Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Side 58
Tískuskvísur í yfirstærð
n Nokkur skemmtileg erlend tískublogg frá tískuvitrum konum með mjúkar línur
58 Lífsstíll 23.–25. mars 2012 Helgarblað
Árfarvegir á
stofugólfinu
Fáir vita að hér á landi eru
framleiddar mottur og gólfteppi.
Þær Sigríður Ólafsdóttir og
Sigrún Lára Shanko reka
saman Mottuverksmiðjuna
Elívoga sem er til húsa í gömlu
áburðarverksmiðjunni í Gufunesi
þar sem Íslenska gámafélagið er
nú. Mottur þeirra eru handunnar,
tuftaðar mottur og þær stöllur
hafa unnið með árfarvegi í
mynstri hönnunarinnar og leitað
í íslenskar ár. „Við höfum rýnt í
landakort og myndir af landinu á
internetinu og unnið mynstur út
frá Tungnaá, Markarfljóti, Hofsá,
Múlakvísl og fleiri ám. Oft er hægt
að sjá myndir út úr landslaginu
í dýra-, manns- eða tröllslíki og
ekki er laust við að það leynist
einhver slík í mynstrunum okkar.
Allar motturnar eru unnar úr
íslenskri ull sem er alveg einstök
fyrir að vera slitsterk og falleg. Svo
ekki sé talað um margbreytilega
náttúrulegu litina á íslenska
sauðfénu.“
Motturnar eru seldar í Epal og
má bæði nota á veggi og gólf.
Hárgreiðslusýning
Útskriftarsýning Hársnyrtiskólans
fer fram föstudaginn 23. mars.
Sýningin er haldin í Súlnasal
Hótel Sögu en húsið verður
opnað klukkan 20. Sýningin er
hugsuð sem lokakafli í náminu
og þar fær hugmyndaflugið svo
sannarlega að leika lausum
hala. Á sýningunni má sjá alls
kyns hárútfærslur en sýningin
er alfarið unnin af nemendum
undir leiðsögn kennara
Hársnyrtiskólans. Aðgangur er
ókeypis og hvetja nemendur sem
flesta til að koma og kynna sér
nýjustu strauma í hártískunni.
Hönnuðir selja
34 íslenskir hönnuðir hafa lagt
undir sig húsnæðið sem áður hýsti
tískuvöruverslunina 17 á laugavegi
89. Þar ætla þeir að selja hönnun
sína dagana til 25. mars og er
þetta gert í tilefni Hönnunarmars
sem er í fullum gangi. Meðal
hönnuða sem selja hönnun sína
eru: Anderson & Lauth, Birna,
Bóas, Ella, Eygló, Helicopter,
Hlín Reykdal, Hringa, Igló, Kalda,
Kiosk, Mundi, E Steinunn, Ýr
og Ziska svo að einhverjir séu
nefndir. Auk þess er Gló með „pop
up“-veitingastað ásamt því sem
Rauði krossinn er með notuð föt
til sölu í kjallaranum svo eitthvað
sé nefnt.
Mikilvægt að þora
Kristín Kolbrún stofnaði nýlega bloggsíðu þar sem hún miðlar tískuráðum til kvenna í yfirstærð. Hún segir að
konur í stærri stærðum eigi að vera óhræddar við að klæðast flottum fötum sem þó sé oft erfitt að finna.
Þ
að voru svo margar stelpur
að slá mér gullhamra og
segja mér að ég væri í flottum
fötum og að þær fyndu ekkert
á sig. Mér fannst ég alltaf vera
að endurtaka mig þannig ég ákvað
bara að byrja að skrifa um þetta,“segir
Kristín Kolbrún Waage sem opnaði
tískubloggsíðuna kristinkolbrun.
blogspot.com á dögunum. Þar fetar
hún í fótspor erlendra tískuskvísa
sem teljast í yfirstærð samkvæmt
stærðarmælingum tískubúðanna. „Það
eru mjög margar úti með svona blogg,
margar hverjar vel stórar og flottar. Eftir
að ég byrjaði sjálf að blogga hef ég verið
að fylgjast mikið með þeim,“ segir hún.
Vantar skvísuföt í stærri stærðum
Kristín þekkir það sjálf að vera í
svokallaðri yfirstærð. Hún segist hafa
farið að hugsa um tísku í 10. bekk en
þá fljótlega séð að það væri ekki mjög
margt í boði. „Það þarf að leita vel og ég
geri það. Ég fer mikið í „second-hand“
búðirnar og þar má oft finna stelpulegri
föt í góðum stærðum,“ segir Kristín sem
segist versla mest í Dorothy Perkins,
Gyllta kettinum, Andrea boutique,
verslunum með notaðan fatnað auk
þess sem hún kaupir á netinu af
vefsíðunni asos.com.
„Ég passa stundum í föt úr þessum
„venjulegu“ búðum en yfirleitt eru
stærðirnar þar upp í stærð 16, stundum
bara 14,“ segir Kristín sem sjálf er
í stærð 18 á breskum mælikvarða.
Nokkrar búðir sérhæfa sig í fötum með
stærri stærðir en Kristín segist yfirleitt
ekki finna neitt þar. „Mér finnst oft í
þessum yfirstærðarbúðum vera meiri
konuföt. Mest einhverjar mussur og
beinar síðar svartar buxur. Mér finnst
alveg fáránlegt að það séu ekki til
skvísuföt fyrir þær sem eru í aðeins
stærri númerum. Ég skil ekki af hverju
búðirnar framleiða ekki fötin nokkrum
sentimetrum stærri því ég er alveg viss
um að þau myndu seljast.“
Mýkri konur þurfa að fela sig
Kristín segist alla tíð hafa verið í stærri
stærð en þyki venjulegt en sé fyrst núna
að sætta sig við það í stað þess að vera
stanslaust að reyna að minnka sig. „Það
er alltaf verið að senda þau skilaboð að
allir eigi að vera eins. Ég hef sjálf alltaf
haft þessi aukakíló en hugsa núna
meira um að vera heilbrigð en að passa
í þetta mót.“
Kristínu finnst stelpur í stærri
stærðum oft gefast upp á að leita að
smart fötum. „Stelpur sem ég hef talað
við og eru í stærri kantinum gefast
oft bara upp og fara bara í það sem
þær passa í. Þær eru oft bara í sömu
buxunum og til skiptis í hvora mussuna
yfir. Mér finnst að maður eigi alls ekki
að sætta sig við það af því að maður
passar í það heldur á frekar að klæðast
því sem maður er öruggur og flottur í.“
Leita vel
Með bloggsíðunni vill hún miðla af
reynslu sinni. „Ég veit að það er til
fullt flott þarna úti, þó það mætti vera
meira af því, en það er bara að leita. Ég
vildi líka með blogginu segja stelpum
að þær þurfi ekki að fela sig þrátt fyrir
að vera aðeins mýkri. Ég vil aðallega
benda á hvað er til og líka bara sýna alls
konar leiðir til að raða fötum saman.
Fá stelpur til að skoða hvað er til, máta
og skima svolítið. Finna í hverju þeim
líður og best og bara þora og ekki vera
að fela sig,“ segir hún.
Glæsileg Kristín í fallegum kjól úr Gyllta
kettinum en þar segist hún oft finna föt í
sinni stærð.
Flott Hér er Kristín töff í svörtum kjól
frá Andrea boutiqe en sú búð er í miklu
uppáhaldi hjá henni.
Tískuskvísa í yfirstærð
Kristín Kolbrún segir að
konur í yfirstærðum eigi að
vera óhræddar við að klæða
sig skvísulega. Hér er hún í
kjól frá Asos.com og með
uppáhaldshringinn sem kemur úr
smiðju Hendrikku Waage.
cupcakesclothes.com nadiaaboulhosn.
comfranticdreams.comcuriousfancy.comcom