Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Page 6
Dóttirin tekin aftur
n Mæðgur grunaður um stórfelldan þjófnað
Þ
ingfesting var í máli mæðgn-
anna Emmu Trinh Thi Nguyen
og Jennýjar Ngoc Anh Mána-
dóttur í Héraðsdómi Reykja-
víkur á miðvikudag. Mæðgurnar eru
ákærðar fyrir að hafa stolið vörum
úr búðum í Kringlunni og Smáralind
fyrir rúmlega 14 milljónir króna. Þær
voru fyrst teknar þann 20. október
síðastliðinn í Smáralind. Þá voru
þær með þýfi á sér fyrir um 200 þús-
und krónur og höfðu notað sérút-
búna poka klædda álpappír til þess
að verjast þjófavörnum verslananna.
Leitað var heima hjá þeim þar sem
meira þýfi fannst og þeim svo sleppt
í kjölfarið. Nokkrum dögum seinna
voru þær aftur kallaðar til skýrslutöku
og leitað á ný á heimilum þeirra og
fannst þá gríðarlegt magn þýfis sem
hafði ekki verið á staðnum í fyrri hús-
leitum. Þær höfðu því augljóslega fært
varninginn á milli geymslurýma.
Við þingfestingu á miðvikudag
kom fram að Jenný var að auki kærð
fyrir að hafa stolið í Debenhams í
Smáralind fyrir rúmar 8 þúsund krón-
ur þann 21. apríl síðastliðinn.
Móðirin, Emma, er einnig ákærð
fyrir að hafa verið með 21 kannabis-
plöntu í sérútbúnu herbergi á heimili
sínu. Aðalmeðferð í málinu fer fram
um miðjan september en mæðgurnar
tóku ekki afstöðu til ákærunnar held-
ur báðu um frest þar til aðalmeðferð
færi fram. Samkvæmt lögreglunni
hefur ekkert komið fram við rannsókn
málsins sem gefur til kynna að fleiri
séu viðriðnir málið. Fyrst var talið að
fleiri kæmu að málinu en ekkert hefur
fundist sem styrkir þann grun.
viktoria@dv.is
6 Fréttir 7.–9. september 2012 Helgarblað
Huldu andlit sitt Mæðgurnar huldu
andlit sitt þegar þær gengu út úr dómssal á
miðvikudag.
M
y
n
d
E
y
þ
ó
r
Á
r
n
a
so
n
É
g myndi í ykkar sporum á DV
láta mig eiga sig. Þið hafið
alveg yljað mér nóg í öllum
ykkar blaðaskrifum. Þannig
að ég mun ekki svara einni
einustu spurningu frá þér. Þakka
þér samt fyrir að gera heiðarlega
tilraun,“ segir Magnús Kristinsson,
fyrrverandi eigandi útgerðarfé-
lagsins Bergs-Hugins í Vestmanna-
eyjum, sem seldi fyrirtækið til
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í
síðustu viku. Kaupverð fyrirtækis-
ins var þá sagt trúnaðarmál.
DV lék hugur á að vita af hverju
Magnús hefði selt fyrirtæki sitt til
Síldarvinnslunnar en ekki aðila í
Vestmannaeyjum sem eru áhuga-
samir um að kaupa útgerðarfélag-
ið. Upplýsingar um hvers vegna
Magnús ákvað að selja útgerðina til
Síldarvinnslunnar fást hins vegar
ekki frá Magnúsi.
Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
segir að kaupin hafi átt sér stað
þannig að Magnús hafi komið
að máli við forsvarsmenn Síldar-
vinnslunnar og boðið þeim fyr-
irtækið til kaups. „Magnús kom
að máli við okkur og við náðum
bara saman.“ Gunnþór segir að
engir bankar hafi verið millilið-
ir í viðskiptunum. „Við áttum bara
í samningaviðræðum við Magnús
Kristinsson um þetta mál.“ Gunn-
þór segir aðspurður að kaupverðið
verði ekki gefið upp.
Bærinn leitar réttar síns
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að bæjarfélag-
ið muni leita réttar síns í málinu á
tvenns konar hátt. Annars vegar
muni bærinn láta reyna á for-
kaupsrétt sinn á Bergi-Hugin fyr-
ir dómi og hins vegar láta athuga
hvort Samherji, stærsti hluthafi
Síldarvinnslunnar, sé með kaup-
unum kominn yfir það lögbundna
hámark sem einstaka útgerðarfé-
lög mega eiga af aflaheimildum.
Elliði vísar til þess að í 12. grein
laga um stjórn fiskveiða komi fram
að þegar skip og aflaheimildir
eru seld út úr sveitarfélagi eigi að
athuga hvort sveitarstjórn á við-
komandi stað sé áhugasöm um að
kaupa útgerðina.
Veðsett upp fyrir haus
Skip Bergs-Hugins, Smáey, Bergey
og Vestmannaey, eru veðsett Ís-
landsbanka og Landsbanka Íslands,
gamla Landsbankanum. Skuldir fé-
lagsins námu tæplega 7.300 millj-
ónum króna í lok árs í fyrra. Íslands-
banki á fyrstu veðréttina í skipunum
og þeim 5.000 tonna kvóta sem þeim
fylgir, samkvæmt veðbókarvottorði
þeirra. Landsbanki Íslands, gamli
Landsbankinn, á einungis 12. og 13.
veðrétt í öðru af skipunum tveimur.
Salan á Bergi-Hugin er því veru-
legt hagsmunamál fyrir Íslands-
banka. Salan þýðir að annaðhvort
hefur Magnús selt Berg-Hugin og
gert upp við bankann, með tilheyr-
andi afléttingu veða, eða að skuld-
irnar og veðin á skipunum fylgi þeim
yfir til nýs eiganda, Síldarvinnslunn-
ar. Útgerð Magnúsar var því á endan-
um í reynd eign Íslandsbanka.
Eitt af vandamálunum sem
skilanefnd Landsbankans stóð
frammi fyrir í skuldauppgjörinu við
Magnús – útgerðarmaðurinn og fé-
lög honum tengd skulduðu bankan-
um um 50.000 milljónir króna – var
að bankinn hefði ekki fengið mikið
út úr Bergi-Hugin ef Magnús hefði
verið settur í þrot. Ástæðan er sú að
bankinn var aftarlega í veðréttarröð
skipa Bergs-Hugins og hefði bank-
inn því ekki fengið mikið fé út úr út-
gerðarfélaginu heldur hefði Íslands-
banki fengið mest af söluandvirði
eigna þess.
Bankinn sver söluferlið af sér
DV leitaði eftir svörum frá Íslands-
banka og skilanefnd Landsbankans
um hvort viðkomandi fjármálafyr-
irtæki hefðu komið að söluferlinu á
Bergi-Hugin með einhverjum hætti.
Heimildir DV herma að Íslands-
banki hafi ekki komið að söluferlinu
með neinum hætti þrátt fyrir hags-
muni bankans í málinu. Ekki fást
upplýsingar um það hvort vskuld-
ir Bergs Hugins við bankann hafi
verið greiddar upp í viðskiptunum,
að hluta eða öllu leyti., með fjár-
munununum sem fengust fyrir fyrir-
tækið.
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi gamla Landsbankans, svaraði
því til að bankinn hefði ekki komið að
söluferlinu á Bergi-Hugin með nein-
um hætti. „LBI hf er ekki aðili í samn-
ingum BH og Síldarvinnslunnar og
hefur ekkert með málið að gera.“ n
Magnús bauð Síldar-
vinnslunni Berg-Hugin
n Bergur-Huginn veðsettur Íslandsbanka
„Við áttum
bara í samn-
ingaviðræðum við
Magnús Kristins-
son um þetta mál
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hagsmunir Íslandsbanka
Bergur-Huginn, útgerð Magnúsar
Kristinssonar, var veðsettur
Íslandsbanka og átti bankinn
verulega hagsmuni innan félags-
ins. Skuldir félagsins námu 7,3
milljörðum króna í lok árs í fyrra.
Með tvöföld laun
forsætisráðherra
Mánaðarlaun Björns Zoëga, for-
stjóra Landspítalans, voru hækkuð
um 450 þúsund krónur í ágúst og
nema heildarlaun hans nú rúm-
lega 2,3 milljónum á mánuði, sem
er um það bil tvöföld laun for-
sætisráðherra. Það er Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra sem
tók ákvörðunina um launahækk-
unina og segist í samtali við RÚV
bera á henni pólitíska ábyrgð. Rík-
isútvarpið segir frá því að Birni
hafi verið boðin staða forstjóra
stórs spítala í Svíþjóð og um leið
verulega launahækkun. Björn lét
Guðbjart Hannesson vita að hann
íhugaði tilboðið og tók Guðbjartur
þá ákvörðun um að hækka laun
Björns í kjölfarið.
Rauf þúsund
mola múrinn
Eiður Guðnason, fyrrverandi
sendiherra, ráðherra og núverandi
bloggari, hefur náð 1000 mola
múrnum með nýjustu blogg færslu
sinni í Molum um málfar og
miðla. Þær eru fáar stafsetningar-
og málfræðivillurnar sem fara
fram hjá vökulum augum Eiðs og
molavina hans og það má segja að
hann veiti blaða- og fréttamönn-
um stöðugt aðhald með einlæg-
um áhuga sínum á bættu málfari
fjölmiðlafólks. Mikil eftirvænting
var eftir þúsundasta molanum
og bauð heimasíðan gogn.in upp
á þjónustu þar sem fólk var látið
vita í gegnum snjallsíma hvenær
pistillinn myndi birtast.