Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Blaðsíða 48
23. mars
752 Stefán 2. varð páfi.
1663 Ragnheiður Brynjólfs-
dóttir í Skálholti lést. Talið er að
sálmur Hallgríms Péturssonar,
„Um dauðans óvissan tíma“, hafi
fyrst verið sunginn yfir moldum
hennar.
1903 Wright-bræður sóttu
um einkaleyfi á hönnun sinni
á flugvél.
1919 Benito Mussolini stofn-
aði fasistaflokk-
inn í Mílanó.
1933 Adolf
Hitler varð
kanslari Þýska-
lands.
1937 Sundhöllin í
Reykjavík vígð.
1965 Geimfararnir Virgil I. „Gus“
Grissom og John Young fóru út
í geiminn í fyrsta tveggja manna
bandaríska geimfarinu Gemini 3.
1996 Fyrstu forsetakosningarn-
ar voru haldnar í kínverska lýð-
veldinu á Taívan.
1998
Kvikmyndin Tit-
anic vann til
ellefu Óskars-
verðlauna og
jafnaði þar með
met Ben Húr frá 1959.
Lokakafli Hringadróttins-
sögu jafnaði metið svo aftur
árið 2004.
24. mars
1931 Fluglínutæki notuð í fyrsta
skipti til björgunar á Íslandi.
Slysavarnadeildin Þorbjörn
bjargaði 38 manna áhöfn
franska togarans
Cap Fagnet.
1973
Kjarvals-
staðir á Mikla-
túni í Reykja-
vík voru
formlega opnaðir
með stórri sýningu á verkum Jó-
hannesar S. Kjarvals listmálara.
1974 Varðskipið Týr kom til
landsins.
1976 Argentínski her-
inn steypti Ísabellu Perón af
stóli.
1987 Albert
Guðmunds-
son iðnaðar-
ráðherra var
sakaður um að
vantelja greiðslur
til sín frá Hafskipum og sagði af
sér þess vegna. Eftir það stofn-
aði hann Borgaraflokkinn, sem
náði nokkru fylgi í kosningum
mánuði síðar.
1999 NATO varpaði sprengjum
á skotmörk í Júgóslavíu.
25. mars
1436 Dómkirkjan í Flórens var
vígð.
1807 Breska þingið bann-
aði þrælaverslun.
1821 Grikkir gerðu upp-
reisn gegn Tyrkjum og lýstu
yfir sjálfstæði.
1956 Selfosskirkja var vígð.
1957 Rómarsáttmálinn var
samþykktur með þátt-
töku Belgíu, Hollands, Lúxem-
borgar, Frakk-
lands, Ít-
alíu og Vestur-
Þýskalands.
1992
Alþingi afnam
sjötíu ára
gömul lög um bann
við löndun úr erlendum fiski-
skipum á Íslandi.
2001 Schengen-samstarfið tók
gildi á Norðurlöndunum.
A
lma Rut er Reykja-
víkurmær eins og
þær gerast bestar.
Allt frá bernsku hef-
ur hún látið velferð
fólks sig varða. Fjögurra ára
hjálpaði hún reglulega blind-
um manni að komast leiðar
sinnar, síðan hefur hún verið
að hjálpa fólki.
„Ég hef alltaf verið að
hjálpa fólki, það er það besta
sem ég geri. Ég er lærð-
ur rekstrartæknir en lærði
svo forvarnaráðgjöf og líka
lærði ég áfengisráðgjöf. Þetta
hjálpar mér í sjálfboðastörf-
um við að hjálpa útigangs-
fólki og andlega veiku fólki.
Ég hef staðið undanfarið í
bréfaskriftum við borgar-
stjóra og hans fylgifólk en
með litlum árangri. Ég varð
mjög reið þegar borgin ákvað
að setja hjá Kolaportinu skýli
fyrir reiðhjól í stað þess að
gera skýli fyrir útigangsfólk
sem deyr í þessum kulda sem
hefur verið. Mér finnst Jón
Gnarr hafa brugðist mér.“
Ölmu hefur alltaf lang-
að til að verða leikkona og
hefur meðal annars tekið
þátt í keppninni um fyndn-
asta mann Íslands. „Þá vildu
dómararnir að ég yrði fyndin
á eini mínútu en ég þarf
tvær,“ segir þessi lífsglaða
stelpa.
Leikkonudraumurinn
hefur ræst að nokkru þrátt
fyrir að dómarar í brandara-
keppnum skilji ekki þró-
aðan húmor sem tekur smá
stund. „Ég lék afgreiðslukonu
í myndinni Svartur á leik,
það er í fyrsta skipti sem ég
kemst á hvíta tjaldið. Ég mun
taka öll leiktilboð alvarlega,
mig langar enn að verða leik-
kona.“
Hún segist vera svo mikið
fiðrildi að margir draumar
breytist hratt og lífið geti
tekið óvæntar stefnur. Stærsti
dagur lífsins hafi til dæmis
verið þegar hún eignaðist
elsta og ljótasta hjólhýsið á
Laugavatni. „Ég er sígauni og
vil helst vera í lopasokkum
með nesti að semja ljóð. Ég
hef samið mikið af ljóðum og
á líklega um 300 ljóð núna.
Ég hef fengið tvö tilboð um
að gefa þau út. Kannski gef
ég þau bara til góðs málefnis
einn daginn. Það er svo gott
að semja ljóð. Sitja fyrir utan
ljóta hjólhýsið og pikka fal-
legt ljóð á símann. Þessi ljóð
eru sönn sýn á lífið. Þau eru
um allt, meðvirkni, hand-
rukkara, róna og ást.“
Hamingja afmælisins er
blönduð eftirsjá liðinna ára.
„Mér finnst þetta alveg aga-
legt að verða svona gömul,
ég vil ekkert eldast. Ætli ég
fái ekki hrukkur eða eitthvað
á afmælisdaginn,“ segir hún
með broskvíða á andlitinu.
„Afmælisveislan verður
heima hjá mér, ég er búin að
bjóða 40 manns en hef bara
pláss fyrir 15, en þröngt mega
sáttir sitja. Það verður bara
ást, umhyggja og heimabak-
að í afmælinu mínu.“
É
g er af Ströndum, fædd og
alin upp á Sandnesi við
Steingrímsfjörð og var þar
til tólf ára aldurs að ég fór
í Flensborgarskólann. Heima
byrjaði ég að vinna eitthvað um
leið og ég lærði að labba, svo-
leiðis var þetta í öllum sveitum
á þeim árum. Við vorum öll í
þessu systkinin og stundum
blaut og hrakin að eltast við
beljur eða bikkjur eða puða á
engjunum. Það var engin vél
komin þegar ég var ung og allt
gert með hestum og handafli.
Enda kom aldrei til greina að
verða bóndi. Það sem við vor-
um allt sumarið að gera er nú
gert á einum degi,“ segir Jórunn
brosmild þar sem hún stendur í
stórbakstri fyrir afmælið sitt.
Eftir nám í Flensborg fór
Jórunn aftur vestur og var þar
eitt ár en hélt aftur suður í nám.
„Ég var barn þegar ég ákvað
að verða hárgreiðsludama og
líklega verður það að teljast
einn af stóru dögunum í lífi
mínu þegar ég komst á samn-
ing á hárgreiðslunni. Það var
mjög erfitt þá að komast að hjá
meistara. En þetta gekk og ég
starfaði á stofum í áratugi.“
Eftir að Jórunn hætti að
fegra hár fólks fékkst hún við
verslunarstörf en er nú sest í
helgan stein og nýtur þess að
fara í sveitina og eiga stund
á ættaróðalinu. „Við förum
norður nokkrum sinnum á
hverju sumri og sækjum okkur
í kistuna, förum til berja og
svo förum við á handfæri til að
eiga fisk upp á veturinn, það
er svo gott að koma þarna og
vera alveg laus við allar þær
áhyggjur sem þurfti að hafa á
meðan búið var þarna án allra
véla og tækja. Ég er búin að
eiga heima í Hafnarfirði síðan
1965 þannig að þetta er fín til-
breyting.“
Þegar hún er spurð um
væntanlegt afmæli verður hún
glettin og segist ekki finna mik-
ið fyrir aldrinum. „Ég finn ekk-
ert fyrir þessu núna en ég man
vel hvað ég kveið ótrúlega fyrir
25 ára afmælinu, ég varð eitt-
hvað svo agalega gömul þá, en
nú finn ég ekkert fyrir þessu. Ég
hélt miklar veislur bæði þegar
ég varð þrítug og fertug. Fer-
tugsafmælið var alvöru partí.
Mikið af fólki og verulegt fjör.
En nú er maður auðvitað löngu
búin að hlaupa af sér öll horn.
Núna verður bara lítil veisla
fyrir vini og ættingja og bara
kökur eins og í barnaafmæli,“
segir Strandastúlkan broshýr
þar sem hún skiptir um köku
í ofninum ásamt því að hræra
krem á aðra.
48 23.–25. mars 2012 Helgarblað
Jón Gnarr brást mér
Alma Rut Lindudóttir fiðrildi 30 ára 24. mars
Jórunn Ólafsdóttir
hárgreiðsludama 70 ára 25. mars
„Bara kökur eins
og í barnaafmæli“
Stórafmæli
77 ára
Gloria Steinem, sem er heimsþekktur
femínisti, blaðamaður og stofnandi
Ms. magazine, á afmæli 25. mars.
44 ára
Damon Albarn, Íslandsvinur og
söngvari í Blur og Gorillaz, á afmæli
23. mars.
37 ára
Alyson Hannigan, sem er helst þekkt fyrir
hlutverk sitt í American Pie, Buffy the Vampire
Slayer og How I Met your Mother, á afmæli 24. mars.
Foreldrar
n Linda Emilía Karlsdóttir
sjúkraliði f. 1962
n Ásgeir Jónsson
vélamaður f. 1962
Maki
n Hafsteinn Freyr Gunnarsson
húsasmiður og nemi f. 1983
Börn
n Viktor Máni Hilmarsson
nemi f. 2001
n Sindri Steinn Þorsteinsson
nemi f. 2004
Systkin
n Thelma Rún Ásgeirsdóttir
nemi f. 1984
n Tanja Sól Valdemarsdóttir
nemi f. 1993
n Emilíanna Valdemarsdóttir
nemi f. 1994
n Helena Diljá Sigurðardóttir
nemi f. 2003
Foreldrar
n Ólafur Sigvaldason
bóndi f. 1910 – d. 1984
n Brynhildur Jónsdóttir
húsfreyja f. 1921 – d. 2002
Eiginmaður
n Ármann Þór Guðjónsson
húsasmiður f. 1942
Börn
n Óskar Þór Ármannsson íþrótta-
fræðingur f. 1965
Maki: Berglind Anný Guðjóns-
dóttir þroskaþjálfi f. 1966
Þeirra börn:
n Anna Ósk Óskarsdóttir f. 1989
n Sara Lind Óskarsdóttir f.
1997
n Hildur Aðalheiður
Ármannsdóttir ljósmóðir f. 1979
Maki: Baldur Óli Sigurðsson
kerfisfræðingur f. 1975
Þeirra börn:
n Daníel Freyr Baldursson
f. 2002
n Brynhildur Katla
Baldursdóttir f. 2006
n Hrafnhildur Irma
Baldursdóttir f. 2010
Systkin
n Guðbjörg Ólafsdóttir
húsmóðir f. 1943
n Guðmundur Ólafsson
sjómaður f. 1944
n Dögg Ólafsdóttir
húsmóðir f. 1945
n Jón Ólafsson kennari f. 1946
n Sigríður Ólafsdóttir
umönnun f. 1948
n Nanna Ólafsdóttir
saumakona f. 1950
n Guðný Ólafsdóttir
ræstitæknir í Noregi f. 1952
n Védís Ólafsdóttir
sjúkraliði f. 1954
n Sigvaldi Ólafsson
stýrimaður f. 1955
n Signý Ólafsdóttir
bankastarfsm. f. 1957
n Már Ólafsson sjómaður f. 1962
Hjálpsöm Alma Rut Lindudóttir sinnir sjálfboðastarfi og aðstoðar útigangsfólk.
Stórafmæli
Merkis-
atburðir