Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Síða 35
föstudagur 1. október 2010 úttekt 35 framhald á næstu opnu Aldur: 35 ára. Búseta: Grafarvogur, Reykjavík. Iðja: Ég vinn á leikskóla. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Þetta er töluvert álag á alla fjölskylduna. Ég á tvö börn og velti því oft fyrir mér hvaða áhrif þetta muni hafa á líf þeirra. Ég hef eiginlega komist að þeirri niðurstöðu að áhrifin séu ekki slæm, þau sjá hversu ranglát yfirvöld eru og eins hversu lítið er að marka fréttaflutning. Það er kostur að læra þessa hluti ungur.“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Skoðun mín er varla prenthæf. Við erum ásökuð um aðför að sjálfræði þings, sem var ekki sjálfrátt. Þarna inni sátu ansi margir sem höfðu til dæmis þegið peningagjafir frá fyrirtækjum og bönkum. Köllum það réttu nafni, mútur. Mikið væri hressandi ef íslenska plútókrasían yrði ákærð fyrir aðför að sjálfræði þingsins.“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöllun um dómsmálið gegn ykkur? „Ráðherrarnir fyrrverandi hafa í kringum sig hirðir áhrifamikilla stuðningsmanna og eiga greiðan aðgang að fjölmiðlum. Þar hafa þau getað haldið uppi vörnum og félagar þeirra verja þau á þingi. Aftur á móti tekur forseti Alþingis að sér hlutverk sækjanda gegn okkur í ræðustól á Alþingi og lýgur blákalt. Fjölmiðlar flytja fréttir af orðum hennar án þess að kanna hvað hæft sé í þeim og við fáum ekki tækifæri til að verja okkur.“ Ertu sek? „Nei, ég er ekki sek“ Fyrir hvern er réttarríkið? „Ætli það sé ekki fyrir Pétur Blöndal og Ástu Ragnheiði? Það er allavega ekki fyrir mig.“ Aldur: 26 ára. Búseta: Siglufjörður (Fjallabyggð). Iðja: Gæðastjóri. Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf þitt og þinna nánustu? „Ég reyni að láta þetta mál ekki á mig fá. Ég fór viljugur þarna inn og mun ekki reyna að hopa undan neinni ábyrgð sem þar af leiðir. Ég myndi gera þetta aftur og tek ekkert til baka. Hverning þeir nánustu taka því er annað mál. Það er erfitt að horfa upp á ákæruvaldið sem þau treystu hreinlega svíkja sig. Örvænting kemur upp þegar það er einmitt það vald sem færði þeim öryggi sem handvelur blóraböggla búsáhalda- byltingarinnar.“ Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Það ber að kæra okkur fyrir allt sem við gerðum. En hvað gerðum við, það er eitthvað sem mig hefur alltaf langað að vita? Þó það sé rétt að kæra þegar lög eru brotin þá er þetta mál algjör firra. Við gerðum mjög lítið og afleiðingin var engin. Hve margar milljónir eru að hverfa í skýrslur og álit um hverning við móðguðum alþingismennina? Ég gæti trúað að orð mín séu ógnun við sjálfræði Alþingis, á ég að þora að hugsa eða hafa skoðanir?“ Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við um- fjöllun um dómsmálið gegn ykkur? „Ef við erum öll 13, við níumenningarnir og ráðherrarnir fjórir, saklaus, verður þá ekki dæmt svo? Nei, svona á ekki að hugsa. Ég bind miklar vonir við ákæruna á Geir. Það þarf að hefja umræðuna á Alþingi og störf þess á hærra plan. Við viljum ekki vinsældarkosningar og ábyrgðarlausa stjórnmálamenn. Það sem er verið að kæra Geir fyrir eru stór afglöp sem höfðu enn meiri afleiðingar. Aðgerðir níumenninganna voru knúnar af einsettum vilja og höfðu engar afleiðingar. Við ætlum ekki að kollsteypa Alþingi og ekki einu sinni að særa nokkurn mann. Líkt og Geir þá meintum við vel. Verst að í Geirs tilviki þá gerðist eitthvað hræðilegt. Hér eru stór skil.“ Ert þú sekur? „Svarið mér fyrst; hverning ég ógnaði sjálfræði Alþingis? Ég er ákærður og ég veit það ekki. Það þykir mér erfitt þegar hvorki verknaður minn né nafn mitt hefur verið tilgreint í ákærunni. Nafn mitt fyrirfinnst einungis í upphafs- upptalningu ákærðra, og hverning er hægt að verjast ásökunum sem fyrirfinnast ekki. Ákæran sjálf sýnir að ég gerði ekkert.“ SólvEIg AnnA JónSdóttIr: Fáum ekki tækifæri til að verja okkur KolBEInn AðAlStEInSSon: myndi gera þetta aftur BlóraBöggla Búsáhalda- Byltingar ingum á íslensku samfélagi, sem er í djúpum vanda, ekki bara vegna auð- magnskreppunnar sem hófst í okt- óber 2008, heldur líka vegna þess sem auðveldlega má kalla fyrri árás- ir á Alþingi, árása sem voru framdar gegn hagsmunum almennings í þágu einkahagsmuna fárra. Níumenning- arnir eru félagar okkar og samverka- menn í baráttunni við réttnefnda góðkunningja lögreglunnar: ofbeld- isfullt ríkisvald og það kúgandi auð- magn sem ríkið veitir þjónustu sína. Samstaða okkar verður ekki rofin með því að velja úr hópnum níu, fjóra eða einn.“ Krafa þessara 700 einstaklinga var að ef ákæruvaldið myndi ekki falla frá ákærum sínum á hendur níumenn- ingunum ætti það að gefa út ákærur á hendur öllum þeim sem réðust á Al- þingi veturinn 2008–2009 og þar með talið þeim 700 einstaklingum sem undir þetta rituðu. dómarinn kallaði lögreglu til Ragnar fór einnig fram á að dómar- inn viki vegna vanhæfis. Forsendur hans fyrir því voru að frá fyrsta degi Þúsundir mótmæltu Í janúar 2009 þeystu þúsundir Íslend- inga út á götur Reykjavíkur til þess að mótmæla stjórnvöldum og þeirri stöðu sem komin var upp í íslensku samfélagi. mynd HEIðA HElgAdóttIr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.