Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Blaðsíða 18
n Vantar framtíðarstefnu um öryggi íþróttamanna n Tíð hjartaáföll áhyggjuefni n Dýrt að senda íþróttamenn í rannsóknir
Langt á eftir öðrum ríkjum
18 Fréttir 23.–25. mars 2012 Helgarblað
Þ
að er full ástæða til þess að
hvetja forystumenn íþrótta
mála til þess að koma sem
fyrst á vinnureglum og móta
framtíðarstefnu um öryggi
íþróttamanna hér á landi.“ Þetta segir
Ragnar Danielsen, hjartasérfræðing
ur á hjartadeild Landspítala, í leið
ara í febrúarhefti Læknablaðsins. Þar
gerir Ragnar skyndidauða íþrótta
manna að umtalsefni. Aðeins er
tæp vika síðan þrautþjálfaður knatt
spyrnumaður á Englandi, Fabrice
Muamba, hneig niður í miðjum leik
Tottenham og Bolton í ensku bikar
keppninni af völdum hjartaáfalls.
Hröð og skipulögð viðbrögð lækna
liða beggja liða eru talin hafa gert
það að verkum að Muamba er á lífi í
dag og á ágætum batavegi.
Margir knattspyrnumenn hafa
látið lífið á undanförnum árum af
völdum hjartaáfalls. Pottur virðist
vera brotinn í eftirliti á íslenskum
íþróttamönnum eins og Ragnar
bendir á. Undir það tekur Kristinn
Kjærnested, formaður knattspyrnu
deildar KR.
Þörf á úrbótum
„Lið sem taka þátt í Evrópukeppnum
eru skyldug til að senda leikmenn
í tékk. Önnur lið eru það ekki,“ seg
ir Kristinn þegar hann er spurður
hvort leikmenn í meistaraflokki KR
séu sendir í skimun fyrir sjúkdóm
um sem geta valdið skyndidauða.
Af þessum orðum Kristins er ljóst að
meginþorri íslenskra knattspyrnu
manna eru ekki skyldugir til að fara
í slíka skimun.
Tilefni leiðarans sem Ragnar
skrifaði í Læknablaðið er rann
sókn sem gerð var á 105 íslenskum
íþróttamönnum og voru niðurstöður
hennar birtar í sama blaði. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna þörf
fyrir skimun á íslenskum íþrótta
mönnum á aldrinum 18 til 35 ára til
að móta leiðbeiningar fyrir lækna og
íþróttaforystuna. Fólst hún meðal
annars í að kanna tíðni áhættuþátta
í sjúkrasögu, skoðun á hjartalínu
riti og að meta umfang og kostnað
slíkrar skimunar.
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að
hjartaskoðun var óeðlileg hjá tutt
ugu íþróttamönnum, hjartalínurit
var greinilega óeðlilegt hjá 22 og lít
illega óeðlilegt hjá 23 íþróttamönn
um. Íþróttamennirnir sem skoðaðir
voru komu úr mörgum íþróttagrein
um, meðal annars frjálsum íþrótt
um, knattspyrnu, handbolta og
körfuknattleik. Í niðurstöðum
rannsóknarinnar segir: „Erlendar
rannsóknir benda til þess að með
reglubundinni skimun megi lækka
verulega tíðni skyndidauðatilvika
meðal ungra keppnisíþróttamanna.
Æskilegt er að forystumenn íþrótta
mála hér á landi móti sem fyrst regl
ur og framtíðarstefnu í þessu mikil
væga máli.“
Í greininni þar sem fjallað er
um niðurstöðurnar kemur fram að
skyndidauði meðal ungs keppn
isíþróttafólks sé sjaldgæft en vel
þekkt fyrirbæri. Rannsóknir bendi
til þess að skyndidauði sé 2,5 sinn
um algengari meðal ungmenna sem
stunda keppnisíþróttir en meðal
annarra ungmenna.
Langt á eftir
Kristinn segir að íslensk íþrótta
forysta sé langt á eftir öðrum þjóð
um þegar kemur að þessum öryggis
þætti hjá íþróttamönnum. Það rímar
við orð Ragnars í Læknablaðinu
sem bendir á að Ítalir hafi sýnt fram
á verulega lækkun á tíðni skyndi
dauða hjá ungum keppnisíþrótta
mönnum með reglulegri skimun
árum saman. „Við höfum mælt með
því að þeir fylgi þessum evrópsku
ráðleggingum sem eru til og byggja á
gríðarlega mikilli reynslu. Því skyldi
ekki það sama gilda hér á landi fyrir
okkar íþróttafólk,“ sagði Ragnar í við
tali við Sjónvarpið á miðvikudag þeg
ar hann var spurður um ráðleggingar
til íþróttaforystunnar á Íslandi.
Kristinn segir að þó að margt hafi
breyst til hins betra í eftirliti og með
höndlun á íþróttamönnum á undan
förnum árum þurfi að gera meira.
„Það sem hefur breyst er öll með
höndlun sem kemur að meiðslum.
Þar eru menn komnir með mjög
hæfa sjúkraþjálfara og lækna. En
það snýr frekar að kappanum þegar
hann tognar eða meiðist heldur en
akkúrat þessu,“ segir Kristinn og á
þar til dæmis við reglulega skimun
íþróttafólks.
Nóg að hafa sjúkraþjálfara
Íslensk knattspyrnulið eru ekki
skyldug til að hafa lækna til taks
meðan að á leikjum stendur og
þá eru þau ekki skyldug til að hafa
sjúkrabíl til taks. Kristinn segist vera
þeirrar skoðunar að bæta þurfi úr
þessu. „Það er nóg að hafa sjúkra
þjálfara. Þetta leiðir hugann að því
að á völlum er ekki alltaf sjúkrabíll
til taks. Það þarf oft að bíða eftir hon
um. Það er eitthvað sem mætti taka
til endurskoðunar,“ segir Kristinn og
bætir við að þessi atriði snúi ekki ein
göngu að leikmönnum heldur einnig
áhorfendum. Hann bendir á að um
síðustu helgi hafi faðir leikmanns í
Skotlandi fengið hjartaáfall á áhorf
endapöllunum með þeim afleið
ingum að hann lést. „Auðvitað eru
þeir kannski í meiri hættu þeir sem
eru inni á vellinum en áhorfendur
eru það vissulega líka. Þeim mun
meira öryggi þeim mun betur líður
mönnum.“ Kristinn bendir á að þjálf
ara hjá KR og fleiri starfsmenn séu
sendir á skyndihjálparnámskeið. Þá
eru tvö hjartastuðtæki til taks í KR
heimilinu.
Stendur á félögunum
Ómar Smárason, leyfis og markaðs
stjóri Knattspyrnusambands Ís
lands, segir í samtali við DV að
samkvæmt leyfiskerfi sambandsins
verði öll félög í efstu deild að senda
leikmenn í læknisskoðun. Sú skoð
un ætti að gefa til kynna ef þörf væri
á frekari rannsóknum. Ómar seg
ir síðan að þau fjögur félög í efstu
deild karla sem taka þátt í Evrópu
keppnum þurfi að gangast undir
miklu ítarlegri kröfur, þar á með
al hjartalínurit og ómskoðun til að
geta leikið í leikjum á vefum UEFA.
„Ef leikmaður hefur ekki undir
gengist þessa rannsókn getur við
komandi leikmaður ekki tekið þátt í
leikjum á vegum UEFA það árið. Fé
lög í öðrum deildum eru ekki skyld
ug til að gera þetta,“ segir Ómar. Að
spurður hvort til tals hafi komið að
breyta þessu og skylda öll félög í
efstu deild, bæði karla og kvenna,
til að gangast undir ítarlegri rann
sóknir en læknisskoðun, til dæmis
skimun fyrir áhættuþáttum skyndi
dauða, segir Ómar að það standi á
viðkomandi félögum.
„Þetta kostar bara peninga. Óm
skoðunin og þessi ítarlega rannsókn
er dýr og það eru félögin sem bera
þann kostnað,“ segir hann.
Ellefu þúsund á mann
Í rannsókninni sem birtist í Lækna
blaðinu í febrúar var einnig fjallað
um kostnað við skimun. Þar kem
ur fram að áætlað sé að kostnaður
við skimun hvers íþróttamanns sé
7.724 krónur ef miðað er við gjald
skrá Tryggingastofnunar ríkisins
fyrir skoðun og viðtal hjá hjartasér
fræðingu ásamt töku hjartalínurits.
Kostnaður við hjartaómun, sem al
gengast er að bætist við fyrri kostn
að hjá þeim íþróttamönnum sem
þarfnast frekari rannsókna, er rúm
ar 14 þúsund krónur. Ef fjórðungur
skimaðra íþróttamanna þurfa að
gangast undir hjartaómskoðun má
áætla að meðalkostnaður á mann
við skimun sé 11.247 krónur. Fyrir
íslensk íþróttafélög, sem mörg eru
í kröppum dansi fjárhagslega, er
þetta því ansi stór biti að kyngja.
Ómar segir að vissulega væri
Þörf á breytingum Kristinn Kjærnested
er formaður knattspyrnudeildar KR. Hann
segir að íslensk íþróttaforysta, knatt-
spyrnan sérstaklega, sé langt á eftir öðrum
ríkjum þegar kemur að öryggi leikmanna.
myNd Sigtryggur Ari
„ Í mörgum tilfell-
um er þetta bara
félagsmaður sem tekur
að sér að vera læknir við-
komandi félags.
„Þetta kostar bara
peninga. Óm-
skoðunin og þessi ítar-
lega rannsókn er dýr og
það eru félögin sem bera
þann kostnað.
Vantar framtíðarstefnu Í leiðara
Ragnars Danielsen, hjartasérfræðings á
Landspítalanum, í Læknablaðinu segir hann
að full ástæða sé til að hvetja forystumenn
íþróttamála til að koma sem fyrst á vinnu-
reglum og móta framtíðarstefnu um öryggi
íþróttamanna hér á landi. myNd SkjáSkot Af VEf
SjóNVArpSiNS
Antonio Puerta
28. ágúst 2007
félag: Sevilla FC
Aldur: 22 ára
n Puerta þótti mjög efnilegur knattspyrnu-
maður. Hann hneig niður í leik Sevilla og
Getafe í ágúst 2007. Hann lést á sjúkrahúsi
eftir að fengið hjartaáfall. Krufning leiddi í
ljós að Puerta var með hjartavöðvasjúkdóm
í hægri slegli.
Daniel Jarque
8. ágúst 2009
félag: RCD Espanyol
Aldur: 26 ára
n Daniel Jarque fékk hjartaáfall á æfingu
hjá spænska félaginu Espanyol sumarið
2009. Endurlífgunartilraunir báru ekki
árangur. Jarque lék fjölda landsleikja með
yngri landsliðum Spánar.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
fékk hjartaáfall Fabrice
Muamba, leikmaður Bolton,
fékk hjartaáfall í leik með liði
sínu um síðustu helgi. Snör
viðbrögð lækna beggja liða
urðu til þess að Muamba er á
lífi í dagmyNd rEutErS
Fengu hjartaáfall og létust