Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Qupperneq 2
Þ
jóðaröryggisnefnd sem skip-
uð var í fyrra skilar vænt-
anlega af sér á næstu vik-
um. Hlutverk hennar er að
fjalla um og gera tillögur
um stefnu sem tryggi þjóðaröryggi
Íslands á grundvelli her- og vopn-
leysis. Þá á hún að kanna grundvöll
þess að setja á stofn sjálfstætt rann-
sóknarsetur á Íslandi á sviði utan-
ríkis- og öryggismála. Í nefndinni
starfa tíu þingmenn, fulltrúar úr öll-
um flokkum. Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra mælti í lok síð-
asta árs fyrir stofnun nefndarinn-
ar. Þá sagði hann tillögu sína byggða
á þeirri forsendu að eitt af grund-
vallarhlutverkum stjórnvalda sé að
tryggja öryggi þjóðarinnar.
Net- og matvælaöryggi
Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks stóð fyrir stofnun
Varnar málastofnunar árið 2008.
Stofnunin fór með varnartengd verk-
efni líkt og rekstur loftvarnarkerfis-
ins sem Íslendingar tóku við rekstri
á eftir brotthvarf Bandaríkjahers. Þá
sá stofnunin um rekstur mannvirkja
NATO hér á landi. Núverandi ríkis-
stjórn lagði stofnunina niður undir
lok ársins 2010. Árið 2009 var unnin
áhættumatsskýrsla fyrir Ísland. Matið
var liður í að leggja mat á hættur sem
steðja að landinu. Þá var gerð tilraun
til að horfa út fyrir hefðbundin varn-
ar- og hernaðarmál.
Áhættumatshópurinn skoðaði
meðal annars öryggismál fjármála-
kerfisins, heilbrigðisöryggi sem og
matvæla- og netöryggi. Þá var sér-
staklega litið til þess sem kallað er
aðlögun útlendinga að íslensku sam-
félagi. Þar er átt við fyrirbyggjandi
aðgerðir gegn því að þeir aðilar sem
hingað flytja finni sig einangraða og
ekki hluta af samfélaginu. Slíkt er
talið geta ýtt undir ofbeldi og samfél-
agstengd vandamál. Þjóðaröryggis-
nefnd tekur mið af mati áhættumats-
hópsins við vinnu sína. Nefndin mun
ekki skila fullbúinni stefnu held-
ur móta aðferðarfræðina og koma
með tillögur að því hvaða verkefni og
málaflokka þarf að móta sérstaklega.
Byggir á herlausu Íslandi
„Ég gerði á sínum tíma þinginu
grein fyrir því að ég teldi að í kjöl-
far breyttra aðstæðna á alþjóðavett-
vangi og breytinga innanlands sem
fólu í sér niðurlagningu Varnarmála-
stofnunar og stofnun nýs innanríkis-
ráðuneytis, auk áhættumatsskýrslu
ráðuneytisins sem kom út árið 2009,
væri tímabært að ráðast í stefnumót-
un af þessu tagi. Ég tók það mjög
skýrt fram að það væri skoðun mín
að sú stefna ætti í senn að byggjast á
herleysi landsins og sömuleiðis vera
framfylgt af borgaralegum stofnun-
um á grundvelli borgaralegra gilda,“
sagði Össur í þinginu um nefndina
á sínum tíma. Hann lagði sérstaka
áherslu á að sem breiðust sátt næðist
um þjóðaröryggisstefnu.
Nefndin, sem Valgerður Bjarna-
dóttir stýrir, á samkvæmt samþykkt-
um Alþingis að skila niðurstöðum
sínum um mánaðarmót september
og október. Valgerður segir nefndina
stefna að því að klára verkið á tilsett-
um tíma. Í nefndinni eiga sæti fulltrú-
ar allra þingflokka kosnir af Alþingi
en formaður er skipaður af utanríkis-
ráðherra. Þá má sjá hér fyrir ofan.
2 Fréttir 7.–9. september 2012 Helgarblað
Kosningastjórinn
fékk lóð
3 Fyrrverandi kosninga-
stjóri Ármanns Kr.
Ólafssonar, bæjar-
stjóra í Kópavogi,
fékk úthlutað lóð
frá bænum í júní.
Kosningastjór-
inn, Viggó Einar
Hilmarsson, er framkvæmdastjóri
byggingafélagsins Silfurhúsa sem
mun reisa 35 íbúða fjölbýlishús
í Þorrasölum 9 til 11 í Kópavogi.
Viggó, sem er fyrrverandi starfsmað-
ur Straums-Burðaráss og Lands-
bankans, sat með Ármanni í stjórn
Sambands ungra sjálfstæðismanna
á árunum 1993 til 1995. Áætlaður
kostnaður vegna byggingar hússins
nemur á annan milljarð króna.
Ardvis endar
með ósköpum
2 Fjármunir hlut-hafa fjárfestingar-
félagsins Ardvis voru
meðal annars notaðir
til að greiða meðlög,
skatta, bíl, húsnæði
og mat fyrir fram-
kvæmdastjórann og
stærsta hluthafann, Bjarna Þór Júlí-
usson. Aðstandendur Ardvis höfðu
safnað 130 milljónum króna í hluta-
fé í lok árs 2010 samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins, Ardvis hf., fyrir það ár.
Félagið varð gjaldþrota fyrr á þessu
ári og segir Sveinbjörg Sveinbjörns-
dóttir, skiptastjóri Costa rekstrarfél-
ags Ardvis, að skiptum á félaginu
ljúki brátt. Hún segir að starfsemi
Costa verði kærð til lögreglunnar á
næstunni.
Rændur ferm-
ingargjöfinni
1 Þegar Jón Frí-mann Jónsson
fermdist fyrir ári gat
hann látið draum
sinn rætast. Hann fór
með alla peningana
sem hann hafði feng-
ið í fermingargjöf
og keypti sér Znen-
vespu. Eftir það opnaðist fyrir hon-
um nýr heimur, hann komst lengra
en áður og hann fann til sín sem
sjálfstæður ungur maður, frjáls og
óháður skutli foreldranna og strætis-
vagnaferðum. En nú hefur vespunni
hans verið stolið og Jón Frímann
situr eftir með sárt ennið. DV fjall-
aði um málið á mánudag. Vespan
kostaði um 190.000 krónur og ekki
hlaupið að því að kaupa nýtt hjól.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Í tveggja og
þriggja ára
fangelsi
Daniel Arciszewski var á fimmtu-
daginn dæmdur til þriggja ára
fangelsisvistar og Snorri Sturlu-
son til tveggja ára fangelsisvistar
fyrir að hafa ráðist inn á heimili
karlmanns á sjötugsaldri, haldið
honum föngnum og þvingað hann
til að millifæra 453 þúsund krónur
inn á reikninga sína. Gæsluvarð-
hald yfir mönnunum, frá 7. og 8.
júlí, dregst frá fangelsisvistinni.
Mönnunum var einnig gert að
greiða fórnarlambi sínu, tæpar
1,3 milljónir króna í miskabætur.
Daniel var einnig dæmdur fyrir
vörslu á amfetamíni í söluskyni
og tveggja kannabisplantna sem
fundust á heimili hans.
Sveitarstjórnin
mótmælir upp-
sögn hjá RÚV
„Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps mótmælir ákvörðun
Ríkisútvarpsins um að leggja
niður starf fréttaritara á Suður-
landi.“ Svo hljóðar bókun sveit-
arstjórnarinnar vegna þeirrar
ákvörðunar RÚV að segja upp
fréttaritara sínum á Suðurlandi í
hagræðingarskyni. Magnús Hlyn-
ur Hreiðarsson hefur staðið vakt-
ina á Suðurlandi um árabil en
sérstakar og skemmtilegar fréttir
hans úr mannlífinu á Suðurlandi
hafa vakið athygli í gegnum tíðina.
Magnús Hlynur sagði í samtali við
vef Eiríks Jónssonar á mánudag
að hann væri bæði sár og svekktur
yfir því hvernig komið hafi verið
fram við sig. Ástæða uppsagnar-
innar hafi verið sparnaður. Magn-
ús Hlynur hefur þó áfram í nógu
að snúast enda ritstjóri Dagskrár-
innar, fréttablaðs Suðurlands.
n Net- og matvælaöryggi til skoðunar n Þjóðaröryggisstefna í mótun
„Áhættumats-
hópurinn skoðaði
meðal annars öryggis-
mál fjármálakerfisins,
heilbrigðisöryggi sem og
matvæla- og netöryggi.
ÞINGMENN ÁBYRGIR
FYRIR ÞJÓÐARÖRYGGI
Sprengjutilræði Þjóðar-
öryggisnefnd skoðar hættur í
víðara samhengi en sprengjutil-
ræði líkt og í janúar síðastliðnum.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Þingmennirnir sem vinna að mót-
un þjóðaröryggisstefnu Íslands
Valgerður
Bjarnadóttir
Formaður
- Samfylking
Mörður
Árnason
Samfylking
Magnús Orri
Schram
Samfylking
Einar K.
Guðfinnson
Sjálfstæðis-
flokkur
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
Sjálfstæðis-
flokkur
Árni Þór
Sigurðsson
Vinstri græn
Guðfríður
Lilja Grétars-
dóttir
Vinstri græn
Eygló
Harðardóttir
Framsóknar-
flokkur
Gunnar Bragi
Sveinsson
Framsóknar-
flokkur
Birgitta
Jónsdóttir
Hreyfingin