blaz Roca er í skemmtilegu
viðtali við tímaritið Monitor þar
sem hann ræðir meðal annars
nýja tónlistarstefnu sem hann
er að taka og Móra-málið. Að-
spurður hvort hann sé í sam-
bandi núna neitar hann því, seg-
ist vilja vera frjáls til að gera það
sem hann vill. „Ég nenni ekki að
fá nýja mömmu inn á heimilið,“
segir hann. Þegar hann er beð-
inn um að bera saman Stjörnu-
Erp við Sambands- og-kúr-Erp
svarar hann: „Ég fer ekki oft í
samband, en ég tek það mjög
alvarlega þegar ég geri það. En
ég er náttúrulega ekki að kúra
mikið.“
KÚRIR
EKKI MIKIÐ
62 FÓLKIÐ 1. október 2010 FÖSTUDAGUR
RAGNHILDUR STEINUNN:
KYNNIR SINN EIGIN ÞÁTT
Það var svo skrýtið að þrátt fyrir að hafa fengið sterkt hugboð um stúlku komu bara strákanöfn,“ segir sjón-
varpskonan Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir í forsíðuviðtali nýjasta
tölublaðs Nýs Lífs þegar hún er spurð
hvernig nafnið á dótturina kom til en
frumburður hennar og sambýlis-
manns hennar, Hauks Inga Guðna-
sonar, heitir því fallega nafni Eldey
Erla.
Með nafninu rauf Ragnhildur
Steinunn fjölskylduhefð þar sem
móðir hennar hét líka Ragnhild-
ur Steinunn og einnig amma henn-
ar og langamma. „Það kom aldrei til
greina að skíra Ragnhildur Steinunn.
Það varð fljótt ljóst að hún átti að
heita Eldey Erla,“ segir hin nýbakaða
móðir í viðtalinu og lýsir hvernig hún
og Haukur hafi brugðið á það ráð
að skrifa niður nokkur stúlkunöfn
og þeim báðum til undrunar höfðu
bæði skrifað niður Eldey. Síðar hafi
hún fengið símtal frá systur Hauks
Inga sem hafi sagst handviss um að
stúlka væri á leiðinni. „Þegar hún var
búin að lýsa stúlkunni okkar í smáat-
riðum sagði hún: „Svo dreymdi mig
að ég hefði búið til nafn á hana; mig
dreymdi að hún ætti að heita Eld-
ey.“ Ragnhildur segist í viðtalinu ekki
hafa komið upp orði og fengið hroll
um allan líkamann. „Ég rétti Hauki
Inga símann og þurfti bara að setjast
niður,“ segir hún í viðtalinu en þar
lýsir Ragnhildur því enn fremur yfir
að hún vilji helst eignast fleiri börn
sem fyrst. „Í dag get ég ekki hugsað
um annað en að eignast fleiri börn
sem fyrst, þetta er algjört kraftaverk.
Ég horfi á hana á hverjum degi og
trúi því ekki að hún sé bara búin til
af okkur Hauki Inga. Þessi fullkomna
litla manneskja.“
Í viðtalinu spyr ritstjórinn, Kol-
brún Pálína Helgadóttir, Ragnhildi
um ferilinn og hver sé galdurinn að
baki velgengninni. „Ég hef alltaf ver-
ið mikil framakona og unnið mjög
mikið, kannski verið pínulítið sjálfs-
elsk, ef svo má segja. Látið mig og
mitt líf ganga svolítið fyrir. Í sumar-
fríunum mínum hef ég verið að leika
í bíómyndum eða tekið að mér önn-
ur verkefni og svo framvegis. Ég hef
alltaf verið að hugsa um að leggja
grunn að góðri framtíð. Hins veg-
ar verð ég að viðurkenna að eftir að
Eldey Erla fæddist áttaði ég mig á því
að lífið er núna og ég hef ákveðið að
njóta hvers augnabliks en ekki vera
að horfa alltaf til framtíðar.“
Sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir braut gamla fjölskylduhefð þegar hún
valdi nafnið á frumburðinn. Ragnhildur Steinunn og sambýlismaður hennar, Haukur Ingi
Guðnason, létu skíra dótturina Eldey Erlu en nafnið Eldey hafði birst þeim báðum. Ragn-
hildur Steinunn lýsir móðurhlutverkinu í einlægu viðtali í nýjasta tölublaði Nýs Lífs.
LANGAR Í FLEIRI BÖRN
SEM FYRST
Falleg fjölskylda Ragnhildur Steinunn og
Haukur Ingi Guðnason eiga dótturina Eldey Erlu.
Nýbökuð mamma Ragnhildur Steinunn er í
einlægu og ítarlegu viðtali í Nýju Lífi.
MYND NÝTT LÍF