Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Side 2
Bauð vinahópi í alpafjöllin 2 Fréttir 23.–25. mars 2012 Helgarblað Simmi og Jói vilja kaupa 365 Sigmar Vil- hjálmsson og Jóhannes Ás- björnsson, fjár- festar og eigendur Hamborgara- fabrikkunnar, hafa áhuga á því að eignast fjölmiðla- fyrirtækið 365 og eru að skoða leiðir til þess en DV hefur heimildir fyrir því að tvímenningarnir hafi þegar tryggt sér fjármögnun fyrir kaupunum ef af þeim getur orðið. Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir skömmu að hópur fjárfesta vildi kaupa 365, sem meðal annars á Stöð 2 og Fréttablaðið. Ekki var tekið fram í frétt blaðsins hvaða aðilar það væru sem væru áhuga- samir um fjölmiðlafyrirtækið. 10 leiðir til að lækka skattinn Úttekt um það helsta sem hafa þarf í huga þegar skattaframtalinu er skilað. Meðal annars var greint frá því að hafi framteljandi ungmenni á framfæri sem er við nám eða hefur af öðrum ástæðum það lágar tekjur að þær duga ekki til framfærslu sé hægt að sækja um ívilnun. Hér er fyrst og fremst átt við ungmenni á aldrinum 16 til 21 árs og sé ungmennið í skóla þarf að tilgreina í hvaða skóla. Ekki er hægt að sækja um ívilnun ef námið veitir rétt rétt til námslána. Miðað er við að ungmennið hafi ekki haft nægjanlegt ráðstöfunarfé á árinu og miðast því lækkun á tekjustofni framfæranda við tekjur þess. Bankamenn hækka mest í launum Þeir sem starfa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og við vátryggingar hækkuðu í launum að jafnaði um tæpar 50 þúsund krónur á milli áranna 2010 og 2011. Þessir hópar hækkuðu mest allra í launum, þó að fyrir væru laun þeirra að jafnaði hæst á almennum vinnumarkaði. Hækkunin nam 10 prósentum, sem var einnig mesta hlutfallslega hækkun launa. Samanborið við aðrar stéttir var því ákveðið launaskrið í fyrra í þessum hópum. Bankamenn hafa þó setið eftir ef litið er til hækkana frá efnahagshruninu. Fréttir vikunnar í DV FESTIST Í VÍTAHRING SMÁLÁNAwww.dv .i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 19.–20. m ars 2012 mánudagur/þriðjudagur 3 3 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . KoMNIR MEð pENINGANA af Ingibjörgu og Jóni Ásgeiri n Ingibjörg Pálmadóttir: „Enginn talað við mig“ SIMMI oG JÓI VILJA KAUpA 365 8 Lyf fÁ börn tIL að stELa „Þetta byrjaði mjög saklaust“ tvítug stúlka varar við 18–19 2–3 3 4 11 13 „HANN VAR BARA HE-MAN“ Hetjuleg barátta Jónbi kvaddur 28 ára bankamenn hækka mest í launum HEfUr EKKI EfnI Á LyfJUM n Lifir á þúsund krónum n allt fer í leigu og skatt Krabbameinsveikur maður: 700 TÓMAR ÍBÚðIR ÍBÚðALÁNASJÓðS Viðtal Þ eir sem starfa í fjármálaþjón- ustu, lífeyrissjóðum og við vá- tryggingar hækkuðu í laun- um að jafnaði um tæpar 50 þúsund krónur á milli áranna 2010 og 2011. Þessir hópar hækkuðu mest allra í launum, þó að fyrir væru laun þeirra að jafnaði hæst á almenn- um vinnumarkaði. Hækkunin nam 10 prósentum, sem var einnig mesta hlutfallslega hækkun launa. Saman- borið við aðrar stéttir varð því ákveð- ið launaskrið í fyrra í þessum hópum. Bankamenn hafa þó setið eftir ef litið er til hækkana frá efnahagshruninu. Opinberir starfmenn sitja eftir Í tölum Hagstofunnar um laun á al- mennum vinnumarkaði kemur fram að regluleg laun hækkuðu að meðal- tali um 6,7 prósent á milli áranna 2010 og 2011. Eins og áður sagði hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóð- um og vátryggingum mest. Meðallaun fóru úr 476 þúsund krónum á mánuði í 524 þúsund. Minnst hækkuðu launin í byggingarstarfsemi og mannvirkja- gerð. Þar hækkuðu launin aðeins um 17 þúsund krónur að jafnaði á mánuði milli áranna 2010 og 2011. Meðallaun- in í byggingargeiranum fóru úr 356 þúsund krónum í 373 þúsund krónur. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,4 prósent á milli þess- ara sömu ára og því má segja að þeir sitji eftir. Á sama tíma hækkaði verðlag í landinu um 1,8 prósent. Bankamenn hækka minnst frá hruni Þó meðfylgjandi graf varpi ljósi á það innan hvaða atvinnugreina laun hafa hækkað mest á milli áranna 2010 og 2011 breytist tölfræðin nokkuð þegar horft er á þróun launa frá árinu 2008, þegar efnahagshrunið varð. Þegar krónutöluhækkun frá þeim tíma er skoðuð kemur í ljós að laun þeirra sem starfa í byggingariðnaði hækkuðu um 70 þúsund krónur frá 2008, eða mest þeirra stétta sem hér um ræðir. Laun þeirra sem starfa við verslun hafa að jafnaði hækkað um 57 þúsund krón- ur á mánuði frá hruni og þeirra sem starfa í iðnaði um 50 þúsund, líkt og þeirra sem vinna við samgöngur. Laun þeirra sem starfa við fjármálaþjónustu hafa minnst hækkað frá hruni eða um 28 þúsund krónur á mánuði, að með- altali. Þetta helgast aðallega af því að stéttin lækkaði lítillega í launum á milli áranna 2008 til 2009. Fjölmargir starfs- menn bankanna, sem ekki misstu vinnuna strax í kjölfar hrunsins, tóku á sig launalækkun. Svo virðist hins vegar sem tímar samdráttar í launum hjá bönkunum séu að baki, ef taka má mark á því að laun þeirra hækkuðu að jafnaði mest milli 2010 og 2011. Þó má einnig benda á að frá hruni hefur verðlag hækkað um rúm 37 pró- sent. Kaupmáttur launa hefur því rýrn- að hjá öllum þeim hópum sem hér eru til umfjöllunar þegar horft er fimm ár aftur í tímann. Allir fengu 4,25% hækkun Í þessu samhengi skal haft í huga að í kjarasamningi aðildarfélaga Alþýðu- sambands Íslands og Samtaka at- vinnulífsins, sem undirritaður var í fyrravor, var kveðið á um að allir launa- taxtar hækkuðu um 4,25 prósent. Að auki fengu launamenn 50 þúsund króna eingreiðslu og 10 þúsund króna álag var greitt ofan á orlofsuppbót. Þessu til viðbótar var greitt 15 þúsund króna álag á desemberuppbót. Þegar þetta er haft í huga er óvar- legt að ætla að stór hluti launamanna hafi fengið miklar launahækkanir um- fram umsamda hækkun í kjarasamn- ingi ASÍ. 4 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur Fá ekki að mynda fermingu n Kurr meðal foreldra því aðeins einn fær að mynda athöfnina V ið viljum ekki að það séu tutt- ugu ljósmyndarar á sveimi á meðan á athöfninni stendur. Þetta er ekkert öðruvísi hér en annars staðar,“ segir Gunnar Sigur- jónsson, sóknarprestur í Digranes- kirkju í Kópavogi. Fermingar fara að ganga í garð og á fimmtudag voru haldnir foreldra- fundir í kirkjunni þar sem meðal ann- ars var rætt um myndatökur á meðan á athöfn stendur. Ákveðið hefur verið að semja við einn ljósmyndara, Jó- hann Ísberg, um að hann taki að sér að taka myndir. Jóhann er formað- ur Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi en Gunnar er einnig virkur félagi í Sjálf- stæðisflokknum. Að sögn Gunnars var sú ákvörð- un, að fá einn ljósmyndara til verks- ins, tekin til að trufla ekki sjálfa at- höfnina enda annars viðbúið að fjöldi fólks yrði á sveimi til að fanga þetta stóra augnablik í lífi barnanna á filmu. Samkvæmt upplýsingum DV er kurr meðal einhverra foreldra vegna þess- arar ráðstöfunar. Gunnar segist hins vegar ekki kannast við það og bend- ir á að raunar sé sama fyrirkomulag í öðrum kirkjum. Þá hafi þessi sami háttur verið hafður á í Digraneskirkju undanfarin ár. Reyndir ljósmyndarar komi og taki myndir og foreldrar geti síðan keypt myndirnar gegn gjaldi sem stillt er í hóf. Gunnar segir að á foreldrafund- unum á fimmtudag hafi hann beð- ið fólk um að koma með hugmynd- ir. Almenn sátt hafi hins vegar verið og enginn sett sig á móti þessu fyrir- komulagi. Þá bendir Gunnar á að for- eldrar og allir þeir sem vilja geti tekið myndir eftir sjálfa athöfnina. Mark- miðið með þessu sé að hafa athöfnina í senn fallega og hátíðlega. Bankamenn hækka mest n Laun starfsmanna í fjármálageiranum hækkuðu um 10% á einu ári „Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,4 prósent á milli þessara sömu ára og því má segja að þeir sitji eftir. 300 350 400 450 500 550 Iðnaður Byggingar- geirinn Verslun og þjónusta Samgöngur og flutningar Fjármálaþjón- usta, lífeyrissj. og tryggingar 373 320 345 356 318 341 342 372 476 524 Hækkun meðallauna 2010–2011Hækkun launa frá hruni Byggingargeirinn 70 þús. Verslun 57 þús. Iðnaður 50 þús. Samgöngur 48 þús. Fjármálaþjónusta 28 þús. Gengið á spariféð Verðbólgan hefur gert það að verkum að kaupmáttur launa hefur rýrnað frá hruni. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Eins og í öðrum kirkjum Gunnar kann- ast ekki við að foreldrar séu ósáttir. Rauða súlan merkir laun árið 2010 en sú gráa launin árið 2011. Um er að ræða mánaðarlaun í þúsundum króna. Sóttu vél- sleðamann Vélsleðamaður var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri á sunnu- dagseftirmiðdag. Stjórnstöð Land- helgisgæslunnar barst laust fyrir klukkan fjögur beiðni frá Neyðar- línunni um aðstoð þyrlu eftir að vélsleðaslys varð í Flateyjardal milli Eyjafjarðar og Skjálfanda- flóa. Björgunarsveitir voru einnig kallaðar út. Sökum þess hversu snjólétt var í Flateyjardal komust björgunarsveitarmenn langleiðis á bílum. Fyrst var maðurinn flutt- ur í Heiðarhús sem er í um eins kílómetra fjarlægð frá slysstað. Þar fékk hann aðhlynningu þar til þyrlan kom á vettvang. Mað- urinn var í hópi vélsleðamanna á ferðalagi um Flateyjardal. Hann var með töluverða áverka, meðal annars á baki og fótum en var með meðvitund og líðan hans stöðug. Gæti haft fordæmisgildi Úrskurður sem féll hjá Evrópu- dómstólnum á fimmtudag í síð- ustu viku í slóvensku máli um neytendalán gæti haft fordæmis- gildi fyrir uppgjör gengislána hér á landi. Dómurinn fjallar um túlkun á tilskipun um óréttmæta skil- mála í neytendasamningum en sú tilskipun hefur verið innleidd í lög hér á landi og því er hægt að heimfæra dóminn upp á gengisl- ánin hér. Árið 2010 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengisl- ánin yrðu látin bera lægstu óverð- tryggðu vexti Seðlabankans, rökin fyrir því voru meðal annars þau að vegna þess að lánin hefðu ekki verið veitt með óverðtryggð- um vöxtum ef gengistrygging hefði ekki fylgt. Evrópudómstóll- inn komst að þeirri niðurstöðu að þetta væru ekki gild rök. RÚV sagði frá þessu í kvöldfréttum sín- um á sunnudag. Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr . d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars Bjóst við gullúri, fékk uppsagnarbréf w w w . d v . i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 21.–22. mars 2012 Miðvikudagur/FiMMtudagur 3 4 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . n Ert þú að missa af hundruðum þúsunda? n Er lati unglingurinn þinn gullnáma? 10 LEIÐIR TIL AÐ LÆKKA SKATTINN OfurBaktEríur: algEngar sýkingar munu drEpa n læknar óttaslegnir 10 SENDU 600 MILLJÓNIR TIL LÚX n gunnlaugur og Vilhjálmurstórgræddu í hruninu 4 SELUR KAKKA- LAKKA fÉKK UNDANÞÁGU 1.300 kr. stykkið DOMINO’S SLAPP VIÐ SKULDIR 1,5 milljón pítsur afskrifaðar frÆgir tVífarar n Bréfberi fær kaldar kveðjur eftir 24 ára starf 29 3 18–19 13 6 1 2 3 M agnús Ármann, fjárfestir og athafnamaður, virð- ist ekki vera á flæðiskeri staddur þrátt fyrir að fé- lög honum tengd skuldi tugi þúsunda milljóna króna en Magnús og Margrét Baldursdóttir, eiginkona hans, buðu á dögunum fimm vinapörum sínum í vikulanga skíðaferð til frönsku Alpanna. Í vik- unni var félag í eigu Magnúsar tekið til gjaldþrotaskipta. Gjarn á að bjóða með Heimildir DV herma að Magnús og frú hafi borgað allt undir vini sína, allt frá mat upp í hótelgistingu og flug en þó lagði hvert par fram 50.000 krónur upp í ferðakostnað. Eftir því sem DV kemst næst var um að ræða ferð vinahóps Margrétar úr Breið- holtinu. Þeirra á meðal voru leikara- hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Garðar Örn Gíslason í Vesturporti. Af myndum úr ferðinni að dæma hefur hópurinn verið afar heppinn með veður. Aðstæður til skíðaiðk- unar virðast hafa verið eins og best verður á kosið. Bauð 12 manns 2007 Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Magn- ús býður vinum sínum í frönsku Alpana en árið 2007, skömmu eft- ir að sagt var frá því að Magnús Ár- mann skuldaði 24 þúsund milljónir umfram eignir og eigið fé, fréttist af honum á lúxusskíðahóteli í frönsku Ölpunum. Hótelið var í eigu Magn- úsar Ármann, Hannesar Smárasonar fjárfestis og Þorsteins Jónssonar, sem er kenndur við Kók. Þangað bauð hann tólf vinum og vandamönn- um. Ekki liggur fyrir hvort hópurinn dvaldi á sama stað að þessu sinni. Það er því ljóst að örlæti Magnús- ar hefur ekki dvínað í takt við hækk- andi skuldastöðu félaga hans, en DV greindi frá því á fimmtudag að eign- arhaldsfélagið Runnur 2. ehf., sem meðal annars er í eigu Magnúsar, hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta. „Ég borga“ Magnús hóf ferilinn sem súlustað- areigandi og var vinsælasti útrásar- víkingurinn þar sem hann var sagð- ur síkátur og örlátur. Góða skapið rann aldrei af honum, hvorki fyrir né eftir hrun. „Ég borga,“ var hans frasi og dró hann iðulega upp veskið fyr- ir félagana. Einu sinni fór hann út að borða á Akureyri og borgaði fyrir alla á veitingastaðnum. Magnús býr þessa dagana ásamt konu sinni í Barcelona og starfar með föður sínum en hann er stórtækur í innflutningi frá Kína. Átti helming í Karen Millen Ljóst er að lítið virðist eftir af við- skiptaveldi Magnúsar Ármann. Magnús varð umsvifamikill í við- skiptum árið 2001 þegar hann í sam- starfi við Sigurð Bollason, son Bolla í Sautján, keypti helmingshlut í bresku verslanakeðjunni Karen Millen. Hlutinn keyptu þeir af Kevin Stan- ford og Karen Millen. Magnús var fyrir þann tíma einna þekktastur fyrir þátttöku í veitingarekstri en hann átti skemmtistaðinn Astró auk þess sem hann rak nektarstaðinn Óðal um tíma. Baugur keypti síðar hlut Magn- úsar og Sigurðar í Karen Millen. Magnús átti síðan félagið Materia Investment ehf. ásamt Sigurði Bolla- syni og Kevin Stanford. Það félag var einn stærsti hluthafinn í FL Group og fór á tímabili með 10,7 prósenta hlut í félaginu. Magnús var bæði stjórnar- maður í FL Group og Dagsbrún. n Í skugga gjaldþrots bauð Magnús Ármann fimm vinapörum með í skíðaferð Ekki á flæðiskeri staddur Magnús Ármann býr nú í Barcelona ásamt konu sinni. Félög honum tengd skulda tugi milljarða en það virðist ekki hafa áhrif á hann persónulega, ef marka má hve vel hann getur gert við sig og vini sína. Voru á skíðum Hjónin Gísli Örn Garðarson og Nína Dögg Filippusdóttir voru á meðal þeirra sem nutu góðs af gjafmildi Magnúsar. Engin nafnlaus sms-skilaboð Ekki er lengur hægt að senda nafnlaus smáskilaboð af vefsíðunni ja.is líkt og hefur verið hægt undanfarin ár. Þá hafa forsvarsmenn síðunnar einnig tekið upp á því að rukka fyrir skilaboðasendingarnar. Í tilkynningu frá Já.is segir að héðan í frá muni notendur skilaboðaþjónustunnar auðkenna sig með innskráningu og svokölluðu „SMS handartaki“. Skilaboðin munu birtast móttakandanum á sama hátt og ef þau væru send úr farsíma sendandans. Breytingarnar á gjaldskrá þjónustunnar má að einhverju leyti skýra með athugasemd Póst- og fjarskiptastofnunar frá síðasta ári. Þá vakti stofnunin athygli á því að auglýsingar mætti einungis senda með smáskilaboðum þegar móttakandi skeytisins hefði veitt samþykki sitt fyrir þeim fyrirfram en auglýsingar hafa verið notaðar til að fjármagna þjónustuna hingað til. Lést um borð í togara Maðurinn sem lést í vinnuslysi um borð í togaranum Sigurbjörgu ÓF 1 á Ísafjarðardjúpi á miðvikudagsmorgun hét Jón Haukur Njálsson. Jón Haukur var 24 ára, búsettur á Ólafsfirði. Hann lætur eftir sig unnustu og tvö ung börn. Slysið varð þegar skipsverjar unnu við þrif á hreinsiborði um borð í skipinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang með lækni, sem úrskurðaði manninn látinn. Leiðrétting Í frétt í miðvikudagsblaði DV, um arðgreiðslur úr eignarhaldsfélaginu Teton, birtist mynd af röngum manni. Mynd átti að birtast af Erni Karlssyni en myndin sem birtist var af öðrum manni. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.