Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 37
föstudagur 1. október 2010 úttekt 37 Aldur: 29 ára. Búseta: Reykjavík. Iðja: Leiðsögumaður. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Það er auðvitað stanslaus kvíði í kringum þetta. Maður er í svona huglægu fangelsi með vofu hangandi yfir sér frá morgni til kvölds og á nóttunni líka. Þeir sem reyndu í fyrstu að hughreysta mann með því að segja: „Þið verðið ekkert dæmd“ eru hættir því og maður er hálfpartinn farinn að vilja sjá einhvern dóm falla. Bara til að komast úr þessari óvissu. Verðum við dæmd samkvæmt 100. grein hegningarlaga? Þar sem lágmarksrefsing er eitt ár í fangelsi – og allt að lífstíð. Eða eru 10 mánuðir fyrir dómi næg refsing? Eða verða þeir aðrir 10, 20, eða 30? Til samanburðar má geta þess að Geir Haarde er að væla yfir ákæru þar sem hámarksrefsing er tveggja ára fangelsi, annars bara embættismissir eða sekt.“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Þetta eru náttúrulega bara pólitískar ofsóknir. Einhvers konar skilaboð til venjulegs fólks í landinu um að vera stillt og prútt á meðan stjórnvöld reyna að vinna úr hinum flóknu þjóðmálum.“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöllun um dómsmálið gegn ykkur? „Fjölmiðlar sem fjórða vald ríkisins ættu að fara sérstaklega varlega í að dæma okkur fyrirfram. Kannski vinna vinnuna sína og kynna sér málið áður en fullyrt er um sekt okkar. Það er mjög pirrandi, svo vægt sé að orði komist, að sjá sjálfan sig birtast hvað eftir annað sem sekan mann í fjölmiðlum. Sérstaklega þegar maður er ekki Geir H. Haarde og hefur ekki þau fjölmiðlatengsl sem þarf til að verja sig í svona fjölmiðlastríði. Það er merkilegt að um leið og nöfn valdamanna komast í umræðuna í tengslum við ákærur á hendur þeim er strax byrjað að tönnlast á orði sem valdastéttin beitir annars sjaldan í tengslum við dómsmál –„mannréttindi“.“ Ertu sekur? „Ég er ekki sekur um að hafa gert árás á Alþingi eða stofnað sjálfræði þess í hættu. Það eru hins vegar aðrir, eins og vitað er, sem keyptu Alþingi upp á sínum tíma. Er það ekki að stofna sjálfræði þess í hættu?“ Fyrir hvern er réttarríkið? Réttarríkið hefur verið og verður hannað af hugmyndasmiðum elítunnar. Það er fyrsta og síðasta vopn í hendi valdsins til þess að sýna þrælunum hvað gerist ef þeir fara út fyrir rammann.“ Þór SIgurðSSon: Hámarks refsing Geirs tvö ár, okkar er lífstíð rAgnHEIður EStHEr BrIEm: sorglegt að geta ekki notið meðgöngunnar Aldur: 36 ára Búseta: Reykjavík. Iðja: Starfar á hjúkrunarheimili, menntuð í kvikmyndagerð og grafískri hönnun. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Auðvitað hefur þetta mikil áhrif á líf mitt og minna nánustu. Það er öll tilveran lituð af þessum skrípaleik. Ég á 14 ára dóttur, sem hefur náttúrulega miklar áhyggjur af því að þurfa að horfa á eftir mömmu sinni í fangelsi, heyrir og sér umfjallanir og umræður á misjöfnum nótum um okkar mál. Hún er sem betur fer með sterk bein og skoðanir svo hún stendur sterk við hlið mér í þessu öllu. Svo á ég von á mínu öðru barni í nóvember og það er sorglegt að geta ekki notið þess yndislega tíma sem meðgangan er, ekki síst dóttur minnar vegna sem er að eignast sitt fyrsta systkin. Álagið er gífurlegt, endalausar áhyggjur og þvílíkur tími og orka sem fer í þetta fáránlega mál, sem virðist einungis ganga út á það að sanna mátt stjórnvalda og yfirvalds og hræða almenning frá því að opna munninn og andmæla, sama hvaða óréttlæti og hörmungar eru látnar yfir hann ganga. Hræða fólk frá því að standa á rétti sínum. Svo kallast þetta lýðræðisríki!“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Þetta dómsmál er náttúrulega bara algjör skrípaleikur frá A til Ö, eins og flest annað í þessu samfélagi í augnablikinu. Við erum greinilega handpikkuð út níu, af öllum þeim fjölda fólks sem mótmælti á þessum tíma með réttu. Við níu höfum fyrirfram verið stimpluð sem glæpamenn af verstu gerð og stórhættulegir hryðjuverka- menn sem sést best á lögregluhirðinni sem er kölluð að héraðsdómi þegar mál okkar er tekið fyrir. Við fáum allt annað en réttláta málsmeðferð, þar sem það er alveg deginum ljósara að klíkuskapurinn nær þar inn fyrir dyr, eins og annars staðar, því miður.“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöllun um dómsmálið gegn ykkur? Það er grátbroslegt að heyra gjörspillta alþingismenn væla um pólitískar ofsóknir á hendur sér, sem komu landi og þjóð á hausinn og hafa valdið því að þúsundir manna hafa og munu missa heimili sín, lífsviðurværi og reisn. Á meðan við, þessi níu sem voguðum okkur að opna munninn, erum dregin fyrir dómstóla og kærð fyrir að hafa stigið fæti okkar inn í alþingishúsið þennan umrædda dag. Og af getur hlotist 16 ára fangelsisvist.“ Ert þú sek? „Ég er sek um að hafa talið mig búa í lýðræðisríki og hafa ætlað að nýta mér rétt minn til að mótmæla, krefjast réttlætis og segja mína skoð- un. Ég er sek um að hafa fundið til samstöðu og fyllst réttlætiskennd, mér og öðrum til handa. Ég er sek um að trúa ennþá á manngæsku og réttlæti og að ætla mér að þagna ekki fyrr en því er náð. En ég er saklaus af því að hafa með einhverju móti ógnað öryggi eins né neins, nema þá orð mín séu svo hættuleg og banvæn að almenningi og stjórnvöldum hafi staðið ógn af.“ Fyrir hvern er réttarríkið? „Dómskerfið á Íslandi er því miður litað af pólitík og klíkuskap og langt í land með að það breytist. Réttu fólki hefur verið plantað á rétta staði til að tryggja réttum aðilum rétta niðurstöðu sinna mála.“ AndrI LEó LEmArquIS: „Kúgun viðhaldið með hegningu lægri stétta“ Aldur: 21 árs. Búseta: Reykjavík. Iðja: Nemi í læknisfræði við HÍ. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Það væri áhyggjuefni ef það hefði engin áhrif á mig og mitt umhverfi. Tilfinningalíf og stéttarstaða þeirra einstaklinga sem brotið er á ætti þó ekki að vera leiðandi þáttur í umræðunni. Ekki fremur en það eigi að gefa Kim Jong-Il, Pinochet, Geir H. Haarde, Þorgerði Katrínu eða Ingibjörgu Sólrúnu aukinn rétt til valdníðslu vegna erfiðrar æsku eða heilsufarstöðu.“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Kerfið er hefnigjarnt. Þeim mun óréttlát- ara sem það er þeim mun fastar slær það þegar fólk neitar að láta kúgast.“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöllun um dómsmálið gegn ykkur? „Það er ekkert einsdæmi á Íslandi að kerfið verndi sjálft sig. Dóm- arinn Baltasar Garzon er nú ákærður á Spáni fyrir að vilja rjúfa þagnarmúrinn um mannréttindabrot fasismaáranna á Spáni. Venjulegir dómstólar eru aldrei ætlaðir valdhöfum. Í sérstökum tilfellum eru settar upp sérstakar táknrænar leiksýningar fyrir þá. Hvort sem um er að ræða íslenskan landsdóm, Clearstream- málið í Frakklandi eða alþjóðadómstóll- inn í Haag.“ Ert þú sekur? „Já. Um að standa ekki oftar upp gegn ráðandi öflum kúgunar og ójöfnuðar.“ Fyrir hvern er réttarríkið? „Valdastétt- ina, til að viðhalda valdastöðu. Kúgun er viðhaldið með því að hegna lægri stéttum. Einkum þegar þær neita að hlýða settum fyrirmælum.“ Aldur: 39 ára. Búseta: Reykjavík. Iðja: Listamaður. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Þetta mál hefur tekið of stóran toll með því að hanga yfir manni eins og einhver fallöxi fáránleikans. Þetta hefur einnig haft áhrif á börnin mín, sem virðast þó taka þessu með jafnaðargeði. Börn eru viðkvæmar sálir og brothættar og því hefur þetta haft dýpri áhrif á fleiri sálir en okkur níu. Flestir styðja mann og vilja fá að vita sannleikann í málinu.“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? Afstaða mín til málsins sjálfs er bundin við reiði og algjöra vantrú á kerfinu. Upplognar sakir settar fram eins og í einhverju hryðjuverkamáli og síðan misnotkun lögregluvalds í dómsal er ljótur skítablettur á sídrullandi Alþingi. Menn ættu að líta í eigin barm en gera það ekki, og kannski ekkert skrýtið, enda hafa forréttindahópar aldrei gefið forréttindi sín frá sér. Það þarf að taka þau frá þeim.“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöllun um dómsmálið gegn ykkur? „Umræðan á hinu alltof lága Alþingi um mannréttindi ráðherra er náttúrulega bara skrípaleikur, og í samanburði við málið okkar hreinn viðbjóður. Þegar þeir segja að þetta sé það erfiðasta sem þau hafa þurft að gera á sínum ferli þá segir það margt um innrætið. Væri ekki eðlilegra fyrir ráðamenn að finnast erfiðara að sjá fólk fara á götuna eða fremja sjálfsmorð? Nei, það er erfiðara að láta samverka- menn bera ábyrgð.“ Ert þú sekur? „Ég labbaði inn um opn- ar dyr í Alþingi okkar og staðnæmdist á stigapalli. Þar skattyrtist ég við löggur og þingverði og reif kjaft og viðurkenni ég að vera sekur um það en ekkert annað. En það er búið að útmála okkur níu sem terrorista og ofbeldisseggi, sér- staklega í Fréttablaðinu og Mogganum, enda heiglar þar við störf.“ Fyrir hvern er réttarríkið? „Hvaða réttarríki?“ Jón BEnEdIkt HóLm: Hefur áhrif á börnin Leitað sökudólga Níumenningarnir svokölluðu hafa verið ákærðir fyrir árás á Alþingi. mynd SIgtryggur ArI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.