Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 64
n Glamúrdrottningin Vala Grand er
komin á fullt í leit sinni að nýjum
kærasta ef marka má uppfærslu á
Facebook-síðu hennar. Vala, sem
gekkst undir kynleiðréttingarað-
gerð fyrir skemmstu, segir að hún
sé að leita að hinum eina rétta.
„Mamma spurði mig hver væri til-
gangurinn með því að eiga öll þessi
kynþokkafullu undirföt ef ég ætlaði
ekki að deila þeim með neinum.
Þá sagði ég við hana að sá eini sem
fengi að sjá mig í þeim væri einhver
heppinn náungi þarna úti. Ég ætla
að halda meydómnum sko,“ segir
Vala og bætir við:
„Engar áhyggj-
ur mamma. Ég
mun finna nýjan
tengdason sem
getur borðað
góða matinn
þinn.“
Hafði Davíð eitthvað
um þetta að segja?
Leitar að tengda-
syni fyrir mömmu
Í október 2010 gefst Íslendingum
tækifæri til að styrkja starfsemi
Hjartaverndar með því að kaupa
tvöfalda hljómleikaútgáfu af
minningartónleikum um Rúnar
Júlíusson sem fram fóru í
Laugardalshöll 2. maí 2009.
Útgáfan er einstaklega vegleg og
inniheldur 30 lög á tveimur
geislaplötum, þar á meðal hið
geysivinsæla „Söngur um lífið“ í
flutningi Páls Óskars.
1.000 kr. af hverri seldri plötu
renna til Hjartaverndar.
Geislaplatan er seld á Hamborgarafabrikkunni
og á útsölustöðum N1 um allt land.
HERRA ROKK
Á HAMBORGARAFABRIKKUNNI
n Ásta Hafberg, varaformaður
Frjálslynda flokksins og ein þeirra
sem svaf fyrir utan Alþingishúsið
aðfaranótt föstudags í mótmæla-
skyni, gagnrýnir Hörð Torfason.
Hörður var duglegur við að mót-
mæla fyrstu mánuðina eftir hrunið
en síðan þá hefur hann látið lítið á
sér bera. Hann gagnrýndi mótmæl-
in við Alþingishúsið og sagðist vera
á móti því að ofbeldi sé notað í mót-
mælum.
„Í tuttugu mánuði hefur ekki sést
til hans. Ekkert. Ef
við erum að koma á
réttlæti og siðferði
ertu annað hvort
með eða ekki með.
Þú gerir það ekki
bara þegar þér hent-
ar. Það er ósköp
einfalt,“ sagði
Ásta í sam-
tali við
DV.is
Lýsir eftir
Herði torfasyni
n Kolbrún Bergþórsdóttir, blaða-
maður á Morgunblaðinu, lét verða
af því á fimmtudag að skrá sig úr
Samfylkingunni. Kolbrún skrifaði
harðorðan pistil í Morgunblaðið á
fimmtudag undir yfirskriftinni „Sek
Samfylking.“ Þar gagnrýndi hún
framgöngu nokkurra þingmanna
þegar greidd voru atkvæði um hvort
sækja ætti fyrrverandi ráðherra til
saka fyrir landsdómi. „Fyrirlitleg-
ust af öllu var þó framganga þeirra
þingmanna Samfylk-
ingar sem ákváðu að
fórna einum manni,
Geir Haarde, fyrrver-
andi samstarfsmanni,
til að halda ríkisstjórn-
arsamstarfinu gang-
andi og friða lýðinn
... Næsta skref, og
það eina rétta, hlýt-
ur að vera að segja
sig úr Samfylking-
unni,“ sagði Kol-
brún sem staðfesti
við DV á fimmtu-
dagskvöld að hún
hefði látið verða af
hótuninni.
KoLbrún sagði
sig úr samfyLKingunni
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
Fréttaskot 512 70 70
sóLarupprás
07:36
sóLsetur
18:57
„Ég var að gera stærsta bókasamn-
ing sem gerður hefur verið á Íslandi.
Gamli er einfaldlega að verða með-
höfundur af símaskránni. Bók sem
er prentuð í 150 þúsund eintökum og
fer inn á hvert heimili. Þetta er magn-
að,“ segir Egill „Gillz“ Einarsson, rit-
höfundur og líkamsræktarfrömuður.
Já tilkynnti í gær að samið hefði verið
við Gillz um að verða meðhöfundur að
sjálfri símaskránni.
Hann er í skýjunum yfir samningn-
um og segir að nú sé orðið ljóst að þeir
Arnaldur [Indriðason innsk. blm.] séu
nú komnir í sérflokk á klakanum. Eng-
ir aðrir hafi viðlíka útbreiðslu. Gillz,
sem er að eigin sögn mikill aðdáandi
símaskrárinnar, fær auk forsíðunn-
ar og baksíðunnar um 10 síður inni
í skránni. Spurður hvað verði á for-
síðunni segir hann án þess að hika:
„Þetta er kjörið tækifæri til að vera ber
að ofan og það er ekki ólíklegt að ég
hjóli í það.“ Gillz útilokar ekki að vera
með mynd af afturendanum aftan á
skránni. Það sé við hæfi, segir hann.
Gillz ætlar auk þess að vera með
góðan boðskap í símaskránni, í anda
fyrri bóka sinna. „Íslendingar eru að
verða feitasta þjóð í heimi og þetta
er kjörið tækifæri til að koma góðum
skilaboðum á framfæri,“ segir hann og
bætir við að hann reikni með að samn-
ingurinn bindi endahnútinn á inn-
göngu í rithöfundasambandið – enda
sé um að ræða stærsta bókasamning
sem gerður hafi verið. „Annars er eitt-
hvað mikið að,“ segir hann og bætir
við: „Ég vil ekki fara á listamannalaun
heldur heiðurslistamannalaun. Þetta
er það stór díll.“
baldur@dv.is
Egill „Gillz“ Einarsson verður „meðhöfundur“ símaskrárinnar:
„Í sérfLoKKi með arnaLdi“
Stefnir á heiðurslistamannalaun
Gillz er mikill aðdáandi símaskrárinnar.