Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR 1. október 2010 FÖSTUDAGUR
Steingrímur Þór Ólafsson, þrjátíu
og sex ára Íslendingur sem hand-
tekinn var í Venesúela á mánu-
daginn, starfaði sem einkaþjálfari
í Kólumbíu á tíunda áratugnum.
Þetta staðfestir vinur Steingríms
í samtali við DV. Hann segir að
fjölmiðlaumfjöllun um handtöku
Steingríms hafi komið sér verulega
á óvart, engum hefði dottið í hug
að hann væri viðriðinn slík mál.
„Mér finnst þetta bara alveg skelfi-
legt, þetta kemur mér rosalega
á óvart,“ segir vinur Steingríms í
samtali við DV.
Steingrímur var handtekinn
á Santiagó Marínó-flugvellin-
um á eyjunni Margarita í Karíba-
hafi síðastliðinn mánudag. Hand-
tökuskipun var gefin út á hendur
Steingrími og var hann eftirlýstur
af Interpol. Lögreglan í Venesúela
staðfesti í samtali við dagblaðið La
Calle að maðurinn verði framseld-
ur til Íslands innan tíðar.
11 kíló af hassi
„Hann var eftirlýstur að okkar ósk,
þar sem vitað var að hann var í út-
löndum,“ segir Jón H. B. Snorrason
aðstoðarlögreglustjóri í samtali
við DV. Hann segir að lýst hafi ver-
ið eftir Steingrími til þess að hefja
undirbúning að því að fá hann
framseldan hvaðan sem til hann
næðist. „Það er rökstuddur grunur
um að hann tengist þessum refsi-
verðu brotum sem þarna er verið
að rannsaka – stórfelldum svikum
á greiðslum í formi endurgreiðslu
virðisaukaskatts hjá tollstjóra.“
Það eru fyrirtækin Ólafsson
hf. og H94 sem eru til rannsóknar
vegna rúmlega 270 milljóna króna
sem ekki voru greiddar í virðis-
aukaskatt. Þá bendir Jón á að í
tengslum við skattamálið hafi lög-
reglan lagt hald á 11 kíló af hassi,
og að lýst hafi verið eftir Steingrími
í kjölfar þess, vegna mögulegra
tengsla hans við það mál.
Fráleitt segir lögmaður
Steingrímur Þór Ólafsson var á leið
til Frankfurt í Þýskalandi þar sem
hann ætlaði að gefa sig fram við
lögregluna þegar hann var hand-
tekinn í Venesúela. Þetta segir
hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson, lögmaður
Steingríms. Hann tekur fram að
lögreglan á Íslandi hafi verið látin
vita af þessum fyrirætlunum Stein-
gríms. Handtökuskipunin virðist
því hafa seinkað komu Steingríms
til landsins. Að sögn Vilhjálms
heldur Steingrímur fram sakleysi
sínu. Vilhjálmur segir Steingrím
jafnframt vilja hjálpa til við rann-
sókn málsins.
Hann segir Steingrím ekki tengj-
ast fíkniefnamálum og bendir á að
hann eigi sér ekki sakaferil. Þá seg-
ir hann fráleitt að tengja Steingrím
við fíkniefni þó slík efni hafi fundist
á heimili annars manns sem teng-
ist rannsókn virðisaukaskattsmáls-
ins. Vinur Steingríms, sem ekki vill
láta nafn síns getið, segir Stein-
grím hafa ferðast nokkuð um Suð-
ur -Ameríku og að hann hafi meðal
annars verið búsettur í Kólumbíu í
tvö ár á tíunda áratugnum. Þá segir
hann málið hafa komið sér á óvart.
Níu handteknir
Í frétt á mbl.is þann 16. septem ber
síðastliðinn um skattsvikamálið
sem nú er til rannsóknar kom fram
að tvö einkahlutafélög – sem munu
vera Ólafsson hf. og H94 – skiluðu
inn reikningum fyrir um samtals
1,3 milljarða króna og fengu end-
urgreiddan virðisaukaskatt upp á
um 270 milljónir. Ekkert mun hafa
verið framkvæmt.
Einn sexmenninganna sem
úrskurðaður hefur verið í gæslu-
varðhald, grunaður um aðild að
málinu, er starfsmaður ríkisskatt-
stjóra. Lögreglan handtók alls níu
einstaklinga vegna rannsóknar á
meintum virðisaukaskattsvikum
tveggja einkahlutafélaga. Rann-
sókn málsins miðar vel að sögn að-
stoðarlögreglustjóra.
Steingrímur Þór Ólafsson, maðurinn sem handtekinn var í Venesúela á mánu-
daginn, starfaði sem einkaþjálfari í Kólumbíu á árum áður. Vinur hans lýsir hon-
um sem góðum dreng og segir fjölmiðlaumfjöllun um málið hafa komið sér í opna
skjöldu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segir hann vera tilbúinn
til þess að hjálpa til við rannsókn málsins.
STARFAÐI Í
KÓLUMBÍU
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Það er rök-studdur grun-
ur um að hann teng-
ist þessum refsiverðu
brotum sem þarna er
verið að rannsaka.
Steingrímur Þór
Ólafsson Maðurinn
semhandtekinnvar
íVenesúelaámánu-
daginnbjóíKólumbíu
ásínumtímaþarsem
hannstarfaðisem
einkaþjálfari,aðsögn
vinarhans.
HJÁLPSAMUR BORGARI:
Borgaði fyrir
ókunnuga konu
Einstæðri móður með lítið á milli
handanna var komið til hjálpar af
ókunnugum manni þegar hún varð
fyrir því óláni að fá synjun á kredit-
kort sitt við matarinnkaup í Bónus
á dögunum. Frá þessu greinir Jón
Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, í dag-
bók sinni á Facebook og birtir bréf frá
systur konunnar.
Maðurinn
bauðst til að
borga fyrir kon-
una upphæð-
ina sem nam sjö
þúsund krón-
um. Þáði konan
aðstoðina eftir
að hann neitaði
að taka annað í
mál en að astoða
hana. „[Hún]
spurði hvort hann gæti ekki þá látið
hana fá reikningsnúmer en þá sagði
hann bara að hann vildi að hún gerði
eitthvað gott fyrir einhvern í staðinn,“
skrifar systir konunnar í bréfinu sem
borgarstjóra barst.
Jón Gnarr fagnar þessari fallegu
sögu af miskunnsama Samverjan-
um í Bónus á Facebook-síðu sinni.
Kveðst hann taka ofan fyrir svona fal-
legri framkomu og óskar eftir meiru í
þessum dúr í borginni og væntanlega
samfélaginu öllu.
Ummæli Jóns á Facebook koma
aðeins nokkrum dögum eftir að
Ásgerður Jóna Flosadóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Ís-
lands, gagnrýndi sinnuleysi borgaryf-
irvalda gagnvart fátækum. Ásgerður
sagðist ítrekað hafa reynt að ná í
borgarstjórann síðan hann heimsótti
bágborið húsnæði samtakanna fyrr í
sumar þar sem 500 fjölskyldur sækja
sér mataraðstoð á viku.
Jón Gnarr
Ekki margir út
Ögmundur Jónasson, samgöngu-
og sveitastjórnarráðherra, segir
það ekki rétt að tugir einstakl-
inga hafi gengið út þegar hann
flutti ræðu á landsþingi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga á
fimmtudag. „Það er einhver sem
ekki kann að telja sem segir það,
ég held að þeir hafi nú bara ver-
ið teljandi á fingrum annarrar
handar sem fóru úr þingsal,“ seg-
ir Ögmundur. „Ég taldi að menn
væru að bregða sér frá en hafði
ekki hugarflug til að ímynda mér
að þetta væri í mótmælaskyni
vegna einhvers sem ég hafði
sagt,“ segir hann, en fundargestir
yfirgáfu salinn þegar Ögmundur
fór að ræða ákæru á hendur Geir
H. Haarde.