Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 13
Stal bifreið og braust inn n Síbrotamaður dæmdur til tíu mánaða fangelsisvistar Í var Aron Ævarsson, þekkt­ ur síbrotamaður, hefur verið dæmdur til tíu mánaða fangelsis­ vistar fyrir ýmis brot. Tveir aðrir voru í vitorði með honum þegar flestir glæpirnir voru framdir. Allir þrír voru ákærðir fyrir að hafa, í byrjun júnímánaðar, tekið bifreið ófrjálsri hendi og ekið henni um götur höfuðborgarsvæðis­ ins og um Suðurlandsveg og skil­ ið hana svo eftir. Þá hafi þeir dælt eldsneyti á sömu bifreið og ekið brott án þess að greiða fyrir. Sama kvöld brutust þeir inn í þrjú íbúðarhús og stálu þaðan ýmsum hlutum, svo sem raftækj­ um, áfengi, skartgripum og öðrum verðmætum. Ívar Aron var sjálfur dæmdur fyrir fleiri brot, sem hann framdi einn síns liðs. Hann hafi ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna, ver­ ið gómaður með fíkniefni á sér og framið tvö innbrot að auki. Í hinu fyrra braust hann inn í Kertasmiðj­ una ehf. í Skeiða­ og Gnúpverja­ hreppi og stal þaðan sígarettum, gosdrykkjum, sælgæti, skiptimynt og símakortum, samtals að verð­ mæti 270.781 krónur. Í hinu síð­ ara braust hann inn í íbúðarhús og stal þaðan lyklum og sólgler­ augum. Flest brotin áttu sér stað á þessu ári. Sakborningarnir játuðu all­ ir skýlaust brot sín. Ívar Aron er elstur þremenninganna en hann er fæddur árið 1986. Hann er þekktur síbrotamaður og hef­ ur margoft komist í kast við lög­ in, meðal annars fyrir auðgunar­, fíkniefna og ofbeldisbrot. Hinir tveir eru fæddir árið 1993 og varð ungur aldur þeirra til þess að refs­ ing var milduð. Ívar Aron var sviptur ökurétt­ indum ævilangt og hann þarf að greiða tæplega 750 þúsund krónur í sakar­ og málskostnað. Hinir tveir þurfa að greiða 150 þúsund annars vegar og 175 þúsund hins vegar í sakar­ og málskostnað. Vitorðsmenn Ívars hlutu þriggja mánaða skilorðsbundinn fangels­ isdóm hvor. GJALDÞROTASLÓÐ FORSVARSMANNS „Ég held hann hafi bara verið að reyna að vinna þjóðinni gagn. Það hafa allir sín- ar skoðanir á því hvernig hann vann. B jörgvin Þór Þorsteinsson, sem tekinn var fyrir í þættinum Kompási árið 2008, stendur á bak við vefsíðuna likes.is þar sem fólki er boðið að fá greitt fyrir að „læka“ Facebook­síður. Þegar Björgvin birtist í Kompási hafði hann auglýst eftir fólki sem væri á barmi gjaldþrots og hugðist greiða því fyr­ ir að fá aðgang að kennitölum þess og hlaða á það eignum. Umsjónar­ menn likes.is hafa auglýst vefinn í fjöl­ mörgum fjölmiðlum, en svo virðist sem rúmlega 850 manns noti síðuna reglulega. Enginn notandi hefur enn­ þá getað leyst út fé af reikningi sínum, en greiðslur fyrirtækja til vefsíðunnar nema hundruðum þúsunda. „Hugsað fyrir litla manninn“ Starfsemin gengur þannig fyrir sig að fyrirtækjum og einstaklingum eru seldar inneignir á vefinn, en fjárhæðirnar deilast svo á óbreytta notendur hans, það er fólkið sem „lækar“, „tweetar“ og horfir á Youtu­ be­myndbönd gegn þóknun. Fram kemur þó á síðunni að notend­ ur verði að hafa safnað að lágmarki 20.000 króna inneign til að fá borg­ að og aðeins séu greidd 50 prósent hverju sinni af upphæðinni sem fólk safnar á reikningana sína. Skrái notandi sig ekki inn á síðuna í þrjá mánuði fyrnist inneign hans. Ómar Waage, einn af umsjónar­ mönnum síðunnar, segir í samtali við DV að vefurinn sé hugsaður fyr­ ir litla manninn. Hér sé um að ræða nokkurs konar markaðstorg fyrir fyr­ irtæki. „Ef þú vilt auglýsa þitt fyrir­ tæki og kaupir kannski þúsund krón­ ur í inneign þá fer sá peningur inn á reikning hjá notendum sem „læka“, útskýrir Ómar. „Ef þú kaupir 1.000 króna inneign geturðu keypt þér 10 „læk“ eða 50 „læk“, allt eftir því hvað þú vilt borga fyrir hvert og eitt. Þegar einstaklingur hefur safnað meira en 20 þúsund krónum getur hann tekið upphæðina út eða notað hana til að markaðssetja sjálfan sig.“ Gjaldþrot og vanskil ársreikn- inga Vefurinn likes.is er skráður á félag Björgvins Þórs, BO ehf., en Ómar Waage er umsjónarmaður vefsins. Björgvin Þór og kona hans eiga sjö einkahlutafélög, meðal annars Sól­ baðsstofuna Sportsól. Öll fyrirtæk­ in hafa vanrækt skil á ársreikning­ um síðustu árin og sum þeirra hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta. Að Hnjúkabyggð 4 á Blönduósi hafa að minnsta kosti sjö fyrirtæki aðset­ ur sem tengjast Ómari Waage. Ekk­ ert af fyrirtækjunum sem skráð eru á þessum stað hefur skilað ársreikn­ ingum síðustu þrjú árin. Aðspurður um kennitölurnar bendir Ómar á að það sé ekkert ólöglegt við það að eiga margar kennitölur. „Þetta er bara líkt og að eiga marga bíla,“ segir hann. Enginn fengið greitt fyrir „læk“ „Við eigum báðir fyrirtækið,“ segir Ómar um BO ehf. og vefsíðuna likes. is. „Björgvin er bara skráður fyrir því eins og er. Við færðum vefsíðuna yfir á aðra kennitölu af því við áttum báðir hlut í því í staðinn fyrir að fá aðra kennitölu hjá ríkisskattstjóra og sýslumanni,“ segir Ómar enn frem­ ur. Meðal þeirra vefsíðna sem keypt hafa inneign á likes.is eru 2fyrir1.is, leikhus.is og iPhone.is. Í samtali við starfsmann fyrirtækisins kemur fram að enginn notandi hafi safnað nægi­ lega hárri upphæð til að geta leyst út fé af aðgangi sínum. Sá sem safn­ að hefur mestu þegar þetta er skrifað á rúmlega 10.000 króna inneign. Þá nema fjárhæðirnar sem streymt hafa frá þeim fyrirtækjum og einstakling­ um sem bjóða „læk“ gegn greiðslu nokkrum hundruðum þúsunda. Aðspurður hvaðan stofnfé fyrir­ tækisins kemur segir Ómar Waage að nokkrir fjárfestar standi á bak við fyrirtækið, en þeir vilji ekki láta nafns síns getið. Ómar er sannfærður um að starfsemi vefsíðunnar sé í samræmi við notendaskilmála Facebook, en öðru hefur verið haldið fram á spjall­ síðum veraldarvefsins. „Ef við værum að selja „lækin“ beint, þá væri þetta brot á skilmálum Facebook, en við seljum ekki „lækin“ heldur inneign­ irnar. Það eru til svipaðar síður í út­ löndum sem ekki hefur verið lokað,“ segir Ómar Waage. Vafasöm fortíð eigandans Um viðskiptafortíð Björgvins seg­ ir Ómar að Björgvin hafi aldrei gert neitt ólöglegt: „Ég held hann hafi bara verið að reyna að vinna þjóðinni gagn. Það hafa allir sínar skoðanir á því hvernig hann vinn­ ur.“ Í desember árið 2008 mynd­ uðu fréttamenn þáttarins Komp­ áss fund Björgvins við ungt par sem þóttist vera skuldsett. Þá bauðst Björgvin til að kaupa kennitöl­ ur fólksins gegn því að fá að hlaða þær eignum, enda væri fólkið hvort eð er á leið í gjaldþrot. Á fundin­ um viðurkenndi Björgvin að við­ skiptin væru vafasöm og sagði orð­ rétt: „Þetta er náttúrulega siðlaust, en þetta er ekki ólöglegt.“ Jafnframt sagði hann að verið væri að „spila með einstaklinga sem eru að fara í þrot.“ Starfsmaður efnahagsbrota­ deildar lögreglunnar lýsti athæfi Björgvins sem svívirðilegu. Ekki náðist í Björgvin við vinnslu frétt­ arinnar. n Lofar að greiða fólki fyrir að „læka“ vefsíður Björgvin Þór Björgvin er eigandi likes.is en árið 2008 stundaði hann viðskipti sem voru „lögleg en siðlaus“ að hans eigin sögn. SKJÁSKOT AF FACEBOOK Fréttir 13Miðvikudagur 11. júlí 2012 Likes.is Umsjónarmenn vefsins lofa greiðslum gegn því að fólk „læki“ vefsíður.Á LAUNUM ÆVILANGT n Sex fyrrverandi hæstaréttardómarar fá ennþá greidd full laun n Rétturinn tryggður í stjórnarskrá þeim dómurum sem ráðn­ ir eru í staðinn sömu laun. Rétt er að taka fram að mismunandi ástæður liggja að baki því að dómararnir létu af störfum. Fangelsi Ívari var gert að sæta tíu mánaða fangelsi og greiða 750 þúsund krónur í sakar- og málskostnað. Öruggur Stjórnarskráin tryggir Jóni Steinari rétt til ríkulegra launa eftir að hann hættir störfum sem dómari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.