Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 29
Fólk 29Miðvikudagur 11. júlí 2012 K yle Glover, 11 ára gamall stjúpsonur poppstjörnunn- ar Usher, lenti í alvarlegu slysi fyrir helgi þegar að hann varð fyrir svokallaðri sjóþotu eða Jet-ski. Hann var svo á mánudag úrskurðaður heiladauður eftir slysið. Frá þessu greinir vefsíð- an TMZ en Kyle er sonur fyrrverandi eiginkonu Ushers, Tameku Foster. Kyle var ásamt 15 ára gamalli vin- konu sinn á uppblásinni blöðru á Lanier-vatni í Georgíu-fylki þegar keyrt var á þau á vatninu með fyrr- greindum afleiðingum. Vinir Usher hafa lýst yfir stuðn- ingi við hann og fjölskyldu Tameku á Twitter. Margir, til að mynda Fantasia og Russell Simmins kvöttu fólk til að biðja. Usher og Tameka hafa staðið í hatræmum skilnaðardeilum en þrátt fyrir það leigði Usher einkaþotu fyrir fyrrverandi um leið og hann heyrði af slysinu til að Tameka gæti komist á sjúkrahúsið. Þar sem Usher hitti þau svo fyrir skömmu seinna. T ónlistarmaðurinn Chris Martin og leikkonan Gwyn- eth Paltrow hafa aldrei verið þekkt fyrir að flagga einkalífi sínu að óþörfu. Það kom því aðdáendum hljóm- sveitarinnar Coldplay á óvart þegar Martin, sem er söngvari sveitar- innar, stökk óvænt niður af sviðinu á tónleikum í Miami og hljóp inn í miðjan áhorfendaskarann, fann eiginkonuna og skellti á hana kossi áður en hann hljóp til baka. Leik- konan brosti vandræðalega yfir uppákomunni en nærstaddir tón- leikagestir voru fljótir að átta sig og tóku myndir af kossinum á símana sína. Paltrow er greinilega lítið fyrir ástúð á almannafæri og faldi and- lit sitt með höndum sínum á með- an hún jafnaði sig. Hjónakornin hafa verið gift frá árinu 2003 og eiga saman tvö börn, Apple, sem er átta ára, og Moses, sex ára. S tjörnuparið Blake Lively úr Gossip Girl og kvenna- gullið Ryan Reynolds létu vel hvort að öðru þegar þau heimsóttu systur leikkonunnar um helgina. Blake og Ryan léku við krakka systur Blake, Robyn Lively, og laumuðu kossum hvort á annað þess á milli. Blake sem er 24 ára og Ryan sem er 35 ára, hafa verið saman síðan í október á síðasta ári en þau kynntust við tökur á myndinni the Green Lantern. Ryan var áður giftur leikkonunni Scarlett Johansson en þau skildu á Þorláksmessu 2010.Stjúpsonurinn heiladauður n Stjúpsonur Usher varð fyrir sjóþotu Kossaflens á almannafæri n Chris Martin gerði hlé á tónleikum til að kyssa eiginkonuna Gwyneth Paltrow og Chris Martin Leikkonan faldi andlit sitt á meðan hún jafnaði sig eftir uppákomuna. Usher og Tameka Ásamt sonum hennar en Kyle stendur lengst til hægri. Ástfangin í fjölskylduferð n Blake Lively og Ryan Reynolds Ástfangin Blake Lively og Ryan Reynolds. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.