Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Side 16
16 | Erlent 23. febrúar 2011 Miðvikudagur Skálmöld ríkir í Líbíu þar sem mót- mælendur virðast vera að ná yfir- höndinni. Leiðtogi Líbíu, Muammar al-Gaddafi, ætlar samt ekki að gef- ast upp og hefur skipað öryggissveit- um sínum að skjóta á mótmælend- ur. Hafa jafnvel herþotur flogið yfir Græna torgið í miðborg Tripólí, höf- uðborg Líbíu, og varpað sprengjum á mótmælendur. Tveir orrustuþotu- flugmenn ákváðu á mánudag að ger- ast liðhlaupar, þeir neituðu fyrir- mælum og vildu ekki hefja skothríð að eigin þjóð. Lentu þeir flugvélum sínum á Möltu og eru þar enn. Fjölmargir sendifulltrúar Líbíu á erlendri grund hafa sagt upp störf- um þar sem þeir neita að vinna fyr- ir ríkisstjórn Gaddafis, þar á meðal er sendiherra Líbíu hjá Sameinuðu þjóðunum. Dómsmálaráðherra Líb- íu, Mustafa Abdel Jalil, sagði einnig af sér vegna ofbeldisverka hersins. Í gær neitaði Gaddafi að hann væri þegar flúinn land, en sögur höfðu verið á kreiki um að hann væri flúinn til Venesúela. Staða Gaddafis er þó síst traust um þessar mundir. Riðar til falls Fáir hefðu trúað því fyrir örfáum vik- um að Gaddafi ætti eftir að eiga á hættu að hrökklast úr embætti leið- toga. Gaddafi hefur verið einráður í Líbíu síðan hann hrifsaði völdin í valdaráni árið 1969, þegar honum tókst að ýta Idris konungi til hliðar. Gaddafi, sem þá var aðeins 27 ára gamall, lýsti sjálfum sér sem „Che Guevara Araba.“ Draumur hans var að stofna víðfeðmt ríki Araba, og hef- ur hann oftar en einu sinni reynt að semja við nágranna sína um að sam- einast í öflugt ríki. Lengst komust þessar viðræður undir lok 8. áratugar síðustu aldar, þegar til stóð að Líbía, Egyptaland og Sýrland myndu sam- einast. Að lokum fóru þær áætlan- ir út um þúfur, þar sem Gaddafi gat ekki sætt sig við friðarsamning Eg- ypta við Ísraela sem þáverandi for- seti Egypta, Abdel Nasser, stóð fyrir. Bróðurlegi leiðtoginn Í kjölfar valdaránsins stofnaði Gaddafi það sem hét að nafninu til „íslamskt lýðveldi.“ Gaddafi tók sér titil forsætisráðherra en afsalaði sér þeim titli árið 1972. Hann vill frekar láta kalla sig hinn „bróðurlega leið- toga og vegvísi byltingarinnar.“ Erfitt er að henda reiður á þá stjórnmála- stefnu sem Gaddafi hefur fylgt, þó einfaldast sé að útskýra hana sem miðstýrt einræði. Fyrirtæki í Líbíu geta verið í einkaeign, en öll stærri fyrirtæki, og þar með talin olíufyr- irtækin, eru í eigu ríkisins og getur Gaddafi í raun hlutast til með þau að vild. Gaddafi hefur ætíð lagt mikla áherslu á jafnrétti og jafna skipt- ingu auðs í orði, en lítið fer fyrir þeirri speki á borði. Í Líbíu er mik- il misskipting þrátt fyrir að olíuauð- ur landsins sé einn sá mesti sem um getur. Atvinnuleysi mælist þar yfir 20 prósentum og ríkir þar oft og tíðum vöruskortur. Fjölskyldan stendur saman Stjórnmálaskýrendur eru á einu máli um að ómögulegt sé að sjá fyrir hvað framtíðin beri í skauti sér í Líbíu, fari svo að stjórn Gaddafis falli. Líklegasti arftaki Gaddafis var talinn vera sonur hans, Saif al-Islam, sem flutti meðal annars sjónvarpsávarp í ríkissjón- varpi Líbíu á mánudagskvöld. Sagði hann þar að stjórnvöld væru að berj- ast við hryðjuverkaöfl á götum úti og að stjórnvöld ætluðu sér að „berjast til síðasta manns, síðustu konu og síðustu byssukúlu.“ Ávarpið kom talsvert á óvart, sé litið til ferils Saifs, en erlendir stjórn- málaskýrendur höfðu vonast til þess að hann væri maðurinn sem kæmi til með að leiða Líbíu í átt til lýðræðis þegar faðir hans væri horfinn á brott. Einn þeirra sem hafði bundið miklar vonir við Saif er David Held, prófess- or við London School of Economics og einn virtasti fræðimaður nútím- ans í alþjóðasamskiptum. Held var leiðbeinandi Saifs þegar hann stund- aði nám við skólann, en hann lauk þaðan doktorsgráðu í alþjóðastjórn- málum árið 2009. Eftir að Saif hafði skilað inn doktorsverkefni sínu var honum boðið að kynna verkefni sitt á fjölmennum fundi, sem hann og gerði. Það var David Held sem kynnti Saif á svið með orðunum „hér kynni ég mann sem ég kalla stoltur vin minn. Maður sem kemur til með að koma með nýjar áherslur við að leysa deilumál friðsamlega.“ Miðað við sjónvarpsávarp Saifs frá síðasta mánudegi er friður hon- um ekki ofarlega í huga. Þjóðarleiðtogar fordæma ofbeldið Mikill þrýstingur er á Gaddafi frá al- þjóðasamfélaginu um að láta af of- beldinu gagnvart mótmælendum. Mannréttindasamtök á staðnum full- yrtu í samtali við fréttastöðina al-Jaz- eera að um 400 manns hefðu þegar fallið fyrir hendi öryggissveita og her- manna. Á þriðjudag ræddi Gaddafi lengi við Ban ki-Moon, aðalritara Sam- einuðu þjóðanna. Moon sagði Gaddafi að hann þyrfti að láta af ofbeldinu taf- arlaust. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna ætlar að funda um ástandið í Líbíu, en fundurinn er haldinn að undirlagi Ibrahim al-Dabashi, sem sagði af sér á mánudag sem sendi- herra Líbíu hjá SÞ. Dabashi fullyrti að alþjóðasamfélagið yrði að bregðast við ástandinu, að öðrum kosti væri bráð hætta á að þjóðarmorð yrði framið fyr- ir framan nefið á heiminum. Hillary Clinton, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, tjáði sig einn- ig um ástandið í Líbíu. Sagði hún að Gaddafi yrði að virða mannréttindi og láta af öllu ofbeldi þegar í stað. „Við tökum undir með alþjóðasamfé- laginu og fordæmum ofbeldið í Líb- íu harðlega. Nú er tími til kominn að stöðva þessar tilgangslausu blóðsút- hellingar.“ Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is GADDAFI RIÐAR TIL FALLS „ ...hefur verið einráður í Líbíu síðan hann hrifsaði völdin í valdaráni 1969. n Skálmöld ríkir í Líbíu þar sem mótmælendur eiga í blóðugum átökum við her- inn n Gaddafi ætlar ekki að gefast upp og neitar því að hann sé flúinn land n Al- þjóðasamfélagið hefur fordæmt ofbeldið og tekur undir málstað lýðræðissinna Líbísk herþota á Möltu Tveir orrustuþotuflugmenn gerðust liðhlaupar og neituðu að skjóta á eigin þjóð. Þeir lentu flugvélum sínum, af gerðinni Mirage F-1, á Möltu. Miðborg hafnarborgarinnar Tobruk Mannfjöldi hefur safnast saman í borgum Líbíu undanfarna daga. Saif al-Islam Sonur Gaddafis ætlar ekki að gefast upp og styður föður sinn. „Ég er ekki farinn.“ Gaddafi var í dyragætt bifreiðar með regnhlíf í hönd þegar hann ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.