Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Side 62
Baráttan um
Bestu Bitana
62 Sport 23.–25. mars 2012 Helgarblað
n Búist við miklu fjöri á leikmannamarkaðnum í sumar
„Ljóst er að
fjölmörg
lið munu berjast
um Gylfa
N
ú þegar aðeins nokkrar
umferðir eru eftir í stærstu
knattspyrnudeildum Evr-
ópu er viðbúið að flest
stórliðin séu farin að líta í
kringum sig eftir liðsstyrk. Félaga-
skiptaglugginn opnast þann 1. júlí
næstkomandi, eða í þann mund
sem Evrópumótinu í Póllandi og
Úkraínu lýkur. DV tekur hér sam-
an nöfn nokkurra vel þekktra leik-
manna sem viðbúið er að barist verði
um og munu hugsanlega skipta um
lið í sumar. Meðal þeirra eru Carlos
Tevez, Eden Hazard og Fernando
Torres.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Carlos Tevez
Félag: Manchester City Aldur: 28 ára Landsleikir
(mörk): 59 (13) Áhugasöm lið: Milan, Inter, Real
Madrid og Corinthians Mögulegur verðmiði: 30
milljónir punda
n Argentínumaðurinn Carlos Tevez
hefur ekki verið í náðinni hjá Roberto
Mancini, stjóra Manchester City, í vetur.
Eitthvað hefur þó birt til í samskiptum
þeirra að undanförnu og er Tevez
kominn aftur inn í aðalliðið. Þrátt fyrir
það er viðbúið að Tevez fari frá Englandi
í sumar enda hefur hann lýst yfir óbeit
sinni á landinu. Ekki þykir útilokað að
Tevez fari til Ítalíu en bæði Inter og
Milan voru í viðræðum við City um kaup
á leikmanninum í janúar. Spánn gæti
einnig verið kostur fyrir Tevez en Real
Madrid ku einnig hafa áhuga. Þá reyndi
brasilíska liðið Corinthians að kaupa
hann í fyrra.
Eden Hazard
Félag: Lille Aldur: 21 árs Landsleikir (mörk): 26 (1)
Áhugasöm lið: Manchester United, Manchester City,
Tottenham, Liverpool og Real Madrid Mögulegur verð-
miði: 25–30 milljónir punda
n Belginn Eden Hazard er talinn vera eitt
mesta efni Evrópu um þessar mundir. Hann
hefur farið á kostum með Lille og hafa Sir
Alex Ferguson og Roberto Mancini báðir
farið til Frakklands til að horfa á hann spila.
Talið er fullvíst að Hazard fari frá Lille í
sumar og mun hann væntanlega geta valið
úr tilboðum. Ensku stórliðin Manchester
United, Manchester City, Liverpool og
Tottenham eru öll sögð hafa áhuga. Hazard
hefur þó sjálfur gefið til kynna að hann
myndi velja spænsku liðin Barcelona eða
Real Madrid frekar en þau ensku.
Fernando Torres
Félag: Chelsea Aldur: 28 ára Landsleikir (mörk): 91 (27)
Áhugasöm lið: Milan, Juventus og Malaga Mögulegur
verðmiði: 20–25 milljónir punda
n Þó svo að Fernando Torres hafi ekki sýnt
sitt rétta andlit hjá Chelsea vita allir hvers
hann er megnugur. Ekki þykir ólíklegt að
Chelsea selji Torres í sumar en það veltur
þó á frammistöðu hans í síðustu leikjum
tímabilsins. Frá því að Torres gekk í raðir
Chelsea frá Liverpool í ársbyrjun 2011 hefur
hann einungis skorað 3 mörk í 36 deildar-
leikjum og samtals 7 mörk í 52 leikjum. Það
er of lítið fyrir framherja sem kostaði 50
milljónir punda. Talið er að ítölsku félögin
Juventus og Milan hafi áhuga og gætu gert
tilboð í sumar. Þá hefur leikmaðurinn verið
orðaður við spænska félagið Malaga.
Gylfi Sigurðsson
Félag: Hoffenheim (lánsmaður hjá Swansea) Aldur:
22 ára Landsleikir (mörk): 7 (1) Áhugasöm lið:
Inter, Juventus, Atletico Madrid, FC Bayern, Liverpool,
Arsenal, Aston Villa, Manchester United og Fulham
Mögulegur verðmiði: 10–12 milljónir punda
n Þó svo að Gylfi Sigurðsson sé ekki
þekktasta nafnið í knattspyrnuheim-
inum taka sífellt fleiri eftir hæfileikum
þessa frábæra leikmanns. Frábær
frammistaða hans með Swansea í ensku
úrvalsdeildinni hefur vakið athygli stóru
liðanna en afar ólíklegt er að Gylfi fari
aftur til Hoffenheim eftir að lánsdvöl
hans hjá Swansea lýkur. Ljóst er að
fjölmörg lið munu berjast um Gylfa
en hann hefur verið orðaður við fjölda
félaga að undanförnu. Gylfi hefur skorað
fimm mörk fyrir Swansea í níu leikjum og
þar að auki lagt upp þrjú mörk.
Robin van Persie
Félag: Arsenal Aldur: 28 ára Landsleikir (mörk):
62 (25) Áhugasöm lið: Barcelona, Real Madrid,
Manchester City og Milan Mögulegur verðmiði: 30+
milljónir punda
n Hollendingurinn Robin van Persie
hjá Arsenal hefur verið besti leikmaður
ensku deildarinnar í vetur. Ótrúleg
frammistaða hans hefur vakið athygli
stórliðanna Barcelona og Real Madrid
samkvæmt spænskum fjölmiðlum. Ef
það er einhver leikmaður sem Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, vill ekki missa er
það van Persie. Arsenal hefur gengið illa
að halda sínum bestu leikmönnum og
eru Cesc Fabregas og Samir Nasri góð
dæmi um það. Samningur hans rennur
út árið 2013 og vill van Persie ekki ræða
við Arsenal um nýjan samning fyrr en
í vor. Þó að ólíklegt sé að van Persie
fari frá Arsenal í sumar er viðbúið að
stórliðin muni spyrjast fyrir um hann og
reyna allt til að landa honum.
Jan Vertonghen
Félag: Ajax Aldur: 24 ára Landsleikir (mörk): 36 (2)
Áhugasöm lið: Tottenham, Arsenal, Manchester United og
Newcastle Mögulegur verðmiði: 12–14 milljónir punda
n Jan Vertonghen er einn eftirsóttasti varn-
armaður Evrópu um þessar mundir og hefur
þessi ógnarsterki Belgi verið orðaður við
flest stóru liðin á Englandi. Talið er öruggt
að Vertonghen yfirgefi Ajax í sumar og hafa
Lundúnaliðin Arsenal og Tottenham einna
helst verið nefnd til sögunnar. Manchester
United og Newcastle hafa einnig fylgst með
leikmanninum en líklegra þykir að hann endi
hjá Tottenham eða Arsenal.
Einnig verður
barist um þessa:
n Nigel de Jong, Manchester City
n Seydo Keita, Barcelona,
n Javi Martinez, Atheltic Bilbao
n Alex Song, Arsenal
n Daniele de Rossi, Roma
n Axel Witsel, Benfica
n Hulk, Porto
n Lukas Podolski, Köln
n Nicolas Gaitán, Benfica
n Gonzalo Higuain, Real Madrid
n Mario Goetze, Borussia Dortmund
n Mauricio Isla, Udinese
n Milos Krasic, Juventus
n Olivier Giroud, Montpellier
n Edin Dzeko, Manchester City
Stórleikur
í enska
Heil umferð fer fram í ensku
úrvalsdeildinni um helgina.
Stórleikur helgarinnar er án efa
viðureign Chelsea og Tottenham
á Stamford Bridge á laugardag
en bæði lið eru í harðri baráttu
um sæti í Meistaradeild Evrópu.
Manchester City á erfiðan útileik
fyrir höndum gegn Stoke síðdegis
á laugardag á meðan Liverpool á
heimaleik gegn Wigan. Everton
sér fram á erfiðan útileik gegn
Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum
hans í Swansea. Bolton og
Blackburn mætast í miklum
botnslag á heimavelli Bolton en
þetta er fyrsti leikur Bolton eftir að
Fabrice Muamba hneig niður af
völdum hjartaáfalls.
Umferðin klárast á mánudag
en þá tekur topplið Manchester
United á móti Fulham.
Óánægður
með Balotelli
„Ég var ekki ánægður með
frammistöðu hans. Þess vegna tók
ég hann af velli,“ sagði Roberto
Mancini, stjóri Manchester City,
um ástæðuna fyrir því að hann
tók Ítalann Mario Balotelli af velli
í hálfleik gegn Chelsea. Balotelli
fór illa með dauðafæri um miðjan
fyrri hálfleik og var lítið áberandi
í daufum sóknarleik City í fyrri
hálfleik.
Skiptingin virðist hafa haft
góð áhrif á liðið því það lék mun
betur í síðari hálfleik og vann á
endanum sanngjarnan 2–1 sigur.
City er nú einu stigi á eftir toppliði
Manchester United.
Kuyt ánægður
með Suarez
Hollendingurinn Dirk Kuyt hjá
Liverpool hrósar liðsfélaga sínum,
Luis Suarez, í hástert og segir að
hann sé að nálgast sitt besta. Tími
Suarez hjá Liverpool hefur ekki
beint verið dans á rósum en hann
afplánaði átta leikja bann fyrr á
tímabilinu vegna ummæla sem
hann lét falla við Patrice Evra,
leikmann Manchester United.
„Ég tala mikið við Suarez
og hann hefur alltaf verið
ánægður hjá félaginu. Luis var
frábær gegn Stoke og skoraði
heimsklassamark. Ég vona að
hann verði hér í mörg ár í viðbót,“
segir Kuyt en Suarez hefur leikið
vel í síðustu leikjum Liverpool.