Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 24
24 Sport 11. júlí 2012 Miðvikudagur Terry svarar fyrir sig n Mál Antons Ferdinand og Johns Terry fyrir breskum dómstólum É g hef verið kallaður öll- um illum nöfnum inn- an vallar sem utan. En að vera kallaður rasisti er eitthvað sem ég sætti mig ekki við,“ sagði John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins í knattspyrnu, fyrir breskum dómstólum á þriðjudag. John Terry hefur verið ákærður fyr- ir að hafa haft kynþáttafor- dóma í frammi gegn Anton Ferdinand, leikmanni QPR, í leik liðanna í október í fyrra. Réttarhöldin hófust á mánudag og þeim var fram haldið á þriðjudag. Terry er meðal annars sagður hafa kallað Ferdinand „svartan drullusokk“ (e. black cunt) í leiknum en Ferdinand er dökkur á hörund. Terry hefur staðfastlega neitað sök í málinu. Leik- mönnunum lenti saman und- ir lok leiksins í vítateig QPR og viðurkennir Ferdinand að hafa reynt að espa Terry upp með því að rifja upp ástar- samband hans við kærustu liðsfélaga síns, Wayne Bridge. Terry heldur því þó fram að Ferdinand hafi misheyrst þegar hann svaraði honum og Ferdinand spurt, Terry að óvörum, hvort hann hafi virkilega kallað sig „svartan drullusokk“. Terry hafi endur- tekið orðin og sagt að Ferdin- and væri „fábjáni“ ef hann héldi raunverulega að hann hefði kallað hann „svartan drullusokk.“ Terry segist hafa talað við Ferdinand eftir leikinn til að hafa það alveg á hreinu að Ferdinand hefði ekki misskil- ið orð sín. Ferdinand hafi sagt honum að allt væri í góðu og engir eftirmálar yrðu af atvik- inu. Síðan virðist Ferdinand hafa snúist hugur og tilkynnt málið til lögreglunnar. Dóms í málinu er að vænta innan fárra vikna. Lance Arm- strong í hart Lance Armstrong, sjöfald- ur meistara Frakklandshjól- reiðanna, Tour de France, hefur ákveðið að stefna bandaríska lyfjaeftirlitinu. Lyfjaeftirlitið kærði Arm- strong á dögunum vegna rökstudds gruns um að hann hafi neytt ólöglegra lyfja á árunum 2009 til 2010. Armstrong hefur nú komið með krók á móti bragði og kefst þess að dómari stöðvi málsókn bandaríska lyfja- eftirlitsins gegn honum. Armstrong byggir kröfu sína meðal annars á ákvæð- um í bandarísku stjórnar- skránni. Armstrong hef- ur frest til næstkomandi laugardags til að taka af- stöðu til kærunnar. Verði hann fundinn sekur um lyfjamisnotkun gæti hann átt yfir höfði sér lífstíðar- bann frá hjólreiðakeppnum auk þess að eiga á hættu að verða sviptur titlum sínum í Tour de France. Armstrong hefur staðfastlega neitað sök. Þ ó að kínverska lands- liðið í knattspyrnu sitji einungis í 68. sæti á heimslista FIFA flykkjast stór- stjörnur úr Evrópu til lands- ins. Rétt eins og efnahag- ur landsins hefur kínverski fótboltinn verið á stöðugri uppleið og eru stærstu lið landsins farin að eyða millj- örðum króna í leikmenn. Di- dier Drogba, fyrrverandi leik- maður Chelsea og einn besti sóknarmaður heims, samdi nýlega við Shanghai Shenua þar sem hann mun hitta fyrir fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Chelsea, Nicolas Anelka. Þess má einnig geta að stjóri liðsins er Sergio Batista, fyrrverandi landsliðsþjálfari Argentínu. Seydou Keita, fyrrverandi leikmaður Barcelona, samdi einnig við kínverskt félag í vikunni rétt eins og fleiri leik- menn hafa gert undanfarna mánuði. 150 milljónir á mánuði Uppganginn í kínverska bolt- anum má að stærstum hluta þakka blómstrandi efna- hag sem einkennt hefur Kína undanfarin ár. Sífellt fleiri eru orðnir stóreignamenn og hefur það skilað sér inn í knattspyrnuna. Flestir þeirra leikmanna sem farið hafa til Kína á undanförnum misser- um eru komnir á síðustu ár ferils síns. Didier Drogba er orðinn 34 ára en hann hefði líklega ekki getað fengið betri samning hjá neinu af topp- liðum Evrópu. Samkvæmt upplýsingum breskra fjöl- miðla fær Drogba 1,2 millj- ónir dala á mánuði, eða rúm- lega 150 milljónir króna, sem er mun meira en toppleik- menn í mörgum af bestu lið- um Evrópu fá í laun. Bóla sem mun springa Þó svo að uppgangurinn hafi verið mikill í Kína eru sumir efins um að þetta sé það sem koma skal. „Ég held að þetta geti enst í tvö til þrjú ár í við- bótar. Ástæðan er sú að þessi lið þurfa gríðarlega sterka bakhjarla til að halda þessu gangandi,“ segir Lou Yichen, knattspyrnusérfræðingur í Kína, í samtali við Reuters. Hann telur að um „boltabólu“ sé að ræða sem að lokum muni springa. „Mitt mat er að þetta sé ekki sjálfbær þróun því flest þessara liða standa ekki undir þessum fjárfesting- um til lengri tíma,“ segir hann. Það að leggja mikinn pening í verkefni sé engin ávísun á að þeir peningar skili sér til baka. Kostir og gallar Fan Yun, fyrrverandi leik- maður Shanghai Shenua, er ekki alveg jafn svartsýnn og Lou Yichen. „Það eru kostir og gallar við þetta. Þegar þú færð svona stór nöfn í kín- versku deildina mun það skila sér til yngri kynslóðar- innar. Áhuginn á fótbolta mun glæðast og það mun koma kínversku knattspyrn- unni til góða þegar fram líða stundir,“ segir Yun en bætir þó við að leggja þyrfti meiri áherslu á að rækta unga knattspyrnumenn í Kína. Sem fyrr segir eru Kínverjar í 68. sæti á heimslistanum og fyrir ofan eru ríki á borð við Haíti, El Salvador og Síerra Leóne. Kínverjar eru úr leik í undankeppni HM 2014 og nokkuð ljóst að margt þarf að gerast til að Kínverjar komist í fremstu röð í knattspyrnu- heiminum. n Fyrir dómi John Terry mætir í dómsal á þriðjudag. Hann neitar sök. MYND REUTERS PENINGARNIR ERU Í KÍNA n Drogba fær 150 milljónir á mánuði n Efasemdir um „kínversku boltabóluna“ „Ég held að þetta gæti enst í tvö til þrjú ár í viðbótar. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Þekktir leikmenn og stjórar í Kína Didier Drogba Shanghai Shenhua Nicolas Anelka Shanghai Shenhua Giovanni Moreno Shanghai Shenhua Sergio Batista, stjóri Shanghai Shenhua Seydou Keita Dalian Aerbin Fábio Rochemback Dalian Aerbin Yakubu Aiyegbeni Guangzhou R&F Darío Conca Gunagzho Evergrande Lucas Barrios Gunagzho Evergrande Marcelo Lippi, stjóri Gunagzho Evergrande Sigurvegari Aðeins örfáum dögum eftir að hafa tryggt Chelsea sigur í Meistara- deild Evrópu ákvað Didier Drogba að ganga í raðir Shanghai Shenua. Þar fær Drogba 150 milljónir króna á mánuði. MYND REUTERS Borini til Liverpool Walter Sabbatini, íþróttastjóri ítalska úrvals- deildarfélagsins Roma, hef- ur staðfest að Liverpool hafi mikinn áhuga á Fabio Borini, framherja félags- ins. Borini, sem er aðeins 21 árs, þekkir vel til Brendans Rodgers, stjóra Liverpool, en Borini var lánsmaður hjá Swansea þegar Rod- gers var stjóri þar. Leikmað- urinn skoraði 9 mörk í 24 leikjum með Roma í ítölsku deildinni í vetur og vann hann sér inn sæti í ítalska landsliðið í sumar. „Við sjá- um til hvað verður,“ segir Sabbatini og útilokar ekki að leikmaðurinn verði seldur til Liverpool. Talið er líklegt að Liverpool þurfi að reiða fram átta milljónir punda, eða 1,6 milljarða króna, fyrir leik- manninn. Paddy Kenny til Leeds Paddy Kenny, markvörður- inn litríki í liði QPR, mun á næstu dögum ganga í rað- ir Leeds. Þetta var ljóst eftir að QPR samþykkti 400 þús- und punda tilboð Leeds í leikmanninn. Kenny, sem er 34 ára, skrifar að öllum líkindum undir þriggja ára samning. Knattspyrnustjóri Leeds er Neil Warnock en hann og Kenny hafa unnið saman áður, bæði hjá QPR og Sheffield United.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.