Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 31
PÁLL ÓSKAR Á NASA Páll Óskar mun halda uppi stuð-
inu á NASA laugardaginn 2. október. Það verður stanslaus keyrsla frá
miðnætti fram undir morgun en Páll Óskar byrjar að þeyta skífum
og troða upp klukkan 2 eftir miðnætti. Blaz Roca, einnig þekktur
sem Erpur Eyvindarson, verður sérstakur gestur og mun taka lagið
Viltu dick? ásamt Páli Óskari. Páll Óskar segir að stemningin verði
„Gordjöss“ og hvetur alla til að mæta í góðu stuði. Það er engin
forsala og aðeins er hægt að kaupa miða við innganginn. Miðaverð
er 1.500 kr. og 20 ára aldurstakmark.
FRÆÐSLUFYRIRLESTUR Í ÞJÓÐMINJA-
SAFNINU Þriðjudaginn 5. október mun Margrét Helgadóttir,
sagn- og viðskiptafræðingur, halda erindi í fyrsta fræðslufyrirlestri
Þjóðminjasafns Íslands í vetur. Fyrirlesturinn nefnist Gullöld hús-
mæðra og fjallar um hlutverk húsmæðra á árunum 1945–1965 og þær
breytingar sem urðu á húsmóðurstarfinu. Sérstaklega verður fjallað
um svör ellefu kvenna um húsmóðurstarfið og það val sem þær töldu
sig hafa á þessu tímabili. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.05 í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
FÖSTUDAGUR
n Regína syngur lög Carpenters
Eurovision-farinn Regína Ósk syngur öll
bestu lög hljómsveitarinnar Carpenters
á föstudagskvöld í Salnum í Kópavogi.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og
kostar miðinn 3.300 krónur. Hægt er að
nálgast miða á miði.is.
n Regína syngur lög Carpenters
Eurovision-farinn Regína Ósk syngur öll
bestu lög hljómsveitarinnar Carpenters
á föstudagskvöld í Salnum í Kópavogi.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og
kostar miðinn 3.300 krónur. Hægt er að
nálgast miða á miði.is.
LAUGARDAGUR
n Palli á NASA
Það vita allir hversu bilað það er að fara
á ball með Páli Óskari. Hann verður á
heimavelli á NASA um helgina með
ruglað ball sem hefst á miðnætti. Það
kostar 1.500 krónur inn en aldurstak-
mark er tuttugu ár.
n Ungliðar Sinfó
Sinfóníuhljómsveit Íslands er iðin við
tónleikahald þessar vikurnar en hægt er
að nálgast dagskrána á miði.is. Ungsveit
Sinfó mun spila á föstudag klukkan
17.00 í Háskólabíói. Miðinn kostar 3.400
eða 3.900 krónur.
n Vilhjálms minnst
Söngvarinn magnaði Friðrik Ómar
kemur fram ásamt tíu manna hljómsveit
í Hofinu á laugardaginn á tvennum
minningartónleikum um Vilhjálm
Vilhjálmsson þar sem leikin verða öll
hans bestu lög. Gestasöngvari er Guðrún
Gunnarsdóttir. Tónleikarnir hefjast
klukkan 17.00 og 21.00 og kostar 3.900
inn á báða.
n Jógvan í Langholtskirkju
Færeyska sjarmatröllið Jógvan Hansen
syngur öll sín þekktustu lög í Langholts-
kirkju á laugardagskvöld klukkan 20.00.
Með honum verður kórinn 17 Sangarar
en þeir munu syngja færeysk lög ásamt
íslenskri syrpu með lögum Sigfúsar
Halldórssonar.
n Sálin í Hvíta húsinu
Líklega besta og vinsælasta ballhljóm-
sveit íslenskrar tónlistarsögur, Sálin hans
Jóns míns, verður með tónleika í Hvíta
húsinu á Selfossi á laugardagskvöld.
Húsið verður opnað klukkan 23.00 og
aldurstakmark er átján ár.
n Eyjakvöld á Spot
Skemmtistaðurinn Spot hefur verið dug-
legur að halda böll fyrir dreifbýlinga sem
búa í bænum. Á laugardagskvöld verður
Eyjakvöld þar sem hljómsveitin Logar
mun troða upp ásamt öðrum. Eyjamenn
verða í Kópavogi á laugardaginn.
Er ég í Norður-Kóreu?
Kimjongilia er blóm sem heitir eft-
ir núverandi leiðtoga Norður-Kóreu,
Kim Jong Il. Myndin hangir saman á
viðtölum við fyrrverandi íbúa Norð-
ur-Kóreu sem segja hrikalegar sög-
ur af Yodok-fangabúðunum, hungri,
kúgun, hvernig fjölskyldum er refsað
sem heild og landflóttanum sjálfum
sem virðist nú ekki vera neinn barna-
matur.
Það kemur fram hvernig Kim Il
Sung kom úr kristinni fjölskyldu og
varð seinna guð Norður-Kóreum-
anna í gegnum massífan áróður.
Myndin er mjög einhliða sem er svo
sem löglegt í heimildamyndagerð en
við viljum líka sjá hvað stuðnings-
menn Norður-Kóreu hafa að segja
um málið. Frásagnir talsmanna
Norður-Kóreu hljóma yfirleitt eins og
Walt Disney-ævintýri og áhorfendur
eru alveg nógu skýrir til að sjá í gegn-
um það. Svo fyrir vikið fær myndin
ódýran áróðursblæ. Kvikmyndagerð-
armennirnir virðast þar að auki hafa
meiri áhuga á sögunni en vitneskju
um hana sem kemur kjánalega út.
Það er til dæmis talað um að ríkið
hafi orðið marxískt þegar það var yf-
irlýst marx-lenínískt og fór síðan al-
farið í Juche-hugmyndafræðina, sem
snýst um að þjóð sé sjálfri sér nóg.
Það mistókst hrapallega og á stóran
þátt í hungursneyðinni sem þarna
hefur ríkt. Algerlega er horft fram
hjá grimmdarverkum Bandaríkj-
anna í Kóreustríðinu, fjöldamorðum,
efnavopnanotkun og fangelsunum
á börnum. Það er atriði sem skiptir
mjög miklu máli þar sem hatrið sem
það ól af sér hefur frekar en annað
haldið lífi í einræði Kim Il Sung og
Kim Jong Il. Þegar notaðar eru háar
tölur um fjölda flóttamanna og þá
sem dáið hafa í hungursneyð skipt-
ir öllu að vísa í heimildir sem ekki er
gert hér. Óhugnalegar teikningar af
meðferð fanga birtast reglulega en
ekki er útskýrt hvað þær eiga að sýna,
hvenær þær eru teiknaðar og af hverj-
um.
Önnur myndskreyting felst í ein-
hverju djassballetsjói sem á sennilega
að túlka þjáningar undir stjórn Kim
Jong Il, í staðinn þjáist áhorfandinn
vegna þess hvað það er vont mynd-
rænt. Hér er ekkert reynt að svara
spurningunni um það af hverju fólk
rís ekki upp gegn valdhöfunum eins
og gerist reglulega í svipuðum ein-
ræðisríkjum, Myanmar til dæmis.
Myndin virðist þar að auki vera tek-
in með verstu mögulegu gæðum, let-
ur er pixlað og grafíkin almennt slök.
Þar sem efniviðurinn er þungur þarf
myndmálið að vera mun betur unnið.
Menn ættu að skoða heimilda-
myndaþríleik BBC um Norður-Kór-
eu til að sjá hvernig er hægt að vinna
hlutina á faglegri hátt. Eini styrkleiki
myndarinnar felst í viðtölum við hina
landflótta Norður-Kóreumenn sem
segja magnaða sögu af hugdjörfum
flótta, sjálfsbjargarviðleitni og því
hvernig fólk fer fram og til baka yfir
landamærin til að fæða fjölskyldu
sína norðanmegin. Aðdáunarvert.
En á heildina litið veit ég satt best að
segja ekki hvað þessi mynd er að gera
á þessari annars frábæru hátíð. Ræm-
an er það vond að manni líður á köfl-
um eins og maður sé staddur í Norð-
ur-Kóreu. Erpur Eyvindarson
FÖSTUDAGUR 1. október 2010 FÓKUS 31
KIMJONGILIA
Leikstjóri: N.C. Heikin
Aðalhlutverk: Kang Chol Hwan, Lee
Shin, Choi Young Hun
KVIKMYNDIR
Hvað er að
GERAST?
ið púsl,“ segir Árni aðspurður um
hvernig það sé að breyta leikriti í
bíómynd. „Óttó Geir Borg sá um
sviðin en ég og leikhópurinn vor-
um lengi að skrifa samræðurnar.
Það leið langur tími þar til við vor-
um orðin ánægð. Ég held að við
höfum endurskrifað þær níu sinn-
um með mismiklum breytingum í
hvert skipti en þetta tók alveg eitt
ár. Þetta eru náttúrulega sjö persón-
ur og hver á sína sögu. Það var púsl
að koma sjö sögum til skila á níutíu
mínútum þannig þær komi út sem
ein heild,“ segir Árni sem fagnar þó
erfiðleika verkefnisins.
„Þetta var ögrun og það kveikti
áhugann í mér. Maður vill ögra
sjálfum sér og taka smááhættu í líf-
inu. Listrænt séð var erfiðasti hjall-
inn fyrir mig og leikarana að end-
urskapa persónurnar. Leikararnir
höfðu auðvitað leikið þessar per-
sónur áður en þurftu nú að búa
þær aftur til fyrir kvikmynd. Ég held
samt að þetta hafi tekist ágætlega,
þótt ég segi sjálfur frá,“ segir Árni.
Listaspírur á sjónum
Myndin var öll tekin á alvörubát úti
á sjó. „Við ákváðum að skjóta þetta
ekki í vernduðu umhverfi heldur
vera alltaf um borð í bát og hafa
þetta eins raunverulegt og hægt er,“
segir Árni. „Við eyddum fleiri vik-
um um borð í bát til að hafa þetta
eins raunsætt og trúverðugt og við
gátum. Við vorum hræddir um að
ef við tækjum þetta upp í stúdíói
myndum við kannski sofna á verð-
inum. Það var vissulega flókið að
leysa þessa sögu í umhverfi sem
ekki er kvikmyndavænt. Ég er ekki
dómbær á hvort þetta hafi heppn-
ast en ég krossa puttana,“ segir Árni
og brosir. En hvernig var að vera
með Vesturporti og tökufólki úti á
sjó?
„Þarna voru þrjátíu listaspírur
mættar út á mið, það var svolítið
spes,“ segir Árni og skellihlær. „All-
ir drekkandi engiferte með sjóveik-
isplástra. Þarna voru samt þrjátíu
manns sem migu í saltan sjó, öll í
fyrsta skipti. Ég get þó sagt það að
við hefðum öll drepið okkur án sjó-
mannanna sem hjálpuðu okkur frá
fyrsta degi. Hefðu þeir ekki ver-
ið þarna væri eflaust enn verið að
leita að okkur,“ segir Árni og hlær
enn dátt.
„Þarna var bara súrt kaffi og
G-mjólk sem við lepjandi treflarn-
ir þurftum að drekka. En við höfð-
um bara gott af þessu og erum jarð-
bundnari eftir þessa lífsreynslu.
Þetta var hrikalega erfitt og gefandi
í senn,“ segir Árni en tökur fóru
bæði fram um nætur og að degi
til. Hópurinn kom þó alltaf í land á
milli.
Forsendur myndarinnar breytt-
ust
Brim var tekin upp áður en hrunið
varð og kvikmyndagerðarmenn voru
nánast jarðsettir með niðurskurði hjá
kvikmyndasjóði og ákvörðun Ríkis-
sjónvarpsins um að kaupa ekki ís-
lenskar kvikmyndir. Myndin er með-
al annars fjármögnuð með peningum
úr norræna kvikmyndasjóðnum, þeim
pólska og frá pólskum fjárfestum. Árni
segir þó að forsendur myndarinnar
hafi aðeins breyst þar sem útgerð er
aftur orðin aðalatvinnugreinin eftir
hrunið.
„Við tókum myndina náttúrulega
upp fyrir hrun. Myndin átti að vera
óður til sjómennskunnar, vegna þess
árferðis sem var þá var sjómennskan
bara deyjandi atvinnugrein og bank-
arnir að taka yfir. Forsendurnar hafa
aðeins breyst núna. Sjómennskan fór
úr því að vera atvinnugrein í útlegð í
það að vera heitasta atvinnugreinin í
dag,“ segir Árni Ólafur.
Myndin verður frumsýnd á laugar-
daginn á lokaðri sýningu á RIFF en er
síðan sýnd einu sinni á sunnudegin-
um. Hún fer síðan í almennar sýningar
á mánudaginn. Benda má á að leikrit-
ið Brim vann Grímuna sem leikrit árs-
ins. Þá er hægt að fræðast meira um
myndina og fylgjast með á Facebook-
síðu Brim. „Við erum að reyna að búa
til skemmtilega Facebook-síðu,“ segir
Árni Ólafur Ásgeirson að lokum.
tomas@dv.is
Það var púsl að koma sjö sögum
til skila á níutíu mínút-
um þannig þær komi út
sem ein heild
migu í saltan sjó
30 LISTASPÍRUR
Vond ræma „Þar sem
efniviðurinn er þungur þarf
myndmálið að vera mun
betur unnið.“