Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 1. október 2010 FYRR&NÚ 53
Tjörn í byrjun aldar
Timburstórhýsin sem sluppu við brunann mikla 1915, stóðu flest við
norður- og norðausturenda Tjarnarinnar, s.s. Báran, Iðnó, Iðnaðar-
mannahúsið, Miðbæjarskólinn og Fríkirkjan. Flest þessara húsa bera
enn vott um stórhug fyrri tíma og hafa verið, hvert með sínum hætti,
vettvangur félagssögu Reykjavíkur. Þessi hús þola illa návígi við
Ráðhúsið, sem er byggt á allt öðrum tíma, úr allt öðru byggingarefni
og í allt öðrum byggingarstíl. Staðsetning Ráðhússins á þessum stað
er því líklega eitt hrikalegasta skipulagsslys Miðbæjarins.
Báran
Húsið sem stúlkan og drengurinn stefna að er Tjarnargata 11, byggt
árið 1906 en var flutt suður í Skerjafjörð er hafist var handa við
byggingu Ráðhússins. Þar fyrir austan sést samkomuhúsið Báran,
upphaflega reist af sjómannafélaginu Bárunni, árið 1899, en var síðar
lengi samkomuhús KR þar sem KR-ingar stóðu fyrir leiksýningum
með formann sinn, Erlend Pétursson, í broddi fylkingar, og héldu
fræg Báruböll. Það hús var rifið árið 1945.
Skúli Thoroddsen
Ekki verður betur séð en að húsið á bak við Báruna sé í byggingu á
gömlu myndinni en þá hefur hún verið tekin árið 1908. Það hús lét
Skúli Thoroddsen reisa, ritstjóri, alþm. og mikil sjálfstæðiskempa, og
langafi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Kona Skúla var
Theodóra Thoroddsen skáldkona.
Gúttó
Austan við Alþingishúsið og framan við Dómkirkjuna sést annað
frægt samkomuhús, Gúttó. Þar voru góðtemplarar til húsa enda
heitir götuspottinn þar fyrir austan Templarasund. Í Gúttó hóf
Leikfélag Reykjavíkur starfsemi sína, þar voru haldin Gúttóböll og
þar var Gúttóslagurinn frægi 1932. Um Gúttó orti Þorsteinn Gylfason
eftirfarandi limru í limruflokknum Reykjavík fyrr og nú:
„Er sumarið kom yfir sæinn,
og sólskinið ljómaði um bæinn,“
var geysigaman
að gera það saman
í Gúttó um hábjartan daginn.
Gúttó rifið árið 1968 svo alþingismenn fengu stæði fyrir bílana sína.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
MYND MAGNÚS ÓLAFSSON/ SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
MYNDVINNSLA SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON