Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 25
ástæðu dugar oft og tíðum ekki að
vinna á byrgjunum með vélum held-
ur þarf að kveikja í byrgjunum áður
til að bræða járnið sem bindur steyp-
una í þeim saman og herðir byrgin. Þá
tekur fólk sig til að fyllir byrgin af bíl-
dekkjum og kveikir svo í. Með þessu
móti myndast mikill hiti af eldinum
sem auðveldar mönnum að vinna á
járnbentri steypunni.
En þetta er þó afar sjaldgæf lausn
og standa langflest byrgin enn sem
minnisvarði um stjórnartíð Hoxha
og verða niðurníddari með hverju
árinu. Nýjasta hugmyndin sem kom-
in er upp snýst um það að breyta
byrgjunum í hótelherbergi eftir því
sem Caushi sagði okkur. Erlendir
ferðamenn gætu þá sofið í þeim og
drukkið í sig sögu Albaníu á sama
tíma. Byrgin hefðu þá öðlast til-
gang sem væri algerlega andstæð-
ur upprunalegum tilgangi þeirra: Í
stað þess að verjast erlendum aðil-
um úr þeim í kommúnistaríki Hox-
has tækju þau á móti túristum opn-
um örmum í hinni nýju Albaníu sem
er enn að jafna sig eftir harðræðisár
kommúnismans.
BYRGIN HANS HOXHA
Maðurinn á bak við byrgin Enver
Hoxha var æðsti leiðtogi albanska
kommúnistaflokksins sem lét byggja
skotbyrgi um allt landið til að verjast
innrásum. Þessi mynd var tekin árið
1980, fimm árum áður en Hoxha dó.
FÖSTUDAGUR 1. október 2010 ERLENT 25
Fjölskyldur námumannanna sem
sitja enn fastir í San Jose-námunni
í Chile, tæpum tveimur mánuðum
eftir að hún hrundi og lokaðist, hafa
höfðað skaðabótamál. Krefjast fjöl-
skyldurnar 27 milljóna dala í bæt-
ur, sem samsvarar rúmlega þremur
milljörðum íslenskra króna. Námu-
mennirnir eru 33 talsins en fjölskyld-
ur 27 þeirra hafa þegar höfðað mál.
Krefst hver og ein fjölskylda einnar
milljónar dala. Málsókn fyrir hönd
hinna sex er í undirbúningi.
Það var þann 5. ágúst síðastliðinn
sem náman hrundi með þeim afleið-
ingum að hún lokaðist. Unnið er að
björgun og hefur það gengið vel. Enn
er þó talið að rúmur mánuður líði þar
til námumennirnir líti dagsins ljós
og er það rúmum mánuði á undan
fyrstu áætlun.
Málsóknin fyrir hönd námu-
mannanna var höfðuð í bænum
Copiapó sem er skammt frá nám-
unni. Er fyrirtækinu sem á námuna
og chileska ríkinu stefnt. „Dómurinn
mun skera úr um það hvernig bótun-
um verður skipt,“ segir bæjarstjórinn
Brunilda Gonzalez.
Það sem fjölskyldur mannanna
eru fyrst og fremst ósáttar við er það
að árið 2008 varð banaslys í námunni.
Eftir slysið voru öryggiskröfur í nám-
unni hertar en að sögn fjölskyldna
mannanna var ekki farið eftir þeim.
Slysið í ágúst hafi verið bein afleiðing
þess.
Eftir slysið voru eignir fyrirtækis-
ins sem á námuna frystar en þær eru
metnar á tæplega 1,1 milljarð króna.
Fyrirtækið lagði fram beiðni um
gjaldþrotaskipti skömmu eftir slysið
og hefur chileska ríkið borgað fyrir
björgunaraðgerðir.
einar@dv.is
Fjölskyldur námumannanna í Chile höfða mál:
Námumenn vilja bætur
Vilja bætur Fjölskyldur námumann-
anna hafa höfðað skaðabótamál.