Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 46
NafN og aldur?
„Breki Logason, 28 ára.“
atviNNa?
„Fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
fjöldi barNa?
„Úlfdís Vala, tveggja ára.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Átti einu sinni fiska sem hétu Reagan og Gorbatjov.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Ætli það hafi ekki bara verið Lay Low á Mercury
Lounge í New York.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Já því miður, en það var alveg óvart og án minnar
vitundar.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Ætli það sé ekki Rúna Júl-bolurinn minn, af því að
hann er flottastur.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei, en er á leiðinni. Var að fá mér hlaupaskó, það
er alla vega eitthvað.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Nei, það hef ég aldrei gert, fæ alltaf aulahroll.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Nei, er of gáfaður fyrir svoleiðis pælingar.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Sódómu með Sálinni, get ekki hlustað á það í dag,
en einu sinni var það alveg málið.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Þú ein, í flutningi Hljóma, er í miklu uppáhaldi
núna.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Að gifta mig, næsta sumar, get ekki beðið.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„Nýtt Líf kemur fyrst upp í hugann, enda allt við
myndina stórkostlegt. Samtölin, tónlistin og karakt-
erarnir alveg upp á tíu. Skiptir engu hvort það eru
Þór og Danni, Júlli húsvörður, Siggi mæjones eða
Axel bónusvíkingur.“
afrek vikuNNar?
„Eins fáránlegt og það hljómar þá var ég að sjóða
hangikjöt, vona að ég eigi eftir að afreka eitthvað
meira í vikunni, það er nú bara miðvikudagur.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, það hef ég aldrei gert. Hef ekki einu sinni spáð
í það.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Á mínar partísyrpur á gítarinn, en er gjörsamlega
laus við allt sem kalla mætti tóneyra eða tilfinningu
fyrir músík. Finnst samt gaman að spila.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Æi, ekki þessi spurning. Held það sé mikilvægast
að spyrja fleiri Íslendinga en mig, helst alla þjóðina
sem fyrst.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Manchester United, Valur og fjölskyldan.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN myNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Held að Össur sé fáránlega skemmtilegur, væri al-
veg líka til í gott eftirpartí á Bessastöðum.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Jim Morrison, af því að ég hef dýrkað hann síðan ég
var níu ára. Held við gætum náð mjög vel saman.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, að sjálfsögðu.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ætli það hafi ekki verið þegar ég breytti afmælis-
deginum hjá Andra vini mínum á Facebook. Hann
varð þrítugur tveimur mánuðum of snemma, með
tilheyrandi hamingjuóskum.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Ég er ekki sammála, en hef heyrt undanfarið að ég
sé svolítið líkur hommanum í Modern Family, Jesse
Tyler Ferguson. Það má nú kannski deila um hversu
frægur hann er.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Já, ég sofna alltaf um leið og ég byrja að lesa ein-
hverja bók. Þetta hefur aldrei klikkað.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Já, ég hef nú alltaf verið hrifinn af þeirri pælingu.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Mér líður afskaplega vel í Mývatnssveit, en það er
líka mjög gaman á Old Trafford. Held ég verði hins-
vegar að nefna baðkarið, mér líður eiginlega best í
baði.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Slekk á sjónvarpinu og kyssi stelpurnar mínar.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Gunnar Nelson.“
líður best í baði
46 hin hliðin 1. október 2010 föstudagur
Breki Logason, fréttamaður á Stöð 2, er of gáfaður fyrir
vangaveltur um framhaldslíf. Breki hefur ekki einu sinni
spáð í að láta spá fyrir sér og segir Gunnar Nelson vera leið
Íslands út úr kreppunni. Hann getur ekki beðið eftir því að
kvænast næsta sumar.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Vesturvör 30c, Sími 575-1500
Ferð á Kársnesið borgar sig!
www.kvikkfix.issko
ðaðu!
Störtum deginum og
bílnum hjá KvikkFix
Verðdæmi Golf
´98 Kr. 12.931.-
Kominn í bílinn að sjálfsögðu.
Kaffið, vöflurnar og hug-
gulegheitin innifalið.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.