Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Síða 22
22 | Menningarverðlaun 23. febrúar 2011 Miðvikudagur KVIKMYNDIR LEIKLIST Bíó Paradís n Bíó Paradís - Heimili kvikmyndanna fyrir að vera það og staður fyrir kvikmyndaunnendur til að sjá fjölbreytilegar kvikmyndir. Bíó Paradís leggur áherslu á evrópskar og íslenskar kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir, og alþjóðlega vandaða titla. Einnig fyrir að vera vettvangur og samverustaður fyrir kvikmyndaáhugamenn og almenning til að kynnast kvikmyndasögunni og skiptast á skoðunum. Dagur Kári n Dagur Kári fyrir kvikmyndina Good Heart sem er einstaklega vel skrifuð, listræn kvikmynd sem sameinar hinar ýmsu hliðar kvikmyndalistarinnar í sann- færandi og heilsteypt verk. Kvikmyndin býr yfir ljóðrænni dulúð og næmum húmor sem oft einkennir myndir hans og er í raun listrænt afrek. Dagur Kári hefur sýnt það og sannað að hann er sívaxandi listamaður og kemur áhorfandanum á óvart með óþrjótandi hugmyndaflugi í hverri mynd. Valdís Óskarsdóttir n Valdís Óskarsdóttir klippari fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar og íslenskrar kvikmyndagerðar nú síðast fyrir verðlaunamyndina Brim. Valdís Óskarsdóttir hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna og unnið með mörgum þekktustu núlifandi kvikmyndaleikstjórum heims. Verk klipparans í myrkvuðu herbergi virðist oft gleymast en Valdís hefur sýnt það og sannað að klipparinn getur gert gæfumuninn með framlagi sínu til kvikmyndalistarinnar. Dögg Mósesdóttir n Dögg Mósesdóttir fyrir hina ört vaxandi alþjóðlegu kvikmyndahátíð: Northern Wave Film Festival á Grundarfirði sem leggur áherslu á að sýna stutt- og tónlistarmyndir. Einnig fyrir það framtak að leiða saman bæði íslenska og erlenda tónlistar- og kvikmyndagerðarmenn og gefa litlum bæ á köldum dögum dagsljós og líf. Örn Marinó og Þorkell n Örn Marinó Arnarsson og Þorkell Harðarson fyrir framlag þeirra til heimildamyndagerðar, m.a. fyrir Fálkasögu sem hefur fengið lof og verið sýnd á mörgum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Með þrautsegju sinni hafa þeir gefið öðrum von um að það sé hægt að láta drauma sína rætast og koma íslenskri heimildamyndagerð á framfæri á erlendri grund. Atli Rafn Sigurðsson – fyrir að leika hlutverk Ólafs Thors í Eilífri óhamingju eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Arnarson og Játgeir í Lé konungi Shakespeares n Atli Rafn hefur á undanförnum árum sannað sig sem einn af öflugustu leikurum sinnar kynslóðar. Hann býr yfir miklu tæknilegu öryggi í raddbeitingu og líkamlegri tjáningu og sýndi það eftirminnilega í Eilífri óhamingju. Í Lé konungi tókst honum að gæða eina erfiðustu mannlýsingu leiksins þeim innri styrk sem hún þarf á að halda til þess að verða trúverðug. Ilmur Kristjánsdóttir – fyrir Klöru í Fólkinu í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson og Jón Grinvicensis í Íslandsklukk- unni eftir Halldór Laxness og Benedikt Erlingsson n Ilmur hefur á sínum stutta leiklistarferli sýnt að í henni býr vaxandi og fjölhæf leikkona sem getur bæði fengist við og túlkað dramatísk sem tragíkómísk hlutverk. Það sýndi hún okkur eftirminnilega í tveim- ur sýningum á síðasta ári, annars vegar sem hin ráðvillta og meðvirka Klara í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fólkinu í kjallaranum og hins vegar sem hinn barnslegi og sérlundaði fræðimaður Jón Grinvicensis skrifari og aðstoðarmaður Arnasar Arnæusar í sýningu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni. Gísli Örn Garðarsson – fyrir leikstjórn á Faust, leikriti hans, Nínu Daggar Filippusdóttur, Björn Hlyns Haraldssonar og Víkings Kristjánssonar upp úr Faust Goethes n Gísli Örn hefur verið fyrirliði Vesturports-hópsins sem sett hefur mikinn svip á íslenska leiklist undanfarin ár. Hópurinn hefur starfað jöfnum höndum erlendis sem hér á landi, unnið að lifandi leiklist og kvikmyndum. Faust var frumsýndur í Borgarleikhúsinu snemma á síðasta ári og hefur síðan verið sýndur bæði í Englandi og Þýskalandi. Gísli Örn er hugmynda- ríkur og smekkvís leikstjóri sem hefur náð að þróa ákveðinn stíl í náinni samvinnu við leikendaflokkinn, stíl sem sjaldan eða aldrei hefur notið sín betur en í sýningu þeirra á Faust. Ólafur Egill Egilsson – fyrir leikgerð sína á skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Fólkið í kjallaranum, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu undir leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur n Leikgerðir skáldsagna hafa skipað stóran sess í innlendri leiksköpun síðustu áratuga, þó að þær hafi löngum verið harla mis- jafnar að gæðum. Í sviðsaðlögun sinni á Fólkinu í kjallaranum hefur Ólafur Egill valið og hafnað úr texta Auðar með það fyrir augum að skapa gott frásagnarflæði innan þeirrar marka sem leiksviðið setur. Árangurinn varð heilsteypt verk sem leikstjóri, leikmyndateiknari og leikendur nýttu sér til að skapa eina bestu leiksýningu ársins. Bernd Ogrodnik – fyrir Brúðuheima í Borgarnesi n Íslensk leikbrúðulist hefur sótt mjög í sig veðrið á síðustu árum. Fáir hafa staðið framar í þeirri hreyfingu en Bernd Ogrodnik. Hann er afar listfengur brúðugerðarmaður og hefur vakið verðskuldaða eftirtekt bæði fyrir eigin sýningar og framlag sitt til annarra sýninga, einkum í Þjóðleikhúsinu. Á síðasta ári var brúðulista- miðstöðin Brúðuheimar opnuð í Borgarnesi, en hana hefur Bernd byggt upp ásamt eiginkonu sinni Hildi Jónsdóttur. Brúðuheimar er einstakt sambland af fjölbreyttu safni og lifandi leik- húsi, auk þess sem framtakið er frábært dæmi um það hvernig hægt er að efla menningarlíf á landsbyggðinni. NEFNDIN Jón Viðar Jónsson leikdómari DV (formaður) n Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og rithöfundur n Þorgerður E. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður NEFNDIN Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður félags kvikmyndagerðarmanna (formaður) n María Reyndal leikstjóri n Stefanía Thors klippari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.